Tíminn - 21.06.1988, Síða 3
^Tí.minn- 3
Þriðjudagur 21. júní 1988
ÞRJÁR NAUÐGANIR
Á SÖMU NÓTTINNI
Þrjár nauðganir voru kærðar til Rannsóknarlögreglu ríkisins
eftir sömu nóttina. Tvær nauðganir eiga að hafa átt sér stað í
Hafnarfírði aðfaranótt sunnudags, en sú þriðja í bifreið í
Reykjavík.
Kærurnar tvær í Hafnarfirði voru vegna meintra nauðgana í
heimahúsum. Þetta eru aðskild mál og voru tveir menn úr-
skurðaðir í Sakadómi Hafnarfjarðar í þrjátíu daga gæsluvarðhald.
Þriðja kæran er vegna meintrar
nauðgunar utan við skemmtistað í
Reykjavík. Tveir þeldökkir varn-
arliðsmenn buðu ungri stúlku
bílfar, en munu hafa komið fram
vilja sínum við hana í bílnum.
Mennirnir tveir hafa ekki verið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald, en
málið er í rannsókn.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Tíminn hefur aflað sér virðast-
kærur vegna meintra nauðgunaraf-
brota koma í bylgjum og bendir
allt til að ein slík bylgja gangi yfir
einmitt núna.
Á vegum dómsmálaráðuneytis-
ins hefur starfað nefnd síðan 1984
sem ætlað er að rannsaka kærur
vegna nauðgunarmála. Að sögn
Þorsteins A. Jónssonar fulltrúa
dómsmálaráðherra og jafnframt
ritara nefndarinnar er vonast til að
nefndin Ijúki störfum í ágúst.
Nefndarmenn hafa til þessa unn-
ið hver á sínu sviði að umfangs-
miklum rannsóknum á ýmsum
þáttum sem nauðgunarmál varða
og útbúið skýrslur í því sambandi.
Einn nefndarmanna tók afbrota-
fræðilega þáttinn í þessum mála-
flokki og fór í gegnum naúðgunar-
kærur sem fram komu á ákveðnu
árabili, annar nefndarmanna gerði
víðtæka viðtalskönnun við fórnar-
lömb, þriðji nefndarmaðurinn
kannaði ýmis atriði varðandi
læknismeðferð á fórnarlömbum og
fleiri atriði. Auk þess hafa nefndar-
mcnn kynnt sér ýmsa sérhæfða
þætti í þessum málum erlendis, s.s.
móttöku fórnarlamba á kvenna-
húsi í Osló og læknisrannsóknir á
vegum Scotland Yard lögreglunnar
og formaður nefndarinnar, próf-
essor Jónatan Þórmundsson, hefur
skrifað um þessi mál út frá lög-
fræðilegum sjónarmiðum, svo
dæmi séu tekin.
Þorsteinn A. Jónsson sagði f
samtali við Tímann í gær að í
framhaldi af þessum rannsóknum
væri nefndin að vinna að sinni
tillögugerð sem gengur út á breyt-
ingar á hegningarlögum og mun
nefndin skila frumvarpi þar að
lútandi, en einnig er ætlunin að
skila ákveðnum hugmyndum varð-
andi breytingar á lögum um með-
ferð opinberra mála. Sagði Þor-
steinn að auk þess yrðu í loka-
skýrslunni fjallað um ýmis önnur
atriði sem ckki væri hægt að skýra
frá að svo komnu máli.
Aðspurður sagði Þorsteinn að
nefndinni hefði ekki verið ætlað að
fylgjast með þróun þessara mála
hér á landi, né heldur að kanna
hvort nauðganir væru kærðar yfir-
höfuð. Þessari nefnd var frekar
ætlað, sagði Þorsteinn, að gera
tillögur til úrbóta varðandi með-
ferð þessara mála í dómskerfinu
auk annars, svo sem stöðu fórnar-
lamba og hvernig bæta megi stöðu
þeirra. Að öðru leyti vildi hann
ekki tjá sig nánar um málið að svo
stöddu. - gs/ABÓ
Árekstur í háloftum:
Hugvélar
er saknað
Árekstur varð milli tveggja eins-
hreyfilsvéla, báðar skrásettar í
Bandaríkjunum, um 130 sjómílur
vestur af Keflavík um kl. 19.30 í
gærkvöldi. Önnur vélanna lenti á
Reykjavíkurflugvelli kl. 20.50 með
laskaðan væng en þegar Tíminn fór
í prentun stóð leit yfir að hinni
vélinni. Einn maður var um borð í
hvorri vél, báðir bandarískir.
Vélarnar voru í samfloti á leið frá
Narsasuaq í Grænlandi til Reykja-
víkur þegar slysið varð. Þær flugu
sjónflug og voru fyrir neðan stjórnað
loftrými og því ekki undir stjórn
íslenskuflugumferðarþjónustunnar.
Bæði þyrla og Fokkervél Land-
helgisgæslunnar voru við leit á svæð-
inu þegar Tíminn fór í prentun,
ásamt vél Flugmálastjórnar og þyrlu
varnarliðsins. Eldsneytisvél varnar-
liðsins var einnig á staðnum. Skipið
Bergvík frá Keflavík var á leiðinni
til aðstoðar og hugsanlega átti einnig
að senda Jón Baldvinsson frá
Reykjavík. JIH
Hér má sjá flugvélina sem komst til Reykjavíkur.
Tímamynd: Gunnar
Ólympíuleikar í eölisfræði:
íslenskar stelpur
með í fyrsta sinn
Ólympíuleikar í eðlisfræði verða haldnir í Austurríki dagana 23.
júní til 2. júlí. Þetta er í flmmta sinn sem íslendingar senda Iið til
leikanna og að venju eru það Eðlisfræðifélag íslands og Félag
raungreinakennara sem sjá um allan undirbúning og framkvæmd við
þátttökuna.
Á Ólympíuleikum í eðlisfræði
leiða saman hesta sína framhalds-
skólanemar sem eru undir tvítugs-
aldri í upphafi keppni. Ennfremur
er skilyrði fyrir þátttöku að keppandi
hafi ekki hafið nám á háskólastigi.
Nú munu 27 þjóðir taka þátt í
leikunum. Þeirra á meðal eru flestar
%
stralía, Kína, Kúvait og Víetnam
og úr vestri koma Bandaríkin, Kan-
ada, Kólombía og Kúba. Hver þjóð
sendir 5 manna lið og verða það því
135 keppendur sem fá að spreyta sig
á verkefnunum sem eru tvenns
konar. Fyrri keppnisdaginn þarf að
ASHKENAZY
Á tónleikum Vladimirs Ashken-
azys sl. laugardagskvöld hætti hann
að spila um stund vegna ljósmynd-
ara, sem stóð í ganginum meðfram
neðri sætaröðunum. Þegar Ashken-
azy ætlaði að byrja að spila eftir hlé
sást hann benda manni, sem stóð í
hallanum niður að sviðinu, að fara
MYNDADUR
burt. Ashkenazy byrjaði að spila en
varð að hætta þegar ljósmyndarinn
fór ekki. Ashkenazy bað manninn
þá um að fara og sagði: „Please go.“
Ljósmyndarinn lét sig þá hverfa og
fylgdist Ashkenazy með honum,
þangað til hann hvarf niður tröpp-
urnar út úr salnum. -SH
leysa 3 fræðileg verkefni á fimm
tímum og seinni daginn 2 verklegar
tilraunir á sama tíma.
fslenska liðið er nú skipað 2
framhaldsskólanemum og 3 nýút-
skrifuðum stúdentum. Þau eru :
Agni Ásgeirsson, MR, Ásta Kristj-
ana Sveinsdóttir, MR, Hákon Ás-
grímsson, MA (nýstúdent), Helga
Þórhallsdóttir, MR (nýstúdent),
Stefán Hjörleifsson, MR (nýstú-
dent).
Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskar
stúlkur taka þátt í keppninni.
Val keppenda í íslenska liðið fór
fram að venju með landskeppni í
eðlisfræði sem haldin var í fram-
haldsskólunum með hefðbundnum
hætti í febrúarogmarssíðastliðnum.
Hluti kostnaðar er greiddur með
styrk á fjárlögum með milligöngu
menntamálaráðuneytis.
Fararstjórar í ferðinni verða tveir,
eðlisfræðingarnir dr.Einar Júlíusson
og dr. Hans Kr. Guðmundsson.
Auk þeirra hefur Viðar Ágústsson
eðlisfræðingur séð um undirbúning
og framkvæmd keppninnar. IDS
Halldór Arnason, Ríkismati sjávarafurða:
RÆKJU
HENT
„Þess eru dæmi aö sex tonnum af rækju hafl verið hent úr
einum bát vegna þess að hún var orðin of gömul,“ sagði
Halldór Árnason hjá Ríkismati sjávarafurða í samtali við
Tímann í gær, en að undanförnu hefur nokkuð borið á því að
rækjubátar séu að veiðum það lengi að aflinn skemmist um
borð.
Nýlegasta dæmið sagði Halldór
vera frá 14. þessa mánaðar þegar
frádæmd voru 2 tonn af rækju þar
sem bátur hafði verið sex sólar-
hringa að veiðum. Halldór sagði
að Ianda yrði rækju innan fjög-
urra sólarhringa 'eftir að hún
hefði verið veidd og síðan yrði að
vera búið að vinna hana innan
sólarhrings frá því, vegna þess að
geymsluþolið er búið eftir fimm
daga. Sagði Halldór að það væri
hins vegar algengt að bátarnir
væru allt upp í sex daga á veiðum
og bera þá menn fyrir sig brælu
og annað slíkt, en það sýnir sig
að þeir koma með töluvert af
skemmdri rækju, sem er orðin
eldri en fjögurra daga.
Aðspurður um hverja hann
teldi ástæðuna fyrir því að bátarn-
ir væru svona lengi að veiðum
sagði Halldór að þar lægi senni-
lega sú ástæða að baki að menn
væru að reyna að minnka útgerð-
arkostnað.
Lárus Jónsson hjá Félagi rækju
og hörpudiskframleiðenda sagði
í samtali við Tímann að hann
hefði ekki heyrt um neitt í þessa
veru. „Það er stutt síðan það var
fundur hjá okkur þar sem rækjan
kom til umfjöllunar. Þar var bent
á að í þeim sýnum sem tekin væru
hjá vinnslustöðvunum væru gæði
íslenskrar rækja yfirleitt góð,“
sagði Lárus. - ABÓ