Tíminn - 22.07.1988, Síða 19
’" Föstudagur 22. júlí 1988
'i'rci' ’ 'i i
« «. «. *■*•.«**■« A * * * V« » t k I I I I t t t » 1 * t * •« « «* »
Tíminn 19
SPEGILL
Níu áramunur
Þegar Margaret Thatcher komst
í sögubækur sem þaulsætnasti for-
sætisráðherra Breta, voru engin
hátíðahöld af hennar hálfu. Bara
vinna eins og venjulega. f>að sama
var raunar uppi á teningnum, þegar
hún varð fyrsti forsætisráðherra
Breta afkvenkyni. Þegar umræðan
tók að hljóðna, sagði hún: - Kom-
um okkur svo að verki. Svo sannar-
lega hefur hún verið að verki síðan.
Hún lét ekki undan kolanámu-
mönnum í verkfalli, hún lætur
hneykslismál á æðri stöðum ekki á
sig fá, hún hvikaði ekki tommu
gegn Argentínumönnum við Falk-
landseyjar og segist aldrei láta
undanlRA. Mörgeru viðurnefnin,
sem hún hefur fengið, en þekktast
mun vera Járnfrúin.
Á meðfylgjandi myndum sést
hve Thatcher hefur breyst á þeim
níu árum, sem hún hefur verið við
völd. Engu er líkara en hún sé með
járngrímu nú orðið. Hún lætur alla
gagnrýni sem vind um eyru þjóta
og heldur sínu striki.
Þar fyrir utan er hún eiginkona
og móðir og Denis, maður hennar,
er einn þeirra fáu, sem leyfist að
vera á öndverðum meiði við hana.
- Skoðanir hans eru aðrar en
mínar, segir hún. - í>að kryddar
tilveruna og ég dái hann.
Margaret Thatcher hefur ekkert
breyst í því tilliti, að þegar hún
tekur ákvörðun, fær ekkert breytt
henni, hvort sem um er að ræða
atvinnuleysi eða niðurskurð á sam-
neyslunni.
Eitt hefur þó breyst og það er
útlitið. Á fyrstu valdaárum sínum
gekk forsætisráðherrann gjarnan í
búðarfötum frá Marks og Spencer
og með blómahatta. Hún eyddi
ekki tíma sínum á hárgreiðslustof-
um heldur.
Nú er öldin önnur. Bill nokkur
Gibb, sem iðulega klæðir drottn-
inguna og Biöncu Jagger, sér nú
um klæðnað Thatchers og hattarnir
eru horfnir, auk þess sem forsætis-
ráðherrann er orðin um hárið eins
og auglýsing fyrir hárgreiðslu-
meistara sinn. Ekki einu sinni
eggjakast hefur megnað að vinna á
hárgreiðslunni.
Pó ekki séu allir landar hennar
ánægðir með hana, er hún mikils
metin í öðrum löndum. Banda-
ríkjamenn kalla hana „Konu aldar-
innar“, Sovétmenn hafa heiðrað
hana og lofað í sjónvarpi og í
Indlandi var henni veitt æðsta orða
ríkisins.
Hailsham lávarður bar hana eitt
sinn saman við aðrar konur í sömu
stöðum og sagði: - Hún er fallegri
en Golda Meir var og mun elsku-
legri en Indira Gandhi.
Sjálfri finnst Thatchcr þctta góð
orð, einkum þegar á cr litið að
henni datt tæpast í hug fyrr á árum
að kona gæti orðið flokksformaður
í Englandi, hvað þá forsætisráð-
herra, en nú hefur hún setið lengst
allra slíkra.
IImVhiI Í'WÍP
I ■
*
Hundur á
hárgreiðslu-
stofu
Rex lætur fara vel
um sig í hárþurrk-
unni við hliðina á
einum „fasta-
kúnna“ Constan-
tines hárgreiðslu-
meistara.
Hann Rex er hálffeiminn á svip-
inn í hárþurrkunni og mcð lokkana
í rúllum, en hann er þó stilltur og
prúður og situr þarna eins lengi og
eigandinn segir honum.
Húsbóndi Rex er George Con-
stantine og er reyndar eigandi
hárgreiðslustofunnar. Hann á
þennan 6 ára hund, sem er víst af
svolítið blönduðu kyni, en afskap-
lega lokkaprúður. f>ví fannst hár-
greiðslumanninum, eiganda Rex,
alveg upplagt að setja í hann rúllur
og láta hann sitja í hárþurrku eftir
baðið. Constantine hárgreiðslu-
stofan er í London og er Rex þar
sem hálfgert lukkudýr á stofunni.