Tíminn - 14.07.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur 14. júlí 1989
stjornumugavelar
DEUTZ-FAHR stjörnumúgavélar
KS 1.50D, lyftutengdar
stjörnumúgavélar meö einni 8
arma stjörnu. Vinnslubreidd 3,3
m. Landhjól fylgja eftir í
beygjum.
Eigum fyrirliggjandi takmarkaðar birgöir af DEUTZ-FAHR
stjörnumúgavélum KS 150 D á ótrúlega hagstæöu veröi,
eöa aðeins kr. 102.450,- Hafiö samband viö sölumenn
okkar sem fyrst.
FLUGMÁLASTJÓRN
Námskeið í
flugumferðarstjórn
Ákveðið hefur verið að velja nemendur til náms í
flugumferðarstjórn, sem væntanlega hefst í byrjun
nóvember 1989.
Stöðupróf í íslensku, ensku, stærðfræði og eðlis-
fræði verða haldin í september n.k.
Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20-30 ára,
tala skýrt mál, rita greinilega hönd, standast
tilskildar heilbrigðiskröfur og hafa lokið stúdents-
prófi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Flugmála-
stjórn á fyrstu hæð flugturnsbyggingar á Reykja-
víkurflugvelli og ber að skila umsóknum þangað
fyrir 1. september, ásamt staðfestu afriti af stúd-
entsprófskírteini og sakavottorði.
Flugmálastjóri.
Tilkynning til
launaskatts-
greiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina maí og júní
er 15. júlí n.k.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Lokað í dag
föstudaginn 14. júl í, vegna flutnings á skrifstof-
um Brunabótafélags íslands af Laugavegi
103 að Ármúla 3.
Viðskiptamenn eru beðnir að hafa samband í
síma 696000 ef brýna nauðsyn ber til.
Mánudaginn 17. júlí opnar VÁTRYGGINGA-
FÉLAG ÍSLANS H.F. að Ármúla 3 - sími
605060.
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Stjórn Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva
fundar um skrif Lars Hansen, dýralæknis fisksjúkdóma:
Vilja ao embættið
verði lagt niður
Stjóm Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva hefur
lagt til að embætti dýralæknis fisksjúkdóma, sem Lars
Hansen gegnir, verði lagt niður. Þessi tillaga stjórnarinnar
kemur I kjölfar greinar Lars í Morgunblaðinu á dögunum þar
sem hann gagnrýndi fiskeldismenn á íslandi fyrir þekkingar-
Ieysi og óvönduð vinnubrögð.
Skrif Lars hafa verið rædd á
tveimur stjórnarfundum Landssam-
bandins. Guðmundur G. Þórarins-
son, formaður stjómarinnar sagði í
samtali við Tímann að fiskeldismenn
væru almennt mjög óánægðir og
ósáttir við þessi skrif og telja að þau
séu grjótkast úr glerhúsi. Eftir að
hafa rætt skipulag og eftirlit vegna
fisksjúkdóma komst stjórn Lands-
sambandsins að þeirri niðurstöðu að
leggja bæri til að embætti dýralæknis
fisksjúkdóma yrði lagt niður, enda
sagði Guðmundur að það virtist vera
feimnismál hver væri raunvemleg
verkaskipting á milli héraðsdýra-
lækna, dýralæknis fisksjúkdóma og
fisksjúkdómadeildarinnar á
Keldum.
„í Sovétríkjunum eru mjög margir
bændur, en framleiðsla þeirra hefur
verið allt of lítil. Sovéska kerfið
hefur þrjár milljónir eftirlitsmanna
með bændum. íslendingar hafa ekki
efni á öllum þessum eftirlitsmönnum
hverjum upp af öðrum,“ sagði Guð-
mundur.
Svargrein frá Guðmundi og
Landssambandi fiskeldis- og hafbeit-
arstöðva mun birtast á næstunni.
LDH-
Lögreglan í Keflavík og lögreglan
á Hvolsvelli fengu ■ gær afhentan
hvor sinn bflinn í gær. Bflamir era
af BMW 320 gerð og sérútbúnir frá
framleiðanda sem lögreglubflar.
Þeir eru búnir öflugri sex strokka
vél með beinni innspýtingu, sér-
staklega styrktum undirvagni,
læstu drifi, fjögurra þrepa sjálf-
skiptingu, bláum Ijósum, ijar-
skiptatækjum og tveggja tóna sí-
renum eins og tíðkast í Evrópu-
löndum auk ýmiss annars. Frá
vinstri á myndinni era Ásgeir Ei-
ríksson sölumaður Bflaumboðsins,
Þórir Maronsson yfiriögreglu-
þjónn í Keflavík sem tók við Kefla-
víkurbflnum, Ingólfur Waage og
Gils Jóhannsson sem tóku við
Hvolsvallarbflnum og Högni Jóns-
son sölustjóri Bílaumboðsins.
Tímamynd: Pjelur.
Dæmt í máli flugmanns og flugumferðarstjóra vegna flugatviks yfir Helguvík 1984.
Árni Þorgrímsson formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir:
Akæran er einsdæmi
„Það er ekkert farið að ræða
þetta, enda nýtilkomið," sagði Ámi
Þorgrímsson formaður Félags ís-
lenskra flugumferðarstjóra, að-
spurður hvort félagið muni eitthvað
beita sér fyrir breyttum starfsaðferð-
um, í Ijósi niðurstöðu sakadóms
Reykjavíkur í fyrradag, vegna flug-
atviks yfir Helguvík 1984.
Flugstjóri hjá Flugleiðum og flug-
umferðarstjóri á Keflavíkurflugvelli
voru dæmdir í sakadómi Reykjavík-
ur í sjö mánaða skilorðsbundið varð-
hald hvor, í máli ákæruvaldsins
vegna flugumferðaratviks að morgni
6. september 1984. Þá munaði mjög
litlu að tvær þotur Flugleiða, með
samtals 403 farþega innanborðs,
skyllu saman í 10.500 feta hæð fyrir
Herdísarvík.
Árai sagði að áreiðanlega yrði
þetta mál rætt hjá félaginu og í
samráði við þeirra lögfræðing sem
hefði með málið að gera.
Hvaða augum lítur félagið á
þetta? „í mínum augum er þetta
dæmigerður fjölmiðladómur, ég veit
ekki um nauðgara og hassinnflytj-
endur, það er ekki haft vit á að birta
myndir af þeim í sjónvarpi og nafn-
greina þá,“ sagði Árni. Nú er það
sakadómur sem dæmir en ekki fjöl-
miðlar, hvernig líturðu á niðurstöð-
ur þessa máls, er þetta alvarlegt?
„Vissulega er þetta alvarlegt atvik,
það fer ekkert á milli mála fyrst
ákært er í því, en þessi meðferð á
svona atvikum sem gerast í heimin-
um á hverjum degi er algjört eins-
dæmi að ákært sé eins og gert er
hér,“ sagði Ámi. Hann sagði að frá
því að málið hefði farið af stað, hefði
hann verið að leita sér upplýsinga
um eitthvað sambærilegt og ekki
fundið neitt, þrátt fyrir að hann hafi
beitt fyrir sig alþjóðasamtökum flug-
umferðarstjóra. „Að vísu koma
svona mál upp, en þau eru afgreidd
á heimaslóð og menn fá sínar
áminningar, sendir í endurhæfingu
og svoleiðis, en ekki gert að opin-
beru sakamáli," sagði Ámi.
Flugstjórinn og flugumferðar-
stjórinn þóttu samkvæmt dómi saka-
dóms ekki hafa sýnt nægilega að-
gæslu við brottflug Boeing-þotu
Flugleiða frá Keflavíkurflugvelli,
þannig að mjög litlu munaði að hún
rækist á DC-8 þotu félagsins
skömmu eftir flugtak.
Flugumferðarstjórinn og flugmað-
urinn voru dæmdir til að greiða
málsvamarlaun og sakarkostnað.
Ármann Kristinsson sakadómari
kvað upp dóminn, ásamt Sigurði
Líndal prófessor og Þo.rsteini E.
Jónssyni flugstjóra. -ABÓ
Fékk viku varðhald
fyrir ávísanafölsun
Maður var handtekinn á Húsa- rennur úrskurðurinn út á morgun
vík um síðustu helgi eftir að hafa laugardag. Maðurinn var fluttur til
gefið út nokkrar falsaðar ávísanir Reykjavíkur, þar sem hann hefur
einkum á Akureyri og Húsavík. verið yfirheyrður af Rannsóknar-
'Hann var úrskurðaður í viku gæslu- lögreglu ríkisins. -ABÓ
varðhald vegna ávísanafals, og