Tíminn - 22.07.1988, Page 15
Föstudagur 22. júlí 1988
Tíminn 15
Anne lise Mortensen, danskur líffræðingur, sem er að gera nýstárlegar tilraunir með ræktun plantna í úrgangi. Ætli
þetta sé framtíðin?
Græna vatnshreinsunin á tilraunastigi í Danmörku:
„Græn hreinsun11
á skólpi
í Danmörku er nú tilraun í gangi þar sem úrgangsvatn frá
salernum, baði og vöskum er notað sem áburður á plöntur.
Við þetta eru tvær flugur slegnar í einu höggi, vatnið
verður hreint, en plönturnar nýta næringarefni skólpsins.
Þessi nýja aðferð er einnig ódýrari en gamla hreinsunarað-
ferðin.
Lífrænn úrgangur í sjó-
num getur valdið fiskadauða
Þegar við hleypum baðvatninu
úr kerinu eða sturtum niður. hugs-
um við sjaldan um afdrif úrgangs-
ins. Við vitum að hann fer á
endanum út í sjó, en hvað tekur þá
við? Eftir því sem meira af úrgangi
berst í sjóinn fá þörungarnir meiri
næringu, þeir vaxa og þegar þeir
rotna eyðist súrefni úr sjónum.
-Súrefnið er nauðsynlegt fyrir fiska
og önnur sjávardýr.
Anne Lise Mortensen, h'f-
fræðingur í Danmörku, hefur sett
upp svokallaða græna hreinsun á
skólpi í Hörsholm. Hún ræktar
grænar plöntur í skólpinu. Hún
segir að hreinsun af þessu tagi sé
bæði ódýrari og minni mengun
skapist af henni en af hinni hefð-
bundnu efnahreinsun.
Anne Lise segir: „Við setjum
mold í gróðurpottana okkar til að
plönturnar þrífist. En það er ekki
moldin, heldur næringarsöltin sem
hún inniheldur sem cr ltfsnauðsyn-
leg plöntunum. Einnig berum við
tilbúinn áburð á garðinn og áttum
okkur ekki á því að afgangs næri-
ngarsölt berast með jarðvegsvatni
í sjóinn. Af þvf leiðir ofvöxtur
þörunga, sem veldur súrefnisskorti
fyrir fiskana þegar þörungarnir
rotna. Þetta inngrip okkar inn í
lífhringinn er því náttúrunni ekki
til góða. Með grænu vatnshreins-
uninni notum við aðferð náttúr-
unnar, plönturnar vinna sjálfar
verkið, eins og ætlast var til af
náttúrunnar hendi.“
Hyasintur í Disneylandi
f Bandaríkjunum hefur þessi
aðferð verið notuð til að hreinsa
loft og vatn. Stofuplöntur eru rækt-
aðar í úrgangsvatni, þæreyða kold-
íoxíði og rykögnum úr loftinu og
nýta sér næringarsöltin í úrgangin-
um og við þetta skapast bæði
hreint loft og vatn. í Disneylandi
eru heilu breiðurnar af fallegum
vatnshyasintum og grunar örugg-
lega engan að þær séu ræktaðar í
skólpi. En hvað getur vaxið með
ræturnar í skólpi? Anne Lise segir
það vera allar plöntur, nema helst
kartöflur. Grænmeti og stofublóm
þrífast vel í því.
Græna hreinsunin
til þróunarlandanna
Anne Lise segir um hjálp Vest-
urlanda til þróunarlandanna: „I
þróunarlöndunum er matvælask-
ortur stöðugt vandamál og úrgang-
ur og skólp sífellt meira vanflamál.
Við eigum að hætta að flytja út til
þróunarlandanna þá þekkingu
okkar sem er hætt að duga hér
heima, heldur nýta okkur nýjar
lausnir eins og grænu vatnshreins-
unina. Það er hneyksli að hjálp
okkar felist í byggingu hreinsunar-
stöðva og áburðarverksmiðja.
Þetta eru lélegar lausnir á miklum
vandamálum."
1 tilraunastöðinni á Hörsholm
má sjá árangurinn af grænu vatns-
hreinsuninni, blómstrandi plöntur
og gróðursæld. Mörgum finnst að-
ferðin við ræktunina skrýtin, en
eins og Anne Lise segir, þá er verið
að notast við aðferð náttúrunnar,
og hún ætti að þekkja bestu lausn-
irnar.
(Þýtt og endursagt: SH)
Hjúkrunar-
fræðingar
Eftirtaldar stööur hjúkrunarfræöinga í heilsugæslu-
stöövum eru lausar til umsóknar:
1. Staöa hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustööina á
Egilsstöðum. Veitt frá 1. september 1988.
2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina í
Ólafsvík.
3. Staöa hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina í
Hólmavík.
4. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina á
Selfossi.
5. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina á
Þórshöfn.
6. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina í
Fossvogi, Reykjavík, frá 1. október 1988 til 1. mars
1989.
7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina í
Fossvogi.
8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík.
9. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðv-
arnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.
10. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina
á Selfossi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við
hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðu neyt-
inu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
18. júlí 1988.
A Bílbeltin
fj* hafabjargað tíar"0*"
Effco
n gerír ekki við
biláða bíla
En hún hjálpar þér óneitanlega að halda bílnum
þínum hreinum og fínum, bæði að innan og utan
einhver sullar eða hellir niður. En
það gerir ekkert til þegar Effco
þurrkan er við hendina.
Já, það er fátt sem reynist Effco
þurrkunni ofraun.
Þaö er meira að segja svolítið
gaman að þrífa með Effco þurrk-
unni. Því árangurinn lætur ekki á
sér standa. Rykið og óhreinindin
legga bókstaflega á flótta. Þú getur
tekið hana með í ferðalagið eða
sumarbústaðinn. Það er aldrei að
vita hverju maður getur átt von á.
Oft er svigrúm lítið i tjaldi eða
sumarbústað, má því ekki mikið út
af bera til þess að allt fari á flot, ef
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
____ .og.varahlutaverslunum_________________ .
Heildsala Högcfaeylir — EFFCO sími 73233
£
EffCO-l
Sumarferð framsóknarfélaganna
í Reykjavík. Lakagígar
Sumarferð framsóknarfélaaanna í Reykjavík verður farin laugardag-
inn 13. ágúst inn í LAKAGIGA.
Nánari ferðatilhögun verður auglýst síðar.