Tíminn - 04.10.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 4. október 1989
Opnunartíminn
breytist lítið
Breyttur opnunartími veitingastaða ætti ekki að þurfa að valda mikilli röskun.
Um síðustu helgi gekk í gildi
ný reglugerð um sölu og veiting-
ar áfengis. Nokkur óvissa hefur
ríkt um framkvæmd hennar
vegna þess að í henni er ekki
skilgreint nákvæmlega um hvað
teljist til skemmtistaða og hvað
teljist til veitingahúsa. Horfur
eru á að litlar breytingar verði
gerðar á opnunartímanum þrátt
fyrir nýju reglugerðina.
Böðvar Bragason lögreglustjóri í
Reykjavík sagði þetta mál væri orðið
eins skýrt og það frekast gæti orðið.
Böðvar sagði að í þeim viðræðum
sem hann hefði átt við borgaryfir-
völd hefði allnokkuð verið rætt um
hvar mörkin lægju milli veitinga-
staða og skemmtistaða. Umsóknir
um þessa starfsemi þurfa að fara til
borgarinnar til umsagnar. „Þó að við
séum búnir að ræða nokkuð mikið
saman verður reynslan að skera úr
um hvernig þetta verður. Gallinn er
sá að það vantar alla almenna skil-
greiningu á því hvað sé skemmtistað-
ur og hvað sé veitingastaður. Því
verðum við að láta reynsluna skera
úr í þessu máli. Ég á þó ekki von á
að það verði nein vandræði með
framkvæmdina," sagði lögreglu-
stjóri.
Bjarni P. Magnússon borgarfull-
trúi sem hefur ásamt Vilhjálmi Þ.
Vilhjálmssyni borgarfulltrúa átt í
viðræðum við lögreglustjóra, sagði
að milli borgarinnar og lögreglu-
stjóra væri almennur skilningur á
því hvernig sé best að framkvæmda
reglugerðina. Bjarni sagði að það
ætti eftir að ræða við fulltrúa í
félagsmálanefnd borgarinnar um
það hvaða staðir flokkuðust sem
skemmtistaðir og hvaða staðir flokk-
uðust sem veitingahús. Þar yrðu
væntanlega mótaðar reglur um það.
Bjarni sagði að sjónarmið borgar-
yfirvalda yrði að leyfa almennar
áfengisveitingar til staðanna ef að
þeir yllu ekki ónæði fyrir íbúa hverf-
isins. Bjarni sagði að lögreglustjóri
hefði sagt fulltrúum borgarinnar að
hann áskilji sér rétt til að líta á
leyfisveitingar frá fleiri sjónarhorn-
um.
Að framansögðu virðist ljóst að
ekki verða gerðar miklar breytingar
á opnunartíma veitinga- og
skemmtistaða. Veitingahús fá að
hafa vínveitingar til hálf tóif á kvöld-
in á virkum dögum og hálf þrjú á
helgum en skemmtistaðir munu hafa
opið til hálf eitt á kvöldin á virkum
dögum og hálf þrjú á helgum. Krárn-
ar munu væntanlega verða skil-
greindar sem skemmtistaðir. Helsta
breytingin sem reglugerðin kemur
til með að hafa í för með sér er að
opnunartími kránna verður sam-
ræmdur en þar hefur verið nokkurt
ósamræmi fram að þessu.
-EÓ
Ríkisendurskoöun mun svara bréfi utanríkisráðherra, en ekki er Ijóst á hvaða hátt:
Fær Jón svar við
spurningunum 11?
Ríkisendurskoðandi og yfir-
skoðunarmenn ríkisreiknings
1988 áttu fund saman á mánu-
dag, þar sem tekið var fyrir bréf
Jóns Baldvins Hannibalssonar
utanríkisráðherra, er m.a. inni-
heldur ellefu spurningar varð-
andi túlkun reglna um kaup á
áfengi á kostnaðarverði. Að
sögn Halldórs V. Sigurðssonar
ríkisendurskoðanda mun erindi
Jóns Baldvins tekið fyrir hjá
ríkisendurskoðun, en ekki sé
Ijóst hvort spurningunum verði
svarað.
Ríkisendurskoðandi segir að ekki
hafi verið tekin ákvörðun um hvenær
bréfi Jóns Baldvins verði svarað, en
það muni gert. „Þetta er ekkert mál
sem er aðkallandi að svara“, sagði
Halldór V. Sigurðsson.
Yfirskoðunarmenn ríkisreiknings
1988 hafa sent frá sér yfirlýsingu,
vegna spurninga er utanríkisráð-
herra sendi ríkisendurskoðun og
yfírskoðunarmönnum s.l. fimmtu-
dag. í bréfi ráðherra var varpað
fram spurningum um hvernig verja
Frá blaðamannafundi Jóns Baldvins
fyrirspurnir sínar.
megi risnufé ráðherra og jafnframt
óskað samstarfs um að móta skýrar
reglur um framkvæmd. Yfirskoðun-
armenn taka fram af þessu tilefni að
þeir séu kjörnir af Alþingi til að
yfírfara ríkisreikning ársins 1988 og
hafi þannig ekki til meðferðar út-
gjöld sem stofnað hafi verið til fyrir
þann tíma.
á dögunum, þar sem hann kynnti
Tímamynd: Pjetur.
Að ósk yfirskoðunarmanna ríkis-
reiknings vinnur ríkisendurskoðun
nú að athugun á því hvort að áfeng-
iskaupaheimildir hafi verið misnot-
aðar á síðasta ári í fleiri tilvikum en
nú er uppvíst. í skýrslu sinni til
Alþingis um endurskoðun ríkis-
reiknings 1988, sem væntanleg er
síðar í þessum mánuði, munu yfir-
skoðunarmenn gera grein fyrir at-
hugasemdum sínum við núgildandi
heimildir til áfengiskaupa á kostnað-
arverði, sem og önnur atriði sem
ástæða þykir til að taka til meðferð-
ar.
Kjörnir yfirskoðunarmenn ríkis-
reiknings fyrir árið 1988 eru Geir H.
Haarde, fyrir Sjálfstæðisflokk, Lár-
us Finnbogason, fyrir Framsóknarf-
lokk og Sveinn L. Hálfdánarson,
fyrir Alþýðuflokk.
Kvennalistinn:
NÝR FORMADUR
Þingkonur Kvennalista hafa fram til þessa ekki orðið mosavaxnar í
embætti þingflokksformanns og ekki útlit fyrir að breyting verði þar á. í
samræmi við stefnu listans og reglur, skipta þingkonurnar með sér
gegningunni, og hefur hver hana með höndum árlangt í senn. í fréttatilkynn-
ingu frá Kvennalistanum segir, að Danfríður Skarphéðinsdóttir hafl nú látið
af starfinu en Kristín Einarsdóttir tekið við. Varaformennska þingflokksins
er í höndum Málmfríðar Sigurðardóttur. JBG.
Sviptivindur á Fornebu flugvelli olli harkalegri
lendingu Flugleiðavélar:
Eydís setti
afturendann í
flugbrautina
Eydís, önnur af nýju flugvél-
um Flugleiða skemmdist við
lendingu á Fornebu flugvelli
við Osló í gærmorgun.
Skemmdir urðu á dempara sem
er á afturenda vélarinnar og
var vélin í skoðun hjá sérfræð-
ingi Boeing-verksmiðjanna í
Noregi í gær.
Það var á ellefta tímanum í
gærmorgun sem Eydís kom inn til
lendingar á Fornebu flugvelli. Vél-
in var komin inn yfir flugbrautina
í um sex metra hæð þegar hún
lendir í sviptivindi og varð lending-
in það harkaleg að afturendi vélar-
innar kom við brautina. Þar er
sérstakur dempari til staðar, sem
gekk upp, en hann á að taka hnjask
sem þetta af henni. Demparinn og
festingar í kringum hann munu
eitthvað hafa skemmst. Sérfræð-
ingur frá Boeing verksmiðjunum
sem er staðsettur í Noregi var í gær
að skoða þær skemmdir sem orðið
höfðu. Að sögn Einars Sigurðsson-
ar blaðafulltrúa Flugleiða er ekki
ljóst hversu mikið tjónið er, né
hversu flugvélin verður lengi frá
vegna viðgerðar, en það ætti að
skýrast í dag. Af viðræðum hans
við farþega sem sátu aftast í vél-
inni, var lendingin á við harkalega
lendingu, en ekki ljúf eins og vani
flugmannanna er.
Tafir urðu á Glasgow-flugi Flug-
leiða í gær vegna óhappsins, en sú
flugvél var látin fara til Fornebu til
að taka farþega til íslands.
-ABÓ
Arnarf lug til Húsavíkur?
Arnarflug hefur sótt um að fá að
hefja áætlunarflug milli Reykjavík-
ur og Húsavíkur. Frétt þessa efnis
birtist í Víkurblaðinu á Húsavík.
Að sögn Jörundar Guðmundsson-
ar hjá Arnarflugi, sótti félagið um
að fljúga til Húsavíkur í nokkra
daga í viku í samkeppni við Flug-
leiðir. Jörundur sagði að Húsvík-
ingar hefðu tekið umsókn Arnar-
flugs mjög vel og að bæjarstjórn
Húsavíkur hefði verið sérstaklega
jákvæð í garð Arnarflugs.
Samgönguráðherra veitir
flugfélögum leyfi til áætlunarflugs.
Jörundur Guðmundsson sagði að
ráðherra hefði látið svo ummælt að
hann tæki fyrst og fremst mið af
vilja heimamanna þegar hann tæki
ákvörðun um að veita leyfi til
áætlunarflugs. Samgönguráðherra
mun að öllum líkindum taka
ákvörðun í þessu máli í nóvember.
Ekki náðist í samgönguráðherra
þar eð hann dvelst nú í Egyptal-
andi.
Arnarflug hyggst sækja um leyfi
til flugreksturs til fleiri staða á
Iandinu en hverjir þeir verða er
ekki endanlega frágengið. -EÓ
Námskeið fyrir
flughrætt fólk
Flugleiðir hafa ákveðið að efna
til námskeiðs fyrir farþega sem
vilja yfirvinna flughræðslu. Ýmis
erlend stórflugfélög hafa boðið
uppá þessa þjónustu með góðum
árangri. Námskeiðið er undirbúið
af Eiríki Erni Arnarsyni sálfræð-
ingi en auk hans verður Gunnar H.
Guðjónsson flugstjóri hjá Flugleið-
um, leiðbeinandi á námskeiðinu.
Kannanir benda til þess að flug-
hræðsla þjái um 18% landsmanna.
Hjá litlum hluta þessa hóps er
óttinn við að fljúga svo sterkur að
fólk verður að leita sér aðstoðar til
að yfirvinna hann. Flugfélög víða
um heim hafa brugðist við þessu
með því að skipuleggja námskeið
af þeim toga sem Flugíeiðir hleypa
nú af stokkunum.
Eiríkur Örn Arnarson sál-
fræðingur er sérfræðingur í með-
ferð á hverskyns fælni þar á meðal
flughræðslu. Hann hefur gert
kannanir á fælni meðal fslendinga
og hefur kynnt sér meðferð flug-
hræðslu meðal annarra þjóða.
Fyrsta námskeiðið hefst 10.
október. Námskeiðið stendur í 20
klukkustundir og þátttökugjald er
15.000 krónur. Innifalið í verðinu
er flugferð til einhvers áætlunar-
staðar félagsins erlendis. Til að ná
sem bestum árangri á námskeiðun-
um er fjöldi þátttakenda takmark-
aður. Skráning á námskeiðin er í
símum 69 0173 og 69 01 31 hjá Unu
Eyþórsdóttur. -EÓ