Tíminn - 16.09.1989, Qupperneq 7

Tíminn - 16.09.1989, Qupperneq 7
16 HELGIN Laugardagur 16. september 1989 „Móðir fyrir rétti“ hefur fengið uppreisn æru en engar skaðabætur Níu árum eftir að dingo-hundur dró tveggja mánaða barnið þeirra frá tjaldstæðinu þar sem þau voru í útilegu, og frægustu morðréttarhöld í ástralskri sögu hófust, lifa Michael og Lindy Chamberlain í sárri fátækt og eru enn að berjast fyrir rétti sínum og til að hreinsa mannorð sitt. Kvikmynd um sára reynslu þeirra, Móðir fyrir rétti, með Meryl Streep og Sam Neill í aðalhlutverkum, hefur verið sýnd í kvikmyndahúsinu Regnboginn undanfarna mánuði við geysilegar vinsældir. Eftir þriggja ára fangeisis- vist var dómurinn ógiltur Lindy Chamberlain sat af sér þriggja ára fangelsisdóm fyrir að hafa myrt Azariu, tveggja mánaða FRAMKVÆMDASJÓÐUR ÍSLANDS gamla dóttur sína, en dómurinn yfir henni var ógiltur eftir að endur- skoðun á réttarlæknisfræðilegum sönnunargögnum sannaði svo ekki var um villst að það var í rauninni villihundur sem drap barnið. Síðan dómurinn var ógiltur hafa Chamberlainhjónin barist fyrir því að fá skaðabætur frá yfirvöldum. Nú nýlega hafa þau komið úr felum í húsinu sínu í Cooranbong auglýsir til sölu kvikmyndahúsið REGNBOGANN að Hverfisgötu 54 í Reykjavík Upplýsingar eru veittar hjá Framkvæmdasjóði íslands, Rauðarárstíg 25, sími 624070, og hjá Hróbjarti Jónatanssyni, hdl., Skeifunni 17, Reykjavík, sími 688733. í norðurhluta New South Wales og héldu þá blaðamannafund í Syd- ney. Þetta voru undarleg endaskipti á hlutunum fyrir Chamberlainhjón- in, sem fjölmiðlarnir hundeltu miskunnarlaust og jusu auri eftir dauða Azariu. Lindy hefur ekki enn mikla þolinmæði með fjölmiðl- unum, en reiði hennar beinist nú að embættismönnum Northern Territory, sem hún sakar um að tefja vísvitandi greiðslur á kröfum þeirra hjóna, sem nema alls 1,8 milljónum sterlingspunda. Eru embættismennirnir að ná sér niðri á hjónunum? - „Þeir vita að þeir hafa haft mig og fjölskyldu mína fyrir rangri sök og að ég er saklaus," sagði hún á blaðamannafundinum. Maður hennar, sem var líka sakfelldur sem samsekur um morðið en sá dómur var líka ógiltur, heldur því fram að töfin á greiðslunum sé „síðasta hálmstrá“ stjórnvalda sem ekki hafa getað náð sér niðri á hjónunum á annan hátt. Flestir Ástralíubúar álíta hér frekar um geðvonsku að ræða en lagaþrætu. Ástralíubúar eru enn hugfangnir af hinni undarlegu sögu af dauða Azariu. Árum saman var gengið út frá því sem gefnu að sagan um að dingohundur hefði dregið korna- barnið burt úr grennd Ayers Rock hefði verið tilraun til að dylja að morð hefði verið framið. Þessi ráðgáta deildi þjóðinni í tvær andstæðar fylkingar. Skyrtu- bolir birtust með slagorðinu „Dingóinn er saklaus". Það varð svo mikið um veggjakrot varðandi málið að það var gefið út í safnriti. Laugardagur 16. september 1989 HELGIN '17 „Gjaid Chamberlainhjón- anna fyrir réttlæti eilíf eftirtekt almennings“ I andrúmslofti vangaveltna fjöl- miðlanna og móðursýki almenn- ings var Lindy sakfelld 1982 og var þar aðallega stuðst við rangar niðurstöður sem dregnar voru af réttarlæknisfræðilegum gögnum. Smám saman fóru svo að koma í ljós sannanir sem studdu vitnisburð hennar. Deilurnar hafa óhjákvæmilega haft sínar afleiðingar. „Það lítur út fyrir að varðandi mál Chamber- lainhjónanna sé gjaldið fyrir rétt- læti eilíf eftirtekt almennings," seg- ir Michael Chamberlain. Hjónin hafa reynt að kveða niður þá þjóðsögu að frægðin hafi fært þeim auð, „Fólk hlær að okkur og sumir segja: Við vitum að þið eigið peninga, en við eigum enga peninga, segir Lindy. Nýlega skó. En þeim hefur þó verið skilað aftur bílnum þeirra, módel 1970, sem var ranglega haldið fram að bæri merki um blóð Azariu og hefur verið í vörslu lögreglunnar alla daga síðan. Hins vegar hafa þau ekki mikil not af bílnum, gírkassinn og vélin eru horfin. Hjónin skulda Kirkju Sjöunda dags aðventista a.m.k. 700.000 pund, en kirkjan greiddi allan kostnað af réttarhöldunum. Þau hafa aðeins fengið lágmarks- greiðslur vegna kvikmyndarinnar, sem rakar saman fé, og hafa ekkert fengið í sinn hlut vegna útgáfu átta bóka um mál þeirra. Útgefendur ekki fúsir að gefa út bók Lindy í október nk. er fyrirhugað að út komi bók Lindy sjálfrar sem hlotið hefur nafnið „Through My Eyes“. Sagt er að hún gæti hlotið 200.000 pund fyrir hana en útgáfufyrirtæki eru ekki enn ákveðin í að gefa hana út. Allar líkur benda til að frásögnin verði ekki mildileg og Lindy segist ætla að vera eins bersögul og hún treystir sér til, án þess að eiga á hættu að vera kærð fyrir meiðyrði. Lindy er nú 45 ára, falleg og grannvaxin. Hún hefur enn sömu hispurslausu og sjálfsöruggu fram- komuna nú og skipti Ástra- líumönnum í tvær fylkingar meðan hún stóð fyrir dómi. Þegar hún neitaði að bera sorg sína of opin- berlega á torg eftir hvarf Azuriu sannfærðust margir um að hún væri sek. Núna fallast flestir á sakleysi hennar og eru fullir iðrunar yfir galdraofsóknunum sem hún varð fyrir og áttu sinn þátt í þeirri eldraun sem hún varð að ganga í gegnum. Nú draga líka fáir í efa að mál hennar hafi leitt í ljós veilur í réttarkerfinu. Bob Hawke forsæt- isráðherra hefur reyndar lýst því sem skoðun sinni. BÍLASTÆÐASJÓÐUR REYKJAVÍKUR Nokkur „mánaðarkortsstæði" laus í Kolaporti og á Bakkastæði. Gjaldið er 4000 kr. í Kolaporti og 3000 kr. á Bakkastæði. Gatnamálastjóri. Enn eru raunir þeirra Lindy og Michael Chamberlain, söguhetj- anna í kvikmyndinni Móðir fyrir rétti, ekki úr sögunni. Skaðabóta- greiðslur til þeirra eru dregnar á langinn og þau draga fram lífið í sárri fátækt. hafa þau orðið að bera til baka sögusagnir um að þau og Meryl Streep væru að leggja eina milljón punda í jarðabrask. Raunveruleikinn er miklu hörkulegri. Michel, sem áður var predikari Sjöunda dags aðventista, heggur nú eldivið og fær 15 pund fyrir hvert dráttarvagnshlass. Lindy segist hafa skrifað þorps- skólanum bréf þar sem hún út- skýrði hvers vegna börnin hennar hafa ekki efni á að eignast nýja FRAMRÚÐAN BÍLRÚÐUÍSETNINGAR OG INNFLUTNINGUR SMIÐJUVEGI 30 S 670675 RÚÐUÍSETNINGAR í ALLAR TEGUNDIR BIFREIÐA EIGUM FLESTAR RÚÐUR Á LAGER PÓSTSENDUM NEVÐARÞJÓNUSTA ÁKVÖLDIN OG UM HELGAR KJARTAN ÓLAFSSON S 667230 GUNNAR SIGURÐSSON S 651617 AGÆTI NAMSMAÐUR! Náma Landsbankans er þjónusta sem léttir undir með námsmönnum, LKGGÐU- ýFRA >ÞER jafnvel þótt þeir hafi úr litlu aÖ spila. í Námuna getur þú sótt þjónustu BÓKINA^ANDARTAK, á borð við útreikninga á greiðslubyrði, sveigjanlegri afborganir lána, -HUGSAÐU UM NÁMU. yfirdráttarheimild, VISA-kort og afhendingu skjala vegna LÍN. Fyrstu VEISTU AÐ I LANDS- þrjú tékkheftin færðu endurgjaldslaust og með tímanum eignastu sve BANKANUM ER NÁMA Einkanámu! Með þátttöku í Námunni öðlast þú einnig rétt til að sækja FYRI NAMSFÓLK. um 100.000 króna námsstyrk og námslokalán, allt að 500.000 krónum. Náman er ný fjármálaþjónusta í Landsbankanum, sérstaklega ætl- uð námsfólki frá 18 ára aldri. Því ekki að hefjast handa nú þegar og sækja í námu Landsbankans. Með því að skapa þér gott orð í Landsbankanum - þó í litlu sé, leggurðu grunninn að fjárhagslega öruggri framtíð. Allar nánari upplýsing- ar, fúslega veittar í næsta Landsbanka. Við bjóðum námsfólk velkomið. Nýttu þér námuna. LANPSBANKI I S L A N O S N • A • M • A • N

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.