Tíminn - 19.12.1989, Page 3
Þriðjudagur 19. desember 1989
Tíminn 3
Nýflugbraut á Hólmavík
Nýverið var ný flugbraut tekin í
notkun á Hólmavík. Fyrsta vélin
sem lenti á nýju brautinni var Dorn-
ier-flugvél Arnarflugs.
Framkvæmdir við nýju flugbraut-
ina hófust í sumar. Bygging flug-
brautarinnar var boðin út, og kom
verið í hlut Strandaverks hf. á
Hólmavík. Vinnu við sjálfa flugrein-
ina er lokið, en vinna við öryggis-
svæði meðfram brautinni stendur
enn yfir. Á næsta ári verður byggð
ný flugstöð við völlinn og gengið frá
flughlaði.
Nýja flugbrautin er á sama stað og
sú gamla, en stefna hennar er önnur.
Vegna staðsetningar brautarinnar er
nauðsynlegt að færa þjóðveginn fyrir
norðan Hólmavík, en það hefur enn
ekki verið gert. Þeir sem leið eiga
vestur í ísafjarðardjúp, á Drangsnes
eða norður á Strandir, þurfa því að
aka eftir gömlu flugbrautinni. Af
þessum sökum er ekki hægt að ljúka
framkvæmdum við suðurenda nýju
brautarinnar. Þannig vantar nú um
100 m upp á að flugbrautin nái fullri
lengd, auk þess sem öryggissvæði
vantar við suðurendann.
Fullbúin verður nýja flugbrautin á
Hólmavík 1000 m að lengd og 30 m
á breidd. Öryggissvæðin meðfram
brautinni eru 25 m breið, en við
enda brautarinnar eru 60 m löng
öryggissvæði.
Að sögn Magnúsar H. Magnús-
sonar, flugvallarstjóra á Hólmavík,
batnar öll aðstaða til flugs til og frá
Hólmavík verulega með tilkomu
nýju brautarinnar. Nýja brautin snýr
mun betur við ríkjandi vindáttum en
sú gamla. Einkum gat gamla brautin
verið erfið viðfangs í suðvestanátt.
Auk þess var nær útilokað að lengja
gömlu brautina, þar sem annar endi
hennar var uppi á háu barði, en hinn
endinn á lækjarbakka. Gamla braut-
in var aðeins 746 m að lengd, þannig
að flestar áætlunarflugvélar þurftu
sérstaka undanþágu til að mega nota
hana.
Dornier-flugvél Arnarflugs iendir í fyrsta sinn á nýrri flugbraut á Hólmavík.
Tímamynd: S.G.
Gullfoss
- lífið um borð
Gullfoss - Lífið um borð, er heiti
á nýútkominni bók, þar sem tekin er
saman saga skemmtifleytunnar Gull-
foss og reynt að draga upp raunsanna
mynd af stemmingunni um borð.
Pétur Már Ólafsson tók saman og
skrifar stærstan hluta bókarinnar.
Alls skrifa þrettán manns í bókina.
Bókaútgáfan Tákn gefur bókina út,
sem skartar fjölda mynda.
Pétur Már Ólafsson sagði í samtali ,
við Tímann, nýverið að mikil vinna
hefði farið í heimildasöfnun við
bókina. Helst leitaði hann fanga í
dagblöðum, ársskýrslum Eimskipa-
félagsins og minni manna sem voru
í áhöfn eða ferðuðust með skipinu.
Svo virðist sem alls hafi um 160
þúsund farþegar ferðast með Gull-
fossi á þeim 23 árum sem hann var í
siglinum undir íslenskum fána. Ör-
lög skipsins þekkja flestir, en Gull-
foss var seldur 1973 og var upp frá
því í pílagrímaflutningum, þar til
eldur kom upp í skipinu og það sökk
við hafnarborgina Jedda.
Pétur Már segir lífið um borð hafa
borið öll einkenni samfélags. „Menn
dóu og fæddust. Fólk skyldi og tók
saman. Gamlir fjendur sættust og
illdeilur upphófust." Hann segir
jafnframt að í upphafi hafi honum
þótt hugmyndin um að skrifa sögu
Gullfoss, fáránleg en síðar séð að
hún var hluti af þjóðarsögunni, þeg-
ar þjóðin fór í fyrsta skipti að
ferðast.
Vestmannaeyjar:
Bílar brunnu
Fjórir fólksbílar sem stóðu við
fjölbýlishús við Áshamar í Vest-
mannaeyjum, eyðilögðust í eldi
snemma á sunnudagsmorgun. Það
var rétt upp úr kl 07 um morguninn
sem lögreglu og slökkviliði var gert
viðvart um eldinn og tókst fljótlega
að ráða niðurlögum eldsins. Mikill
vindur var að norðan og mun eldur-
inn hafa komið upp í einum bílanna
og síðan breiðst út hina bílana sem
stóðu við hlið hans. Þrír bílanna
brunnu til kaldra kola en sá fjórði
skemmdist það mikið að hann er
talinn gjörónýtur.
Málið er í rannsókn hjá rannsókn-
arlögreglu Vestmannaeyja en elds-
upptök eru ókunn.
eins og
á jólum
KEA hangikjötið er meðhöndlað samkvæmt
norðlenskri hefð af færustu kjötiðnaðar-
mönnum. KEA hangikjötið, bragðgott
og ilmandi eins og þið viljið hafa það
— á jólum!