Tíminn - 10.12.1988, Page 14

Tíminn - 10.12.1988, Page 14
14 -V HELGIN_________________________________________ lllllillllll ITÍMANSRÁS ............................... ...................... ...................... .............. ....... :;!|!i|||'íl| Sigrún S. Hafstein IAF NOLDRI Laugardagur 10. desember 1988 GETTU NU Það er ekki áhættulaust að gefa nöldrurum „frítt spil“ í fjölmiðli eins og ég hef í þetta sinn. í mér (eins og flestum íslendingum) blundar nefnilega þörf til þess að láta ljós mitt skína og segja hinum, þessum og öllum til syndanna. En þar sem ég er að eðlisfari frekar værukær og ekkert óeðlilega lang- rækin þá hef ég aldrei stungið niður penna eða tekið upp símtólið til að tjá mig á þeim vettvangi sem fjölmiðlar af vafasömum rausnar- skap leggja almenningi til, svo hann geti tjáð sig um málin. Með s.k. „frjálsu" útvarpsstöðv- um vænkaðist hagur nöldraranna (og hinna) þar sem „símatímar" urðu lykilorð í því að halda uppi líflegri útvarpsdagskrá. Dag- skrárgerðarmenn virðast þó oft og tíðum nota þennan vettvang til að fylla upp í dagskrána og til að breiða yfir eigin hugmyndafátækt og hvíla þar með sjálfa sig og aðra frá skífuþeytingunni. Fólk er þess- vegna hvatt til þess að hafa skoðun á öllu sem til fellur. Hjá tilteknum útvarpsmanni var það meira að segja svo, að honum þótti bara betra ef fólk hafði engar greinanlegar skoðanir á hlutum sem geta talist skipta máli, heldur átti það að tjá sig um persónuleg mál eins og t.d. ástalífið og hjóna- bandið. Því kræsilegri sögur því betra, og þá skipti engu máli þó greinilegt væri að margir viðmæl- endanna væru búnir að „skvetta" aðeins í sig. Einnig kom það fyrir að fóik sem augljóslega hafði topp- stykkið ekki alveg í lagi fékk að láta ljós sitt skína, og er erfitt að koma auga á að þessum einstakl- ingum hafi verið gerður greiði með þessu örlæti og djúpa skilningi útvarpsmannsins, sem hafði þann eina tilgang að þjóna þeim hvötum sem yfirleitt eru ekki hátt skrifaðar hjá mannskepnunni og láta þar með eigin „stjörnu" skína skærar. En það eru ekki bara dagskrár- gerðarmennirnir sem mættu hressa upp á gráu sellurnar. Dágóðum hluta af því fólki sem nennir að hafa fyrir því að hringja í „síma- tímana" (hvað finnst þér og allt það), væri mestur greiði gerður með því að það væri alltaf á tali hjá fleirum en Hemma Gunn. Enda er það nú svo að furðanlega stór hópur „símafólksins" hefur ekkert annað til málanna að leggja en að segja hvað það hafi verið rosalega erfitt að ná sambandi, í mesta lagi kemur innlegg í umræðuna varð- andi það hvar fást ódýrustu ham- borgararnir í bænum eða að alltof margir keyri lúshægt á vinstri ak- rein (og eru þá karlarnir með bílasímana alveg sérkapítuli). Ef ljósvíkingurinn er heppinn fær hann í lokin mikið hrós fyrir þáttinn. Nú ætti lesendum að vera Ijóst að ég hef fengið mína útrás og friður verður áfram í símatímunum fyrir mér, enda ekki á það bætandi hvað margir þeirra eru heimskuleg- ir og þreytandi. Að lokum get ég þó nefnt dæmi um skondinn „símatíma" sem hlustandi er á. Hann er á Rás 2 á þriðjudagsmorgnum en þá er til þjónustu reiðubúinn fulltrúi frá leiðbeiningastöð húsmæðra. Síðast fengu hlustendur að heyra það a.m.k. 10 sinnum hvernig á að ná kertavaxi úr jóladúkunum og bræða súkkulaði, enda er ég farin að efast um sannleika þess að aldrei sé góð vísa of oft kveðin. Konan sem sat fyrir svörum sýndi þó alveg aðdáanlega þolinmæði gagnvart tregðunni í viðmælendun- um. Ég ætla ekki að ljóstra leyndarmálum leiðbeiningastöðv- arinnar upp hér, en bendi á að vandamálið verður örugglega aftur til umræðu n.k. þriðjudag ef ég þekki útvarpshlustendur rétt. í1..' Fæstir munu hafa þurft hjálp við að þekkja fossinn fagra á myndinni hér í skot- inu fyrir viku. Hann var Hjálp í Þjórsárdal. Enn er það fagurt fossa- landslag sem við biðjum lesendur að þekkja. Hvað heitir áin og dalur sá hinn fagri sem hún fellur í. í dalnum bjó fremdarbóndi mikill á fyrstu öldum ís- landsbyggðar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.