Tíminn - 08.12.1989, Side 9
8 Tíminn
Föstudagur 8. desember 1989
Föstudagur 8. desember 1989
Tíminn 9
Orkusteinar til að stuðla að betri líðan:
Eftir Sigrúnu S. Hafstein
Áhugi á dulspeki og andlegum efnum
ýmiskonar virðist vera mjög mikill í
þjóðfélaginu í dag. Nægir þar að nefna
námskeið í heilun ýmiskonar, útvarps-
þætti sem eru sérstaklega tileinkaður
þessum fræðum og friðarsamkomur þar
sem lögð er áhersla á jákvæða hugsun og
þá orku sem menn telja að sé í heimin-
um. Einn lítill hluti af þessum áhuga eru
svokallaðir orkusteinar. Að vísu telja
þeir sem trúa á orku steinanna að allir
náttúrulegir steinar feli í sér orku en þeir
séu mis þróaðir hvað þetta varðar.
í versluninni Betra líf í Reykjavík er
hægt að kaupa yfir 40 tegundir steina
sem eru taldir búa yfir orku sem getur
haft jákvæð áhrif á andlega og líkamlega
heilsu manna.
Byggt á fomri speki
Guðrún Guðjónsdóttir eigandi Betra
lífs sagði að fræðin um orkusteinana
byggðust fyrst og fremst á gamalli speki,
til dæmis frá Forn-Egyptum og Aztekum
og öðrum gömlum þjóðflokkum sem
notuðu steinana og skildu hvað mikil
orka býr í þeim. í Forn-Egyptalandi hafi
altarin verið skreytt steinum til að laða
að orku og kórónur konunga hafi verið
skreyttar steinum til að veita vörn og
laða að orku. Fólk sem starfar með
steina í dag leiti því aftur í gamla tíma
og gamlar aðferðir.
Nýjung hér á landi
Notkun steina í þeim tilgangi að bæta
líðan fólks er tiltölulega ný tilkomin hér
á landi en fyrir um það bil fimm árum
síðan var fyrst farið að vinna með
kristalla til að heila fólk.
Uppgangur þessara fræða hófst í
Bandaríkjunum og hafa þau verið áber-
andi þar. Ástæðan er taiin vera sú að
Bandaríkjamenn eru nýjungagjarnir og
höfðu að auki aðgang að fornri indíána-
speki sem byggir á því að jörð, maður og
aýr séu ein neild sem beri að virða og
vernda.
í kynningu sem dreift er í versluninni
segir meðal annars: „Steinar eru hluti af
ljósi og orku alheimsins og eru hlaðnir
henni á sama hátt og sólin, tunglið,
vatnið og annað í náttúrunni. Hægt er að
notfæra sér orku steinanna á sama hátt
og súrefni úr loftinu ef við vinnum með
orkuna jákvætt og full af kærleika, þá
mun hún veita okkur gleði og aðstoð í
sjálfsleit okkar.“
Sjö orkustöðvar
Þegar Guðrún var spurð að því hvaða
orku væri um að ræða sagði hún að það
væri alheimsorkan eða partur af henni
og sú orka væri mismunandi sterk eftir
því hvað steinninn væri þróaður.
Guðrún sagði að steinarnir væru efni
úr náttúrunni sem hefur pressast og
þrýsts saman um árþúsundir og geymdu
í sér ýmsa eiginleika, þó fyrst og fremst
ljósið og birtuna. Steinarnir hafi útgeisl-
un eða strauma sem hefur aftur áhrif á
orkusvið líkama þess sem meðhöndlar
steininn. Hefur útgeislun steinanna
mælst með svokallaðri kirlian ljósmynd-
un sem er sama aðferð og beitt hefur
verið til að mynda áru einstaklinga.
Hinir mismunandi steinar hafa áhrif á
mismunandi svæði ílíkamanum. í grund-
vallaratriðum er það þannig að líkaminn
er talinn hafa sjö orkustöðvar sem hver
hefur mismunandi lit. Steinninn er valinn
eftir lit hans sem þá höfðar til viðkom-
andi orkustöðvar og eru straumar frá
steininum notaðir til að efla viðkomandi
orkustöð eða opna hana. Sumir steinar
virka inn á fleiri en eina orkustöð og til
dæmis geta hreinir kristallar virkað á
allar orkustöðvarnar.
Er einstaklingurinn talinn þá fyrst fá
fullkomna orku út úr sjálfum þér þegar
allar orkustöðvarnar starfa saman í heild
en hjá flestum er einhver hindrun þannig
að stöðvarnar vinna ekki saman.
Guðrún sagði að notkun steinanna í
þeim tilgangi að fá frá þeim orku byggist
mjög mikið á hugsuninni og steinarnir
séu ekki seldir sem trygging fyrir lækn-
ingu. „Ég get aldrei sagt að þú læknist ef
þú kaupir stein en steinninn getur
kannski hjálpað þér af því að þú breytir
hugsanaganginum þegar þú ferð að nota
steininn og það er hugsunin sem skiptir
svo miklu máli.“
Sagði Guðrún að hægt væri að líta á
steinana hjálpartæki. Mikið af fólki
kæmi í búðina og spyrði hvort það ætti
nú að fara að trúa á grjót. „Þetta er ekki
spurningin um það, þú trúir ekki endi-
lega á sólina þó hún hiti þig og gefi þér
orku, það sama á við um steinana, þeir
geta hjálpaö þér og gefið þér orku.“
Guðrún sagði jafnframt að nútíma-
þjóðfélagið einkenndist af því að maður-
inn hafi horfið frá hinni fornu hugmynda-
fræði þar sem áhersla var á að maðurinn,
jörðin og dýrin væru ein heild. í dag væri
vakning varðandi það að vernda jörðina
og leita til baka til hennar, til upprunans.
Fólk væri að leita svara spurningunni um
hvernig maðurinn tengist jörðinni og
hvernig hann verði heild af henni.
Kristallar við hugleiðslu
Kristallar eru oftast notaðir við hug-
leiðslu, til að opna orkustöðvarnar eða
til að heila fólk með því að senda
orkugeisla frá sér í gegnum kristallinn
yfir í annað fólk. Kristallinn er talinn
vera og notaður sem eins konar „transist-
or,“ hann getur tekið við bylgjum og
sent frá sér aftur.
í höndunum eru svokallaðar orkusólir
þannig að við hugleiðslu eru steinarnir
oft settir í hendina því þar er talinn vera
mikil næmni til að taka inn orkuna úr
steinunum. Einnig er hægt að ganga með
steinana á sér sem skart eða jafnvel bara
í vasanum.
í lista yfir steina og áhrif þeirra sem
hægt er að fá í versluninni er aðferð til
að hugleiða með steini lýst á eftirfarandi
hátt: „Finndu þér hljóðlátan stað,
kveiktu á kerti eða reykelsi og slakaðu
á. Farðu með stutta bæn. Leggðu stein-
inn í annan lófann og leggðu hinn lófann
yfir. Dragðu andann djúpt og rólega og
Iokaðu augunum. Finndu fyrir andar-
drætti þínum og hvernig hann enduróm-
ar um allan líkama þinn. Einbeittu
huganum að steininum og ímyndaðu þér
að þú sért að drekka í þig alla þá orku
sem hann hefur safnað í sig í gegnum
aldirnar. Hugsaðu þér að þú drekkir í
þig fallegan lit hans og að þú baðir þig í
innsta kjarna hans. Kjarna kærleika og
ljóss. Dveldu þar um stund í friði.. Þegar
þú er tilbúinn að koma til baka, skaltu
beygja höfuð þitt og þakka með bæn.“
Dæmi um áhrif
Sem dæmi um þau áhrif sem steinar og
málmar eru taldir búa yfir má nefna
eftirfarandi:
Gull: Er talið hreinsa og örva efnislíkam-
ann, styrkja blóðrásina og taugakerfið
og koma jafnvægi á hjartastöðin. Gull er
einnig talið koma á jafnvægi milli hægra
og vinstra heilahvels, stuðla að endurnýj-
un vefjanna og laða að jákvæða orku í
áruna. Gull er talið magna upp hugar-
form og stuðla að eigin uppljómun. Gull
er fullfrúi sólarorkunnar og hins karl-
lega. Orkustöð: Miltastöð, höfuðstöð og
hjartastöð.
Jaspis (allir litir): Er tegund af glerhalla
er talinn hafa styrkjandi áhrif á lifur,
gallblöðru og blöðru. Hann er talinn
öflugur við heilun, hefur hvað mest áhrif
á efnislíkamann. Hann er táknrænn fyrir
jarðarorkuna og vinnur um orkustöðvar
eftir lit þeirra og steinanna.
Orkuflæði gegnum armbönd
Það eru ekki einungis steinar sem eru
taldir hafa áhrif á orkuflæðið í líkaman-
um. Svokallað Mondial armband á einn-
ig að bæta heilsuna. Armbandið er ýmist
borið á hægri eða vinstri úlnlið eftir því
hvaða verkun það á að hafa. í stuttu máli
þá er rafmagn í pólum á armbandinu
sem síðan leiðir inn á orkubrautir líkam-
ans. Á vinstri úlnlið virkar armbandið á
blóðrásarkerfið og hreinsikerfi líkam-
ans. Sé það borið á hægri hendi þá virkar
það á vöðvana og taugakerfið og virkar
slakandi. í fyrstu getur fólk fundið fyrir
aukaverkunum vegna armbandsins eins
og pirrings í húðinni á handleggnum og
jafnvel höfuðverk og svita.
l imamynd l’jetur.
Armböndin eru byggð á austurlanda-
speki sem snýst um Yin og Yang,
neikvæða og jákvæða orku og vinnur
armbandið að því að halda þessu í
jafnvægi.