Tíminn - 22.07.1988, Side 14
14 Tíminn
Föstudagur 22. júlí 1988
E
iiiiiiii
im
'im
rr'i ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ \
I BETRI SÆTUM
miiii]
iiiiii
The Bourne Identity
The Bourne Identity er tveggja
spólu mynd, byggð á sögu Roberts
Ludlum, með þeim Richard
Chamberlain og Jacklyn Smith í
aðalhlutverkum. Spurningaleikur
okkar sem hófst í síðustu viku
byggir einmitt á þessari mynd.
I verðlaun verða tveir pakkar og
nú er kominn tími til að birta nýja
getraun. Ef þú svarar fjórum af
neðangreindum fimm spurningum
réttum, átt ÞÚ möguleika á að
eignast þessa hörkugóðu mynd.
Mundu bara að senda svörin inn
fyrir 3. ágúst. -SÓL
SPURNINGAR:
1. Richard Chamberlain er
þekktur sem leikari i sjón-
varpsmyndaflokkum. Nefndu
einn slíkan.
2. Robert Ludlum er einn allra
vinsælasti spennusagnahöf-
undur sem um getur. Nefndu
tvær bækur eftir hann.
3. Steinar hf. hafa nú gefið út
fjöldann allan af myndbönd-
um síðustu vikurnar. Hve
mörg myndbönd áttu Steinar
á síðasta myndbandavin-
sældalista SÍM?
4. Hvers lenskur var bankinn
sem Jason Bourne átti pen-
ingana í?
5. Hver leikstýrir The Bourne
Identity?
Sendu lausnirnar inn, fyrir 3.
ágúst næst komandi, merktar:
Tíminn
c/o í betri sætum
Lynghálsi 9
110 Reykjavik.
THE WITCHES OF EASTWICK:
Mann verkjar
í spékoppana
Stjörnugjöf= ★★★1/2
Aðalhlutverk: Jack Nicholson, Cher,
Michelle Pfeiffer, Susan Sarandon
Þá er hún loksins- komin á
myndband, Nornirnar frá East-
wick, og myndi maður nú segja að
það væri kominn tími til og raunar
ekki seinna vænna, eða sæna
veinna.
í sem örstystu máli, þá greinir
myndin frá þrcmur lífsleiðum
konum, sem ýmist eru fráskildar,
ekkjur eða maðurinn hefur stungið
af. Þetta eru þær Alcx (Cher),
Sukie (Pfeiffcr) og Janey (Saran-
don) og á hverju fimmtudagskvöldi
hittast þær, detta í það og ræða um
karlmenn. Eitt kvöldið koma þær
sér saman um draumaprinsinn.
Hann birtist síðan degi seinna og
ber nafnið Daryl van Horne (Nich-
olson). Upphefst nú hinn frægi
ástarferhyrningur, en ekki er allt
sem sýnist og van Horne er ekki
allur jrar sem hann er séður.
Þetta er nokkuð skemmtilegur
farsi sem lifir lengi í ylvolgu ntinni
ntannsheilans. Nicholson fer hrein-
lega á kostum og ég persónulega
hef ekki séð hann jafn sprækan í
kvikmynd síðan hann togaði mig
upp úr skónum í Gaukshreiðrinu.
Að vísu tókst honum sæmilega upp
í myndum þar á milli, t.d. Terms
of Endearment, en ekkert saman-
borið við þessa bráðskemmtilegu
mynd.
Kvenfólkið er alls ekki síðra.
Cher er mun betri í þessari mynd
heldur en í Moonstruck, Sarandon
hefur að vísu aldrei náð jafn langt
og í Rocky Horror Picture Show
og Pfeiffer nær skemmtilegum tök-
um á hlutverki sínu og jafnar í
þessari mynd þá persónusköpun
sem hún náði að koma í verk í
Ladyhawke, þar sem hún lék á
móti Rutger Hauer og Matthew
Broderick.
Saman fer þessi ferhyrningur á
kostum. Söguþráðurinn er bráð-
skemmtilegur, en þó verð ég að
viðurkenna að svifatriðin fóru dá-
lítið í mínar fínustu. Þannig hefði
ég viljað sjá þau atriði fara út og
einhver önnur inn mun jarðbundn-
ari, en þó fyndin, og hefði myndin
þá örugglega komist í fjögurra
stjörnu flokkinn.
Niðurstaða: Petta er bráð-
skemmtileg mynd. Pau eru fjöl-
mörg atriðin sem kitla hlátur-
strengina svo mikið að mig var
farið að verkja í spékoppana. And-
lit mitt er hrukkunt stráð eftir að
hafa horft á myndina og hlegið í
nær hverju atriði og ef undanskild-
ar eru örfáar fjarstæðukenndar
senur, sem eiga það til að verða í
lengsta lagi, þá er þetta mynd sem
gæti tekið sér varanlega bólfestu í
myndbandstækinu. Þrjár og hálf
stjarna. -SÓL
„TOPP
TUTTUGU“
1. ( 1) NoWayOut
2. ( 3) The Bourne Identity
3. ( 2) Full Metal Jacket
4. (-) NornirnarfráEastwick
5. ( 4) Innerspace
6. ( 5) TheLastlnnocentMan
7. ( - ) Windmillsof theGods
8. (15) BlueVelvet
9. ( - ) TheMan with two brains
10. ( 6) DirtyDancing
11. (19) Disordlies
12. ( 7) Something Wild
13. (12) He’sMyGirl
14. (14) WhiteWaterSummer
15. ( 8) TheJerk
16. ( 9) NoMercy
17. (13) WiseGuy
18. (18) TheBoyinBlue
19. (10) Raising Arizona
20. (11) Handsof aStranger
(Skífan)
(Steinar)
(Steinar)
(Steinar)
(Skífan)
(J.B. Heildsala)
(J.B. Heildsala)
(J.B. Heildsala)
(Steinar)
(J.B. Heildsala)
(Steinar)
(Skífan)
(Myndbox)
(Skífan)
(Laugarásbió)
(Steinar)
(J.B. Heildsala)
(Skífan)
(Steinar)
(JB. Heildsala)
Það eru miklar hreyfingar á vinsældarlistanum
þessa vikuna. Það eru aðeins þrjár myndir í sömu
sætum og síðast, toppmyndin sjálf, No Way Out,
White Water Summer, í 14. sætinu og The Boy in
Blue í því 18.
Aðeins þrjár myndir koma nýjar inn á listann.
Nornirnar frá Eastwick fara beint í 4. sætið, Wind-
mills of the Gods stekkur í það 7. og The Man with
Two Brains fer í það 9.
The Bourne Identity, sem getraunaleikurinn snýst
einmitt um núna, fer úr því þriðja í það annað, en
aðrar myndir flakka vítt og breitt um listann.
'Vjt oíaj; Cúgp h
THE BOURNE IDENTITY:
Spennumynd sem er
í efri gæðaflokki
Stjörnugjöf= ★★★
Aðalhlutverk: Richard Chamberlain,
Jaclyn Smith
Höfundur: Robert Ludlum
Það gerist mjög oft að bækur eftir
fræga höfunda eru kvikmyndaðar.
Maður hefur margsinnis séð góðar
bækur, t.d. eftir MacLean kvik-
myndaðar og þeim breytt svo að þær
eru óþekkjanlegar. Plottinu er meira
að segja oft breytt. Ég man hins
vegar ekki eftir að hafa séð margar
bækur Ludlums settar á filmu. The
Bourne Identity er hins vegar ein
þeirra.
TBI segir frá því þegar að maður
(Chamberlain) vaknar í litlu frönsku
sjávarþorpi, sundurskotinn og
minnislaus. Drykkjusjúkur læknir
annast hann þar og kemur honum til
heilsu. í skinn hans hefur verið
grædd míkrófilma með bankanúm-
eri í svissneskum banka. Þegar hann
fer síðan í bankann og kemst að því
að hann heitir Jason Bourne, byrja
menn skyndilega að reyna að drepa
hann. Það lítur nefnilega út fyrir að
hann sé enginn annar en hinn frægi
leigumorðingi Carlos.
Þetta er söguþráðurinn í nýjustu
míníseríunni á markaðnum.
Það verður líka að segjast að það
hefur tekist vel að setja bókina á
filmu, því ég man eftir að hafa lesið
bókina, og mér og vafalaust fleirum
að óvörum breyta þeir sögunni alveg
lygilega lítið.
Myndin býður upp á spennu,
óvænta atburðarás, flækjur, beygj-
ur, snúninga, hringi, ferhyrninga og
strik og satt að segja, þó ég vissi
söguþráðinn, þá rak mig í rogastans
við útfærsluna. Kannski er bara
svona langt síðan ég las bókina, ég
veit það ekki. Það get ég hins vegar
v>
Ster&o
UCHARD JACIYN
UVIBERLAIN SMITH
fUI
iil
URNE
sagt að ég var hrifinn af myndinni,
eða myndunum, því þetta er á
tveimur spólum.
TBI er skemmtileg afþreying.
Chamberlain er hins vegar farinn að
láta á sjá, og ekki nema von. Ef
karlinn er virkilega farinn að nálgast
sextugt, þá finnst mér hann nú eiga
heiður skilinn fyrir að líta ekki út
fyrir að vera nema rúmlega fertugur.
Hvort lyftingar á andliti og skurðað-
gerðir eiga sinn þátt í því, hef ég
ekki hugmynd um, en skítt með það.
Jacklyn Smith lítur líka vel út eins
og endranær, en mikið ofsalega
getur kvenfólk verið heimskt í
myndum. Mikið ofsalega er ég feg-
inn að það er ekki svoleiðis í lífinu.
Niðurstaða: Þetta er myndband
(bönd) sem er góð afþreying. í betri
sætum mælir hiklaust með henni
fyrir alla þá sem unna góðum
spennumyndum. Við mælum líka
hiklaust með henni fyrir þá sem
unna flækjum, rómantík og njósna-
plottum. Þrjár stjörnur. -SÓL
THE BOY IN BLUE:
Gömul
lumma
Stjörnugjöf= ★1/2
Aöalhlutverk: Nlcolas Cage, Chrls-
topher Plummer og Cynthia Dale.
Leikstjórl: Charles Jarrott
Hér er á ferðinni gömul lumma.
í sjálfu sér er það í lagi, en
aðstandendum myndarinnar mis-
tekst að hita hana upp. Sögu-
þráðurinn er sem í fjölda annarra
mynda um íþróttahetjur.
Ungur maður er uppgötvaður,
sem náttúrubarn í kappróðri.
Hann hefur æfingar og ætlar sér
stóra hluti, sem hann og fram-
kvæmir. Inn í þetta er blandað
hæfilegum skammti af ástarævin-
týri og svikum.
Að venju er að finna kafla í
myndinni, þar sem allt gengur á
móti íþróttahetjunni, sem Nicolas
Cage leikur ágætlega. Eftir gróft
brot í keppni er Cage dæmdur í
keppnisbann í gervöllum Banda-
ríkjunum. Hann leggst þó ekki
með tærnar upp í loft og hættir,
heldur æfir af krafti og skorar á
heimsmeistarann að mæta sér á
Thamesánni. Þar lýkur myndinni í
rislitlu lokaatriði.
Ég er kannski nokkuð harður,
að gefa þessari mynd ekki nema
eina og hálfa stjörnu. En yfirleitt
hef ég haft gaman af að horfa á
gamlar lummur af þessu tagi, en
hér er lumman borin fram köld og
ekki verður vart við viðlit til að
gera hana lystugri. Að vísu getur
að líta ágætis leikara, en þeir
'bjarga ekki því sem þarf, þar sem
handritið er bókstaflega leiðinlegt.
-ES