Tíminn - 21.10.1989, Síða 11
Laugardagur 21. október 1989
HELGIN
21
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKA
Hann hét Boris Andower og hafði
starfað við rafsuðu mun lengur en
Metzmann. Nú var hann 62 ára og
auralaus og kenndi Metzmann um
allar ófarir sínar.
-I>að er í rauninni ósanngjarnt,
sagði Falken. -Metzmann var ein-
faldlega mun hæfari og tileinkaði sér
nýja þróun jafnóðum. Andower var
íhaldssamur og gamaldags og fór á
hausinn vegna þss að fyrirtækið var
illa rekið.
-Bar hann alltaf þungan hug til
Metzmanns? spurði Kreissauer.
-Það er vægt til orða tekið, svaraði
Falken. -Hann hefur hótað því lengi
að ná sér niðri á honum.
-Morðingjarnir voru tveir, minnti
Kreissauer á.
-Karl Bursch, verkstjóri hjá
Andower, hefur verið atvinnulaus
síðan fyrirtækið hætti, svaraði þá
Falken. Hann er líka sagður hafa
haft uppi hótanir í garð Metzmanns.
-Hvers vegna hefðu þeir myrt
konurnar? vildi Kreissauer vita. -
Varla hafa þeir átt nokkuð sökótt
við þær.
-011 fjölskyldan vann hjá fyrirtæk-
inu. Síðast í fyrrasumar skaut ein-
hver að Willi í bílnum. Kúlan lenti í
bólstruninni og Willi hirti hana. Hún
er týnd og hann vildi ekki kæra.
Lögreglustjórinn heldur að hann
hafi vitað hver skaut.
-Tveir rosknir menn sem trúa því
að Metzmann hafi lagt líf þeirra í
rúst. Mér þykir það ólíklegt en þó
ekki útilokað, sagði Kreissauer
hugsi.
Boris Andower og Karl Bursch
voru handteknir og yfirheyrðir um
morðin en þvemeituðu báðir að vita
nokkuð um þau þótt þeir viður-
kenndu fúslega að hafa haft í frammi
hótanir. Við húsleit heima hjá
Andower fannst veiðiriffill í bíl-
skúmum og virtist vera blóð á skeft-
inu.
Við nánari rannsókn kom í ljós að
blóðið var hænsnablóð og að ekki
hafði verið skotið af rifflinum mán-
uðum saman. Félagamir vom látnir
lausir vegna skorts á sönnunargögn-
um.
-Við vitum ekki réttu ástæðuna
ennþá, sagði Kreissauer. -Auðvitað
er hún einhver. Þetta vom ekki
morð framin í æði eingöngu, án
tilgangs. Morðingjarnir voru tveir
og vissu hvað þeir ætluðu sér. Ef
drengurinn hefði verið heima hefði
hann verið myrtur Iíka.
-Hann var heppinn, varð Falken
að orði. -Hann var ekki heima og nú
erfir hann allan auðinn. Honum
tókst sannarlega að verða ríkur á
auðveldari hátt en föður hans.
-Tókst honum? spurði Kreissauer
og horfði fast á starfsfélaga sinn sem
svaraði engu frekar.
Kreissauer fór nú að kanna fram-
burð unga fólksins úr samkvæminu.
Allt sagði það að Kai Metzmann og
Juergen Lischer hefðu verið þar
fram á morgun en enginn gat sagt
nákvæmlega hvenær þeir konu en
töldu þó að það hefði verið fyrir
miðnætti. -Enginn myrðir heila fjöl-
skyldu og fer svo í veislu, sagði
Falken hneykslaður.
-Þú vanmetur nútímaunglinga,
svaraði Kreissauer þurrlega. -Ég vil
fá framburð eiðsvarins vitnis um
hvenær piltamir konu á staðinn.
Mér er sama hvernig þú færð hann.
Þetta verkefni reyndist Falken
ofviða. Samkvæmið hafði hafist um
áttaleytið og tveimur stundum síðar
vissu fæstir hvað tímanum leið og
langaði ekkert til þess. Allmiklu
hassi hafði verið komið í lóg og
ásamt áfengi og fleiri efnum gerði
það það að verkum að margir við-
staddra höfðu ekki einu sinni hug-
mynd um hvaða ár var eða í hvaða
heimshluta þeir vom.
-í ofanálag vom þrjár slíkar veisl-
ur í grenndinni og fólk var alltaf að
hlaupa á milli, sagði Falken. - Á
þessum árstíma er þetta alltaf svona.
Ég veit ekki hvort vitnisburður frá
svona fólki stæðist fyrir rétti þótt
hann fengist.
-Gott og vel, sagði Kreissauer.
-Ef vinir þeirra geta ekki sagt til um
hvenær þeir komu þá hafa þeir
heldur ekki staðfesta fjarvistarsönn-
un. Við getum hins vegar lagt fram
Silke Metzmann, 25 ára, stóð Iíka til
arfs svo hún varð að fara sömu leið
og foreldramir.
sitt af hverju sem nægir líklega til
handtöku.
-Svo sem hvað? vildi Falken vita
og var steinhissa.
-Ástæðuna, svaraði yfirmaður
hans. -Kai Metzmann verður vell-
auðugur eftir þetta. Enginn annar
hefur fjárhagslegan hagnað af dauða
Metzmannhjónanna og dóttur
þeirra. Auk þess virtust þeir gjör-
þekkja húsið, höfðu lykil, vissu um
byssurnar, sverðið og hnífinn. Slíkt
veit ekki hver sem er. Engu var
stolið. Hann vissi að með því að taka
eitthvað, var hann eingöngu að ræna
frá sjálfum sér. Hann var ekki einu
sinni nógu skynsamur til að setja rán
á svið. Hann er nú bara pönkari.
-Það mætti ná fram kæm en hann
verður aldrei sakfelldur, sagði Falk-
en niðurdreginn. -Þú veist hvernig
dómstólar taka á unglingum.
-Sakfelling fæst með játningu,
svaraði Kreissauer aðeins.
-Heldurðu að Kai Metzmann og
Juergen Lischer játi? spurði Falken.
-Því skyldu þeir gera það?
-Yfirheyrslumar eru strangar,
svaraði sá reyndari. -Unga kynslóð-
in þolir illa hvers konar óþægindi.
Handtaktu þá og segðu þeim að þeir
séu gmnaðir um morð. Láttu yfir-
heyra þá stanslaust í sólarhring.
-Hvað svo?
-Lestu þeim allt um réfsinguna
sem þeir eiga í vændum, svaraði
Kreissauer.
Þess gerðist ekki þörf, því félag-
amir ungu kunnu þær klausur allar
utanbókar. Hámarksrefsing mann-
eskju undir 21 árs aldri var 10 ára
fangelsi og sjaldan var nema helm-
ingur tímans afplánaður.
-Gott og vel, sagði Kai Metzmann
eftir skamma yfirheyrslu. -Við Ju-
ergen gerðum það. Ég var orðinn
dauðleiður á rafsuðu og það er ekki
réttlátt að gamla fólkið eigi alla
peningana. Unga fólkið ætti að ráða
yfir þeim. Það kann betur að njóta
þeirra. Juergen hjálpaði mér af því
ég lofaði honum hluta arfsins.
-Þú sleppur við það fyrst þið
náðust, sagði Kreissauer.
-Ég geri það samt, svaraði Kai
Metzmann. -Ég lofaði honum því
og ég er heiðarlegur maður.
Játning Kais var staðfest af Juerg-
en Lischer og félagarnir vísuðu lög-
reglunni á morðvopnin sem lágu á
botni Speyerárinnar. Þau fundust
öll.
Þann 22. janúar 1988 komu Kai og
Juergen fyrir unglingadómstól í Lu-
dwigshafen og voru báðir dæmdir í
10 ára fangelsi. Undir venjulegum
kringumstæðum sitja þeir aðeins
fimm ár inni. Kai Metzmann verður
því frjáls maður og vellauðugur 24
ára gamall, hvað sem það verður
lengi. Máltækið segir: „Illur fengur,
illa forgengur."
hóiel
Sæludagar á Hótel Sögu
Efnt verður til orlofsdvalar fyrir bændur á Hótel
Sögu í vetur. Fyrsta dvölin er 7.-11. desember.
Innifalið í dvölinni er m.a.:
★ Gisting og morgunverður
★ 2 málsverðir á hótelinu
★ Heimsóknir í fyrirtæki og á söfn
★ Spilakvöld
★ Leikhúsferðir
Fararstjóri og skipuleggjandi er Agnar Guðnason,
sem veitir nánari upplýsingar og tekur á móti
pöntunum í síma 91-19200.
Hótel Saga og Stéttarsamband bænda.
RIKISSPITALAR
Blóðbankinn
auglýsir eftir skrifstofumanni til starfa nú þegar.
Um er að ræða fullt starf í afleysingastöðu í rúmt
ár. Vinnutími er frá kl. 9.00 til 17.00. Unnið er m.a.
við gagnaskráningu á tölvu, vélritun auk annarra
almennra skrifstofustarfa. Blóðsöfnunarferðir og
gæsluvaktir.
Upplýsingar gefur Ruth Ármannsdóttir skrifstofu-
stjóri í síma 60 2023.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá skrifstofu-
stjóra Blóðbankans.
Reykjavík 7. október 1989.
RÍKISSPÍTALAR
FJÖLBRAUTASKÚUNN
BREIÐHOLTI
Frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti
Innritun í Dagskóla Fjölbrautaskólans í Breiðholti
á vorönn 1990 stendur yfir.
Umsóknir skulu hafa borist skrifstofu skólans fyrir
1. nóvember 1989.
Skólameistari.
BASAMOTTUR
FRÁ ALFA-LAVAL
Sterkar og einangra mjög vel.
Stærð: 1400x1100 mm.
's/'V/Æ
Utboð
Súðavíkurhlíð 1990
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk.
Lengd vegarkafla 1,3 km, bergskeringar 11.600
m3, skeringar ( laust efni 32.300 m3, neðra
burðarlag 1.100 m3 og rofvarnir A100 m3.
Verkinu skal lokið 15. júlí 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
23. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir
kl. 14:00 þann 6. nóvember 1989.
Vegamálastjóri.
OAGVSST BAHNA
Umsjónarfóstra óskast
Dagvist barna óskar að ráða umsjónarfóstru með
daggæslu á einkaheimilum til starfa nú þegar eða
eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur deildarstjóri fagdeildar í síma
27277.
Lax- eða silungsá
Óska eftir að taka á leigu lax- eða silungsá fyrir 2
stangir.
Upplýsingar í síma 92-14847.