Tíminn - 05.08.1987, Page 20
HH
r
ULFAR Jónsson sigraöi örugg-
lega á landsmótinu í golfi sem lauk á
Jaðarsvelli um helgina. Þórdís Geirs-
dóttir varö hlutskörpust í meistara-
flokki kvenna.
Frank Upton hefur veriö ráöinn
þjálfari 1. deildarliðs ÍBK út keppnis-
tímabilið.
Sjá íþróttir bls. 10-11
timMmmmmmmmmmmemwmtmmmmmmmKmmmKmmmmmMtsmmmmmssmmmmmmimmmm bmbh—
Millisvæðamótiö í Szirák:
Jóhann nálgast
heimsmeistarann
1917 / KJ 1987
ÁDA
Tímliin
Jóhann Hjartarson tók enn eitt
skrefið í áttina að heimsmeistaran-
um í skák þegar hann vann Brasi-
líumanninn Milos í B.umferð
millisvæðamótsins í Szirák í Ung-
verjalandi í gær. Jóhann er nú einn
í efsta sæti mótsins með 10 vinninga
þegar fjórar umferðir eru eftir.
Að sögn Elvars Guðmundssonar
aðstoðarmanns Jóhanns í Ung-
verjalandi á Jóhann nú mjög góða
möguleika á að ná einu af þremur
efstu sætunum og komast áfram á
áskorendamótið í Kanada. Allt
geti þó gerst í þessum fjórum
umferðum sem eru eftir og nú fari
mjög að reyna á taugar og úthald
efstu manna.
Efstu menn eiga eftir að tefla
nokkuð saman og á Jóhann til að
mynda eftir að tefla við Nunn og
Beljavsky. Hann á hvítt á móti
þeim tveimur og ef hann nær
jafntefli úr þcim skákum og einn
vinning úr hinum umferöunum
tveimur þá er hann öruggur
áfram.
Jóhann stýrði hvítu mönnunum
í gær á móti Milos sem hugðist
verjast ágangi hans með Aljekin-
vörn. Eftir einbeitta taflmennsku
Jóhanns varð Milos að gefa eftir í
vörninni og gafst hann upp fyrir
Jóhanni eftir fjörutíu leiki.
Þetta var áttunda skákin sem
Jóhann vinnur á þessu sterka milli-
svæðamóti. Hann hefur aðeins tap-
að einni skák og gert fjögur jafn-
tefli. Jóhann mun tefla við Benj-
amín á morgun.
Eins og áður sagði er Jóhann í
efsta sæti mótsins með 10 vinninga,
en á hæla honum kemur Nunn frá
Englandi með 9 1/2 vinning. Þá
deila þeir Salov og Beljavski frá
Sovétríkjunum þriðja sætinu með
9 vinninga hvor. Þá er kemur
Portisch frá Ungverjalandi með 8
vinninga og biðskák.
Ef Jóhann kemst áfram á áskor-
endamótið í skák hefur hann skip-
að sér á bekk mcð sextán bestu
skákmönnum heims og mun hefja
baráttu fyrir réttinum að tefla um
heimsmeistaratitilinn í skák.
-HM
Það á eftir að reyna á taugar Jóhanns síðustu umferðirnar á mótinu
iMHMHMSiemBMaaraMEmÉMiMMMwwaaaMMMnaMtfiMMNMMHiiNN
</■
SUMARFERÐ '87
Laugardaginn 8. ágúst nk.
FJALLABAKSLEIÐ SYÐRl
upp úr Fljótshlíð um Emstrur og Mælifellssand
komið niður í Skaftártungu
Gunnar í
læri hjá
meistara
Ávörp flytja: Guðmundur G.
Þórarinsson og
Jón Helgason
Lagt af stað frá Nóatúni 21 klukkan 8.
Verð kr. 1.200,- fyrir fullorðna, Mætið stundvíslega
kr. 700,- fyrir 7-15 ára og og munið eftir að
ókeypis fyrir þá yngstu. taka með ykkur nesti
Nánari upplýsingar og skráning í síma 24480.
Gunnar Guð-
björnsson (f.
ofan). Heims-
söngvarinn Nic-
oiai Gedda miðl-
ar honum nú af
visku sinni
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN
ÍREYKJAVÍK
BSÍ HÓPFERDABILflR
“ -ÍŒl
Stuttort
skeyti var sent
frá Vínarborg í
Austurríki til
íslands í gær
þar sem Gunn-
ar Guðbjöms-
son, tenór-
söngvari, til-
kynnti skyld-
fólki sínu að
Nicolai Gedda
hafði hlustað á
sig syngja og
valið hann út af
mörgum
kölluðum á
söngnámskeið
til sín.
Gunnar
Guðbjörnsson
hefur lært söng
undanfarin ár
hjá Vincenzo
Maria Demetz. Hann hefur oft sung-
ið opinberlega og í útvarpi. Gunnar
lét hljóðrita söng sinn fyrir nokkru
og sendi upptökuna til Vínar vegna
námskeiðs Gedda, en var samt sem
áður gert að leggja land undir fót
upp á von og óvon til að syngja fyrir
heimssöngvarann, svo hann gæti
sjálfur skorið úr um hvort hann vildi
taka við Gunnari til læris eða ekki.
Nicolai Gedda þarf ekki að kynna.
Hann hefur lengi verið talinn til
fremstu óperusöngvara heims og
jafnvel sá fjölhæfasti, enda jafnvígur
á sænsk, þýsk, rússnesk, ítölsk og
frönsk söngverk og sagður tala þar
að auki sex tungumál. Gedda varð
að aflýsa tónleikum sínum með Sin-
fóníuhljómsveit íslands fyrir stuttu,
enda farinn að reskjast. Hann hefur
staðið á söngsviðinu frá því 1952.
Gunnar Guðbjörnsson var ekki
viðlátinn í allan gærdag, enda hófst
námskeið Nicolai Gedda strax í gær.