Tíminn - 21.10.1989, Síða 5

Tíminn - 21.10.1989, Síða 5
Laugardagur 21. október 1989 HELGIN 15 Bjarni kynntist fátækt heimilanna í Hafnarfirði á þessum árum. En hann þurfti einnig að gæta vel að eigin hag og lág kennslulaun bætti hann sér upp á sumrin með því að vinna í heyskap fyrir f>órð Sveins- son, yfirlækni á Kleppi. Samstarfs- menn hans voru eingöngu sjúklingar og lét Bjarna vel að vinna meðþeim. Bóndi í Straumi En þetta tvennt dugði ekki Bjarna Bjarnasyni. Hann varð að fást við heyskap á eigin vegum. Ásamt Pórði Edilonssyni lækni keypti hann Straum við Hafnarfjörð sem þá var talin álitleg fjárjörð. Á fáum árum byggði hann Straum upp og kom upp fallegu kúabúi. Ágætur bóndi í Borgarfirði, Þorvaldur Jónsson í Hjarðholti, kom eitt sinn í fjósið til Bjarna. Hann kvaðst aldrei hafa séð 14 kýr í einu fjósi jafnglæsilegar. Margar þeirra voru þá nýbornar og allar mjólkandi. Hafnarfjarðarárin voru efalaust hamingjuár fyrir Bjarna Bjarnason. Árið 1928 festi hann ráð sitt og gekk að eiga Þorbjörgu Þorkelsdóttur, trésmiðs á Eyrarbakka og í Reykja- vík, Hreinssonar. Hún var fædd 9. október 1896 og dó langt fyrir aldur fram 21. apríl 1946. Tvö eru börn þeirra: Þorkell, búfræðikandidat og hrossaræktarráðunautur á Laugar- vatni, f. 1929, kvæntur Ragnheiði Ester Guðmundsdóttur, og eiga þau sjö börn. Védís íþróttakennari, f. 1931. Gift Vilhjálmi Helga Pálssyni, kennara á Húsavík. Þau eiga þrjú böm. Síðari kona Bjama, árið 1950, var Anna Jónsdóttir alþingismanns Jón- atanssonar á Ásgautsstöðum í Stokkseyrarhreppi. Anna bjó Bjarna einkar hlýlegt heimili á efri árum hans, hvort sem það heimili stóð á Laugarvatni eða í Reykjavík. „Hér er maðurinn“ Jónas Jónsson frá Hriflu er áhrifa- valdurinn í lífi Bjarna Bjarnasonar. Þá um nokkurra ára bil hafði Jónas prédikað stíft um nauðsyn þess að mennta sveitaæskuna. Það átti að gerast í héraðsskólum - við heitar lindir. Einn þessara skóla var Hér- aðsskólinn á Laugarvatni, stofnaður haustið 1928. Jónas tók einna mestu ástfóstri við þann skóla, enda varð honum baráttan þar hörðust. Mætur prestur, séra Jakob Ó. Lárusson í Holti, stýrði Laugarvatnsskóla fyrsta árið. Hann kenndi þá heilsubrests og lét af skólastjórn. Ekki rofnaði samband þeirra Jón- asar og Bjarna eftir veruna í Kennaraskólanum. Þegar Jónas var nú í þönkum um næsta skólastjóra kom það upp á sem hann lýsti síðar í grein sinni „Happastund í sögu Laugarvatns": „Vorið 1929 var ég á leið í Hafnar- firði í bifreið á suðurleið. Ég hafði farið yfir lækinn fram hjá kirkjunni að brekkunni sem nú er horfin og Strandvegur kominn í staðinn. Þá kom hár og vörpulegur maður á móti mér niður brekkuna. Ég þekkti strax að þetta var skólastjórinn í Hafnarfirði, Bjarni Bjarnason. Hann var nemandi minn í Kennara- skólanum, vinur minn og flokks- bróðir síðar. En áður en við byrjuð- um að tala saman flaug í gegnum huga minn eins konar fjarsýn: „Hér er maðurinn sem þú leitaðir að, skólastjóraefni í Laugarvatn.““ Jónasi varð flest fast við af þeim hugmyndum sem hann fékk og Bjarni varð skólastjóri Héraðsskól- ans á Laugarvatni haustið 1929. Hann átti þá frá miklu að hverfa í Hafnarfirði, góðum skóla og farsæl- um búskap, en hreppti í staðinn óvissa framtíð í lítt byggðum skóla á vegalausum stað. Hann sá í Hafnar- firði framtíð sína „bjarta og glæsi- lega, svo að ég segi nú alveg eins og er, en samt er þetta sambland af hégómaskap sjálfsagt og því að vilja sækja hærra. Það þótti meira í það varið að vera skólastjóri við héraðs- skóla heldur en við barnaskóla ..." Grátið að skilnaði Laugarvatnsskóla lét Jónas vin sinn, Guðjón Samúelsson húsa- meistara, teikna, með sex þil fram á hlaðið, en ekki voru byggðar meira en tvær stofuhæðir fyrsta árið. Þegar Bjarni kom að Laugarvatni blöstu við honum burstirnar sex en engin vistarvera. Honum hraus hugur við en kappið var mikið. Hann var þess albúinn að hefja nýtt landnám eins og hann hafði áður gert í Straumi. Fyrsta veturinn voru um 20 nem- endur í skólanum. En nú voru nemendur öllu fleiri. Hvað áttu skólastjórinn og nemendurnir að taka til bragðs? Bjarni lýsti því svona: „Við byggðum um veturinn fjölda herbergja smátt og smátt, nemendurnir og við kennararnir, og Skólastjórahjónin Bjarni Bjarna- son og Anna Jónsdóttir á Laugar- vatni. sköpuðum stöðugt eitthvað nýtt. Fyrirheitið var þetta: Nú fáið þið það herbergi sem næst verður tilbúið og nú verður þessi kennslustofa tilbúin og dúklögð. Við hjuggum upp úr gólfinu steypuklessurnar og dúklögðum smátt og smátt. Við byrjuðum með 30 manna svefnhús og byggðum okkur síðan skóla og vistarverur, 84 nemendur og fimm kennarar." Þannig hófst saga Bjarna Bjarna- sonar á Laugarvatni. Hann minntist þess síðar að vorið 1950 hefðu þau öll, nemendur og kennarar, skilist grátandi. Sumir kennaranna hentu gaman að öllu braskinu og sögðu: „Nú, það er ekki hægt að vera við þetta ef við þurfum að gráta á hverju vori þegar við skiljumst.“ Jónas kom á reiðbuxunum Laugarvatnsskóla óx brátt fiskur um hrygg. Nemendur þyrptust þang- að úr öllum sýslum landsins og það þótt góðir héraðsskólar væru í heimabyggðinni. Bjarni gaf kennur- um sínum býsna frjálsar hendur, enda eignaðist Laugarvatnsskóli af- bragðs kennara. Til marks um það hversu kennslan var fast sótt tilfæri ég dæmi eftir sveitunga mínum er nam á Laugarvatni er skólinn var kominn vel á legg. Ólafur Briem var þá íslenskukennari, mætur maður og mjög vel að sér. Tvær deildir voru í einum bekk og lét Bjarni Ólaf Briem kenna í annarri deildinni. En sama efni í íslensku lét Bjarni Þórð Kristleifsson kenna í hinní. Þórður honum til hamingju með þessa glæsilegu spretti og sagði um leið: „Skyldi Gustur gera þetta fyrir þig aftur?“ Og Bjarni svaraði: „Vertu rólegur, vertu rólegur, þú veist að ég er maður keppninnar, en ég er búinn að finna það að við Gustur eigum skap saman.“ Síðan verður mér oft hugsað til þessara orða hans sem sannanlega voru rétt. Hann sýndi það einatt, er hann vann að gæðingadómum á þeirra og geðslag. Það má nærri geta að Bjarna hefur ekki vantað frásagnir af hestum, lundarfari þeirra ásamt samleik manns og hests til skýringar þegar honum hefur þótt við þurfa á fundum með æskufólki og öðrum þeim sem ekki höfðu umgengist gæðinga né veitt þeim verulega athygli. Bjarni þekkti mörg slík ævintýri. Steinþór Gestsson Bjarni Bjarnason situr Trausta frá Hofsstöðum á Mýrum. Til vinstri er Blakkur frá Gullberstöðum, en til hægri Gustur frá Hæli (með Ijósar granir) Allir hestarnir eru undan Skugga 201 frá Bjarnanesi í Hornafirði. hestaþingum, að hann var glöggur á hesta og þá ekki síst viðbrögð var menntaður í tónlist og frægastur sem söngkennari á Laugarvatni. Sjálfmenntaður var hann í íslensku og þessi mikli nákvæmnis- og kapps- maður tók nú að sér að keppa við meistarann í íslenskum fræðum. Sveitungi minn lenti í námi hjá Þórði. „Og þvílíkur atgangur," sagði hann frá síðar. Um vorið mátti ekki á milli sjá hvor deildin hafði betur. Eyþór Einarsson frá Laugum í Hrunamannahreppi var einn af nem- endum Bjarna fyrsta árið. Honum var fyrst holað í svefnpláss með 13 öðrum. Það var mikil stemmning yfir öllu og öðru hverju var Jónas ráðherra að koma og fylgjast með. „Jónas kom þarna eins og hver annar bóndi, stundum kom hann á reiðbuxum. Það var erfitt að komast. Ólafur Ketilsson var eini maðurinn sem gat keyrt upp að Laugarvatni." Sem fyrr hafði Bjarni frá byrjun úrvalskennara. Nefna mætti Guð- mund Gíslason, síðar skólastjóra á Reykjum, og SigurðThorlacius, síð- ar skólastjóra Austurbæjarbarna- skólans í Reykjavík. Lengst allra unnu með Bjarna Bergsteinn Krist- jánsson, gjaldkeri skólans, og Guð- mundur Ólafsson. Guðmundur var mjög léttur maður í geði. Þó hafði hann áður verið við kennslu á Akra- nesi og var orðinn þreyttur þar. En á Laugarvatni lagði hann líka hart að sér og kom svo að hann fór til Jónasar og bað hann að færa sig enn til í léttara starf. Þá er mælt að Jónas hafi sagt: „Nei, Guðmundur, éghefi ekki ráð á því að gera sama manninn hamingjusaman tvisvar." „Þú tekur víxil“ Laugarvatnsskóli vex upp á mikl- um krepputíma í íslenskum land- búnaði. Ekki var þá eyrir til á sumum heimilum til að kosta nem- endur til eins árs náms á héraðs- skóla, hvað þá heldur í tvö ár. Dæmi eru nokkur um það að nemendur hafi komið til Bjarna í öngum sínum eftir fyrra skólaárið og sagst nú verða að hætta. „Þú tekur víxil, heillavinurinn," var þá oft sv<irið, „og ég skrifa upp á.“ Þetta var auðvitað gert vegna þeirrar mann- þekkingar sem Bjarni hafði. Hann var búinn að vinna með nemandan- um í einn vetur og vissi hverju mátti treysta. Eftir seinna árið voru allar götur greiðar fyrir nemandann að komast í vinnu og greiða upp skuld- ina. Gísli Bjarnason á Selfossi var einn þessara manna. Laugardagskvöld eitt sumarið 1933 kom hann gangandi frá Lamb- húskoti í Biskupstungum að Laugar- vatni og falaði skólavist hjá Bjarna. Gísli fékk skólavist ef hann gæti greitt þriðjung skólakostnaðar fyrir- fram. Alls nam þá skólakostnaður 340 krónum. Þurfti Gísli að fá lán til að eiga alveg fyrir þriðjungnum. „Að hálfnuðum námstíma mínum, haustið 1934, gerði Bjarni mér það kostaboð að ég fengi aftur skólavist ef ég gæti aðeins greitt að fullu skuld mína frá vetrinum áður. Þetta tókst og þar með gat ég lokið námi mínu á Laugarvatnsskóla. Ég vann af mér skuld seinni vetrarins með því að taka að mér plægingarvinnu fyrir skólann næsta vor.“ Eins og hringurinn Draupnir Hér verður stiklað á stóru með vöxt Laugarvatnsskóla. Hann var og er á sínum stað en fæddi af sér marga aðra. Ólafur Briem lét þess eitt sinn getið að skólastjórn Bjarna minnti sig á hringinn Draupni sem hafði þá náttúru að af honum drupu átta gullhringar jafnhöfgir hverja nótt. „Bjami kunni þá list að láta einn skóla vaxa af öðrum - eins og af sjálfu sér, uns upp var risið stærsta skólahverfi á lslandi.“ Fyrsta átakið í þeim efnum var íþróttaskóli Björns Jakobssonar er tók til starfa á Laugarvatni 1932 og var síðar breytt í íþróttakennara- skóla íslands árið 1942. Annað af fósturbörnum Laugarvatnsskóla var Húsmæðraskólinn sem rekinn var á vegum héraðsskólans í húsinu Lind allt frá árinu 1942. Húsmæðraskóli Suðurlands varð síðan sjálfstæð stofnun árið 1953 og var Bjami Bjarnason formaður skólanefndar fyrstu árin. Þriðja afsprengið var Barnaskól- inn á Laugarvatni sem starfaði um

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.