Tíminn - 05.08.1987, Blaðsíða 18
18 Tíminn
Miðvikudagur 5. ágúst 1987
SAMTININGUR
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
■1 BIÓ/LEIKHÚS 111111111
LAUGARAS=
Hún giftist stjúpsyni sínum
Salur A
Andaborð
Ný bandarísk dulmögnuö mynd. Linda hélt
aö andaborö væri skemmtilegur leikur. En
andamir eru ekki allir englar og aldrei að vita
hver mætir á staðinn. Kyngimögnuö mynd.
Aðalhlutverk: Todd Allen, Tawny Kitaen,
Stephen Nichols.
sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
Bönnuð Innan 16 ára.
Salur B
Gustur
Þegar Eileen Lloyd varð
ekkja, varð hún einnig
annað og meira en
stjúpmóðir Noels, sem
alltaf hafði búið heima við.
í 20 ár komu eldgömul lög
í veg fyrir að þau gætu
gifst, en nú verður haldið
brúðkaup
- Það er alveg ótrúlegt að við
getum loksins gift okkur eftir öll
þessi ár saman, segir hin 69 ára
gamla Eileen Lloyd og lítur á
stjúpson sinn með ekki einungis
móðurlegri ásfúð í augnaráðinu.
Hún dáist að trúlofunarhringn-
um og talar af ákafa um brúðar-
kjólinn, sem verið er að sauma
handa henni.
Noel, sem er 66 ára, segir þau
stjúpmóður sína svo sæl núna,
að þau hugsi ekki um annað en
brúðkaupið. - Við erum fremur
gamaldags í okkur og geðjaðist
ekki að tilhugsuninni um að lifa
í óvígðri sambúð alla ævina,
bætir hann við, - Það að geta
gifst, skiptir okkur meira máli
en fólk getur ímyndað sér.
Bresk lög hafa til skamms
tíma ekki leyft að nátengt fólk í
sömu fjölskyldu giftist, þó svo
ekki væri um neinn skyldleika að
ræða. En fyrir skömmu voru
þessi lög, sem eru allt frá 1662,
numin úr gildi.
- Ég hætti að hugsa um Eileen
sem stjúpmóður mína, þegar
pabbi dó, segir Noel og Éileen
bætir við: - Eitthvað innra með
mér tók alltaf í taumana, því ég
átti lengi erfitt með að líta á
stjúpson minn sem elskhuga og
sambýling. Prátt fyrir allt var ég
gift föður hans í 15 ár. Hún segir
þetta alvarlega.
Eileen og Noel eiga notalegt
heimili skammt fyrir utan Liv-
erpool og þar ólst Noel upp.
Eileen hefur orðið: - Faðir
Noels, Norman Lloyd, var
bankastjóri og ekkill, þegar ég
kynntist honum árið 1940. Þó
aldursmunurinn væri 30 ár, var
hjónaband okkar mjög farsælt.
Við giftum okkur 1942 í sömu
kirkjunni og við Noel ætlum nú
að giftast í.
Eg átti 15 auðug ár með föður
Noels, áður en ég varð ekkja 39
ára. Noel bjó alltaf heima, nema
þrjú fyrstu stríðsárin. Eftirstríð-
ið hélt hann áfram námi og fékk
starf sem lektor í Liverpool, svo
hann hélt bara áfram að búa
heima hjá okkur.
Þó ég væri ung sem stjúpmóð-
ir Noels, var samband okkar
þriggja einkar gott frá því fyrsta.
Noel tekur við: - Það hljómar
ef til vill undarlega, en mér leið
svo vel hérna heima eftir að ég
fullorðnaðist, að mér datt aldrei
í hug að flytja. Það var afskap-
lega notalegt heima hjá Eileen
og pabba.
Éileen hlær: - Já, þér hentaði
ágætlega að koma heim á hverj-
um degi að dúkuðu borði, upp-
búnu rúmi og pressuðum fötum
í skápnum, segir hún snögg upp
á lagið. Hún viðurkennir fúslega
að hún hafi skammað feðgana
eftir nótum. Sposk á svip spyr
hún Noel, hvort hann hafi nokk-
urn tíma burstað skóna sína
sjálfur eftir að hún kom á heimil-
ið.
Noel brosir og játar að hann
hafi aldrei þurft að hugsa um svo
hversdagslegan hlut, þegar af-
burðadugleg kona og fyrirtaks
húsmóðir var á heimilinu.
Þegar ég kynntist ungum
stúlkum, eftir að pabbi og Eileen
giftu sig, verð ég að segja, að ég
bar óskjálfrátt vinkonur mínar
saman við stjúpmóður mína,
sem var raunar ekki nema þrem-
ur árum eldri en ég. Hún var hin
fullkomna húsmóðir í mínum
augum og stúlkurnar sem ég
bauð heim, fundu eflaust til eins
konar samkeppni við hana. Þeg-
ar pabbi lá veikur síðustu árin
sem hann lifði, bundust við Ei-
leen enn traustari böndum.
- Þegar maðurinn minn dó
1957, fann ég ekki til þess sakn-
aðar og tómleika sem fylgir
venjulega missi maka. Noel er
svo líkur föður sínum, bæði í
útliti, skaplyndi og persónu-
leika, að sannast að segja leit ég
strax á hann sem eins konar
staðgengil Normans. Þess vegna
varð fráfall Normans ekki eins
mikið áfall og ella hefði orðið.
Við Noel héldum lífinu áfram
eins og áður, fórum árlega í
sumarleyfi á sömu staðina og
bjuggum á sömu hótelunum við
suðurströndina og við höfðum
alltaf gert, meðan við vorum
þrjú.
Hvenær varð svo samband
þeirra annað og meira en vin-
átta? Þau líta alvarleg hvort á
annað og Noel, sem nú er skóla-
stjóri á eftirlaunum, verður eilít-
ið vandræðalegur. Síðan brosir
hann til unnustu sinnar og vonar
að hún svari.
- Hvað mig varðar, gerði ég
mér grein fyrir tilfinningunum
um það bil fjórum árum eftir
dauða föður hans, segir Eileen
lágt.
Noel bætir við: - Við ákváð-
um að gifta okkur fimm árum
eftir að pabbi dó. Þá var vináttan
orðin að raunverulegri ást og við
vorum bæði viss um að við
vildum vera saman alla ævina.
En þegar undirbúningurinn var
hafinn, var ég skyndilega kallað-
ur til skrifstofu prestsins og
tilkynnt, að samkvæmt lögunum
væri hjúskapur milli okkar Eil-
een óhugsandi, vegna þess að
hún hafði verið eiginkona föður
míns. Þetta varð okkur þungt
áfall. Við vorum alls ekkert
skyld.
Við sóttum um undanþágu,
en henni var hafnað, heldur
Noel áfram, en bætir svo við að
þessi eldgömlu lög hafi að
minnsta kosti ekki megnað að
kæfa ástina. Hann fór að athuga
möguleika á að þau gætu gift sig
erlendis. - Við hefðum svo sem
getað gert það í allmörgum Evr-
ópulöndum, segir hann, - að
ekki sé talað um Las Vegas og
nokkur fylki Bandaríkjana að
auki. En hvert sem við hefðum
farið, hafði hjónabandið ekki
fengist viðurkennt hér heima og
þess vegna hafði slíkt engan
tilgang fyrir okkur.
Mörgum sinnum reyndi Noel
að fá lögunum breytt með því að
skrifa þingmönnum og fara á
fund þeirra, en allt kom fyrir
ekki.
En nýlega voru lögin numin
úr gildi og kom mjög á óvart. -
Ég verð að viðurkenna, segir
Eileen brosandi, - að við Noel
höfum lifað sem hjón í meira en
20 ár, ógift. Nýlega endurnýjuð-
um við trúlofunina og þá var ég
fullkomlega hamingjusöm, því
ég vissi að í þetta sinn gat ekkert
komið í veg fyrir brúðkaupið.
Hvað um framtíðina? - Við
lifum lífinu framvegis eins og
við höfum gert hingað til, segir
Eileen. - Bæði erum við áhuga-
fólk um garðrækt og höfum auk
þess gaman af að ferðast. Hin
raunverulega brúðkaupsferð
verður þó ekki farin fyrir en
1990, en þá ætlum við til Japans,
á mikla alþjóðlega garðyrkju-
sýningu. Þangað skulum við
komast, þó ég verði að leggja til
hliðar af heimilispeningunum
frá og með deginum í dag.
Noel brosir og tekur undir að
ekkert nema dauðsfall geti kom-
ið í veg fyrir að Japansferðin
verði að raunveruleika.
Ný hrollvekja um ungan rithöfund sem leitar
næðis á afskekktum stað til að skrifa.
Aðalhlutverk: Meg Foster, Wings Hauser
og Roberl Marley
Sýnd kl. 5,7,9 og 11
Bönnuð Innan16ára
Salur C
Meiriháttar mál
Morð er ekkert gamanmál, en þegar það
hefur þær afleiðingar að maður þarf að eyða
hálfri milljón dollara fyrir mafíuna, verður
það alveg sprenghlægilegt.
Aðalhlutverk: Steve Donmeyer, Joe
Phelan, Christlna Cardan.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11
uratt gaman og mögnuð spenna. Stórgóð
tónlist. Mynd sem kemur blóðinu á
hreyfingu.
★★★★ Chicago Tribune
★★★'/> Daily News.
★★★ New York Post.
Leikstjóri Jónathan Demme.
Aðalhlutverk Melanie Griffith, Jeff
Daniels, Ray Liotta.
Frumsýnd kl. 7,9 og 11.10
Bönnuð innan16ára
Dolby Stereo
ílða HASXðUBtÖ
HllHHlffl SÍMI2 21 40
Frumsýnir grin og spennumyndina
Something wild
Villtir dagar