Tíminn - 10.12.1988, Qupperneq 13
Laugardagur 10. desember 1988
HELGIN
m
13
SAKAMAL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
þessu núna. - Ég er orðinn frægur,
bætti hann við og glotti.
Gat ekki þagað
Pilturinn kvaðst hafa haldið fram
að því að Boyd hefði aðeins verið að
búa til sögu, einu sinni sem oftar. -
Hann var um tíma með dóttur frú
Blackmon, bætti hann við - og
móðurinni líkaði það ekki. Ég hélt
að hann segði þetta bara til að
gleðjast yfir óförum þeirra. Ég er
ekki vanur að kjafta frá um vini
mína, en William Boyd er ekki sá
sem hann var áður.
Sagan sem Boyd sagði piltinum
var á þá leið að hann hefði verið á
ferð í hvítum Chevy 76, ásamt vini
sínum, Robert Denton Milstead, á
miðvikudeginum. í ljós kom að hvíti
bíllinn hafði staðið fyrir utan hús
Blackmon-hjónanna síðdegis á mið-
vikudeginum og lögreglumaður
skrifað niður númer hans.
Lögreglan komst að því að Boyd
og dóttir Evelyn höfðu verið saman
í hálft annað ár, móður hennar til
mikillar gremju. Síðan slitnaði loks
upp úr sambandinu mánuði áður en
Blackmon-hjónin hurfu.
Við fyrstu sýn virtist ólíklegt að
Boyd og Milstead hefðu getað fram-
ið þennan mjög svo umrædda glæp.
Þeir voru síður en svo glæpamanns-
legir útlits og höfðu lítið á samvisk-
unni samkvæmt lögregluskýrslum.
Útlitið segir þó ekki allt eins og
lögreglan komst að raun um. Milste-
ad var handtekinn á fimmtudag
framan við heimili sitt. Hann var
færður á stöðina þar sem hann missti
gjörsamlega stjórn á sér. Meðan
hann var að segja frá, handtók
lögreglan Boyd úti fyrir heimili for-
eldra hans og farið var með hann
rakleitt á stöðina líka.
Á föstudagsmorgun tilkynnti lög-
reglan að tveir grunaðir hefðu verið
handteknir vegna Blackmon-málsins
og leit færi nú fram að hjónunum, en
ekki væri gert ráð fyrir að þau
fyndust á lífi.
Áin Coosa var slædd í grennd við
Oatchee, um 20 km norðan við
Anniston og þar fannst svarti bíllinn.
Farangursgeymsian var opnuð með
kúbeini og þar fannst lík Freds
Blackmons. Hann var á skyrtunni,
lá í hnipri og hafði verið skotinn í
hnakkann og kviðinn.
Troðið í olíutunnu
Líkið var flutt til krufningar en
haldið áfram að leita að Evelyn. Að
sögn Boyds og Milsteads höfðu þeir
stungið líki hennar í stóra olíutunnu,
þyngt hana með grjóti og fleygt í ána
við tiltekna stíflu, en. mundu ekki
nákvæmlega hvar. Haldið var áfram
að slæða ána, en ekki fannst tunnan,
aðeins nokkrir kæliskápar og trjá-
bolir.
Daginn eftir var farið á staðinn
með málmleitartæki og háþróaðan
útbúnað. Hlutirsem voru nógu stórir
til að vera olíutunna voru síðán
kannaðir af köfurum. Það voru samt
ekki þessi tæki sem fundu tunnuna
loks heldur kafari sem stakk sér til
að bleyta búning sinn og lenti beint
á henni. Hún var 400 metrum neðan
við staðinn þar sem bíllinn fannst.
Tunnan var höluð upp og sett á
bílpall en síðan ekið með hana
óopnaða á rannsóknarstofuna.
Þar var leitað að fingraförum á
henni með leysitækni en síðan var
lokið tekið af.
Evelyn Blackmon var tvöföld í
tunnunni, bundin á höndum og fót-
um og skotin í höfuðið og bringuna.
Hryggur hennar hafði verið brotinn
til að hún kæmist í tunnuna.
Nú beindist athygli almennings og
ofsareiði að hinum grunuðu. Lög-
reglan var ekki í vandræðum með að
fá játningar því þeir voru báðir ólmir
í að segja sína útgáfu af atburðarás-
inni.
Boyd lýsti sig sekan um mannrán
og rán, en kenndi Milstead um
morðin. Hann hefði orðið galinn.
Hins vegar sagðist Milstead hafa
fallist á ráðabrugg Boyds um brott-
nám og rán en Boyd hefði einn átt
hugmyndina að morðunum.
Báðir voru sammála um að upp-
haflega hefði aðeins vérið ætlunin að
verða sér úti um peninga hjá Blac-
kmon-hjónunum. Þeir sögðu enn-
fremur báðir að Boyd hefði heyrt að
erfiðleikar væru í hjónabandinu.
Fjárkúgun varð að morði
William Boyd þekkti Evelyn Blac-
kmon síðan hann var með déttur
hennar og sagðist hafa lista með
nöfnum manna sem Evelyn átti að
hitta reglulega. Áætlun Boyds var sú
að sýna henni listann og láta hana
borga vel fyrir að þeir þegðu yfir
honum. Síðan ætluðu þeir að selja
eiginmanninum listann sem hann
gæti þá notað til að verða sér úti um
skilnað. Þetta virtist auðvelt en jafn-
vel góðar áætlanir geta farið úr
skorðum.
Carroll lögregluforingi fór með
framburðina til saksóknara sem
skoðaði þá og kvað síðan upp úr
með að Milstead væri líklegri til að
segja sannleikann. Það var byggt á
sálfræðiáliti sem sýndi að Milstead
hefði lítið hugmyndaflug og væri
ófær um að setja saman flókna
áætlun.
Ljóst þótti að Boyd bæri þungan
hug til Evelyn Blackmon fyrir að
reyna stöðugt að spilla sambandi
hans og dóttur hennar.
Þann 20. mars 1987 játaði Milstead
á sig morðin og var dæmdur í fjórum
sinnum ævilangt fangelsi. Hann
hefði getað fengið dauðadóm en
slapp vegna þess að hann samþykkti
að vitna gegn Boyd.
Milstead steig í vitnastúku fyrir
troðfullum sal áheyrenda sem fengu
að heyra enn óhugnanlegri sögu en
þá hafði órað fyrir.
Hann byrjaði á að segja að áætlun-
in hefði hljóðað upp á einfalda
fjárkúgun en allt hefði farið úr
böndunum, eins og hann orðaði
það. Hann fór með Boyd til heimilis
Blackmon þann 26. mars til að
„hræra svolítið í“ Evelyn. Milstead
sagði að þá strax hefði Boyd æst sig
um of, þegar hann dró allt í einu upp
byssu og ógnaði hjónunum. - Hann
sagði mér að gera það Iíka, sagði
Milstead. - Ég þorði ekki annað en
hlýða.
Blackmon sagðist ekki hafa 75
þúsund dollara handbæra, allt fjár-
magn væri bundið í bréfum. Loks
sættust byssumennirnir á 5000 doll-
- Ég varð eftir hjá Evelyn meðan
Boyd fór með Blackmon að sækja
peningana, sagði Milstead. - Síðan
ætluðum við að fara með hjónin
eitthvert, binda þau og skipta fengn-
um á milli okkar.
Milstead sagðist hafa stungið upp
á afskekktum stað við Moosa-ána,
þar sem litlar líkur væru á manna-
ferðum. Þeir bundu hjónin og settu
þau í svarta bílinn en óku síðan með
þau að staðnum. - Við fórum með
Evelyn inn milli trjánna en karlinn
var bundinn í bílnum og komst
ekkert.
Boyd skipaði þá Evelyn að setjast
niður, batt hana betur og keflaði.
Síðan barði hann liana fyrirvaralaust
mcð trjábút svo hún féll aftur fyrir
sig á jörðina. - Hann barði hana
aftur, hélt Milstead áfram. - Hún
tók að æpa. Boyd þoldi ekki hljóðin
í henni svo hann dró upp byssuna og
skaut hana. Kúlan kom í hálsinn en
hún hélt áfram að brjótast um. -
Boyd sleppti byssunni, sagði hana
ónýta og tók mína. - Svo skaut liann
hana í hjartað.
Viljasterk konan lést þó ekki
strax. Þó blóðið gusaðist úr hálsi
hennar og bringu, brölti hún um í
böndunum.
- Þá tók Boyd byssuna aftur og
skaut hana í höfuðið, sagði Milstead.
- Þá hætti hún loksins og hreyfði sig
ekki framar. Þeir huldu líkið síðan
með greinum og sneru aftur að
bílnum.
Fred Blackmon sat enn bundinn í
aftursætinu. - Hann spurði hvort
Evelyn væri enn reið við hann. Boyd
sagði að hún væri hætt því, hann
skyldi ekki hafa áhyggjur af því.
Þá sagði Milstead að Boyd hefði
ákveðið að fremja seinna morðið
neðar með ánni hinum megin. Þegar
þangað var komið, skipaði Boyd
gamla manninum út úr bílnum og sló
hann í höfuðið svo hann féll, en
missti ekki meðvitund.
- Blackomon stóð upp, sagði Mil-
stead. - Hann sagðist skyldu borga
okkur 50 þúsund dollara fyrir að
Robin Milstead fékk lífstíðarfang-
elsi fyrir samsekt.
sleppa sér, en Boyd hafnaði boðinu,
sagði það koma of seint. Svo skaut
hann gamla manninn.
Milstead kennt um allt
Milstead sagði að Blackmon hefði
oltið niður brekku en Boyd farið á
eftir honum og skotið hann aftur.
Síðan stakk Boyd upp á þeir settu
líkið í skottið á bílnum.
Því næst óku þeir til Oatchee og
skildu svarta bílinn eftir á bílastæði
við verslunarmiðstöð en komu aftur
og óku honum að ánni þar sem þeir
létu hann renna fram af hæð og
horfðu á hann hverfa t vatnið.
- Þá vildi Boyd að við færum og
sæktum lík Evelyn, hélt Milstead
áfram. - Ég sagðist ekki fara inn í
skóginn í myrkri, síst þegar ég vissi
af líki þar. Við fórum ekki fyrr en
daginn eftir og höfðurn þá með
okkur tóma olíutunnu. Þegar til átti
að taka var líkið of stíft til að koma
því í tunnuna.
- Boyd fór aftur að bílnum til að
sækja öxi, sagði Milstead. - Hún
beit ekki neitt, svo hann hoppaði á
baki líksins þar til hryggurinn brotn-
aði.
Síðan tróðu þeir h'kinu tvöföldu í
tunnuna, settu grjót meðfram og
veltu henni t' ána. Milstead sagði að
seinast hefðu þeir ekið að brú á ánni
og fleygt vopnunum þar t' ána.
Levinson, verjandi Boyds viður-
kenndi að skjólstæðingur sinn hefði
verið viðstaddur þegar Fred Blac-
kmon var myrtur en staðhæfði að
Milstead hefði hins vegar stjórnað
aðgerðum og framið morðin. - Boyd
lét koma sér í alvarleg vandræði,
sagði hann. - Hann gerði hins vegar
ráð fyrir að fólkinu yrði ekki gert
mein, það ætti bara að hafa út úr því
peninga.
Milstead réði öllu, hélt Levinson
áfram. - Boyd gerði sér ljóst að hann
var í vandræðum. Hann sagði að
Milstead hefði beðið um stóru byss-
una til að skjóta Eveleyn og að Boyd
hefði verið eftir í bílnum, þegar
Milstead fór inn í skóginn með
Evelyn.
Dauðadómur
- Þessi tvö morð voru framin með
köldu blóði og það var Robert
Denton Milstead einn sem það
gerði, sagði Levinson. - Látum ekki
orða William Boyd við þann
verknað.
í mars 1987 komst kviðdómur hins
vegar að þeirri niðurstöðu að Boyd
væri sekur um tvö morð að yfirlögðu
ráði. Kviðdóniur mælti með lífstíð-
arfangelsi en dómarinn bætti um
betur og dæmdi Boyd til dauða í
rafmagnsstólnum.
Lögunt samkvæmt áfrýjast dóm-
urinn sjálfkrafa og meðan niður-
stöðu er beðið, hefst Boyd við á
dauðagangi í ríkisfangelsinu.
STORKOSTLEGT TIIBOÐ!
riftf
Engin úíborgun en jafnar
mm ■! qreióslur í allt aó 24 mánuði.
nm m
Fyrsta greiósla mánuói
eftir aó kaup eru geró.
Eldhúsinnréttingar - KVIK úrvalsinnrétting-
I ar frá Danmörku.
: Aóstoóum við uppsetningu eí óskaó er.
Heimilisraftæki í úrvali.
(Bauknetht eldunar- og kælitæki, FRIGOR-
frystikistur, eldhústæki frá KITCHEN AID, HUGIN, ELRAM o.fl.
Italskar - flísar frá
TERRA NOVA
SSICED
ceramiche
Málning:
Málning og málningarvörur frá
SJÖFN.
parketió er löngu landsfrægt
fyrir veró og gæói.
Allt í baóherbergió -
damÍXaböndunartæk
/// GUSTAVSBERG
hreinlætistæki o.fl.
_ X / /
‘TZ.aafUd y'zeíóiá a. tuzóta aat.
BYGGINGAVORUVERSLUN Kiki4inn,
SAMBANDSINS Alltafhéltt
KRÓKHÁLSI 7 SÍMI 8 20 33 á könnunni