Tíminn - 10.12.1988, Blaðsíða 4
4
HELGIN
Laugardagur 10. desember 1988
Valgeir Guðjónsson sendir frá sér plötuna
„Góðir íslendingar":
Valgeir í
S-inu sínu
* * t * l I i t I I i | | | | | |
I I í l I * I I I í I I
Ég sagði frá því í Tímanum fyrir
um hálfum mánuði að þeir sem heyrt
hefðu segðu að Valgeir Guðjónsson
væri í essinu sínu á plötunni Göðir
íslendingar. f>á var þessi plata ekki
komin út en nú er hún það. Hann er
í S-inu sínu það er engin lygi.
Á þessari plötu er að finna nokkuð
ntörg lög sem mér finnst verulega
góð. Sem dæmi má nefna, Ekki
segja góða nótt, Kramið hjarta,
Einn á báti og Frændi. Hið síðast-
nefnda er í blús-stíl og er að mínu
mati besta lag plötunnar. Mér finnst
Valgeiri falla vel að syngja í angur-
værum stíl eins og hann gerir í þessu
lagi.
Ég hef áður minnst á það, í
þessum hugleiðingum mínum um
popptónlist, að mér finnist listin
ekki kláruð nema Ijóðin, textarnir,
séu frambærileg á sama hátt og
lögin. Valgeir er einn þeirra tónlist-
armanna sem er það gefið að geta
fært hugleiðingar sínar í Ijóðrænt
form svo úr verða textar sem eru
yfirleitt ágætlega ortir og innihalda
eitt og annað. Sem dæmi nefni ég
textann við Frænda:
Enginn er einn
eða alls ekki neinn
láttu engan bilbug
á þér finna frændi
þó að þú sért
eins og þú ert
eins og þú ert
.....og annarsstaðar.....
Pú legið getur
langar dimmar nætur
og lengi baríð höfðinu
við stein
100.000 hugsanir
sem engu flugi ná
svo fæðist loksins ein.
Allur hljóðfæraleikur plötunnar
heyrist mér vera eins og best verður
á kosið enda valinn maður í hverju
rúmi. Nægir þar að nefna Björgvin
Gíslason Gítarleikara með stóru Géi
og trymbilinn Ásgeir Óskarsson.
t>ar er á ferðinni frábær listamaður
og ekki annað hægt en dást að því
hversu undraverður árangur hlýst af
húða-barsmíð Ásgeirs, ekki síst með
tilliti til þess að hann hljómar eins á
tónleikum.
Það er svolítið erfitt að lýsa þessari
plötu, enda hef ég lítið vit á músík-
stefnum og spái venjulega ekki í það
hvort mönnum fer fram eða aftur.
Hinsvegar segja eyru mín mér að í
heild sé platan góð og ég ætla nú sem
endranær að trúa mínum eigin eyr-
um.
Valgeir Guðjónsson er einn þeirra
manna sem virðast vera skemmti-
kraftar og tónlistarmenn af Guðs
náð. Nægir þar að vitna til tónleika
hans í íslensku óperunni þann 4.
þessa mánaðar, þar sem hann spilaði
og gerði að gamni sínu fyrir hartnær
fullu húsi. Gamanið var reyndar svo
mikið á köflum að húsið nánast
orgaði af hlátri, þ.e.a.s. gestir þess.
Valgeir sýndi það á þessum tónleik-
um að hann er enn ferskur tónlistar-
maður, jafnt einn með gítarinn sem
og með hljómsveit sinni Auknum
þrýstingi.
Fáein lokaorð væru kannski einna
helst þessi: Ég tel að með plötunni
Góðir íslendingar sýni Valgeir það
að hann á enn sem fyrr erindi til
margra. Vafalaust finna margir af
hans gömlu aðdáendum eitthvað við
sitt hæfi, auk þess sem ég hef trú á
að hann bæti nýjum í safnið. Er það
ekki prýðilegur árangur?
-Árni Magnússon.
Tungliö tungliö taktu mig, ný
barnaplata fyrir jólin:
Sögur og lög
fyrir börnin
Tunglið tunglið taktu mig er heiti
á nýrri barnaplötu sem nýlega kom
út. Á plötunni er að finna fjölmörg
lög sem flestir krakkar kunna og
geta því sungið með. Má þar m.a.
nefna: Tunglið tunglið taktu mig,
Guttavísur, nokkrar stökur t.d.
Fljúga hvítu fiðrildin, Sigga litla
systir mín og Afi minn fór á honum
Rauð. Einnig Stína og brúðan,
Fimmeyringurinn og Langamma.
Söngvarar á plötunni eru þau
Egill Olafsson og Helga Möller og
þarf víst ekki að fjölyrða um ágæti
þeirra.
I>að sem vekur athygli mína er að
platan er hæfilega hrá, ef hægt er að
nota það orð. Ekki hefur of mikil
áhersla verið lögð á flóknar útsetn-
ingar og hljóðfæraskipan heldur er
laglínan látin halda sér eins og
krakkarnir þekkja hana. Þau geta
því sem best tekið hástöfum undir
með þeim Helgu og Agli.
Auk laganna á plötunni er að
finna nokkrar sögur sem lesnar eru
af Agnesi Johansen en hún vann allt
efni á plötuna auk Stefáns S. Stefáns-
sonar. Agnési tekst ágætlega upp í
lestri sínum og er ekki annað að
heyra en hann skili sér vel til hlust-
enda.
Að lokum get ég sagt að Tunglið
tunglið taktu mig sé skemmtileg
plata sem flestir yngri krakkar ættu
að geta haft gaman af.
-Árni Magnússon.
Hugleiðingar
um popptónl ist
Cliff Richard og Bryan Ferry hvor
með sína safnplötu:
Báðar eru
þær ágætar
Cliff tiichard
■ -
Cliff Richard,
PRIVATE COLLECTION.
Cliff Richard er einn þeirra tón-
listarmanna sem tekist hefur með
ágætum að halda vinsældum sínum í
gegnum árin. Með vissu millibili
hafa komið frá honum lög sem hafa
átt upp á pallborðið hjá hlustendum.
Þessi plata sem nú kemur frá
honum inniheldur vinsælustu lögin
hans á árunum 1979-1988. Auk
gömlu laganna er að finna nýtt lag,
reyndar jólalag. Það heitir Mistletoe
and wine og hefur allt til að bera til
að verða vinsælt sem slíkt.
Meðal þeirra laga sem er að finna
á þessari tvöföldu plötu má nefna;
Daddy’s home, Some people, True
love ways, Dreamin, We don’t talk
anymore, My pretty one, og She's so
beautiful.
Bryan Ferry, THE
ULTIMATE COLLECTION
Á sama hátt og Cliff Richard,
hefur Bryan Ferry tekist að viðhalda
vinsældum sínum í gegnum tíðina.
Síðast átti hann lag á vinsældalistum
fyrr á þessu ári, lagið Kiss and tell.
Áuk þess hefur hann sent frá sér
safnplötu áður rétt eins og Richard.
Á þeirri nýjustu er að finna lög
sem hann flutti ásamt hjómsveitinni
Roxy Music. Þarna eru t.d. lögin;
Dance away, Jealous guy, Don’t
stop the dance, Slave to love og
Avalon. Auk þess er þarna eitt lag
sem ætti að vera okkur Islendingum
að góðu kunnugt. Þar á ég við lagið
He’ll have to go, sem Vilhjálmur
heitinn Vilhjálmsson söng á sínum
tíma undir heitinu Ég fer í nótt.
Þetta lag mun ekki áður hafa komið
út með Bryan Ferry.
Ég sakna nokkurra bestu laga
Ferrys á þessari plötu en við því er
lítið að gera, hún er góð engu að
síður.
Að endingu um báðar plöturnar:
Ég furða mig reyndar á því hve
margar safnplötur hver tónlistar-
maður getur sent frá sér. Kannski
það væri rétt að senda Halldór á þá
méð kvótann!
Það má segja að með þessum
plötum fái aðdáendur kappanna enn
eitt tækifærið til að eignast mörg
vinsælustu lög þeirra á einni plötu.
Sem safnplötur standa þær báðar
fyllilega fyrir sínu.
-Árni Magnússon.
Kenny G. með breiðskífuna „Silhouette":
Fyrir þau
rómantísku
{ fyrravor gerði náungi sem
kallar sig Kenny G. það gott með
laginu Songbird. Þetta var hljómþýtt
lag úr rólegu „deildinni" og vakti
athygli fyrir einstaklega lipran saxó-
fónleik. Songbird náði geysilegum
vinsældum, jafnt hér á Fróni sem og
úti í hinum stóra heimi. Nú er Kenny
G. aftur kominn á kreik, að þessu
sinni með plötu sína Silhouette.
Titillag hennar hefur þegar heyrst
einstöku sinnum á útvarpsstöðvun-
urri. Þar er á ferðinni lag sem mér
finnst reyndar svipa mjög mikið til
Songbird.
. Þessi plata er verulega áheyrileg
og sem undirleikur við kertaljós,
mjólkurglas og piparkökur er hún
tilvalin.
Platan inniheldur að mestu leyti
róleg lög en þó rennur blóðið í
saxófónleikaranum einstöku sinnum
m.ö.o. á henni er einnig að finna lög
sem eru í hraðari kantinum. Því er
hinsvegar ekki að neita að mér finnst
leikur Kenny G. njóta sín best í
lögum á borð við Silhouette.
-Árni Magnússon.