Tíminn - 02.03.1988, Blaðsíða 1

Tíminn - 02.03.1988, Blaðsíða 1
AUKABLAÐ AUKABLAD AUKABLAD AUKABLAÐ AUKABLAD AUKABLAD Vikulaunin duga í dag aðeins Jakkafötin kostuðu 70 tíma vinnu 1987 í stað 40 tíma vinnu 1977-81: Lögreglan í Reykjavík hefur nú í hyggju að breyta svolítið stefnu sinni í bílamálum og fer fljótlega að sjá þess stað í borgarlífinu. Helsta stefnubreytingin er sú að fyrirhugað er að endumýja bílaflotann mun örar en til þessa. Að sögn Boga Bjarnasonar aðalvarðstjóra og yfir- manns í bílamálum, er ætlunin að sækjast eftir leyfi til fjárveitingar- valdsins um að lögreglubílamir verði ekki notaðir meira en sem nemur 300 þúsund kílómetra keyrslu eða að þeir verði ekki eldri í starfi en þriggja ára. Er hér um verulega breytingu að ræða þar sem bílarnir hafa til þessa verið keyrðir út að kalla og menn hættir að telja hversu oft þeir hafa rúllað yfir hundraðið. Stefnt er að því að í ár verði fengnir 12-14 nýir bílar af ýmsum gerðum, enda komið að endumýj un. Þegar er búið að ganga frá kaupum á fjórum Ford Econoline 150 eins og mikið hafa verið í notkun síðast liðin ár. Dulbúinn „hvítingur“ Það sem þó verður að teljast til nýmæla er að nú er í fyrsta sinn í langan tíma sem líkur eru á að pantaður verði sérsmíðaður lögreglubíll frá Svíþjóð. Er hann að grunni til af gerðinni Volvo 240 GLT en að ýmsu leyti frábmgðinn að innri gerð. Upphaflega er bíllinn með stærstu vél í þessum stærðar- flokki Volvobíla. Vélin er rúmlega 2,3 lítra að rúmmáli og með beina tölvustýrða innspýtingu á bensín- blöndunni. Þannig útbúin skilar venjulega gerðin um 133 hestöflum, en ekki er vitað um endanlega útkomu á löggugerðinni. Þá em bílar þessi búnir út með sérstökum styrkingum á grindarbitum, sérlega sterkum höggdeyfum og gormum og öll innrétting er þannig að sem best henti starfinu. Ef bíllinn verður á annað borð keyptur til landsins, hefur verið ákveðið að hann verði í einu og öllu eins útbúinn og þeir Volvobílar, sem lögreglan í Dan- mörku notar. Þannig útbúinn þolir hann betur hraðan akstur, skelli og styttri flug en aðrir bílar, enda getur þurft að beita bílum að mikilli óeig- ingimi í þessu starfi. „Ótrúlegt - herraföt frá 8.900 kr.“ sagði í auglýsingu um síðustu útsöludaga þekktrar fataverslunar nýlega. Þegar betur er að gáð virðist hins vegar það allra „ótrú- legasta“ að þær krónur (sem svara til meira en 40 stunda verkamanna- launum), sem nú duga aðeins fyrir ódýrasta útsölufatnaði á síðasta útsöludegi nægðu mönnum hins vegar til að kaupa venjuleg jakka- föt fyrir daga hins langþráða álagn- ingarfrelsis kaupmanna. Fyrir slík föt utan útsölutíma hafa menn aftur á móti þurft að borga sem svarar 70 stunda verkamannalaun- um að meðaltali, síðustu 2 árin. Það er um 60-70% meira á þeim mælikvarða en fyrir „frelsið". „Frjálsar útsöluflíkur^ jafn dýrar og algeng „ófrjáls" föt áður í Hagtíðindum birtist árlega yfir- lit um meðalverð fjölmargra vöru- tegunda, m.a. það sem kallað er „Karlmannaföt, einföld gerð“. í nóvember s.l. kostuðu þau 14.060 kr. - árið 1983 4.170 kr. - árið 1980 1.017 kr. og árið 1977 kostuðu þau 310 kr. (31.031 gamiar krónur). Framreiknað eftir vísitölu fram- færslukostnaðar var verð þessara jakkafata nokkuð stöðugt allt frá árinu 1977 og til 1985, þ.e. hljóp á bilinu 9.400 kr. til 10.400 kr., eða litlu meira en það „ótrúlega" verð sem menn þurfa nú í ársbyrjun að borga fyrir þær flíkur sem ódýrast- ar eru á síðasta útsöludegi. Meðal- Skjalda stóð sig Ekki verður þessi bíll þó fyrsti sérpantaði lögreglubíllinn í sögu lög- reglunnar í Reykjavík. Einir af fyrstu bílum hennar voru af Dodge gerð og komu þeir frá Ameríku í tíð Agnars K. Hansens að því er blað- mann minnir. Þá hefur einn Volvo verið keyptur inn af sænskri lögreglubílagerð, en það var um 1978-9. Sá bíll var auðþekkjanlegur á því að hann kom til landsins með svörtum brettum og hvítum dyrum, vélarloki og „skotti“. Hann hlaut líka strax viðurnefnið Skjalda og helst þannig enn í minni lögreglu- manna, löngu eftir að hann er hættur að þjóna réttvísinni vítt og breitt í þjóðvegaeftirliti ríkislögreglunnar. KB Flestir Volvobflarnir verða af gerðinni 240 GL, en stefnt er að því1 að lögreglan fái að panta einn sérsmíðaðan sem er að grunni til af gerðinni 240 GLT með beinni innspýtingu. Allir verða þeir þó hvítir að sjá úr fjarlægð með sömu bláu hliðarröndinni. verð jakkafata í verslunum hefur hins vegar hækkað upp í sem svarar rúmlega 14.000 kr. síðustu tvö árin. Er m.a. athyglisvert að á milli 1986 og 1987 hækkaði verð á herrafötum í takt við verðbólguna, eða um 23%, þótt gengi í algeng- ustu innflutningslöndun hafi aðeins hækkað um 6-10% á sama tíma og danska krónan mest tæp 14%. Vikulaunin dugðu fyrir „ófrjálsum" fötum... í ritum Hagstofunnar er einnig að finna yfirlit um tímakaup verkamanna undanfarna áratugi til ársloka 1983. Við samanburð þess og verðs karlmannafatanna á hverjum tíma kemur í ljós að öll árin 1977-1981 lét nærri að viku dagvinnulaun verkmannsins dygðu honum til kaupa á þeim jakkaföt- um sem Hagstofan kannar verðið á (og framfærsluvísitalan miðast við), eða 40-42 stunda dagvinnu- laun. Verðið hækkaði í takt við vísitöluna áfram til 1985, en kjara- rýrnunin 1982-1983 olli því hins vegar að menn þurftu þá að leggja af mörkum 59 stunda vinnu (1983) fyrir fötunum. ... en „frjáls" fót kosta nær tveggja vikna laun Til þess að verkamanninum nægðu vikulaun til kaupa á fötum um síðustu jól hefði tímakaupið hans þurft að vera um 350 kr. Dagvinnukaupið var hins vegar aðeins í kringum 200 kr. í raun, svo að hann þurfti að leggja af mörkum nær tveggja vikna dagvinnulaun fyrir fötunum, eða um 70 stundir. Það var m.a.s. nær 20% meira en 1983, þegar kaupmátturinn varð hvað lægstur um mjög langt árabil. ... nema kannski í Glasgow Hvað fatakaup snertir verður því tæpast séð að kostir frjálsrar álagningar og marglofað „góðæri“ 1987, hafi skilað sér nema þá til fatakaupmannanna (enda fjölgaði þeim ótrúlega í fyrra). Vikulaunin duga nú ekki lengur nema fyrir jakkanum svo verkamaðurinn verður að bæta við sig aukavinnu ef hann vill fá buxur líka - nema hann sláist í þann stöðugt stækk- andi hóp sem notar sér aukinn kaupmátt í fataverslunum í Glasgow. - HEI Timiiiti MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988 - 72. ÁRG. Lögreglan í Reykjavík brýtur blaö: BÆTIST „DUL- BÚINN“ GÆÐ- INGUR í LIÐID?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.