Tíminn - 24.09.1988, Page 4

Tíminn - 24.09.1988, Page 4
4 j|f HELGIN Laugardagur 24. september 1988 Ævintýrahellar og klungurfinnast hvarvetna á botninum. í félagsskap með sæ- Ijónum við Santa Barbara Spjallað vlð Tryggva Þormóðsson, Ijósmynd- ara, sem lagt hefur stund á nám í neðansjávar- Ijósmyndun í Bandaríkjunum Fyrir skömmu komu Tryggvi Þormóðsson, ljósmyndari og kona hans, Anna Sigurðardóttir heim frá námi í Bandaríkjun- um, þar sem þau hafa sérhæft sig í Ijósmyndun, Tryggvi í iðnaðar og tækni ijósmyndun, en Anna i portraitljósmyndun. Auk iðnaðar og tækniljósmyndunarinnar nam Tryggvi sér- staklega Ijósmyndun neðansjávar og er eini íslendingurinn sem þetta hefur lært sérstaklega. Þar gefst mönnum færi á að kanna dularfuilan og ævintýralegan heim og á dögunum báðum við hann að segja okkur frá hvernig þessi kennsla færi fram, auk þess sem mikill áhugi er á ljósmyndanámi meðal ungs fólks nú um stundir og ástæða til að ætla að margir vilji lesa frásögn Tryggva af því hvernig kennslu á þessu sviði er háttað. Tryggvi var Ijósmyndari við Tímann áður en hann hélt til náms, sem reyndist honum góður undirbúningur, en við biðjum hann fyrst að segja frá hvenær þessi áhugi vaknaði hjá honum. „Ég hef haft áhuga á ljós- myndun frá því ég var krakki," segir Tryggvi. „En það var samt ekki fyrr en ég var farinn að vinna sem ljósmyndari við Tím- ann að ég ákvað að gera mér meira úr þessu og leggja þetta fyrir mig. Það var um ýmsa skóla að ræða á þessu sviði, en fyrir valinu varð „Brooks Insti- tute of Photographic Art and Science,“ sem er í Santa Bar- bara, rétt norðan við Los Ange- les. Um skólann er það að segja að hann er einn hæst skrifaði skóli í atvinnuljósmyndun sem um er að ræða og þá læt ég þess getið að ýmsir aðrir skólar leggj a meiri áherslu á hefðbundna list- lj ósmyndun, sem er talsvert ann- ar hlutur. Hjá Brooks eru því hagnýtar greinar í fyrirrúmi, og að því hugðist ég líka snúa mér. í skólanum eru 720 nemendur til jafnaðar og á tveggja mánaða fresti er einn bekkur útskrifað- ur. Ég valdi mér iðnaðarljós-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.