Tíminn - 25.06.1988, Síða 15
Laugardagur 25. júní 1988
HELGIN
1 15
I BETRI SÆTUM
mi
Stjörnugjöf= ★★★
Hollow Point
Framlelðandi: Ron Gilbert
Aðalhlutverk: Linda Purl og Yaphet
Kotto
Myndin „Hollow Point“ eða Opin
kúla er hin ágætasta skemmtun, fyrir
þá sem hafa gaman af spennumynd-
um. Fyrrum aðstoðarstúlka Mat-
locks lögfræðings fer með aðalhlut-
verkið í myndinni og leikur mjög
vel. í upphafi myndar er hún í þeirri
aðstöðu sem við viljum öll vera,
hamingjusöm og sátt við lífið og
tilveruna. Hún hefurgaman afvinnu
sinni (starfar sem sálfræðingur með
einhverf börn) og einkalífið er til
fyrirmyndar. Kvöld eitt lendir hún í
smávægilegu umferðaróhappi sem
hefur hryllilegar afleiðingar fyrir
hana og hennar nánustu. Hún ekur
á vopnaða ræningja sem eru á leið
frá ránsstað, eftir að hafa rænt
verslun og myrt þrjár manneskjur.
Sálfræðingurinn er sú eina sem getur
tengt ræningjana við verknaðinn,
því hún sá vel framan í þá. Lögreglan
fær hana til liðs við sig sem aðalvitni,
en hjól réttvísinnar snúast hægt og
vinir ódæðismannsins fara að hrella
sálfræðinginn. Það er síðan þegar
sönnunargögn skortir og morðinginn
er látinn laus sem leikurinn æsist
fyrir alvöru. Myndin endar í æsilegu
og óvæntu lokaatriði. Pað er há-
punkturinn á annars spennandi, vel
leikinni og vel gerðri kvikmynd.
Ég gef þessari mynd þrjár
stjörnur. Hún lætur ekki mikið yfir
sér í rekkunum á myndbandaleigun-
um, en kemur þess meir á óvart
þegar hún er farin að snúast í tækinu.
Aðalsmerki þessarar myndar er
leikurinn og söguþráðurinn, sem er
skemmtilega margslunginn. -ES
„TOPP
TUTTUGU"
llér hirtisl listi \lir tiittugu \insaluslu iiiyiidiriiur í útleign
vikimn 15. til 2(1. jiiní. Imierspace er áf'rain í lyrsta s:eti o»
Dirty Danein*’ er á síiiiini stað í (iðrii stetinu oj> virðist njóta
láchema vinsielda. Ilástokkvari vikiinnar (eins of> þeir scgja
gjaiiian i poppiiialaiidaiiiiin á Siliyljiiiini) er „llands ol' a
Stranger 1-2. sem .1.15. Ileildsala setti á markað nýverið.
Mynd sem l irðist :ella að «era það }>ott er t.d. Dudes sem fer
lieint í 13. steti. Steinar gálii inyndina lit fyrir skemmstii. I-'.n
liér keintir listinn.
Sendið inn
fyrirspurnir
Liggur þér eitthvað á hjarta varð-
andi myndbönd? Langar þig að
vita hvenær eða hvort einhver
mynd hefur verið gefin út á mynd-
bandi? Langar þig að vita hvort til
eru tónlistarmyndbönd eða
íþróttamyndir af sérstökum átrún-
aðargoðum? Við bjóðum nú les-
endum að hringja í okkur
(91 68 63 00) eða skrifa okkur
(Tíminn Lynghálsi 9 Reykjavík
130 c/o í betri sætum) liggi ykkur
eitthvað á hjarta. Við munum birta
þær spurningar sem okkur berast
og reyna að svara þeim samtímis.
Berist fyrirspurnir mánudag til
miðvikudags birtum við svörin í
laugardagsblaðinu í sömu viku,
annars að viku liðinni.
1. d) Innerspace (Steinar)
2. (2) Dirty Dancing (J.B. Heildsala)
3. (4) Something Wild (Skífan)
4. (3) Raising Arizona (Steinar)
5. (5) No Mercy (Steinar)
6. (6) The Jerk (Laugarásbíó)
7. (-) Handsof a Stranger #1&2 (J.B. Heildsala)
8. (8) Roxanne (Skífan)
9. (13) Renta Cop (J.B. Heildsala)
10. (7) Otto # 2 (Myndbox)
11. (11) WiseGuy (J.B. Heildsala)
12. (18)Beverly HillsCops # 2 (Háskólabíó)
13. (-( Dudes (Steinar)
14. (17) The Big Easy (Skífan)
15. (14-15) Lady Beware (Myndbox)
16. (10) CaseClosed (Steinar)
17. 0) Critical Condition (Háskólabíó)
18. (14-15) Whistle Blower (J.B. Heildsala)
19. (19) Pisitive ID (Laugarásbíó)
20. (20) Eureka (Steinar)
Heartburn
Hæfileikum sóað
Stjörnugjöf= ★V2
Aðalhlutverk: Meryl Streep og Jack
Nicholson.
Handrit: Nora Ephron.
Leikstjóri: Mike Nichols
Framleiðendur: Mike Nichols og
Robert Greenhut.
Ég hafði lengi spáð í að taka
þessa mynd á leigu en löngunin
hafði einhvern veginn aldrei verið
nógu sterk. Bók Nora Ephron,
sem handritið er byggt á, vakti
mikla athygli vestra þegar hún
kom út á sínum tíma. Éphron var
gift Carl Bernstein, blaðamannin-
um fræga hjá Washington Post,
sem ásamt Bob Woodward komu
upp um Watergate hneykslið. Bók-
in er talin að miklu leyti byggð á
hjónabandi þeirra.
Maður var búinn að heyra margt
um myndina en ekkert af því gott.
Fyrir nokkrum dögum sló ég þó til
og leigði myndina, enda hef ég
alltaf haft mikið gaman af prakkar-
anum Jack Nicholson. Nú skil ég
hvers vegna myndin hefur sloppið
við hrós. Hún er bara ekkert
sérstök. Maður hélt að það væru
bara ýkjur að Nicholson væri út
alla myndina að tala með troðfull-
an munninn af pizzu en það reynd-
ist vera nákvæmlega rétt. Maður
hélt líka að það væru tómar ýkjur
að Meryl Streep væri hlaupandi
ólétt og súr á svip í gegnum alla
myndina. En tilfellið er að hún
gerir lítið annað.
Myndin er, þegar á heiidina er
litið, langdregin og tilgangslaus.
Söguþráðurinn er í stuttu máli sá
að Meryl Streep leikur konu sem
er matvælagagnrýnandi hjá tíma-
riti í New York. Hún kynnist
dálkahöfundi hjá dagblaði í Wash-
ington, sem Nicholson leikur.
Hann er alræmdur kvennamaður
og er sagður hafa farið ákaflega illa
með konur í gegnum tíðina. Engu
að síður verður Streep ástfangin og
þau giftast. Allt gengur vel og þau
eignast barn. Streep verður svo
fljótlega aftur ólétt og er það út
myndina. En þá fer eðli mannsins
að koma í ljós, hann heldur
framhjá og allt fer í steik.
Það er svo sem ekkert athuga-
vert við þennan söguþráð en hann
er ákaflega illa útfærður og fyrir
vikið fær maður aldrei þá samúð
með ólánssömu konunni sem mað-
ur á væntanlega að finna fyrir.
Það er líka fullt af kunnuglegum
andlitum og ágætis leikurum í
aukahlutverkum en þessar persón-
ur eru ákaflega illa mótaðar og
maður nær aldrei að kynnast þeim,
né að gera sér almennilega grein
fyrit eðli þeirra. Maður hefur það
stundum á tilfinningunni að þelta
fólk sé allt að leika í öðrum
myndum en kíki við í Heartburn
við og við í pásum.
Nicholson og Streep leika síður
en svo illa í þessari mynd en það er
bara úr ákaflega litlu að moða.
Þeim tekst ekki að vega upp á móti
vanköntunum. Ég mæli því ekki
með þessari mynd, hæfileikum að-
standenda er illilega sóað. Ein og
hálf stjarna. JIH
Heillandi mynd um eilífa baráttu
Stjörnugjöf= ★ ★ * Vi
Vesalingarnir/Les Miserables
Aðahlutverk: Anthony Perkins og
Richard Jordan
Leikstjóri: Glenn Jordan
Myndin er byggð á sögu Victors
Hugo Vesalingarnir.
Saga Victors Hugo, Les Miser-
ables eða Vesalingarnir, er klass-
ískt bókmenntaverk sem lesið hef-
ur verið um áratugi og svo verður
áfram. Steinar hf. gáfu nýverið út
myndband með kvikmyndinni
Vesalingarnir. Undirritaður horfði
á myndbandið, þrátt fyrir að hafa
séð myndina áður. Mig minnir að
hún hafi verið sýnd í ríkissjónvarp-
inu, en þori þó ekki að fullyrða
það. Engu að síður er það gott
framtak hjá Steinum að láta sjón-
varpssýningar ekki skipta sig máli
og gefa myndbandið út. Það er
nefnilega svo að þó svo mynd sé
sýnd í ríkissjónvarpinu er ekki þar
með sagt að allir hafi séð hana. Þar
kemur til Stöð 2 og myndbands-
tæki.
Þetta er vel gerð kvikmynd og
mikið lagt í sviðsmynd, búninga og
annað sem þarf til að ná fram því
andrúmslofti er ríkti í Frakklandi
um þær mundir er þjóðin réðst
gegn einræðinu.
Leikararnir í þessari mynd eru
ekki af verri endanum og fara þeir
Anthony Perkins og Richard
Jordan á kostum í myndinni. Vesa-
lingarnir er mynd sem fjallar um
hina eilífu baráttu góðs og ills.
Maður er dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir að stela brauðhleif
sér og fjölskyldu sinni til matar.
Þegar í fangelsið er komið hittir
hann fyrir reglugerðarsvín sem
einskis svífst í að framfylgja lögun-
um. í huga þessa fangavarðar, sem
Perkins leikur, er aðeins til sekt
eða sakleysi, sem hann vegur og
metur út frá lagabókstafnum, og
hann reyndar segir koma í stað
guðs. Mýndin segir af uppgjöri
þessara tveggja manna og lýsir
hvernig ævi þeirra og örlög sam-
tvinnast.
Hafir þú misst af þessari mynd á
sínum tíma, er það mín ráðlegging
að taka hana á leigu hið fyrsta, því
enginn er svikinn af kvöldstund
yfir Vesalingunum. - ES