Tíminn - 20.09.1988, Side 12
12 Tírpipn
Þriðjudagur 20. september 1988
Þriðjudagur 20. september 1988
Tíminn 13
Olympíuleikarnir í Seoul:
Fullir íslendingar
Frá Pjetrí Sigurðssyni fréttamanni Tímans í
Seoul:
Sú saga gengur nú fjöllunum
hærra hér í Seoul að íslenska Ólymp-
Madrid. Real Madrid varð að
sætta sig við 2-2 jafntefli gegn Real
Sociedad í spænsku 1. deiidinni í
knattspyrnu um helgina. Bernd
Schuster gerði fyrsta mark Real
Madrid eftir 7 mínútur, en mark-
vörður Sociedad, Luis Arconada
fyrrum landsliðsmarkvörður Spán-
verja, varði tvívegis glæsilega frá
þeim Hugo Sanchez og Emilio Bitr-
agueno. Jöfunarmark Sociedad var
sjálfsmark 19 ára nýliða í liði
Madrid, Miguel Tendillo. Rafael
Martin Vazquez bætti fyrir mistök
félaga síns og kom Madrid aftur yfir,
en Mikel Loinaz jafnaði leikinn fyrir
Sociedad, eftir varnarmistök
Madridinga.
Barcelona. Barcelona gerði líka
jafntefli um helgina. Mótherjar
þeirra voru Valencia og úrslitin urðu
1- 1. Fyrirliðinn Jose Alesonco var
rekinn af leikvelli á 66. mín. en allt
kom fyrir ekki og Roberto Fernand-
ez skoraði á 70. mín. en Fernando
Gomez jafnaði fyrir Valencia 3 mín.
fyrir leikslok.
Atletico Bilbao situr í toppsæti
dcildarinnar eftir 3 umferðir með 6
stig, LogLones hefur sömu stigatölu
í 2. sæti qg Barcelona er í þriðja sæti
með 5 stig.
Paris. Monaco er í 7. sæti frönsku
1. deildarinnar eftir markalaust jafn-
tefli gegn Sochaux á útivelli. Monaco
hefur 19 stig eftir 12 umferðir, en
Paris SG er í 1. sæti með 24 stig, eins
og Auxerre.sem hefur lakari marka-
tölu. Paris SG gerði einnig marka-
laust jafntefli gegn Montpellier.
Auxerre gerði sömuleiðis marka-
laust jafntefli gegn Toulouse á úti-
velli. Laval sigraði Boreaux 1-0 á
heimavelli og Marseille vann Cannes
2- 1. *■
Brussel. Ánderlecht vann góðan
sigur á Lokeren 4-2 á útivelli á
belgísku 1. deildinni um helgina.
Amór og félagar cru í efsta sæti
deildarinnar með 14 stig eftir 8'
umferðir. Club Brugge og Mechelen
hafa einnig 14 stig, en lakara marka-
hlutfall. Genk, lið Guðmundar
Torfasonar gerði markalaust jafn-
tefli gegn Lierse á heimavelli.
Amsterdam. PSV Eindhoven
vann 3-1 sigur á Willem II á útivelli
á 1. deildinni í Hollandi um helgina.
Liðið er þó ekki meðal 6 efstu liða
deildarinnar eftir 6 umferðir, en FC
Twente leiðir deildina með 9 stig.
Næstu lið eru Feyenoord og FC
Utrecht með 8 stig.
London. Enski landsliðsnýliðinn
frá Arsenal, Paul Davis á yfir höfði
sér keppnisbann, eftir að hann
kjálkabraut Southampton leikmann-
inn Glen Cockerill í leik Arsenal og
Southampton og Arsenal á laugar-
dag. Hvorki dómari leiksins né línu-
vörður sá atvikið, en í sjónvarpi
mátti greinlega sjá að Davis sló
Cockerill. Fordæmi eru fyrir því að
leikmenn séu dæmdir í bann eftir á,
þegar greinilega kemur fram á sjón-
varpsupptöku, að þeir hafa brotið
gróflega af sér án þess að dómari
hafi orðið þess var.
Liverpool. Bruce Grobbelaar
markvörður Liverpool var fluttur á
sjúkrahúsásunnudagskvöld. Brobb-
elaar kvartaði yfir vanlíðan eftir leik
Liverpool og Tottenham á Arnfield
á laugardag. í ljós kom að hann er
með heilahimnubólgu. Grobbelaar
mun að öllum líkindum ekki leika
með Liverpool næsta mánuðinn.
íuliðið hafi verið ölvað á leiðinni til
Seoul.
I
Hið sanVia er að íslenski ferða-
mannahópurinn scm hér er fékk sér
neðan í því á leiðinni frá
Kaupmannahöfn til Bankok og það-
an til Seoul. Voru ferðamennirnir
klæddir í búningum sem voru í
íslensku fánalitunum og sungu og
trölluðu.
Samferða í sömu flugvél voru
Ólympíulið Dana og Svía og horfðu
þeir furðu lostnir á framferði íslend-
inganna á leiðinni, en þeir héldu að
þarna færi íslenska Ólympíulands-
liðið. Meðal farþega í vélinni var
sænska handknattleikslandsliðið
sem mæta mun fslendingum á laug-
ardag. Þeir sænsku hafa örugglega
haldið að verið væri að halda fyrir-
fram uppá sigur íslands í þeim leik.
Fararstjórn íslenska liðsins hér er
allt annað en ánægð með framferði
íslcnsku ferðamannanna og hefur
beðið þá að klæðast ekki fánalitum
búningum þegar þeir eru að gera sér
glaðan dag. PS/BL
Lewis farinn
í felur
Frá Pjetrí Sigurðs.syni fréttamanni Tímans í
Seoul:
Viðureign jbeirra Carls Lewis,
þess fræga Ólympíumeistara og
Ben Johnsons, fljótasta manns í
heimi, er sá atburður sem flestir
hér í Seoul bíða eftir.
Kunnugir segja að Lewis muni
sigra Johnson og verða fyrsti mað-
urinn til þess að sigra í 100 m hlaupi
á Ólympíuleikum tvenna leika í
röð. Lewis mun vera í mjög góðu
formi og Ben á á ekki að hafa roð
við honum.
Æfingar Lewis vekja jafnan
mikla athygli fréttamanna og það
er jafnan mikið sem gengur á á
þeim. Sem dæmi fór öll sunnu-
dagsæfingin hjá Lewis í það að
húðskamma þjálfarann og alla að-
stoðarmennina og fengu þeir það
vel útilátið.
Lewis hefur hvað eftir annað
flutt sig um set í Ólympíuþorpinu,
en nú hefur hann farið þaðan og
býr einhversstaðar utan við þorpið.
Svo mikil leynd er yfir dvalarstað
kappans að fararstjórar bandaríska
liðsins vita ekki hvar kappinn held-
ur sig. PS/BL
Rúmin góð
Fró Pjetri Sigurðssyni fréttumanni Tímans í
Seoul:
Allir íslensku keppendurnir hér ■
Seoul eru sammála um það hvað
rúmin séu sérstaklega þægileg. ís-
lensku keppendurnir vakna úthvíldir
á hverjum morgni tilbúnir að takast
á við æfingar fyrir keppni dagsins.
PS/BL
Pjetur
Sigurðsson
fréttamaður Tímans
skrifar frá Ólympíu-
leikunum í Seoul
Miðar seldir á
svörtum markaði
Frá Pjetrí Sigurðssyni fréttamanni Tímans í
Seoul:
Svartamarkaðsbrask með miða á
■þróttaviðburði hér í Seoul er
nokkurt. Til dæmis voru miðar á
setningarathöfnina seldir á 4000 dali,
eða um 184 þúsund ísl. krónur.
Helga með
hálsbólgu
Frá Pjetri Sigurðssyni fréttamanni Tímans í
Seoul:
Helga Halldórsdóttir frjálsíþrótta-
kona náði sér ■ hálsbólgu á leiðinni
til Seoul og hefur hún af þeim sökum
misst úr nokkra daga frá æflngum og
þar með misst einhvern kraft og
snerpu.
Helga er nú öll að ná sér og ætti
að að vera búin að ná sér að fullu á
keppnisdag, næsta sunnudag, þegar
hún keppir í 400 m grindahlaupi.
Vonandi hafa þessi veikindi hennar
ekki áhrif þegar að keppni kemur,
næsta sunnudag, en miðað við tíma
keppenda á Helga möguleika á að
komast í úrslit. PS/BL
Enska knattspyrnan:
Magnús Már Ólafsson virðir fyrir sér tímatöfluna, eftir 200 m skriðsundið í Seoul á laugardag.
Ólympíuleikar - körfuknattleikur:
Stórsigur Júgóslava
Miðar á sundkeppnina eru nokkuð
ódýrari og kosta um 1000 kr. á svarta
markaðnum. Ástæðan fyrir þessu
braski er sú að miðar eru af skornum
skammti, en ferðaskrifstofur víða
um heini munu liggja með óselda
miða í bunkum. PS/BL
ísland vann
„Saltfiskmótid"
A-lið íslands sigraði Spán í úrslita-
leik „Saltfiskmótsins“ í handknatt-
leik kvenna ■ Seljaskóla ■ gærkvöld,
21-17. Markahæstar voru Margrét
Theodórsdóttir með 6/2 og Guðríður
Guðjónsdóttir með 5/2.
Á laugardag vann A-liðið Portúg-
al 18-14, Ósk Víðisdóttir var marka-
hæst með 4 mörk, B-liðið tapaði þá
fyrir Spáni 17-24, Erla Rafns. gerði
8/1 mörk fyrir B-liðið. Á sunnudag
sigraði Spánn Portúgal 24-12 og
ísland A vann fsland B 24-11, Mar-
grét Theodórsd. gerði 7/4 mörk fyrir
A- Iiðið og Erla 5/3 fyrir B-liðið.
Fyrri leikurinn í gærkvöld var á milli
B-liðs íslands og Portúgals. Portúgal
sigraði 23-15, Erla var markahæst
með 4 mörk. BL
Keppni í körfuknattleik á Ólympíuleikun-
um hófst strax á föstudag.
Brasilíumenn, sem óvænt sigruðu á
Pan-Am leikunum, unnu öruggan sigur á
Kanada, 125-109. Oscar Smith skoraði 36
stig fyrir Brasilíu, en Alan Kristmanson,
sem örugglega er af íslenskum ættum gerði
25 stig fyrir Kanada.
Bandaríkjamenn unnu öruggan sigur á
Spáni 97-53. Daavid Robinson varstórgóð-
ur í bandaríska liðinu og varði fjölmörg
skot Spánverjanna auk þess að taka mikið
af fráköstum og skora 16 stig, Danny
Manning gerði 13 stig og Hersey Hawkins
13.
OL úrslit
Blak
Júgóslavar unnu öruggan og óvæntan
sigur á Sovétmönnum 92-79. Sovétmenn
höfðu yfirhöndina í byrjun en Júgóslavar
sigu á og voru 39-33 yfir í hálfleik. Síðari
hálfleikur var mjög skemmtilegur og Júgó-
slavar tryggðu sér óvæntan sigur. Drazen
Petrovic var þeirra stigahæstur með 25
stig, en miðherjinn Zarko Paspalj gerði 20
stig. Shavunas Marchulionis og Titt Sókk
gerðu 20 stig hvor fyrir Sovétmenn.
Liðsmenn körfuknattleiksliðs Mið-Afr-
íkulýðveldisins komu skemmtilega á óvart
og unnu S-Kóreu 73-70. Fögnuður Afríku-
mannanna var gífurlegur í lok leiksins, en
landið var valið til þess að halda Afríku
meistarakeppnina 1974 með því skilyrði að
þeir byggðu íþróttahús. Pað gerðu þeir og
unnu keppnina þótt húsið tæki aðeins 500
áhorfendur. Síðan hefur allt snúist um
körfubolta í landinu og þeir uppskera nú
ávöxt þess. «
f kvennakörfunni unnu sovésku stúlk-
urnar öruggan sigur á Búlgaríu 91-62 á
meðan núverandi Ólympíumeistarar frá
Bandaríkjunum áttu í mestu erfiðleikum
með að sigra Tékkóslóvakíu 87-81.
Úrslit í körfuknattleik karla:
A-riðill:
Júgóslavía-Sovétríkin..............92-79
Mið-Afríku Lýðv.-S-Kórea ..........73-70
Ástralía-Puerto Rico ..............81-77
B-riðill:
Bandaríkin-Spánn...................97-53
Kína-Egyptaland....................98-84
Brasilía-Kanada ................ 125-109
Körfuknattleikur kvenna:
A-riðill:
Sovétríkin-Búlgaría................91-62
B-riðill:
Bandaríkin-Tékkóslóvakía ..........87-81
BL
A-riðill:
Brasilía-Ítalía . . 3-0
Svíþjóð-S-Kórea . . 3-2
Sovétríkin-Búlgaría . . 3-0
Sovéríkin-Svíþjóð . . 3-0
B-riðill:
Holland-Frakkland . . 3-1
Bandaríkin-Holland . . 3-1
Bandaríkin-Japan . . 3-0
Argentína-Túnis , . . 3-0
Knattspyrna A-riðill: V-Þýskaland-Kína . . 3-0
V-Þýskaland-Túnis . . 4-1
Svíþjóð-Túnis
B-riðill:
Ítalía-Guatemala
Zambia-Ítalía
Írak-Zambía
C-riðill:
S-Kórea-Sovétríkin
Bandaríkin-Argentína . . 1-1
D-riðill:
Ástralía-Júgóslavía
Brasilía-Nígería
Óvæntur sigur og heimsmet
Ducan Armstrong setti heimsmet í 200m
skriðsundi í Seoul í gær, þegar hann skaut þeim
Michael Gross og Mark Biondi ref fyrir rass, en
þeir voru álitnir líklegir sigurvegarar í greininni
og var nánast búist við einvígi þeirra.
Dungan Armstrong synti á 1,47,25 min. annar
í sundinu varð Svíinn Aners Holmertz og var það
mjögóvænt. Matt Biondi varð að láta sér3. sætið
lynda, en fyrrum heimsmethafi og Ólympíu-
meistari Michael Gross varð aðeins í 5. sæti. 1
fjórða sæti varð Pólverjinn Artur Wojdat. BL
Gífurlegur endasprettur
tryggði Moorhouse sigur
Bretinn Adrian Moorhouse sýndi gífurlega
baráttu í úrslitum í 100 m bringusundi karla í
Seoul á mánudag.
Hann var í 6. sæti, 1,5 sek. á eftir Sovét-
manninum Dimitri Volkov eftir 50 m en náði að
sigra með einhverjum þeim mesta endasprett
sem sögur fara af. Moorhouse fékk tímann
1.02.04 mín. Annar varð Ungverjinn Koioi\
Guttler og Volkov varð þriðji. Heimsmetið! í
þessari grein á Bandaríkjamaðurinn Steve
Lundquist en það setti hann á ÓL í Los Angeles,
metið er 1,01,65 mín. Þá varð Moorhouse í
fjórða sæti. BL
Tvö heimsmet í fluguvigt
Búlgarinn Sevdalin Marinov setti tvö heims-
met í lyftingum í fluguvigt (52 kílógramma
flokki) á Ólympíuleikunum í Seoul sl. sunnudag.
Hann lyfti 120 kílóum í snörun og 270 kílóum í
samanlögðu. Fyrra heimsmet í samanlögðu átti
Kínverjinn He Zhuoqiang, 267,5 kíló.
Marinov hreppti því gullið en Chun Byung-
kwan frá Suður-Kóreu hlaut silfurverðlaun, lyfti
samtals 260 kílóum. Fyrrum heimsmethafi, Zhu-
oqiang, mátti sætta sig við bronsið. Hann lyfti
samanlagt 257,5 kílóum.
Kristin Otto fékk gullið
A-I’vska stúlkan Kristin Otto sigraði í 100 m
skriðsundi kvenna á ÓL á í gær. Tími hennar var
54,93 sek. en í öðru sæti varð kínverska stúlkan
Zhuang Yong á 55,47 sek. Bronsverðlaunin
hreppti franska stúlkan Catherine Plewinski á
55,49 sek. BL
A-þýskur sigur
A-Þjóðverjar urðu Ólympíumeistarar í sveita-
keppni í 100 km hjólreiðum karla. Pólverjar
urðu í öðru sæti, en Svíar komu á óvart og urðu
í þriðja sæti. BL
Norwich enn með fullt hússtiga
Tím^mynd Pjetur
Sigurganga Norwich hélt áfram á
laugardag, þegar 4. umferð ensku
deildarkeppninnar var leikin.
Mótherjar Norwich að þessu sinni
var lið Newcastle sem varð að sætta
sig við 0-2 ósigur á heimavelli.
Helstu keppinautar Norwich um
toppsætið í deildinni sem stendur,
Southampton, missti unninn leik
gegn Arsenal niður í jafntefli. Jöfn-
unarmark Arsenal var gert þegar 7
mín. voru komnar fram yfir venju-
legan leiktíma. Southampton skor-
aði tvívegis á fyrstu 25 mín. en
leikurinn endaði 2-2.
Nýliðar Millwall unnu 2-1 sigur á
Everton og eru í þriðja sæti deildar-
innar með 10 stig eins og Southamp-
ton. Tony Cascarino gerði bæði
mörk Millwall.
Liverpool gerði 1-1 jafntefli gegn
Tottenham á Anfield Road. Peter
Beardsley gerði mark Liverpool,
sem léku einum fleiri síðustu 9
mínútur leiksins, eftir að Cris Fairc-
lough var rekinn af leikvelli fyrir að
slá John Aldridge. lan Rush mis-
tókst að skora af þriggja metra færi
þegar 3 mínútur voru til leiksloka.
Úrslit í 1. deild:
Arsenal-Southampton......
Coventry-Charlton........
Liverpool-Tottenham......
Luton-Manchester Utd.....
Middlesbrough-Wimbledon
Newcastle-Norwich........
Nott. Forest-Derby.......
Q.P.R.-Sheffield Wed.....
West Ham-Aston Villa . . ..
Staðan í deild:
Norwich........
Southampton . . . ,
Millvall ......
4 4 0 0
4 3 10
4 3 10
. 2-2
. 3-0
. 1-1
. 0-2
. 1-0
. 0-2
. 1-1
. 2-0
. 2-2
8 3 12
9 3 10
8 3 10
Liverpool . .
Arsenal . . .
Everton . . .
Derby......
Man. Utd. .
Coventry . .
Aston Villa
Q.P.R.....
Sheff. Ved.
West Ham .
Notth. Forest
Middlesbr. .
Charlton . .
Tottenham
Luton......
Wimbledon
Newcastle .
6 2
12 8
3 10
5 6
3 7
3 9
2 10
BL
Trygging fyrir fjölskyldur.
Ný, öðruvísi trygging frá Samvinnutryggingum:
EMaldlega einfaldaii.
Samvinnutryggingar hafa þróað hagkvæma heildartryggingu fyrir fjölskyldur og heimili, F-tryggingu.
Slík tryggjng er nú sett á markað í fyrsta sinn hérlendis.
Hugmyndin er afar einföld. I F-tryggingunni felst í fyrsta lagi, fastur ákveðinn KJARNI,
- „pakki“ sem hentar öllum sem búa við venjulega heimílishagi. Sú trygging nær til fjölskyldunnar
allrar eins og hún er samsett á hverjum tíma. í öðru lagi getur þú bætt við öllum öðrum tryggingum sem
þú þarft á að halda, því þarfir heimila eru oft mismunandi. Útskýrum þetta nánar:
Kjami.
Kjaminn er fastákveðinn fjöldi nauðsynlegustu trygginga, eins og að
ifaniangreinir.
þ.e. trygging á íbúðariiúsnæði, fylgiMutum þess og innbúi vegnatjóns af
margs konar völdum; t.d. vatns oggufú, eldsvoða (innbú), innbrots og
þjófnaðar, óveðurs, ýmis konar bilana, sprenginga o.m.fl.
Verði einhver hinna tryggðu skaðabótaskyldur t.d. vegna vanrækslu eða
mistaka, þá bætir tryggingin slíkar kröfúr.
Vemd gegn kostnaði vegna slyss, sjúkdóms eða fráfalls sem veiða kann á
ferðalagi sem varir allt að 60 dögum. Undir þennan flokk fellur líka
farangurs- og ferðarofstiygging. Pá endurgreiðir slík trygging andvirði
ferðar, ef ferðamaður þarf að liggja helming ferðar eða lengur á
sjúkrahúsi.
Sfysahygging
Greiddir em dagpeningar og bætur vegna örorku, verði hinir tryggðu
fyrir slysi utan vinnu. Einnig dánarbætur.
Eins og þú séið felur F-tryggingin m.a. í sér gömlu húseigenda-
tiygginguna og heimilistiygginguna. Hún veitir vemd sem lögboðnar
tryggingar ná ekld til - en telja má skynsamlegt fyrir hveija fiölskyldu að
hafa. Auk þess felur hún í sér tryggingar sem breyttir tímar gera
nauðsynlegar, eins og ferðatryggingu og slysatryggingu.
Viðbóteftirþörfiim.
Fjölskyldur og heimilishagir em mismunandi og þaifir fólks því ólíkar
hvað tryggingar varðar. Þess vegna getur þú bætt við KJARNANN
þeim tiyggingum sem þér hentar. Á þær tryggingar sem þú tekur, tfl
viðbótar KJARNA er veittur 15% afsláttur.
Lífhyggmg.
Sjálfsagt finnst flestum rétt að bæta henni við.
Rétt væri að velja tryggingarupphæðina í samráði við ráðgjafa okkar.
Sjúkra- og sJysatryggingar.
Hér gildir það sama. Skynsamlegt gæti verið að athuga, hvort ástæða
er til að hækka slysatryggingu og bæta sjúkratryggingum við, umfram
það sem KJARNINN gerir ráð fyrir.
Ýmsir þurfa að hyggja sig gegn skaðabótakröfúm sem falla á þá sem
eigendur farartækja, tækja, dýra e.þ.h.
Önnurmál.
Um fleiri atriði ber að hugsa. Margir eiga verðmætt myndasafa,
frímerkjasafii, myndavélar, hesta o.s.frv. Þar gæti þurft að huga að
sérstakrivemd.
Pó að F-tryggingin nái ekki tfl bifreiðatryggingar þykir rétt að benda
þér á að kaupir þú báðar tryggingamar hjá okkur, þ.e. F-öyggingu og
bifreiðatryggingu, færðu 10% afslátt af heildariðjöldum F-tiyggingar-
innar en 15% ef bifreiðamar era tvær.
SAMVINNU
THYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI681411
- Ódýrt - einfalt - öruggt