Tíminn - 14.07.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Föstudagur 14. júlí 1989
FRÉTTAYFIRLIT
UTLÖND
PEKING - Tveir kínverskir
andófsmenn sem tengdust
lýðræðishreyfingu náms-
manna í Peking voru skotnir í
vikunni. Þá hafa að minnsta
kosti tólf andófsmenn verið
teknir af lífi að undangengnum
réttarhöldum. Andófsmenn
sem komist hafa undan telja
að mun fleiri hafi verið teknir af
lífi eftir blóðbaðið á Torgi hins
himneska friðar 4.júní. Þá telja
þeir að þúsundir manna hafi
verið drepnir í blóðbaðinu
4.júní, en kínversk stjórnvöld
segja að rétt rúmlega tvö
hundruð hafi fallið.
MOSKVA - Sovétmenn
fögnuðu tilboði NATO um af-
vopnun ( hefðbundnum víg-
búnaði sem NATO lagði fram
tveimur mánuðum fyrr en áætl-
að var. Sovétmenn segjast
munu stefna að þv! ao ná
samkomulagi um afvopnun
innan sex mánaða, en það er
markmið George Bush Banda-
ríkjaforseta.
MOSKVA - Armeni var
drepinn þegar hópur Azera og
Armena rændu búðir, lokuðu
vegum, skutu á herlögreglu og
börðust við hvor aðra I Nag-
orno-Karabakh. Þetta er joriöja
dauðsfallið sem verður í kyn-
þáttaátökum I héraðinu þessa
viku.
PARÍS - Bush Bandaríkja-
forseti sagði að Bandaríkja-
stjórn muni ekki breyta afstöðu
sinni til kosninga Palestínu-
manna á hernumdu svæðun-
um, þrátt fyrir tilburði Israela
sem vilja aðrar leiðir.
BÚDAPEST - Rúmlega
100 þúsund Ungverja fylgdu
Janos Kadar, leiðtoga Ung-
verja um þriggja áratuga skeið,
til grafar.
MOSKVA - Námaverka-
menn í Mezhdurechensk
héldu aftur til vinnu sinnar eftir
að kolanámavinnsla á stærsta
kolasvæði Sovétríkjanna hafði
stöðvast í þrjá daga vegna
verkfalls þeirra. Námaverka-
mennirnir kröfðust meiri áhrifa
á eigin mál.
COLOMBO - Tveir hóf-
samir leiðtogar Tamíla voru
skotnir til bana og sá þriðji var
særður hættulega á Sri Lanka.
PLO og Israelsstjórn
hafa átt í viðræðum!
ísraelsstjórn og Frelsissamtök
Palestínu hafa átti í hreinum og
opinberum viðræðum með mOli-
göngu Bandaríkjamanna. Frá
þessu skýrði Yossi Beilin að-
stoðarfjármálaráðherra ísrael í
gær, en hann er einn af helstu
fríðarsinnunum í Verkamanna-
flokknum og aðstoðarmaður
Shimons Peres formanns
flokksins. Embættismenn PLO
staðfestu þetta í gær.
Fréttir þessar hafa valdið
mikilli ólgu hjá harðlínumönn-
um í Israel sem vilja ekkert
annað en eld og brennistein yfir
Palestínumenn. Bætir þetta ekki
á þá ólgu sem fyrir er í ísraelsk-
um stjórnmálum, en flest bendir
til þess að Verkamannaflokkur-
inn sé á leið út úr ríkisstjórninni
vegna harðlínustefnu Lik-
udbandalagsins og Shamirs for-
sætisráðherra, en uppljóstranir
þessar koma honum mjög illa
þar sem hann hefur átt í höggi
við öfgafulla harðlínumenn í
Likudbandalaginu undanfarið.
Hinar leynilegu viðræður
komust upp þegar ónafngreind-
ur bandarískur embættismaður
gaf í skyn að PLO og ísraelska
ríkisstjórnin hafi átt í leynileg-
um viðræðum. Yossi Beilin stað-
festi þessar fréttir þegar útvarps-
stöð hersins hafði við hann
viðtal.
- í tvo til tvo og hálfan mánuð
hafa verið hreinar og opinberar
samningaviðræður milli ísra-
elsku ríkisstjórnarinnar sem
Yitzhak Shamir forsætisráð-
herra hefur leitt og PLO, en í
gegnum Bandaríkjamenn.
Hver sem ekki veit þetta,
fsraelskur hermaður á tali við Palestínuaraba á Vesturbakkanum. Nú hefur
það komið I Ijós að ríkisstjómin í ísrael hefur átt í viðrseðum við
Frelsissamtök Palestínu um framtíð hemumdu svæðanna.
hver sem ekki viðurkennir þetta,
hver sem reynir að fela sig frá
þessu, er eins og barn sem lokar
augum sínum og heldur að heim-
urinn sjái það ekki, sagði Beilin
í viðtali við útvarpið.
Þrátt fyrir þessar staðhæfingar
þá reynir Shamir að sverja af sér
allar viðræður við PLO.
- Við höfum ekki haft neitt
samband við PLO, hvorki opin-
berlega né óopinberlega, ekki
bein og ekki óbein, sagði Avi
Pazner blaðafulltrúi Shamirs í
gær.
Bandaríkjamenn sem eru
helstu bandamenn ísraela hófu
að ræða við PLO opinberlega í
desember eftir að Yasser Arafat
leiðtogi Frelsissamtaka Palest-
ínu hafnaði og fordæmdi hryðju-
verk og viðurkenndi tilverurétt
Ísraelsríkis.
Þrátt fyrir þetta þá heldur
uppreisn Palestínumanna á
hernumdu svæðunum áfram og
ísraelskir hermenn halda áfram
að skjóta á uppreisnarmenn.
Þrír Palestínumenn létust eftir
ofbeldi á hemumdu svæðunum í
gær. Tveir grímuklæddir grjót-
kastarar féllu fyrir kúlum ísra-
elskra hermanna og einn Palest-
ínumaður var stunginn til bana
af kynbræðrum sínum í Rafha
flóttamannabúðunum í Gaza.
Hann var talinn vinna með ísra-
elum.
Einn helgasti dagur múslíma
er í dag og búast ísraelar við
átökum í kjölfar hans og hefur
verið sett næturlangt útgöngu-
bann á hemumdu svæðunum.
Pá var danskri stúlku sem
ísraelar handtóku í fyrradag
sleppt úr haldi, en stúlkan var
sökuð um að smygla fjármagni
til leiðtoga uppreisnarmanna
Palestínumanna.
UTLO
UMSJÓN:
Hallur
Maanússon
BLAÐAMAÐ
Hetja byltingarinnar
á Kúbu tekin af lífi
Amaldo Ochoa Sanchez hers-
höfðingi sem barðist við hlið Fídels
Castrós og Che í byltingunni á Kúbu
fyrir þrjátíu árum féll fyrir skotum
aftökusveitar við sólarupprás í gær.
Sanchez var skotinn ásamt þremur
öðmm háttsettum mönnum innan
hersins á Kúbu, en þeir vom sekir
fundnir um aðild að eiturlyfjasmygli
Kólumbíumanna til Bandaríkjanna.
Fjórmenningarnir viðurkenndu allir
glæpi sína.
Mennirnir fjórir voru teknir af lífi
eftir að Hæstiréttur Kúbu og Ríkis-
ráðið á Kúbu höfðu hafnað áfrýjun
dauðadómsins, en Castró er höfuð
ríkisráðsins. Bón Jóhannesar Páls II
páfa um að fjórmenningunum yrði
sýnd miskunn var virt að vettugi.
Omar Hassan al-Bashir leiötogi herforingjastjórnarinnar í Súdan:
* * • ' vua ^jcx au ouuurouuan oivipi*
að, þá munum við ekki standa í pp í þrjú sjálfstjórnarsvæði, þá
Aðskilnaður Suður-Súdan hugsanlegur
Omar Hassan al-Bashir leiðtogi
herforingjastjórnarinnar í Súdan
sem komst til valda í byltingu fyrir
hálfum mánuði hefur lýst yfir að
hugsanleg lausn á borgarastyrjöld-
inni í Súdan sé að Suður-Súdan
skiljist frá Súdan, annað hvort sem
sjálfstjórnarsvæði, eða jafnvel sjálf-
stætt ríki.
- Ef þeir samþykkja allir aðskiln-
veginum, sagði Hassan í viðtali við
dagblað í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum.
- Við erum reiðubúnir að sam-
þykkja hvaða þá lausn í suðri sem
sunnanmenn samþykkja, sagði leið-
toginn.
- Ef þeir vilja bandalagsríki, eða
að suðurhlutinn verði sjálfstjórnar-
c' 'An Kó nr\ QnAnr.QnHon cVirvt-
er okkur sama sagði Hassan.
Súdanski þjóðfrelsisherinn hefur
barist gegn stjórnarhemum í Súdan
frá því árið 1983, en í suðri búa
aðallega blökkumenn er játa kristna
trú eða trú forfeðra sinna, en í
norðri búa músiímar af Arabakyni.
Þeir hafa haít stjórn landsins í sínum
höndum, sunnanmönnum til mikils
Fiskar
drukkna
í mjólk
Það fór illa fyrir fiskunum í
ánni Pas í Cantabria héraði á
Spáni í síðustu viku. Bændur þar
voru að mótmæla verði á mjólk
og mjólkurvörum, sem þeir telja
of lágt, og helltu um 100 þúsund
lítmm af mjólk í ána. Fiskarnir í
ánni áttu ekki von á þessum
sérstæða vökva, gátu enga björg
sér veitt og drápust í torfum. Er
talið að um 150 tonn af fiski hafi
drepist.
- Mjólkin hefur greinilega
raskað jafnvæginu í vatninu og
fiskurinn því drepist. Það er
greinilegt að við verðum að
sleppa miklu magni af seiðum í
ána til að ná aftur upp fiskgengd,
sagði talsmaður héraðsstjórnar-
innar í Cantabria eftir þennan
atburð.
Hondúras:
Sjö bandarískir
hermenn særast í
sprengjutilræði
Sjö bandarískir herlögreglu-
menn særðust þegar sprengja
sprakk á diskóteki í hafnarbænum
La Ceiba í Hondúras í fyrrakvöld.
Þrír mannanna em mjög alvarlega
slasaðir.
Tveir bandarískir ríkisborgarar
hafa verið handteknir vegna þessa
sprengjutilræðis, að sögn tals-
manns hondúraska hersins. Þó er
ekki útilokað að Hondúrasbúar
hafi staðið að tilræðinu.
Sprengjutilræði á diskótekum í
Hondúras sem Bandaríkjamenn
sækja hafa aukist upp á síðkastið
og opinber andstaða Hondúrasbúa
gegn vem Bandaríkjamanna hefur
aukist undanfarið. Spilar þar efla-
ust inn í vera Kontraliða sem hafa
sölsað undir sig stór landssvæði við
landamærin að Níkaragva, en
Bandaríkjamenn hafa stutt
Kontraliða af ráð og dáð.