Tíminn - 22.11.1988, Blaðsíða 13

Tíminn - 22.11.1988, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 22. nóvember 1988 Tíminn 13 FRETTAYFIRLIT ISLAMABAD -Ghulam Is- haq Khan, forseti Pakistans, hefur frestað um nokkra daga að útnefna forsætisráðherra þar til Ijóst er hvort Benazir Bhutto eða Nawaz Sharif geti myndað meirihlutastjórn. VIN - Olíumálaráðherrar OPEC ríkja hófu að funda og er talið að fundurinn verði sá erfiðasti í sögu samtakanna, sem þó kalla ekki allt ömmu sína í þeim efnum. Ástæða þessa er að mistekist hefur að ná samkomulagi við irana og íraka um takmörkun olíufram- leiðslu. BAGDAD - Hussein forseti íraks hefur fyrirskipað réttar- höld yfir elsta syni sínum sem sakaður er um að hafa drepið einn af aðstoðarmönnum for- setans. Sagði Hussein að son- ur sinn hefði þrisvar reynt að svipta sig lífi frá því aðstoð- armaðurinn var drepinn 18. nóvember og sagði hann að réttarhöldin yrðu réttlát og í anda Allah. JERUSALEM - Nýkjörið þing ísraels hefur verið sett og var Ijóst að Shamir myndi ekki geta myndað þjóðstjórn með Verkamannaflokknum. BUENOS AIRES - Arg entínskur líkdómari taldi möguleika á að dauðdagi Christinu Onassis, dóttur og erfingja hins mikla skipajöfurs með sama nafni, hefði ekki borið að með eðlilegum hætti. Var aefið í skyn að um sjálfs- morð hefði verið að ræða. Krufning sýndi hins vegar að lungnabólga hafði verið hjarta Christinu ofviða og hún því látist aðeins 37 ára að aldri. Christina var talin ríkasta kona heims og átti hún þriggja ára gamla dóttur. TOKYO - Læknar Hirohito keisara Japans voru svartsýnir og virðast allar líkur á að þeir muni verða atvinnulausir bráð- lega þar sem mjög dregur af syni sólarinnar. Þrír mánuðir eru liðnir frá því barátta hófst fyrir lífi keisarans oa hefur heilsa hans aldrei verio verri. OTTAWA - Framsóknar- sinnaðir íhaldsmenn sem eru við stjórnvölinn í Kanada halda forskoti sínu í skoðana- könnunum, en mikill tilfinninga- hiti hefur einkennt harða kosn- ingabaráttu fyrir þingkosning- arnar og hefur fríverslunar- samningur Kanada og Banda- ríkjanna verið helsta deilumál- ið. ÚTLÖND Vesturlönd styðji stefnu Gorbatsjofs Margaret Thatcher segir að tími kaldastríðsins sé lið- inn og að Vesturlönd eigi að styðja Gorbatsjof leiðtoga Sovétríkjanna með ráðum og dáð svo hann megi koma umbótahugmyndum sínum í framkvæmd. Tekur hún því í sama streng og Helmut Scmidt fyrrum kanslari Vest- ur-Þýskalands, en hann sagði í ræðu á föstudag að hann teldi ekki nema helmings lík- ur á að Gorbatsjof takist ætlunarverk sitt. Því þyrftu Vesturlönd að styðja hann af alefli. Leggur Thatcher áherslu á að Vesturlönd slaki ekki hið minnsta í varnarmálum og að hernaðarstyrkur þeirra skuli vera mikill, enda ekki von á góðu ef Gorbatsjof nær ekki sínu fram. Þessi yfirlýsing Thatchers kemur á sama tíma og yfirhershöfðingi At- lantshafsbandalagsins segist óttast mjög stefnu Gorbatsjofs þar sem hún gæti orðið Vesturlöndum hættu- leg. Telur hann aukið frelsi almenn- ings í Sovétríkjunum alveg eins geta orðið til þess að Sovétmenn taki á ný upp harðari stefnu gegn Vesturlönd- um. Varar hann leiðtoga á Vestur- löndum við því að falla fyrir stefnu Gorbatsjovs og slaka á í varnarmál- um. Þess í stað sé nauðsynlegt að Vesturlönd endurnýji kjarnorku- varnir sínar í takt við nýj ustu tækni. „Vandamál okkar í dag er til- hneiging til að trúa því að fjandsam- leg afstaða Sovétríkjanna sé ekki enn til staðar og því er raunverulegur hernaðarmáttur Sovétríkjanna van- metinn", sagði John Gaivin yfirhers- höfðingi NATO á fundi stuðnings- manna NATO í Portúgal í gær. Skoðanir Margaretar Thatcher um að kaldastríðinu sé iokið koma fram í viðtali sem birtist í ný^asta tölublaði Newsweek. Þar segir hún einnig sannað að vestrænt mat á frelsi sé virkara en það marxíska. „Við höfðum tvær kenningar, Við höfum tvenns konar niðurstöður. Marxisminn er búinn að vera. Þið getið ekki hafnað undirstöðuatrið- um mannlegrar náttúru og vænst árangurs." segir Thatcher í viðtal- inu. Thatcher er sjálfri sér samkvæm hvað vígbúnað snertir. „Fyrst verð- um við að halda vörnum okkar tryggum. Ef herra Gorbatsjof tekst ekki ætlunarverk sitt og við látum varnir okkar sitja á hakanum þar sem við byggðum stefnu okkar á vonum frekar en nauðsynlegum vörnum fyrir frelsið, þá gæti það tekið áraraðir að tryggja öryggi okk- ar á ný.“ Margaret Thatcher vill að Vesturlönd styðji Gorbatsjof í umbótastefnu sinni, annars gætu veður snöggt skipast í lofti og hernaðarmætti Sovétmanna beint af endurnýjuðum krafti gegn Vesturlöndum. Yfirhershöfðingi NATO óttast einnig hcrnaðarmátt Sovétmanna og vill endurnýjaðar kjarnavopnavarnir. Blaðamaður fellur í Afganistan Bandarískur blaðamaður lést í bardögum í Afganistan fyrir stuttu ef marka má frétt- ir sovésku fréttastofunnar Tass á sunnudag. Karin Om- bekker hafði komið frá Pak- istan og var í fylgd afganskra skæruliða þegar hún var drepin í Sayid Karam héraði. Að sögn fréttastofunnar tóku skæruliðar lík hennar með sér til Pakistan og mun það að líkindum verða sent til Bandaríkjanna. „Ekki er vitað hverjar kringum- stæður við dauða hennar voru“ sagði í frétt Tass. í fréttinni sagði að „erlendur hernaðarráðgjafi" skæru- liða hafi einni fallið við Gardez, höfuðstað Paktiahéraðs. Sagði að ekki væri vitað hvert þjóðerni ráð- gjafans var. Tass fréttastofan sagði að harðir bardagar hefðu að undanförnu stað- ið milli stjórnarhers Afganistan og skæruliða úr Paktia, Nangahar og Kandahar. Á milii 300 og 400 skæru- liðar hafi fallið, en ekki var skýrt frá mannfaiii í liði stjórnarhersins. Banvæn blásýra ógnaði Bergen Norsk yfirvöld eru nú að rannsaka hvernig í ósköpum stendur á því að 1500 lítrar af baneitraðri blásýru var geymd hættulega nærri tunnum fylltum ætandi sýru í vöruhúsi í Bergen. Möguleiki var á stórslysi þar sem fjöldi manns hefði farist ef ætandi sýran hefði sameinast blásýrunni eða að blásýran hefði komist út í andrúmsloftið í bruna. „Við erum að veita fyrir okkur hvort við krefjumst lögreglurann- sóknar og opinberrar ákæru á hendur þeim er ábyrgir eru fyrir þessu“ sagði talsmaður mengunar- nefndar ríkisins í Noregi. Blásýran var flutt á milli staða í Bergen í opnum vörubifreiðum ef marka má frétt Bergens Tidende [rar sem málinu var fyrst hreyft. „Þaö var svo mikið magn blásýru að það nægði til að drepa alla bæjarbúa ef það hefði komið upp eldur eða nærliggjandi sýran hefði blandast blásýrunni" sagði í frétt Berlingske Tidende. Alls búa 250 þúsund manns í Bergen. Ungverskum sendiráðs- manni vísað frá Rúmeníu IJngverjar og Rúmenar eru heldur betur upp á kant þessa dagana, en á laugar- dag ráku Rúmenar ung- verska sendiráðsmanninn Karoly Gyoerfi úr landi fyr- ir að hafa dreift andrúm- ensku dreifiriti. Karoly Grosz forsætisráðherra Ungverjalands sagði að brottvísunin væri óásættan- leg og óskiljanleg. Brottvikningin ber vitni um sí- versnandi samskipti kommúnista- ríkjanna tveggja, en Rúmenar hafa verið mjög pirraðir yfir aðfinnslum Ungverja sem tclja að rúmensk stjórnvöld ofsæki ungverska minnihlutann í Rúmeníu. „Aðgerðirnar gegn sendiráðs- manni Ungverjalands eru óviðun- andi fyrir okkur og við teljum að þær séu reyndar óskiijanlegar" sagði Karoly Grosz í viðtali við ungvcrska ríkisútvarpið. „Ég ^eit ekki hverjum hefur dottið í hug að saka ungverskan sendiráðsmann um að breiða út dreifirit sem á að vera rætandi og móðgandi fyrir leiðtoga þessa lands".

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.