19. júní - 01.03.1929, Page 6

19. júní - 01.03.1929, Page 6
43 19. JÚNÍ 44 Sért þú fullorðinn, nú, er þú hefir göngu þina á leið hina nýju hugsana, þá er það heimskulegt af þér að halda, að alt eðli þitt geti breyttst fullkom- lega á einni viku, einum mánuði, eða einu ári. Hið einasta, sem þú með sanngirni getur vænst, er hægfara framför, rétt eins og þú mundir gera ráð fyrir, færir þú að leggja stund á tónlist eða einhverja aðra vísindagrein. Kerfi hinna nýju hugsana er vísindagrein, það er visindi hinnar réttn hugsunar. En heilafrumur þær, sem lagast hafa eftir ótta og ófrelsi hinna gömlu hugsana, breytast ekki alt í einu. F*ú er staddur andspænis viðfangsefni, sem heitir: »reyndu og reyndu á ný«. Segðu hvern dag við sjálfan þig: »Ég ber merki kærleika, góðrar heilsu, visku og glaðlyndis, eg ber vott um kraft hins góða, gagnsemi, heppni, farsæld og velmegun«. Mundu að endurtaka þetta að minsta kosti tvisvar sinnum á hverjum degi, auðvitað væri það enn betra að þú endurtækir það tuttugu sinnum. 1*011 þú á- vinnir þér ekki alt þetta strax, þótt líf þitt sanni ekki orð þín samslundis, þá mált þú samt ekki láta það svifta þig kjarkinum. Því, að þú endurtekur orðin, hefir sömu áhrif, og þegar fræi, sem sáð hetir verið, er vökvað. þegar nokkur tími er liðinn, fer fræið að skjóta frjóöngum, og þegar enn er liðinn nokkur tími, verður jöröin sem áður var ógróin, þakin gróðri, og að síðustu er uppskeran þroskuð. Eigir þú auðvelt með að ala á hleypidómum og ó- vild, verður það ekki samstundis auðvelt fyrir þig, að gera að veruleika þá staðhæfing, að þú, »berir merki um kærleika«. Sért þú vanur að leggja rækt við þá hugsun, að þú sért sjúkur, er hætt við að þú finnir til gamalla kvilla, jafnvel þegar þú segir »ég ber merki um góða heilsu«. Sért þú með ömurlegum áhyggju hugsunum búinn að telja þér trú um, að þú sért fæddur til örbyrgðar og óheppni, er hætt við að hugrekkið, heppnin og velmegunin eigi langt í land. Segðu að þú eigir alt þetta, segðu það, upp i opið geðið á hinni mestu óhamingju. Pað er ekkert til, sem truflar og veikir óhamingjuna svo mjög sem það, að menn stari á hana með vongóðum og ein- beittum augum. Vaknir þú, einhvern morguninn, í daufu og döpru skapi, þá skalt þú stilla þig um, að segja við sjálfan þig, »ég get alt eins vel hætt við að yðka hinar nýju hugsanir, — mér hefir áreiðanlega mistekist við þær«, — en sestu í þess stað rólega niður og settu þér fyrir sjónir, að þú sért ímynd lífsfjörs, vonar, hugrekki, trúar og heppni. Reyndu að skilja, að vonleysið, sem þú finnur til, er bara í bili, það er gamall vani, sem kemur aftur, en sem þú smátt og smátt munt yfirvinna. Gakk svo út í lífið og legðu stund á eitt eða annað nytsamt verk, og áður en þú veitst af þvi, mun vonin verma hjarta þitt, og hin dimmu ský munu hverfa úr huga þínum. Líkamlega þjáningin finst ekki lengur, og fá- tæktin snýst í velgengni. I*að ert sjálfur þú, sem getur mótað og stjórnað huga þinum. Þú munt verða fær um að gera það fyrir hjálp andans, en þú verður að sætta þig við að vinna hægfara. Vertu þolinmóður og gefst ekki upp. Um húsmæðraíræðslu. Árið 1927 ákvað Búnaðarþiogið að skipa nefnd til þess að rannsaka hvað gert hefir verið fyrir hús- mæðrafræðslu hér á landi og alhuga hvernig henni verði best fyrir komið í framtiðinni. Stjórn Búnaðar- félagsins kaus svo í nefndina frú Guðrúnu J. Briem, frú Ragnhildi Pétursdóttur og hr. Sigurð Sigurðsson, búnaðarmálastjóra. Nefndin hefir nú sent frá sér bækling, sem hefir að flytja niðurstöðu þá, sem orðið hefir af störfum nefndarinnar. Auk þess er þar mikill fróðleikur um húsmæðraskóla og skólaeldhús á Norðurlöndum og á þýskalandi, og sögulegt yfir- lit yfir hússtjórnarkenslu hér á landi til þessa. Sein- ast koma tillögur nefndarinnar og eru þær á þessa leið: 1. a. Matreiðslu- og handavinnukenslu fyrir ungar stúlkur verði gerð að skyldunámsgrein í öll- um barnaskólum. b. Ríkissjóður veiti sérstakan styrk til að útbúa skólaeldhús. 2. Húsmæðraskólum verði komið upp í öllum landsfjórðungum, sniðnum eftir þörfum hlutað- eigandi héraða. Ríkissjóður styrki stofn- og reksturskosnað þessara skóla. 3. Búnaðarfélag íslands ráði nú þegar í sína þjón- ustu fjórar konur er hafi umferðakenslu á hendi í matreiðslu og öðru er að húsmæðrafræðslu lýtur og að notum getur komið. Einni konu er ætlað að starfa i hverjum landsfjórðungi. Bún- aðarfélagið greiði umferðakenslukonunum kaup og sjái þeim fyrir kensluáhöldum, en hlutaðeig- andi héruð sjái fyrir húsnæði og fiutningi á milli kenslustaða. 4. Búnaðarfélag íslands gangist fyrir að komið veiði upp kennaraskóla fyrir þær konur, er ætlast er til að hafi húsmæðrafræðslu á hendi. Æskilegt þætti oss að sá skóli yrði settur í Gróðrarstöð- inni í Reykjavík. 5. Að Búnaðarfélag íslands sjái um, að einni konu verði falið að hafa eftirlit með allri húsmæðra- fræðslu í landinu, og sé hún jafnframt leiðbein- andi í öllu, er að þessu lýtur.

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.