Tíminn - 13.05.1989, Page 11
Laugardagur 13. maí 1989
21
HELGIN
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
til að vera á almannafæri. Sá
þriðji var akfeitt heljarmenni
sem leit ekki við öðru en stúlku-
börnun, helst innan við tíu ára
aldur. Þó hann hefði káfað á
allmörgum þeirra og látið enn
fleiri káfa á sér, hafði hann ekki
valdið skaða og var því ekki
álitinn nógu brenglaður til að
öðlast „veiðileyfi“.
Meðal þeirra 22 sem eftir
voru, höfðu níu kynferðisglæpi
á samviskunni en aðeins fjórum
hafði tekist að framkvæma
óyggjandi nauðgun. Verknaður
sumra hinna var svo furðulega
ruglaður að sálfræðinga þyrfti til
svo hægt væri að tengja slíkt
kynferðismálum.
- Þá eru eftir fjórir, sagði
Greischer við Dittmann. - Það
er ekki sem verst. Á hvern
þeirra veðjarðu?
Otto Kettenmeyer, svaraði
Dittmann að bragði. - Hann
nauðgaði og myrti stúlku 1983
og nauðgaði hjúkrunarkonu hér
og reyndi að myrða hana í fyrra.
Hann er kyrkjari líka.
Tveir grunaðir
- Sammála, sagði Greischer.
- Það ætti að hafa svona menn í
gæslu fleiri en einnar hjúkrunar-
konu. Maðurinn er álíka hættu-
legur og óður hundur.
- Spottinn er samt af glugga-
tjöldunum hjá Schindler, benti
Dittmann á.
- Schindler er minni háttar
bófi og mesti bjálfi, sagði
Greischer og gretti sig. - Hann
hefur lítið annað gert en stela
smávegis, sígarettum og meira
að segja kanínum. Hann hefur
aldrei gerst sekur um kynferðis-
glæp.
Oswald Schindler var 39 ára
og hafði fengið „veiðileyfi“ sitt
1972 eftir að sálfræðingar kom-
ust að raun um að hann var of
lítið gefinn til að teljast ábyrgur
gerða sinna. Honum hafði verið
sleppt og ekkert heyrðist frá
honum í áratug, þar til á jóla-
dagskvöld 1982 að hann braut
glugga í íbúð stúlku sem hann
var hrifinn af. Stúlkan vildi ekki
kæra hann en viku síðar heim-
sótti hann hana aftur og kveikti
í útidyrahurðinni.
Þó Schindler væri augljóslega
sekur, mátti ekki ákæra hann
vegna „veiðileyfisins". í staðinn
var hann sendur á Stöð 24 í
Weinsberg þar sem sálfræðingar
reyndu að laga svo til í kollinum
á honum að hægt yrði að sleppa
honum á ný.
- Kettenmeyer er áreiðanlega
nógu slyngur til að taka spottann
úr herbergi einhvers annars,
sagði Dittmann. - Hann er ekki
kjáni eins og Schindler. Hann er
bara geðbilaður.
Ekki reyndist hann þó nógu
geðbilaður til að játa morðið og
það gerði raunar enginn hinna
heldur. Það mátti teljast undar-
legt, því allir vistmenn vissu að
ekki mátti ákæra þá, hvað sem
þeir gerðu af sér. Vottorðin um
andlega vanhæfni vernduðu þá
og lög náðu ekki yfir þá frekar
en keisara.
- Ég skil þetta ekki, sagði
Dittmann. - Brjálæðingar játa
alltaf. Þeir hafa engu að tapa.
- Kannski er það vegna þess
að almenningur er orðinn
þreyttur á geðsjúkum glæpa-
mönnum sem alltaf er sleppt og
oftast taka upp iðju sína á nýjan
leik, andvarpaði Greischer. -
Þeir halda kannski að færri verði
sleppt. Allir muna eftir
Niedermeyer og Ermisch.
Hver fékk lyf kl. tíu?
Raimund Niedermeyer hafði
verið undir verndarhendi sál-
fræðinga fyrir að gera fimm
sinnum tilraun til að myrða
konur. Eftir tíu ára meðferð var
hann úrskurðaður heill heilsu og
nýtur borgari og látinn laus.
Hann var varla sloppinn út,
þegar hann myrti 14 ára stúlku.
Bernd Ermichs hafði verið
látinn laus af „endurhæfingar-
miðstöð“ í grennd við Bielefeld
og skömmu síðar myrti hann
tvær systur, 12 og 6 ára. Mikil
mótmælaalda reis og fólk krafð-
ist refsingar yfir glæpamönnum.
Þeir ættu ekki að fá bara klapp
á kollinn og nokkrar sprautur.
Raunar kröfðust sumir refsinga
yfir þeim sálfræðingum sem létu
svona lagað viðgangast.
Dæmin voru raunar mýmörg
og nú var svo komið að þeir sem
taldir voru óábyrgir gerða sinna,
voru í ríkara mæli lokaðir inni á
stofnunum.
- Það er svo sem ekki víst að
það hafi verið Kettenmeyer,
sagði Greischer. - Hann er á
lyfjum sem draga úr kynhvöt
hans. Við athugum hina sex ef
vera kynni að þeir hafi nauðgað
einhverri um dagana.
- Þeir eru allir á lyfjum sem
draga úr kynhvötinni, sagði
Dittmann. - Það er venjan á
svona stöðum.
- Það skyldi þó ekki vera að
við gætum séð í hvaða herbergi
hún hefur farið seinast, sagði
Greischer hugsi. - Hún gaf lyf
samkvæmt áætlun og hinar
hjúkrunarkonurnar hljóta að
vita hvernig.
í krufningsskýrslunni stóð að
Marianne Spielmanns hefði ver-
ið myrt milli klukkan tíu og
stundarfjórðungs yfir tíu. Morð-
inginn hlaut því að hafa ráðist á
hana í herbergi sínu eða á
ganginum, áður en hann dró
hana niður í kjallarann til að
nauðga henni og myrða hana
síðan. Ef allt var tekið með, gæti
árásin hafa átt sér stað rétt um
klukkan tíu. Þá þurfti að komast
að hverjum hún hafði gefið lyf
um það leyti.
Vandalaust var að komast að
því, þar sem Marianne hafði
skráð hverja lyfjagjöf. Fjórir
vistmenn áttu að fá sprautur
klukkan tíu og meðal þeirra
voru bæði Schindler og Ketten-
meyer.
Hrifu lyfin ekki?
Greischer fór að ræða við
yfirlækni Stöðvar 24. Hann vildi
vita hvort hugsanlegt væri að
vistmenn gætu komið sér hjá að
fá þá meðferð sem drægi úr
kynhvöt þeirra. Læknirinn þver-
tók fyrir það og sagði að
mennirnir fengju lyfið í spraut-
um til að koma í veg fyrir slíkt.
Þrátt fyrir það virtist sem ein-
hver þeirra væri vel fær um
nauðgun.
Læknirinn kvaðst samt ekki
geta sagt um hverjir mannanna
væru færir um nauðgun og hverj-
ir ekki. Þeir væru svo ólíkir á
margan hátt og margt hefði áhrif
á verkun lyfjanna.
- Við erum litlu nær, sagði
Greischer er hann skýrði Ditt-
mann frá samræðunum við
lækninn. - Tveir nauðgaranna
fengu engin lyf klukkan tíu og
einn hinna er svo ruglaður að
hann gæti varla hugsað rökrétt.
- Þá eru bara Schindler og
Kettenmeyer eftir, sagði
Dittmann. - Báðir harðneita og
hvorugan má hvort sem er
, ákæra.
- Við vissum það frá upphafi,
sagði Greischer. - Þetta er
vonlaust fyrir okkur en við verð-
um samt að fara að lögum. Hér
var framið morð og það þarf að
rannsaka. Við eigum að finna
morðingjann svo morðið fari
ekki óupplýst á skrár.
Hann bætti ekki við: - „Til að
við séum ekki sakaðir um van-
rækslu í starfi, þegar flett er upp
Oswald Schindler (t.v) hafði „veiði-
leyfi“ út á heimsku sína. Það orð
notar þýska lögreglan um þá sem
dæmdir hafa verið ósakhæfir sökum
greindarskorts eða geðbilunar.
í skýrslum, þegar veita á stöðu-
hækkun.“ Dittmann vissi allt
um kerfið í því sambandi.
- Við getum ekki fært fram
tvo grunaða, sagði Dittmann.
- Þá förum við með Ketten-
meyer, sagði Greischer. - Hann
er sökudólgurinn. Schindler er
svoddan aulabárður að hann
gæti varla hafa gert þetta og auk
þess er hann ekki morðingi.
- Kettenmeyer neitar, sagði
Dittmann. - Við höfum ekkert
sem sannar að hann hafi gert
það og við getum ekki ákært
mann á grundvelli fyrri saka.
Myrt fyrir sprauturnar
- Við þurfum þess ekki, sagði
Greischer. - Morðinginn veitti
frú Spielmanns aðra smærri
áverka og svo mikið var af blóði
að útilokað er að hann hefi ekki
fengið blóð á fötin og sjálfan sig.
Við förum með allar eigur Kett-
enmeyers á rannsóknarstofuna.
Ef blóð er í fötunum, finna þeir
það þar.
- Hann gæti hafa þvegið fötin
síðan, sagði Dittmann.
- Vistmenn hér hafa enga
aðstöðu til að þvo af sér, svaraði
Greischer. - Ég bað um að
enginn þvottur yrði látinn fara
út um leið og við komum. Það
blóð sem var á fötum hér þá er
þar enn.
Hins vegar fannst ekkert blóð
í eða á neinu sem Otto Ketten-
meyer átti, hvorki fötum, hand-
klæðum eða rúmfötum og yfir-
maður rannsóknarstofunnar
taldi alls enga möguleika að
hægt væri að yfirsjást slíkt.
Dittmann stakk upp á þeim
möguleika að Kettenmeyer
hefði verið kviknakinn er hann
framdi verknaðinn og hefði síð-
an farið beint í bað. Útilokað
reyndist að athuga manninn því
hann hafði oft farið í bað síðan
morðið var framið.
Þá voru föt Schindlers send í
rannsókn og nóg blóð fannst á
náttfötum hans til að hægt væri
að greina blóðflokkinn. Hann
var sá sami og Marianne Spiel-
manns.
Þegar Schindler var tjáð að
nægar sannanir væru til fyrir því
að hann væri morðinginn, varð
hann afar ringlaður, en hikstaði
loks upp úr sér að hjúkrunar-
konan hefði ráðist á sig, sagst
elska hann út af lífinu og hefði
látið flytja hann á Stöðina til að
hafa hann nálægt sér. Schindler
lauk máli sínu á að játa á sig
morðið á Marianne Spielmanns
í hefndarskyni.
- Hún var alltaf að stinga mig,
sagði hann reiðilega. - Hún
sagði að læknirinn skipaði sér að
gera það en hún gabbaði mig
ekki. - Ég sagðist skyldu ná mér
niðri á henni og ég gerði það.
Hann hafði ekki ætlað að
nauðga henni en ályktað sem
svo að fyrst hann væri þegar
kominn með hana niður í kjall-
arann, gæti hann það svo sem
líka.
Fékk örvandi lyf
Því miður var Schindler einn
þeirra sem ekki fékk lyf til að
draga úr kynhvötinni. Honum
voru gefin örvandi lyf ef vera
kynni að þau skerptu mjög svo
takmarkaða greind hans.
Þar sem Schindler var ekki
• sakhæfur var úrskurðað að hann
skyldi áfram vera á Stöð 24 á
geðveikrahæli ríkisins í Weins-
berg, en ekki fylgir sögunni
hvort hjúkrunarkonur þurfa enn
að vera þar einar á næturvakt.
RISARNIR
LINDE OG LANSING
SAMEINAST
LINDE A.G. í Vestur-Þýskalandi og LANSING LTD. íBretlandi hafa sam-
einast í eitt fyrirtæki, LINDE WGA Group, með aðsetur í Aschaffenburg í
V-Þýskalandi.
LINDE A.G. er nú lang stærsti framleiðandi á Itvers konar vörulyfturum í
Vestur-Evrópu með verksmiðjur í Þýskalandi, Frakklandi og Bretlandi.
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA hefur nú tekið að sér umboð
fyrir LINDE vörulyftara og býður fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr á
rafmagns og dísel vörulyfturum, með lyftigetu frá 0,5 til 42 tonna.
Kynnist úrvalinu hjá okkur.
Það er fjölþætt, verðið sanngjarnt og
gæðin ótvíræð.
UNDE-LANSING
UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI
BÚNADARDEILD
SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900