19. júní - 01.03.1929, Síða 4

19. júní - 01.03.1929, Síða 4
39 19. J Ú N í 40 Matliilda Wrede. »19. júní« hefir fyrir nokkrum árum sagt lesend- um sínum ofurlítið frá æfistarfi þessarar frábæru konu. í það sinn var ekki hægt að láta mynd hennar fylgja, sem blaðið þó langaði til. — En nú kemur myndin og fylgja henni fáein orð sem helg- uð eru minningu mann- vinarins mikla. Pví Matt- hildurWrede er nú eigi lengur í tölu þeirra sem á þessari jörðu lifa. Hún dó í vetur á sjálfa jólanóttina eftir langa og þunga bar- áttu við líkamlegan sjúk- dóm, sem þó í engu veikti sálarþrek hennarnéglað- værð. Finsk og sænsk kvennablöð, mintust að maklegleikum Matthild- ar Wrede með hlýieik og virðingu. Úr grein- um þeim veljum vér eina sem stóð í sænska blað- inu »Tidevarvet« jan. þ. á. og er hún á þessa leið: Um páskaleytið í fyrra heimsótti eg Matthildi Wrede í Helsingfors. Hún var þá orðin sjúk, en kom þó sjálf til dyranna og lauk upp. Egefastum að nokkur ókunnugur gest- ur hafi nokkru sinni hlot- ið jafn hjartanlegar mót- tökur og eg fékk þá. Það hjarta væri steini harð- ara, sem ekki findi til yls. í hálfdimmu anddyr- inu sá eg hana í fyrsta sinn. Veikburða líkaminn rétti úr sér og frammi fyrir mér stóð stríðsmaður, riddari, sem bar sig sem væri hann konungborinn. Látbragð hennar var tígulegt og bauð af sér virðingu. Andlitsfallið var grant og höfðinglegt, nefið stórt og augun dökk og snör. Klæðnaðurinn óbrotinn, grár kjóll, sem minti á einkennisbúning hjúkrunarkonu. Hárið hvítt, greitt beint aftur í vöngunum. Hún minti á riddara, sem engan flekk ber á skiidi sínum. Alt þetta sá eg enn betur, þegar eg kom inn í birtuna á htlu borðstofunni hennar, þar beið okkar uppbúið kaffiborð. Veitingarnar voru jafn iburðar- lausar og annað í hýbýlum hennar. Hún var skraf- hreyfin og sagði með ákafa og guðmóði frá starf- semi sinni, reynslu og fyrirætlunum. Glaðlegt bros fór um fínlega andlilið og glettnin glampaði í orðum hennar. »Já, glaðlyndið yfirgefur mig ekki, þrátt fyrir lasleikann«, sagði hún brosandi. »Læknarnir segja að eg þjáist af þremur ólæknandi sjúkdómum, en eg lifi samt. Faðir minn ætlar mér enn verk að vinna«. Hún talaði um Föður sinn svo eðlilega og barnslega, að i fyrstunni var ekki hægt að vita, hvort hún talaði um jarðneskan eða himneskan föður. Og nú sagði hún mér að nýlega hefði hún kom- ist í kynni við ungan svertingja, sem brynni af áhuga á málefnum kyn- flokks síns og þráði að frelsa hann undan þeirri ánauð, sem enn á sér stað í reyndinni, þótt þrælahald sé úr lögum numið. Hann hafði skrifað Malthildi og sagt, að hún hefði með dæmi sínu leitt hann á þá braut, er hann nú gengi, og bað hann hana um hjálp. »Svo nú veit eg, hvers vegna Faðir minn lætur mig dvelja hér enn um stund«. Hátiðlegur gleðisvipur kom á andlit bennar, þegar hún í huganum rétti undirokuðum sveit- ingjunum kærleiksríku þróttmiklu hendina sína. Hún talað' um frelsis- stríð Finna 1918. »Eg kalla það brœðrastyrj- öldina, og það er ein- mitt rélta nafnið. Eg fylti hvorugan flokkinn, en hjálpaði vesalings flóttamönnunum úr báð- um herbúðum, og eg sagði þeim sannarlega hvorum tveggja til syndanna, þegar þeir voru æstir af hefni- girni. Eg er fædd hvít og allir ættingar mínir drógu taum hvítliðanna, en alla æfi mína ifefi eg lifað meðal rauðliðanna. Báðum skjátlaðist, báðir höfðu á óréttu að standa«. Eg hafði margsinnis heyrt Matthildi Wrede hallmælt vegna þess, að hún á borgarastyrjaldartímunum sýndi algert hlutleysi og sýndi báðum aðiljum sömu miskunnsemi. Menn álíta alment, að á þrengingatímum beri sérhverjum að taka ákvéðna afstöðu, fylla ákveðinn flokk. Hvert sinn sem eg hefi heyrt þannig mælt, hefi eg spurt sjálfa mig, hvort gera beri sömu kröfu til guðs: að hann sé á bandi annars aðiljans. Menn eiga þá svo erfilt með að viðurkenna alkærleikann, sem nær til I Mathilda Wrede.

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.