Tíminn - 20.09.1988, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 20. september 1988
Tíminn 7
„Hér er allt gjörólíkt því sem er heima, bæði fólkið og náttúran", segir
Charlotte Hansen. Hún er frá Tönder í Danmörku og lauk stúdentsprófí í
vor og ætlar í háskólanám þegar ráðningartíma hennar hér lýkur. Hún passar
fjóra krakka vestur á Seltjarnarnesi og lætur afar vel af dvöl sinni á íslandi.
Tímamynd: Árni.
Charlotte Hansen frá Tönder á Jótlandi:
Mig langaði
að heiman
„Mér fannst mikilvægt að sjá
eitthvað annað áður en ég held
áfram námi,“ sagði Charlotte Han-
sen sem er au-pair og gætir fjögurra
barna úti á Seltjarnarnesi.
Charlotte er 18 ára og lauk stúd-
entsprófi í vor. Hún er frá Tönder á
Jótlandi og verður hér í ellefu mán-
uði. Hún sagði að dvöl sína og vinnu
hér á landi fengi hún metna til
eininga þegar hún byrjar framhalds-
nám, þótt barnagæslan tengist ekki
beinlínis því námi sem hún ætlar að
stunda.
„Mér fannst að tsland hlyti að
vera merkilegt og ólíkt því sem ég er
vön heima og ég hef ekki orðið fyrir
vonbrigðum. Náttúran er stórkost-
leg og hana ætla ég að skoða betur
meðan ég verð hér.
Vinir mínir heirna voru hálf undr-
andi á mér þegar ég sagði þeim að
ég ætlaði til íslands og sumir þeirra
töluðu um að snjóhús væru ekki
þægilegir bústaðir, en ég get sagt
þeim að hér er gott að vera.
Ég hef verið hér í tæpa tvo mánuði
og það hefur verið yndislegur tími
og mér finnst bæði landið og fólkið
gerólíkt því sem ég er vön heima, en
þó ekki á þann hátt að ég hafi fengið
neitt sjokk, langt í frá,“ sagði Char-
lotte.
Charlotte sagðist vinna átta tíma
á dag og hún ætti frí öll kvöld og
helgar og hefði ágætan tíma til að
skoða sig um. Launin væru sann-
gjörn og dygðu henni. Hún sagðist
ekki geta lagt neitt til hliðar, enda
væri það ekki meiningin. -sá
Anna Guðmundsdóttir hefur ráðið au-pair stúlku:
Afskaplega
dugleg og góð
við drenginn
„Það er rúmur mánuður síðan
Tine kom til mín og öll samskipti
okkar við hana hafa gengið frábær-
lega vel til þessa“, sagði Anna
Guðmundsdóttir starfsmaður í Út-
vegsbankanum.
„Ég réði au-pair stúlku vegna þess
að ég vildi ekki vera að þvæla
drengnum mínum út um bæinn,
heldur hafa hann heima. Ég var ekki
að sækjast eftir vinnukonu heldur
barnapíu, en engu að síður er stúlk-
an sérlega dugleg og heldur húsinu
hreinu og það sem mest er um vert.
Hún er afskaplega góð við drenginn
minn.“
Hún sagðist borga stúlkunni 12
þúsund kr. á mánuði en hún hefði
vitanlega húsnæðið og fæðið frítt og
henni væri séð fyrir strætófargjöld-
um og öll námskeið, sem hún vildi
sækja yrðu greidd fyrir hana. - sá
Stjórnarmenn í ísfílm á fundi með fulltrúum Marconi. Á myndinni eru f.v. Birgir Georgsson og Peter J. Loweth
frá Marconi, Indriði G. Þorsteinsson, Kristján Jóhannsson og Jón Aðalsteinn Jónasson stjórnarmenn í ísfílm.
Tímamynd Arni Bjarna
TÆKNIRÆDD Á
FUNDIÍSHLM
Stjórnarmenn í ísfilm áttu á föstu-
dag fund með útflutningsfulltrúa
fyrirtækisins Marconi, sem framleið-
ir tækjabúnað í myndver og sjón-
varpssenda. Fyrirhugað er að nýja
sjónvarpsstöðin sem Isfilm hefur
sótt um leyfi fyrir, verði mjög tækni-
lega fullkomin og tölvutæknin ríkur
þáttur í starfseminni.
Að sögn Kristjáns Jóhannssonar
eins stjórnarmanna í ísfilm kynnti
fulltrúi Marconi fyrir þeim þær
tæknibreytingar sem búast mætti við
í nánustu framtíð, bæði hvað varðar
móttökubúnað í heimahúsum,
sendibúnað hjá sjónvarpsstöðvum,
búnað í myndver, og þá kosti sem
þar væru fyrir hendi.
í máli fulltrúa Marconi kom fram
að von væri á mun mciri myndgæð-
um í sjónvarpstækjum, en eru í dag.
Það eru 1100 lína tæki, myndin mun
skarpari og líkist einna helst litmynd
í bók. Til þess að nýta gæði þessara
sjónvarpa og þjóna þeim sem í þeim
fjárfesta, þarf sérstakan myndvers
og sendibúnað og kynnti fulltrúi
Marconi þann búnað einnig fyrir
stjórnarmönnum ísfilm.
Kristján sagði að fyrirhugað væri
að hafa sjónvarpsstöðina mjög sjálf-
virka og ekki væri gcrt ráð fyrir
mögrum starfsmönnum, heldur væri
ætlunin að tölvutæknin yrði ríkur
þáttur í starfseminni og vélmenni
sjái um ákveðna þætti hcnnar.. ABÓ
Hreyfingar í atvinnulífi á Þorlákshöfn:
Tvö ný fyrirtæki
taka til starfa
Tvö ný fyrirtæki taka von bráðar
til starfa á Þorlákshöfn sem samtals
munu skapa vinnu fyrir um 30
manns, eftir því sem Tíminn kemst
næst. Annað fyrirtækið er matvöru-
verslun og nefnist Hafnarkaup, en
hitt fyrirtækið er fiskvinnslufyrirtæki
og nefnist Hafnarberg hf. Ekki er
enn Ijóst hvað verður um starfsemi
Meitilsins, en fyrirtækið sagði upp
öllu sínu starfsfólki í sumar, til þess
að fyrirtækið færi ekki á hausinn.
Fyrirtækið er enn í fullum rekstri,
miðað við árstíma, og verður það
a.m.k. til mánaðarmóta.
Verslunin Hafnarkaup verður ný-
lenduvöruverslun að sögn Heimis
Davíðssonar eins af eigendunum í
samtali við Tímann. Grunnflötur
verslunarhúsnæðisins er 350 fer-
metrar. Á neðri hæðinni verður
matvara, en á efri hæðinni sem er
150 fermetrar verður fatnaður.
Heimir sagði að búast mætti við 8 til
10 starfsmönnum í heildagsstarfi hjá
versluninni, sem tekur til starfa á
næstu vikum. Aðspurður sagði
Heimir að þeir hefðu aldrei farið út
í þennan rekstur ef þeir hefðu ekki
talið að rekstrargrundvöllur væri
fyrir hendi, enda væri aðeins ein
verslun í Þorlákshöfn sem væri um
1400 manna byggðarlag.
Guðfinnur Karlsson einn af eig-
endum Hafnarbergs hf. vildi ekki tjá
sig um fyrirtækið að öðru leyti en því
að líklega hæfi það starfrækslu um
mánaðamótin næstu. Eftir því sem
Tíminn kemst næst verður um sér-
hæfða vinnslu að ræða, með mjög
fullkominni framleiðslulínu. Þá
munu milli 20 og 30 manns koma til
með að starfa hjá fyrirtækinu. Fram-
kvæmdir við byggingu húsnæðis
fyrirtækisins hófust fyrir um ári
síðan.
Páll Jónsson forstjóri Meitilsins í
Þorlákshöfn sagði í samtali við Tím-
ann að uppsagnirnar væru miðaðar
við 1. nóvember nk. bæði hjá þeim
sem voru með mánaðar uppsagnar-
frest og þriggja mánaða. „Hvort þær
koma til framkvæmda eða ekki, fer
eftir því hvað kemur út úr aðgerðum
til að lagfæra rekstrargrundvöll sjáv-
arútvegsins," sagði Páll. Hann sagði
að hægt hefði á rekstri fyrirtækisins
þegar sumarvinnufólkið hefði hætt
og nú væri fyrirtækið í eðlilegum
rekstri miðað við árstíma, með á
annað hundrað starfsmenn.
Meitillinn á tvo báta og tvo togara
og hefur annar bátanna verið seldur,
auk þess sem verið er að athuga með
að selja hinn bátinn. Páll sagði að
þeir væru báðir orðnir gamlir, auk
þess sem þeir væru litlir. „Það er
spurnir.g hvort skipt verður upp í
stærri bát. Þetta er spurning sem
bíður síns tíma.“
Páll sagði að það hefði gætt nokk-
urs misskilnings, þegar verið væri að
segja að Meitillinn væri að gefast
upp, eða á hausinn. „Málið er að við
sögðum upp til að fara ekki á
hausinn. Við ætlum ekki að keyra
okkur alveg ofaní svaðið og láta þá
sem trúðu okkur fyrir viðskiptum og
verðmætum tapa. Við hættum frekar
rekstri og seljum eignir og borgum
þannig okkar skuldir," sagði Páll.
Hann sagðist vonast til þess að ekki
kæmi til. slíks og landsfeðurnir
finndu skynsamlega lausn á rekstrar-
vandanum. -ABÓ
Skáldsagnasamkeppni
Æskunnar framlengd
f tilefni af 90 ára afmæli Æskunn-
ar í október sl. efndi Stórstúka
íslands til skáldsagnasamkeppni.
Áskilin voru réttindi til að taka
hvaða handriti sem var eða hafna
öllum.
Sjö handrit bárust og fullnægði
ekkert þeirra gæðakröfum útgef-
enda, því var ákveðið að fram-
lengja frestinn til maíloka 1989.
Verðlaun eru 200 þúsund krónur
að viðbættum venjulegum ritlaun-
um. Þeir sem áhuga hafa, eiga að
senda handrit merk dulnefni, til
Stórstúku Islands, Eiríksgötu 5,
Reykjavík. Dómnefndin áskilur
sér rétt til að taka hvaða handriti
sem er, eða hafna öllum.