Tíminn - 24.09.1988, Blaðsíða 10

Tíminn - 24.09.1988, Blaðsíða 10
10 HELGIN Laugardagur 24. september 1988 í TÍMANS RÁS íslensk umferðarmenning blóðug borgarastyrjöld Stefán Ásgrímsson Dani nokkur sem starfað hefur ' að fluemálum víða um heim, bæði hér á Islandi og í arabalöndunum þar sem hann hefur dvalið lang- dvölum sagði við undirritaðan fyrir skömmu að hann treysti íslenskum félögum sínum best til að aka bíl í þessum löndum. Að nafninu til giltu svipaðar umferðarreglur og lög þar eins og á Vesturlöndum. Hins vegar færu vegfarendur eftir þeim eins og þeim þætti sjálfum henta hverju sinni. Þeir gæfu stefnuljós svona eftir behag, sinntu stöðvunar- skyldu stundun, stundum ekki, ækju stundum langt undir há- markshraða, stundum langt yfir, þar sem tvöföld akrein er lúsuðust menn gjarnan á þeirri vinstri, stönsuðu að því er virðist upp úr þurru á götum sambærilegum Miklubrautinni á háannatíma, - í stuttu máli; hvenær sem væri mætti búast við stórhættulegum uppá- komum eða í besta falli óþægileg- um og hlytist slys af, er það alltaf útlendingnum að kenna. Maðurinn sagðist forðast í lengstu lög að aka við þessar að- stæður og koma því yfir á fslend- ingana því þeir væru vanir umferð af þessu tagi heiman að. Nú hef ég aldrei komið til araba- landa og veit ekki hvort umferðin er þar almennt samkvæmt lýsingu ríki blóðug borgarastyrjöld og tala fallinna og særðra ásamt eignatjóni er með ólíkindum. Lang flestir hinna föllnu og særðu eru á „herskyldualdri" eða 15-20 ára og hefur verið sagt að þessi aldurshópur eigi aðild að helmingi allra umferðarslysa sem eiga sér stað á landinu. Ef bornar eru saman slysatölur þriggja Norðurlanda, eða íslands, Danmerkur og Svíþjóðar, kemur í ljós að miðað við 100 þúsund íbúa slösuðust 1316 15-17 ára unglingar í umferðarslysum á íslandi árið 1985 en í Danmörku 616 og í Svíþjóð 520. Þetta sama ár slösuðust á Islandi 269 6-9 ára börn. í Danmörku hins vegar 160 og 104 í Svíþjóð. Þessar tölur sýna hvers lags villimennska tíðkast á umferðarsviðinu hjá okk- ur og ber okkur ófagurt vitni. Tölurnar hér að ofan eru, eins og áður segir frá 1985 en síðan þá hefur bílum fjölgað mjög og um- ferðin þyngst að sama skapi og slysum fjölgað. Það sem af er árinu hefur ekki liðið sá mánuður að ekki hafi fólk látið lífið eða ör- kumlast, bæði börn og fullorðnir. Ætlum við að sætta okkur við ósköpin eins og náttúruöflin, eða ætlum við að gera eitthvað í rnálun- um? Þetta er undir mér og þér komið. -sá Danans. Það er hún því miður hér og þegar íslenskar slysatölur eru bornar saman við sambærilegar tölur frá öðrum löndum Evrópu, sést að hún er stórum hættulegri hérlendis og það þrátt fyrir að umferðarhraði sé hér almennt mun lægri en annars staðar í Evrópu. Afleiðingar umferðarslysa á ís- landi eru sambærilegar við að hér GETTU NÚ Fjallið fyrir viku var Stapafell á Snæfellsnesi og vonandi hafa þeir, sem í vafa voru, leitað uppi einhvern Snæfelling sér til halds og trausts, eins og við ráðlögðum. En hér getur að líta mynd af vatni einu á heið- um uppi og spyrjum um nafn jiess - sem ekki bendir til að þeir er nafnið gáfu hafi verið hrifnir af því! BBI5 BH HSUE SÍ3.s3 Mm mm peais KROSSGÁTA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.