Tíminn - 20.09.1988, Blaðsíða 14
14 Tíminn»
Þriðjudagur 20. september 1988
11 ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna:
Markaregn við
Stjömugróf
Víkingar unnu öruggan sigur á
Völsungum frá Húsavík, 5-2, erliðin
mættust í 1. deildinni í knattspyrnu
á laugardag.
Leikurinn var fjörugur og opinn,
eins og mörkin 7 gefa til kynna.
Víkingar voru mun ákveðnari í
sóknaraðgerðum sínum og hafa nú
sigrað í tveimur leikjum í röð í
deildinni. Liðið hefur sýnt það í
síðustu tveimur leikjum að það er
mun betra en staða jaess í deildinni
ber vitni um.
Atli Einarsson gerði fyrsta mark
Víkinga í leiknum. Hlynur Stefáns-
son braust upp hægri kantinn og gaf
fyrir markið, þar sem Atli skallaði
knöttinn ínetið, 1-0. Víkingar höfðu
ráðið lögum og lofum á vellinum
fyrir markið, en eftir það jafnaðist
Keflvíkingar gátu fyrir leiki helg-
arinnar hugsanlega fallið í 2. deild
en með sigri eða jafntefli gegn Þór
var sætið tryggt. Þetta gekk eftir
ug jafntcfli varð niðurstaðan í held-
ur tilþrifasnauðum leik sl. laugar-
dag. Reyndar voru Keflvíkingar
óheppnir að sigra ekki því Kristján
Kristjánsson jafnaði fyrir Þór að-
eins einni mínútu fyrir leikslok.
Jóhannes Atlason, þjálfari Þórs,
gjörbreytti liði sínu í þessum leik.
Hann hvíldi þá Siguróla Kristjáns-
son, Jónas Róbertsson og Guð-
mund Val Sigurðsson, auk þess
sem Halldór Áskelsson var meidd-
ur. í stað þeirra léku ungir og
efnilegir piltar sem stóðust flestir.
prófið með sóma.
Það var strax á 3. mínútu sem
Birgir Karlsson sendi gullfallega
sendingu inn fyrir vörn Keflvíkinga
á Hlyn Birgisson sem skoraði ör-
ugglega frá vítateigshorni. Keflvík-
ingar svöruðu fyrir sig þremur
mínútum síðar þcgar Grétar Ein-
arsson skoraði eftir hornspyrnu.
Bjuggust menn við markaregni
en leikurinn þróaðist á annan veg.
Lítið var um góð færi og leikurinn
leikurinn nokkuð.
Það voru samt V íkingar sem bættu
öðru marki við fyrir leikhlé. Lárus
Guðmundsson braust í gegnum vörn
Völsunga og gaf knöttinn á Björn
Bjartmarz sem skoraði af öryggi,
2-0.
Strax á upphafsmínútum síðari
hálfleiks gerðu Víkingar sitt þriðja
mark. Atli Helgason, varnarmaður-
inn sterki, sem áður lék með Þrótti,
skoraði þá, eftir að Þorfinnur Hjalta-
son markvörður Völsunga hafði var-
ið aukaspyrnu eins Víkings, 3-0.
Theodór Jóhannsson, íþrótta-
maðurinn fjölhæfi, mínnkaði mun-
inn fyrir Völsunga á 53. mín. Skarp-
héðinn ívarsson tók hornspyrnu frá
vinstri og Theodór skallaði knöttinn
í markið, 3-1.
þófkenndur. Óla Þór Magnússyni
tókst þó að skora gullfallegt mark
sem dæmt var af vegna rangstöðu.
1-1 í hálfleik og himnafeðgarnir
skrúfuðu heldur betur frá rigning-
arkrananum.
Kristján Kristjánsson var nálægt
því að skora strax í upphafi síðari
hálfleiks en Keflvíkingar tóku síð-
an af skarið og spiluðu mun betur
saman úti á vellinum. Á 53. mínútu
braut Páll Gíslason klaufalega á
Óla Þór Magnússyni innan teigs og
Sigurður Björgvinsson skoraði úr
vítaspyrnunni sem dæmd var.
Ekki minnkaði barátta Suður-
nesjamanna við markið og áttu Óli
Þór og Grétar Einarsson báðir
hættuleg færi. En eins og áður
sagði jafnaði Kristján Kristjánsson
einni mínútu fyrir leikslok. Jafn-
tefli var því niðurstaðan í leik þar
sem Keflvíkingar voru heldur nær
sigri. Óli Þór spilaði mjög vel með
Keflvíkingum og Ragnar Margeirs-
son var skæður í framlínunni. Hjá
Þór var nýliðinn Árni Þór Árnason
mjög góður framan af lciknum en
missti flugið í seinni hálfleik.
Kristján var og ógnandi. Dómari
var Sæmundur Víglundsson og var
þetta ekki hans dagur.
Nú var mörkunum farið að rigna
fyrir alvöru. Víkingar gerðu sitt 4.
mark á 57. mín. er Atli Einarsson
lék inní vítateig Völsunga og gaf á
Lárus Guðmundsson, sem hafði
nægan tíma til að athafna sig og
skoraði af stuttu færi, 4-1.
Völsungar bættu síðan marki við
strax í næstu sókn, eða á 62. mín.
Skúli,“ Frambani“, Hallgrímsson
var þar að verki eftir hornspyrnu,
4-2, og 3 mörk á 9 mín. kafla.
Nokkuð dofnaði yfir leiknum eftir
markasúpuna, en Víkingar náðu að
bæta 5. markinu við á 85. mín.
Sveinbjörn Jóhannesson skaut föstu
skoti að marki norðanmanna, en
varnarmaður komst á milli. Knöttur-
inn barst fyrir fætur Björns
Bjartmarz, sem afgreiddi hann í
bláhornið, 5-2.
Öruggur sigur Víkings á blautum
vellinum við Stjörnugróf. Með þess-
um sigri eiga Víkingar góða mögu-
leika að færast ofar í deildinni,
sérstaklega ef liðið heldur áfram að
leika eins og það hefur gert í tveimur
síðustu leikjum. Völsungareru falln-
ir í 2. deild og síðustu leikir deildar-
innar eru nánast formsatriði fyrir þá.
Þeim gefst þá gullið tækifæri til að
leyfa ungum og efnilegum leikmönn-
um að spreyta sig í deildinni og
öðlast reynslu, því liðið gæti hæglega
átt eftir að leika í 1. deildinni aftur
innan fárra ára. BL
STAÐAN I
1. DEILD
Fram ... 17 15 1 1 35-6 46
Valur .... 17 12 2 3 33-15 38
ÍA ... 17 9 5 3 30-21 32
KA . . . 17 8 3 6 31-28 27
KR ... 17 7 3 7 25-23 24
Þór . . . 17 5 6 6 23-27 21
Víkingur ... 17 5 3 9 19-28 18
tBK . . . 17 3 6 8 19-31 15
Leiftur ... 17 1 5 11 10-25 8
Völsungur .. . . . . . 17 2 2 13 12-35 8
STAÐANí
2. DEILD
FH ................. 17 13 2 2 46-20 41
Fylkir.............. 17 9 6 2 39-27 33
Vídir............... 17 8 2 7 34-28 26
ÍR.................. 17 8 2 7 31-34 26
Tindastóll.......... 17 7 2 8 26-29 23
Selfoss............. 17 6 4 7 25-26 22
ÍBV................. 17 6 2 9 29-31 20
UBK ................ 17 5 5 7 25-32 20
KS.................. 17 4 4 9 35-45 16
Þróttur............. 17 2 5 10 24-38 11
Knattspyrna:
Keflvíkingar
hólpnir
Frá Jóhannesi Bjarnusyni, fréttaritara Tímans
á Akurcyri:
Knattspyrna
Leiftur féll fyrir meisturunum
Frá Erni Þórarinssyni, frcttaritara Tínians:
Fram sigraði Leiftur 3-0 þegar
liðin mættust í 1. deild fyrir norðan
á laugardaginn. Þetta var stærsti
ósigur Leifturs á keppnistímabilinu
en þrátt fyrir það náði liðið oft
ágætum samleiksköflum sem
brotnuðu á öruggri vörn íslands-
meistaranna. Það sem skildi liðin
að í þessum leik var það að Framar-
ar nýttu sín marktækifæri en í
knattspyrnunni eru það mörkin
sem gilda.
t fyrri hálfleik var jafnræði með
liðunum, heimamenn fengu tvíveg-
is ágæt marktækifæri í byrjun leiks-
ins sem fóru í súginn. Guðmundur
Steinsson nýtti hins vegar cina
umtalsverða færi Fram í hálfleikn-
um. Markið kom á 31. mínútu.
Framarur voru sprækari í síðari
hálfleik. Þeir bættu fljótlega við
öðru marki sem kom nánast eins
og þruma úr heiðskíru lofti. Fram-
arar unnu knöttinn út við hliðarlínu
og scndu langa sendingu inn í
vítateig Lcifturs þar sem Arnljótur
Davíðsson reyndi skot. Knötturinn
stefndi langt framhjá en skyndilega
kom Pétur Ormslev og sendi bolt-
ann með þrumuskoti í markið.
Síðasta mark Fram skoraði Arn-
Ijótur úr vítaspyrnu sem dæmd var
á einn varnarmanna Leifturs, sem
var að kljást við sóknarmann Fram
fyrir opnu marki, eftir að Þorvald-
ur markvörður hafði reynt vafa-
samt úthlaup. Á lokamínútunum
fengu síðan Ómar Torfason og
Arnljótur tækifæri til að bæta við
mörkum, einnig Halldór Guð-
mundsson hjá Leiftri, en þrátt fyrir
ágæt færi urðu mörkin ekki fleiri.
Skömmu áður en leikur þessi
hófst varð endanlega Ijóst að dvöl
Leifturs í 1. deild væri á enda með
jafntefli Þórs og ÍBK og því var
kannski vart við að búast að liðið
léki af sama krafti og oft áður i
sumar. Þrátt fyrir að liðið næði
ekki fótfestu í deildinni hljóta þeir
að hafa öðlast mikla reynslu á
þessu keppnistímabili.
í leikjum liðsins hefur oft virst
eins og vantaði herslumuninn. Nær
allir tapleikir töpuðust t.d. með
einu marki en í nokkrum leikjum
varð liðið að sætta sig við jafntcfli
þar scm örlítil heppni hefði fært
liðinu sigur.
Fyrsta mark leiksins staðreynd. Knötturinn fýkur í markið eftir hornspyrnu Sæbjörns
Knattspyrna:
Valsmenn á gæs
Hávaðarok einkenndi leik Vals og
KR á Hlíðarendavelli á sunnudaginn, í
1. deildinni í knattspyrnu. Svo mikið var
rokið að undir lok leiksins neyddist gæs,
sem var á sveimi yfir Vatnsmýrinni, til
þess að nauðlenda á miðjum Valsvellin-
um. IJppákoma þessi var mikil skemmt-
un jafnt fyrir leikmenn og áhorfcndur,
en starfsmönnum vallarins tókst að grípa
gæsina og koma henni út af, með góðri
aðstoð dómara og línuvarðar.
KR-ingar léku undan rokinu í fyrri
hálfleik og gerðu þeir eina mark hálf-
leiksins. Sæbjörn Guðmundsson skoraði
markið með dyggri aðstoð Kára, beint
úr hornspyrnu. Valsmenn fengu góð
tækifæri til þess að jafna undir lok
hálfleiksins, en þeim Magna Péturssyni
og Sævari Jónssyni tókst ekki að nýta
þau.
Það tók Valsmenn aðeins 3 mínútur
að jafna metin í síðari hálfleiknum,
þegar þeir voru komnir með vindinn í
bakið. Knötturinn barst inní vítateig til
Sigurjóns Kristjánssonar sem skoraði af
öryggi sitt 13. mark í sumar. Á 60. mín.
urðu KR-ingum á slæm mistök. Atli
Eðvaldsson komst inní sendingu frá
Jósteini Einarssyni á Stefán Arnarson
markvörð og það þýddi mark. Atli náði
að pota tánni í knöttinn sem rúllaði í
markið, 2-1 fyrir Val. Fimm mín. síðar
fékk Magni gullið tækifæri til þess að
skora, en skaut rétt yfir markið. Willum
Þórsson gaf fyrir mark Vals á 75. mín.
Knötturinn barst til Björns Rafnssonar
sem lét Guðmund Baldursson varja skot
sitt. Valsmenn hreinsuðu langt fram á
völlinn þar sem Atli tók við knettinum,
lagði hann fyrir sig og skoraði sitt annað
mark í leiknum, 3-1 fyrir Val. KR-ingar
minnkuðu muninn á 79. mín. Björn
Rafnsson komst einn upp vinstri
kantinn, lék á Guðmund markvörð, sem
kom á móti honum og skaut að marki.
Knötturinn lenti í slánni og hrökk þaðan
fyrir fætur Willums Þórssonar sem skor-
aði af öryggi, 3-2. Minnstu munaði að
KR-ingum tækist að jafna metin á lok-
amínútum leiksins, en skot Rúnars
Kristinssonar fór rétt framhjá marki
Dómari og línuvörður reyna að grípa gæs
af spenningi.
Knattspyrna:
Jafntefli í blau
Frá Kristni Reimarssyni frcttamanni Tímans:
Skagamenn tóku á móti norðanmönn-
um í liði KA sl. laugardag og endaði
leikurinn með 2-2 jafntefli. Fyrri hálf-
leikur var mjög fjörugur og voru öll
mörkin skoruð á fyrstu 24 mínútunum.
Þorvaldur Örlygsson skoraði fyrsta
mark KA-manna á 11. mínútu en mínútu
síðar voru KA-menn heppnir að fá ekki
dæmda á sig vítaspyrnu, þegar boltinn
hrökk í hönd varnarmanns liðsins innan
vítateigs.
Skagamenn voru fljótir að jafna. Á
15. mínútu átti Sigursteinn Gíslason
hálf-misheppnað skot að marki KA sem
vörninni tókst að hreinsa frá, en ekki
vildi betur til en svo að boltinn barst til
Aðalsteins Víglundssonar, sem stóð
einn fyrir innan vörnina og átti ekki í
erfiðleikum með að skora.
Það tók ekki nema fimm mínútur fyrir
Skagamenn að komast yfir. Aftur var
Sigursteinn á ferðinni þegar hann lék á
tvo varnarmenn og komst upp að enda-
mörkum. Þaðan gaf hann góða sendingu
fyrir markið á Aðalstein sem skoraði
annað mark sitt með skalla.
KA-menn voru ekki afbaki dottnirog
jöfnuðu á 24. mínútu eftir mistök