Tíminn - 24.09.1988, Page 7

Tíminn - 24.09.1988, Page 7
6 nl HELGIN Laugardagur 24. september 1988 Laugardagur 24. september 1988 HÉLGIN W 7 Betluram fjölgar stöð- ugt í New York og verða sífelH ágengari Fátæklegir betlarar sem húka á fjölförnum götuhornum eöa haltra meðfram glæsilegum breiðstrætum eru ekki síður hluti af myndinni af New York en Empire State byggingin, Wall Street og Brooklyn brúin. Það má næstum Jjekkja ferðamenn í borginni úr á því hvað þeir þykjast ekki sjá þá, en margir heimamenn muna að stinga smámynt aukalega í vasann til að geta látið eitthvað af hendi rakna til þessara vanhirtu meðborgara á leið sinni á skrifstofuna eða í leikhúsið. „Það stendur líka í biblíunni að jafnvel hundarnir skuli fá þá mola sem falla af borðum húsbænd- anna,“ segir betlari sem hefur kom- ið sér fyrir í einu fínni hverfa borgarinnar og lætur þar með í ljósi kröfu um að fá að taka þátt í „ameríska draumnum" á sinn hátt. New York-búar örlátir við betlarana Það hefur komið í ljós að 60% New York-búa líta eins á málið - frá hinni hliðinni. M.a.s. sýna 11% hug sinn í verki daglega og víkja einhverju að þessum utangarðs- mönnum. í sumar varð þó þetta gagn- kvæma þögula samkomulag milli þeirra betur settu og armingjanna fyrir áfalli. New York Times greindi frá því að borgarbúar væru orðnir „reiðir yfir fjölgun betlara á strætum borgarinnar" og blaðið New York sagði hreinan „betlara- her“ samankominn á vissum stað í New York. Staðreyndin er sú að betlurum hefur farið stórlega fjölgandi í New York á undanförnum mánuð- um og þeir eru nú álitnir vera allt að 5000 á Manhattan á mestu umferðartímum. Það eru ekki lengur hinir gamal- þekktu rónar á Bowery sem sjaldan hafa falið tryggan fylginaut sinn flöskuna, sem koma í hugann þeg- ar minnst er á betlara í New York. Þeir sem nú eru mest áberandi í „betlarahernum“ eru annars konar manngerð. „Ungir, sljóir og án uppeldis," segir blaðamaður New York um þá eftir að hafa eytt fjórum vikum í félagsskap ölmusu- þeganna. Fátækt, eiturlyf og áfengi hafa að sögn hans gereytt vinnusiðferði milljóna manna. í New York-borg einni búa 60.000 til 80.000 heimilis- lausra. 15.000 þeirra sem gefist hafa upp við skólagöngu eru at- vinnulausir, þó að tala atvinnu- lausra í borginni sé nú sú lægsta í 18 ár. Nú erfarið að líta á betl sem atvinnu Sálfræðingurinn Richard Ober- field við New York University Betlurum fer stórfjölgandi á Man- hattan og höfða oftast til með- aumkunar meðborgaranna. Nú er hins vegar orðið algengt að betlar- arnir sýni meiri frekju í lífsbarátt- unni og beiti „viðskiptavini“ sína hörku. it Námsgeta og athyglisgáfa skerðast verulega efunglingarfá ekki holla fæðu reglulega. í mjólkinni eru B vítamín sem eru nauðsynleg tilþess að geta myndað nýtt erfðaefni fyrir nýjar frumur hjá ungu fólki í Við eðliiegar aðstæðurdregur mjólk úr tannskemmdum. Hió háa hlutfall kalks, fosfórs og magnium er verndandi fyrir örum vexti. Unglingar þurfí um 1200 mgr. afkalkiádag tilþess að viðhalda vextibeina og tanna. Mjólk og mjólkun/örur eru langmikilvægustu kalkgjafarnir. í leik og starfi skiptir máli að taugakerfið sé í lagi. í mjólk eru bætiefni sem eru nauðsynleg fyrirtaugarnar. Kjarkleysi, seinþroski, minni mótstaða gegn sjúkdómum, örlyndi og þunglyndi eruþekktir kvillar (ásamtmörgum fleiri), sem geta orsakast af næringarskorti. Prótein er nauðsynlegt, m.a. fyrir vöðvauppbyggingu. Strákarþurfa mikið og gottprótein á svo öru vaxtarskeiði. Mjólk inniheldur hágæðaprótein, sem nýtist sérstaklega vel. Hvernig ervörnin? Það þarf trúlega ekki segja þér að góð sókn dugar skammt ef vömin er í molum. Sama gildir um uppbyggingu líkamans. Það er ekki nóg að vaxa - það verður að sjá til þess að líkaminn fái rétt efni til þess að vinna úr. 12 ára strákur sem er að hefja mesta vaxtar- skeið líkama síns þarf nauðsynlega að fá úr fæðunni þau efni sem líkami hans þarfnast til þess að vaxa og þroskast. Mjólk er ein fjölhæfasta fæða sem völ er á f rá næringarlegu sjónarmiði. Hún er ekki aðeins mesti kalkgjafinn í fæðu okkar; í henni erfjöldi annarra bætiefna, sem eru nauðsynleg fyrir eðlilegan vöxt og þroska. 3 mjólkurglös á dag fullnægja dagsþörf unglinga af kalki. heldur því fram að ný „tækni til að komast af“ meðal fátæklinga hafi skekkt allt venjulegt gildismat. Hann segir að á betl, sem áður var litið á sem neyðarúrræði þeirra sem voru algerlega hjálparvana, sé nú litið sem atvinnu. Jafnframt því sem farið er að líta á betl sem atvinnu hefur líka breyst afstaða margra betlara. Þegar þeir eru „í vinnunni" lúskra þeir iðulega á starfsbræðrum sínum til að ná undir sig bestu stöðunum. Og í stað þess að bíða auðmjúkir og þolinmóðir með plastglas í hendi eftir því að einhver örlátur með- bróðir eigi leið fram hjá, verða þeir sjálfir æ ágengari við vegfarendur. Sérfræðingar álíta að fjórðungur betlaranna séu háðir krakki, eitur- efni sem losar um hömlur. „Láttu mig fá helminginn!“ Nú eru líka jafnvel frjálslynd- ustu og gjafmildustu borgararnir farnir að kvarta undan því að betlarar kunni ekki lengur að haga sér eins og þeim ber. „Láttu mig fá helminginn,“ sagði betlari nýlega við sálfræðing einn sem kom út úr búð með nýkeypt brauð. Sálfræð- ingurinn var ekki lengi að komast að niðurstöðu um sálarástand þess- ara nýtísku betlara. „Þeir sýna fjandskap, þeir biðja ekki bara um peninga. Þeir vilja neyða okkur til að finna til sektarkenndar.“ Edward Koch, hinn umdeildi 63 ára gamli borgarstjóri New York, vill ekki láta ástandið versna svo að betlararnir nái yfirhöndinni með því að beita heiðvirða borgara sálrænum þvingunum. „Hver sá sem finnst hann þurfa að skammast sín ætti að fara til sálfræðings,“ segir hann. Reyndar gerði Koch tilraun til þess í vor að koma heimilisleysingjum með geðræn vandamál aftur fyrir á lokuðum stofnunum. En hæstaréttardómur frá 1972 hindrar hann í að reka flakkara og betlara úr borginni fyrir fullt og allt. Auglýsingaherferð borgarstjórans í vetur ætlar Koch að reka mikla auglýsingaherferð þar sem hann biður New York-búa að láta vera að gefa betlurunum sjálfum eitt eða neitt. Þeir skuli frekar láta góðgerðarstofnanir njóta góðs af örlæti sínu, „svo að peningarnir renni til þeirra mest þurfandi en fari ekki í brennivín og eiturlyf," eins og borgarstjórinn orðar það. Aðstandendur herferðarinnar segja hana byggjast á því að það verði að miða við ákveðið félags- legt lágmarksstig, líka meðal fá- tæklinga. Lögfræðingar sem bera hag þeirra sem minnst mega sín fyrir brjósti, eru hins vegar lítið hrifnir af hugmyndum borgaryfirvalda. „Opinbera kerfið stendur sig ekki,“ segir lögfræðingur samtaka sem berjast fyrir réttindum heimil- islausra. „Nauðþurftir, til að halda lífi, komast alls ekki til þeirra sem mest þarfnast þcirra." Geysistór hluti þeirra bágstöddustu veit ekki einu sinni hver réttur þeirra er eða getur ekki bjargað sér í öllu papp- írsflóðinu sem opinberu skrifræði fylgir. Hættulegt líferni Oft er það líka svo að lífið í þeim neyðarskýlum sem til eru er hættu- legra en tilveran undir berum himni, og styrkir til þeirra nauð- stöddu hafa því sem næst ekkert hækkað á undangengnum áratug. Oft verða fjölskyldur, sem verða að láta sér nægja opinbera fram- færslu, að draga fram lífið á 20- 30% minna fé en fátæktarmörk eru miðuð við. Einhleypingar fá í hámarkshús- næðisstyrk frá New York-ríki 183 dollara á mánuði. En húsaleiga á Manhattan hefur stórlega hækkað á undanfömum árum og jafnvel í lélegustu og alræmdustu hverfum á Manhattan er mánaðarleigan fyrir tveggja herbergja íbúð nú 600 dollarar. Enda hefur tala húsnæðis- lausra stórhækkað að undanförnu og er áætlað að þeir verði orðnir um 400.000 eftir tvö ár. Umsátursástand á gótunum í vændum? Nú eru umræður farnar að snúast um það í New York að í vændum sé „umsátursástand á götunum" og hefur það hleypt af stað ímyndun- arafli ýmissa grínfugla með skrftna kímnigáfu. Þannig sagði blaða- maður New York frá því að hann hefði hitt mann sem fullyrti að hann veitti árangursríka fræðslu í „betlaraskóla" við Fifth Avenue. Gegn 100 dollara gjaldi kenndi hann þar öll nauðsynleg brögð. Dagblöð í Bandaríkjunum og breska útvarpið BBC tóku fréttina upp á sína arma og blésu hana út. Hún þótti hreint ekkert ótrúleg, enda gæti allt gerst í New York! Skömmu síðar gaf hins vegar „skólastjórinn" sig fram og sagðist bara hafa „verið að plata". Til- gangurinn hefði verið að hræra upp í íbúum borgarinnar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.