Tíminn - 22.07.1988, Page 4
4 Tíminrii
Föstudagur 22. júlí 1988
í nýútkomnu tölublaði
tímaritsins „Nýtt líf“ er að
fínna viðtal við dr. Sigrúnu
Stefánsdóttur sem áður
starfaði á fréttastofu
sjónvarps. Eftir 13 ára starf
kveður hún stofnunina
beisk. Eins og kunnugt er
var hún ein fímm umsækj-
enda um stöðu fréttastjóra
sjónvarpsins, er Ingvi Hrafn
Jónsson var látinn fara, og
tók hún því illa að framhjá
henni skyldi gengið, ekki
síst þar sem Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóri
hafði nánast lofað henni
stöðunni. í viðtalinu talar
hún m.a. opinskátt um úr-
eltar aðferðir við manna-
ráðningar ríkisútvarpsins,
þar sem kynferði og pólit-
ískar skoðanir manna skipta
meira máli en hæfni og
menntun.
Þrisvar sinnum var Sigrúnu gef-
inn ádráttur um starf innan Ríkis-
útvarpsins, segir í greininni, en
síðan gengið framhjá henni og
annar ráðinn. Fyrsta skiptið var
þegar hún sótti fyrst um starf sem
fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu og
hafði Margrét lndriðadóttir hringt
í Sigrúnu og boðið hana velkomna
til starfa. Skömmu síðar var haft
samband við hana og henni sagt að
annar hafi verið ráðinn.
„Pólitísk hrossakaup áttu sér
stað - Sjálfstæðisflokkurinn seldi
einhver atkvæði til Framsóknar-
flokksins. Ég hef verið svo barna-
leg að telja það mitt aðalsmerki að
vera engum háð í stjórnmálum -
enginn hefur átt mig og borið á mér
ábyrgð. Ég taldi að frelsi mitt og
sjálfstæði sem fréttamanns væri
betur tryggt ef ég stæði utan flokka.
Ég sé nú að þetta var megin
skyssa," segir Sigrún í viðtalinu.
„Daginn eftir að Bogi var ráðinn
(fréttastjóri í stað Ingva Hrafns)
gekk ég líka í Kvcnnalistann."
„Ég hef greinilega orðið vör við
að það skiptir máli úr hvaða um-
hverfi maður kemur. Það skiptir til
dæmis máli hvort maður hefur
verið í MR og með heilan hóp af
skólafélögum í kringum sig sem
eru orðnir áhrifamenn í þjóðfelag-
inu. Ég hafði aftur á móti stundað
nám í Menntaskólanum á Akureyri
og hef engan slíkan hóp á bak við
mig í Reykjavík. Á vissan hátt
finnst mér þetta vera landsbyggð-
armál. Ég á engar sterkar ættir eða
skólafélaga sem standa á bak við
mig í kerfinu hér í Reykjavík."
Árið 1985 var Markús Örn Ant-
onsson ráðinn útvarpsstjóri, Emil
Björnsson lét af störfum sem
fréttastjóri Sjónvarps og ráða átti
nýjan dagskrárstjóra. Markús
hafði þá samband við Sigrúnu og
bauð henni stöðu dagskrárstjóra.
Skömmu seinna hringdi hann aftur
í hana og sagði að inn í myndina
væri kominn maður, karlmaður,
sem ekki væri hægt að ganga
framhjá. „Reynsla mín sýnir aftur
á móti að það er ótrúlega auðvelt
að ganga fram hjá konum," segir
Sigrún. „Ég reiddist þessu mjög og
fannst þetta slæm vinnubrögð en
sagði síðan við Markús að úr því
að svona væri komið mundi ég
líklega sækja’ um stöðu frétta-
stjóra. Hann spurði mig þá strax
hvort ég þekkti einhvern í út-
varpsráði!"
Þriðja og umtalaðasta skiptið
' sem gengið var framhjá Sigrúnu
var þegar fréttastjóri var ráðinn í
stað Ingva Hrafns. Snemma í des-
embermánuði hafði Markús enn
samband við Sigrúnu og spurði
hvort hún hefði áhuga á stöðunni.
„Hann nefndi líka að Bogi Ágústs-
son hefði komið til greina en hann
væri farinn til starfa hjá Flugleiðum
og talaði því eins og Bogi væri ekki
lengur inni í myndinni sem væntan-
legur fréttastjóri. Ég gat því ekki
skilið orð hans öðruvísi en svo að
hann væri að bjóða mér starf
fréttastjóra enda sagði hann við
mig áður en við kvöddumst: „Orð
skulu standa'V
Þrátt fyrir mestu menntunina,
mestu reynsluna og, að því er
virtist, stuðning útvarpsstjóra kom
allt fyrir ekki....þegar ég heyrði
að útvarpsstjóri hefði hringt í hann
(Boga) og hvatt hann til þess að
hætta við að draga umsóknina til
baka vissi ég að ég yrði ekki ráðin
fréttastjóri. Mér fannst ég hafa
boðið skipbrot og höfnun mín var
alger.“
Sigrún er harðorð í garð Út-
varpsráðs og segir þar önnur sjón-
armið en faglegan metnað út-
varpsmanna ráða. „í útvarpsráð
eru kjörnir fulltrúar stjórnmála-
flokka sem fyrst og fremst gæta
hagsmuna flokksbræðra sinna."
Sigrún er þó ekki af baki dottin og
segir vel koma til greina að hún
gangi til starfa á fréttastofu áður en
langt um líður. „Ég er líka mann-
eskja til þess að taka því að falla
aftur en ég vil falla á heiðarlegum
forsendum," segir Sigrún í viðtal-
inu. JIH
Ingibjartur
Þorsteinsson
lést 20. júní
Ingibjartur Þorsteinsson, pípu-
lagningarmeistari, Espilundi 1 í
Garðabæ lést þann 20. júní sl. Hann
varfæddur27. nóvember 1921. Ingi-
bjartur var mikill stuðningsmaður
Framsóknarflokksins og gegndi ýms-
um trúnaðastörfum fyrir hann. Hann
sat um árabil í stjórn Framsóknar-
félags Garðabæjar og Bessastaða-
hrepps.
Menning
og saga
íslands
Fjórða útgáfa upplýsingarrits dr.
Hannesar Jónssonar, sendiherra,
„Iceland’s Unique History and Cult-
ure“ er komið út. Hefur ritið verið
aukið og endurskoðað og prýtt
fjölda litmynda sem Rafn Hafnfjörð
hefur tekið víðsvegar um landið.
Rit þetta er kynning á íslandi,
sögu þess og menningu, skrifað fyrir
erlenda ferðamenn og erlenda les-
endur. Skiptist það í tuttugu og níu
kafla.
Dr. Hannes Jónsson byggir ritið á
fjórum fyrirlestrum sem harin flutti
fyrir Bókmenntastofnunina í
London árið 1960. Þriðja útgáfa
ritsins var gefin út árið 1964, en er
uppseld fyrir um tuttugu árum síðan.
Ritið fæst í ferðamannaverslunum
og bókabúðum. SH
Bókaútgáfan Örn og Örlygur í samvinnu
Gyldendals í Danmörku:
Unnið að gerð
alfræðibókar
Væntanleg í ársbyrjun 1990
Bókaútgáfan Örn og Ör-
lygur mun gefa út alfræðibók
í byrjun árs 1990, og verður
bókin sú fyrsta sinnar teg-
undar á íslandi.
Bókin er byggð á alfræði-
bók Gyldendals í Danmörku,
en Örn og Örlygur undirrit-
uðu sérstakan útgáfusamning
við Gyldendal, sem heimilar
bókaútgáfunni að þýða og
staðfæra efni hinnar dönsku
alfræðibókar.
Til þess að þýða hið erlenda efni
hefur bókaútgáfan gert samninga
við nærri 80 sérfræðinga sem hver og
einn vinnur að sínum sérstaka þætti,
en síðan tekur starfslið á ritstjórnar-
skrifstofum við efninu, vinnur að
samræmingu þess og býr til setning-
ar.
Á dögunum kynnti menntamála-
ráðherra sér vinnslu bókarinnar og
segir meðal annars frá þeirri heirn-
sókn í fréttabréfi frá Erni og Örlygi:"
Miðvikudaginn 13. júlí sá Birgir
ísleifur Gunnarsson, menntamála-
ráðherra, ástæðu til að koma í
kynningarheimsókn á ritstjórnar-
skrifstofur bókarinnar.
Sigríður Harðardóttir, sem er rit-
stjóri bókarinnar ásamt Dóru Haf-
steinsdóttur, tók á móti ráðherra,
ásamt útgefandanum, Örlygi Hálf-
dánarsyni, og öðru starfsliði í rit-
stjórn og skýrðu þau fyrir ráðherra
hvernig unnið er að bókinni á hinum
ýmsu stigum vinnslunnar.
Ráðherra sýndi bókinni mikinn
áhuga og ræddi lengi við starfslið
hennar. Var heimsókn hans og skiln-
ingur á mikilvægi bókarinnar, starfs-
liðinu hin besta hvatning og uppörv-
un í hinu erfiða og þýðingarmikla
verkefni sem það hefur tekist á
hendur.“ -gs
Frá kynningarheimsókn menntamálaráðherra á ritstjórnarskrifstofu alfræðibókarinnar, sem bókaútgáfan Öm og
Örlygur mun gefa út.