Tíminn - 22.07.1988, Side 7
Föstudagur 22. júlí 1988
Tíminn 7
Flugráð hefur gert samþykkt um staðsetningu varaflugvallar:
VARAFIUGVOU.UR
Á EGILSSTÖÐUM
Flugráð hefur gert samþykkt um varaflugvöll sem sinnt
geti bæði innanlandsflugi svo og áætlunar- og leiguflugi til
og frá íslandi.
„Væntanlegur flugvöllur mun
þjóna sem varaflugvöllur fyrir
Keflavíkurflugvöll og mun gagnast
þegar veðurskilyrði hamla lend-
ingu þar. Flugvöllurinn á að geta
tekið við öllum tegundum flugvéla
sem eru notaðar og lenda hér,“
sagði Jóhann Albertsson sem setu
á í Flugráði.
Ráðið mælir líka með því að
unnið verði jafnhliða þessu að
uppbyggingu flugvallarins á Akur-
eyri auk þess sem malbikuð verði
flugbraut Sauðárkróksflugvallar.
Nýja flugbrautin á Egilsstöðum
verður væntanlega ekki tilbúin til
notkunar fyrr en á árinu 1991, svo
reiknað er með að Akureyrarflug-
völlur muni þjóna sem varaflug-
völlur á meðan, að sögn Jóhanns.
Þegar hefur verið hafist handa
við byggingu 2000 metra flugbraut-
ar á Egilsstöðum. Með því að bæta
400 metrum við brautina munu þar
hins vegar skapast lendingarskil-
yrði fyrir aliar flugvélar sem nú eru
í áætlunarflugi til og frá landinu.
Væntanlega mun kostnaður við
lengingu flugbrautarinnar verða
um 100 milljónir króna.
Að sögn Jóhanns nrun þjóðveg-
urinn við Egilsstaði verða lagður
yfir brautina, þar sem væntanlega
verður sjaldan þörf á að nýta
brautina til fulls auk þess sem í því
felist mikill sparnaður þar sem
flytja þyrfti þjóðveginn suður fyrir
brautarendann að öðrum kosti.
„Við fögnum því mjög að Flug-
ráð hafi mælt með þessu og vonum
svo sannarlega að af þessu verði,"
sagði Sigurður Símonarson, bæjar-
stjóri á Egilsstöðum, í samtali við
Tímann.
„í allri umræðunni undanfarið
um uppbyggingu Egilsstaðaflug-
vallar höfum við fyrst og fremst
lagt áherslu á það að fá hingað
góðan innanlandsflugvöll, sem not-
hæfur væri allt árið,“ sagði Sigurð-
ur. „En við fögnum því mjög að
mælt sé með því að byggja upp
alþjóðaflugvöll því það eykur
möguleika á að nýta hann öðruvísi,
til dæmis taka upp beint leiguflug
til Evrópu," bætti hann við að
lokum. IDS
ÍFR og Nýi ferðaklúbburinn hætta við Markarfljót
og sigla niður Hvítá í Árnessýslu þess í stað:
Markarfljót
ryðst fram í
miklum ham
íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík
og nágrenni, ásamt Nýja íerða-
klúbbnum hafa hætt við siglingu
niður Markartljót. Þess í stað hyggst
hópurinn sigla niður Hvítá í Árnes-
sýslu.
Markarfljót er talið ófært leið-
angrinum. Nýi ferðaklúbburinn fór
ásamt meðlimum Víkingasveitar
lögreglunnar niður Markarfljót nú
fyrir nokkru og komst að þeirri
niðurstöðu að ekki væri óhætt að
fara þá leið.
Leið sú er víkingasveitarmenn og
ferðaklúbburinn fóru, tekur yfirleitt
um tvo klukkutíma við venjulegar
aðstæður. Þegar leiðin var könnuð
spýttust bátarnir niður ána á hálf-
tíma. Vatnavextir voru miklir og
leiðin talin ófær leiðangri FRÍ og
ferðaklúbbsins.
í stað þess að leggja árar í bát,
hefur fyrirhugaður leiðangur breytt
áætlun. Hvítá í Árnessýslu varð
aftur fyrir valinu. Þetta er annað
árið í röð sem íþróttafélag fatlaðra
leggur í Hvítá og tilgangurinn er sá
sami. Safna peningum til að reisa
íþróttahús við Hátún í Reykjavík.
Ekki hefur endanlega verið gengið
frá hvaða hluta Hvítár leiðangurinn
mun sigla, en Jón H. Sigurðsson,
einn af skipuleggjendum leiðangurs-
ins, sagði í samtali við Tímann í gær
að um tvo möguleika væri að ræða.
Annars vegar gljúfrin rétt neðan við
Gullfoss, eða kaflann frá Brattholti
að Drumboddsstöðum. Líklegast
taldi Jón að síðari kosturinn yrði
íyrir valinu. Endanlcga verður geng-
ið frá þessu á fundi FRÍ og Nýja
ferðaklúbbsins í dag klukkan 17.
Siglingin verður farin næstkom-
andi mánudag.
Tekið cr við fjárframlögum í síma
91-21076 frá 13:00-17:00 og í síma
91 -25097 frá 9:00-13 og frá kl. 17:00-
22:00 -ES
Katnn H. Arnadóttir, markaðsstjóri AB, afhendir formanni Stangaveiði-
félags Reykjavíkur, Jóni G. Baldvinssyni, fyrsta eintakið ef bókinni
Silunga- og laxaflugur. Á myndinni er einnig Friðrik D. Stefánsson,
framkvæmdastjóri S.V.F.R.
AB MED ÞRJÁR
NÝJAR
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér þrjár bækur sem tengjast
sumrinu. Eru það, Gönguleiðir á
Islandi 1. Suðvesturhornið, eftir
Einar Þ. Guðjohnsen, Silunga- og
laxaflugur, eftir John Buckland í
þýðingu Björns Jónssonar, og A
Short History of Iceland, eftir Jón
R. Hjálmarsson.
Gönguleiðir á íslandi 1. Suðvest-
urhornið lýsir helstu gönguleiðum
á svæðinu umhverfis Reykjavík,
frá Þyrli f Hvalfirði austur fyrir
Ingólfsfjall.
BÆKUR
Bókin er fyrsta hefti af mörgum
sem fyrirhugað er að gefa út um
gönguleiðir á íslandi.
Silunga- og laxaflugur er yfirlit
yfir 1200 flugugerðir sem notaðar
eru við sportveiðar um víða veröld,
útlit þeirra, uppruna og upplýsing-
ar um fiskana sem þær eiga að tæla.
A Short History of Iceland er,
eins og nafnið gefur til kynna, á
ensku. Bókin fjallar um sögu ís-
lands allt frá því landnámsmenn
settust hér að fyrir ellefu öldum og
til nútímans. -gs
Jaöarsbakkalaug á Akranesi:
SUNDMÓT í
NÝRRI LAUG
Fyrsta sundmótið í nýrri sundlaug
á Akranesi verður haldið um helg-
ina. Um er að ræða Aldursmeistara-
mót Sundsambands íslands og er
búist við fjögur til fimmhundruð
þátttakendum.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á
Akranesi sagði að framúrskarandi
aðsókn hefði verið í nýju laugina,
enda hefði hún verið langþráð mann-
virki. Sagði hann að allt frá fimm-
hundruð og hátt í þúsund gestir
hefðu sótt laugina á dag síðan 16.
júlí sl., en þá var hún vígð.
Nýja laugin tók við af gömlu
Bjarnalauginni, sem var byggð um
1940. Hún er helmingi styttri en sú
nýja, eða 12,5 metrar. Aðstandend-
ur Bjarna Ólafssonar, skipstjóra,
gáfu Bjarnalaug til minningar um
Bjarna.
Nýja laugin stendur við Jaðars-
bakka. Hún er 25 metra löng og auk
þess eru þar 5 heitir pottar og
vaðlaug. SH
Frá æfíngu Camerata Nova, sem heldur hljómleika í Kristskirkju laugardaginn 23. júlí nk. kl. J6:00, undir stjóm
Gunnsteins Olafssonar.
HLJÓMLEIKAR í
KRISTSKIRKJU
Laugardaginn 23. júlí nk. hcldur hljónisveitin Camerata
Nova tónleika í Kristskirkju klukkan 16:00.
Einsöngvari í hljómsveitinni er Signý Sæmundsdóttir
sópran, einleikari á kontrabassa er Hávarður Tryggvason en
stjórnandi er Gunnsteinn Ólafsson.
í hljómsveitinni eru einungis
hljóðfæraleikarar sem ýmist hafa
nýlokið námi eða eru enn að læra,
alls rúmlega 30 manns. Þetta eru
fyrstu hjómleikar sveitarinnar.
Á efnisskrá eru „Concertino" fyrir
kontrabassa og strengjasveit eftir
Lars Erik Larsson, „Konsert í D“
fyrir strengjasveit eftir Igor Stravin-
skí, konsert-arían „Ah, perfido,
spergiuro" eftir Ludwig van Beetho-
ven og loks Sinfónía í D-dúr nr. 38
eða „Prag-sinfónían“ eftir Wolfgang
Amadeus Mozart.
Signý Sæmundsdóttir stundaði
söngnám við Tónlistarskóla Kópa-
vogs hjá Elísabetu Erlingsdóttur og
í Söngskóla Reykjavíkur hjá Ólöfu
K. Harðardóttur. Síðan stundaði
Signý nám við tónlistarháskólann í
Vínarborg, en þaðan lauk hún námi
úr Ijóðadeild og almennri söngdcild
í júní 1988.
Hávarður Tryggvason er fæddur í
Reykjavík árið 1961. Hann stundaði
kontrabassanám viðTónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar, E.N.M. de
París og Konservatoríið í París og
útskrifaðist þaðan árið 1986 með
„premíer prix“, fyrstu einkunn. Nú
er hann í framhaldsnámi við einleik-
aradeild Konservatorísins í París.
Gunnsteinn Ólafsson er fæddur
1962 á Siglufirði, en alinn upp. í
Kópavogi. Hann stundaði þar fiðlu-
nám hjá Sigrúnu Andrésdóttur og
síðar við Tónlistarskólann í Reykja-
vík hjá Rut lngólfsdóttur. 1 T.R.
stundaði hann einnig nám í hljóð-
fræði hjá Jóni Ásgeirssyni og grein-
ingu hjá Hjálmari H. Ragnarssyni.
Ári eftir stúdentspróf hélt Gunnstein
til Ungverjalands og settist í Franz
Liszt tónlistarakademíuna í Búda-
pest. Hann lærði þar á nokkur
hljóðfæri, flutti sig svo til Ítalíu, þar
sem hann lærði meira, og er nú við
nám í tónsmíðum og hjómsveitar-
stjórn í Freiburg í Þýskalandi. -gs