Tíminn - 08.01.1991, Blaðsíða 15

Tíminn - 08.01.1991, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 8. janúar 1991 Tfminn 15 IÞROTTIR Körfuknattleikur— Úrvalsdeild: Fjögurra stiga leikur hjá KR Dómarar í aðalhlutverki á fyrsta leikkvöldi ársins í körfuboltanum Keppni í úrvalsdeildinni í fcörfu- knattleik hófst á nýjan leifc á sunnu- dagskvöld. Fjórir leifcir voru á da- sfcrá, en aðeins þrír þeirra fóru fram. Þar sem annar dómarinn mætti ekki á leifc ÍR og Njarðvíkinga í Selja- skóla, varð að fresta leiknum. Þeir um það bil 150 áhorfendur sem hugðust sjá Frank Booker, hinn nýja bandaríska leikmann ÍR, etja kappi við bakveija Njarðvíkinga, fóru því fýluferð. í Laugardalshöll tóku íslandsmeist- arar KR á móti Haukum. Dómaram- ir komu einnig mikið við sögu í þeim leik, sem lauk með 88-81 sigri KR- inga. Frammistaða þeirra Bergs Steingrímssonar og Kristins Óskars- sonar var afar slök og einnig urðu rit- ara leiksins á slæm mistök. Hann gleymdi að skrá eina villu á Pál Kol- beinsson og því fékk Páll að leika áfram eftir að hann fékk með réttu sína 5. villu. Leikurinn var afar illa leikinn af báðum liðum, mikið var um rangar sendingar og mistök og hittni leik- manna var slök. Fyrri hálfleikur var mjög jafn, Haukar voru örlítið sterk- ari framan af en KR-ingar jöfnuðu. í leikhléi voru KR-ingar yfir 45-42. í síðari hálfleik náðu KR-ingar fljót- lega góðri forystu, sem mest varð 13 stig 77-63. Á þessum kafla gekk ekk- ert upp hjá Haukunum, en KR-ingar léku skynsamlega og nýttu færin. Um miðjan hálfleikinn varð hinn nýi bandaríski leikmaður Hauka, Damon Vance, að fara af leikvelli með 5 villur. Sömu leið fór Henning Hennings- son, fyrirliði Hauka, áður en yfir lauk. Þegar 5 mín. voru eftir fór Páll Kolbeinsson loks út af með 5 villur og Axel Nikulásson fylgdi í kjölfarið eftir að hafa fengið tvær tæknivillur. Axel verður því f leikbanni á sunnu- daginn þegar KR-ingar sækja Snæfell heim. Haukum tókst að minnka muninn í 1 stig 80- 79, en lengra komust þeir ekki. Hermann Hauks- son, ungur og efnilegur leikmaður KR-inga, tryggði sínum mönnum sigurinn með 6 stigum úr vítaskot- um á síðustu sekúndunum og loka- tölurvoru 88-81. Bestir KR-inga í gær voru Axel Nikulásson í vörninni, Jonathan Bow í fráköstunum, Lárus Árnason sem hitti vel og Hermann Hauksson sem var öryggið uppmálað á lokamínút- unni. Hjá Haukum var kjaminn jafn og þokkalegur, en enginn skaraði fram úr. Þessi sigur var KR-ingum afar mik- ilvægur og jafngildir fjómm stigum. Ef að líkum lætur hafa Haukarnir ekki lagt árar í bát og þeir ætla sér áreiðanlega sæti í úrslitakeppninni í vor, þrátt fyrir ófarimar á sunnudags- kvöld. Stigin KR: Bow 24, Láms 18, Her- mann 14, Axel 13, Páll 8, Gauti 7 og Matthfas 4. Haukar: Vance 17, Jón Amar 17, Henning 13, Pálmar 13, ívar 13 og Pétur 8. Naumt hjá Tindastólum Tindastólsmenn unnu nauman sig- ur á Valsmönnum á Hlíðarenda 74- 77. Valsmenn hófu leikinn betur og vom yfir framan af, en Tindastóls- menn tóku síðan við sér. í leikhléi var staðan 30-37 Tindastól í vil. í síðari hálfleik höfðu gestirnir undirtökin, en Valsmenn gáfúst ekki upp og þeim tókst að minnka muninn í 1 stig þeg- ar 2 mín. vom eftir, 69- 70. Nær kom- ust Valsmenn ekki, Tindastóll gerði næstu 5 stig og sigraði 74-77. Stigin Valur: Magnús 24, Grissom 20, Ragnar 18, Matthías 10 og Guðni 2. Tindastóll: Jonas 23, Einar 19, Pét- ur 18, Karl 7, Sverrir 6, Pétur V. 2 og Haraldur 2. Krebbs með Grindvíkingar, með Dan Krebbs í broddi fylkingar, sigmðu Þórsara 84- 97 á Akureyri. Krebbs er að jafna sig eftir handarbrot, en lék engu að síður með. Það skýtur því nokkuð skökku við að leik Grindvíkinga og Keflvík- inga, sem vera átti í kvöld, er frestað vegna meiðsla Krebbs. Grindvíkingar unnu sanngjaman sigur á sunnudagskvöld, vom yfir all- an leikinn, í leikhléi 36-48 og unnu ömggan sigur 84-97. Jón Öm Guð- mundsson Þórsari lék ekki með liði sínu í fyrrakvöld, þar sem hann var í leikbanni og munar um minna. Stigin Þór: Dan Kennard 22, Sturla 19, Jóhann 13, Konráð 12, Guð- mundur 10, Davíð 6 og Helgi 2. Grindavík: Guðmundur 26, Dan Krebbs 25, Jóhannes 19, Rúnar 14, Sveinbjöm 7 og Steinþór 6. Tveir leikir í kvöld í kvöld em tveir leikir á dagskrá úr- valsdeildarinnar. Valsmenn taka á móti Þórsumm á Hlíðarenda kl. 20.00 og ÍR-ingar mæta Njarðvíking- um í Seljaskóla kl 21.00. Leik Grind- víkinga og Keflvíkinga er frestað, eins og áður kom fram. Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknattleik: A-riðill: Njarðvík 13 10 3 1191- 926 20 KR 14 9 5 1149-1101 18 Haukar 14 7 7 1154-1161 14 Snæfell 13 2 11 962-1168 4 ÍR 13 1 12 973-1216 2 B-riðill: Tindastóll 14 12 2 1371-1236 24 Keflavík 13 10 4 1331-1247 20 Grindavík 14 10 4 1331-1158 20 Valur 14 4 10 1142-1217 8 Þór 14 4 10 1300-1305 8 BL íþróttamaður ársins 1990: Úrslitin tilkynnt í kvöld í kvöld verður kunngert hvaða íþrótta- maður hefur orðið fyrir valinu sem íþróttamaður ársins 1990. í hófi, sem Samtök íþróttafréttamanna standa fyrir á Hótel Loftleiðum í kvöld, verð- ur íþróttamaðurinn krýndur, en í gær var kunngert hvaða 10 íþróttamenn bítast um titilinn. Þeir eru þessir í staírófsröð: Bjami Friðriksson Ármanni júdó Bjami Sigurðsson Val knattspyma Einar Vilhjálmsson UÍAspjótkast Kolbrún Jóhannsdóttir Fram hand- knattleikur Kristján Arason Teka handknatt- leikur Ólafur Eíríksson ÍFRsuncf fatlaðra Páll Kolbeinsson KR körfuknattleikur Pétur Guðmundsson HSK kúluvarp Ragnheiður Runólfsd. ÍA sund Úlfar Jónsson Keili golf Enska knattspyman: Liverpool slapp með skrekkinn Sjálfsmark á síðustu sekúndum gerði sigurvonir Blackbum að engu Ensku meistaramir Liverpool komust í hann krappan er þeir mættu 2. deildaríiði Blackbum Rovers í 3. umferð ensku bikar- keppninnar í knattspyrau f fyrrakvöld. Blackburn komst yf- ir í upphafi síðari hálfleiks er Simon Garner skoraði og á sfð- ustu sekúndum leiksins skoraði Mark Atkins sjálfsmark sem tryggði Liverpool aukaleik um áframhaldandi keppnisrétt f bik- arkeppninnl. Það gekk á ýmsu f leiknum og áður en yfir lauk höfðu tveir ieikmenn yfirgefið völlinn með rauð spjöld. Fyrst var það gamli Unitedmaðurinn Kevin Moran sem rekinn var út af og síðan hinn sænski fyrirliði Liverpool, Glenn Hysen. Nokkuð var um óvænt úrslit á laugardag. Til dæmis féll 2. deildarlið WBA úr keppni með því að tapa á heimavelli 2-4 gegn áhugamannaliði Woking. Þá máttu 1. deildarlið Cheisea og Derby þola ósigur gegn 2. deildarliðum, Chelsea lá fyrir Oxford 1-3 og Derhy fyrir Newcastle 0-2. Úrslitin f 3. umferð ensku bikar- keppninnar urðu sem hér segin Aldershot-West Ham 0-0 Arsenal-Sunderiand 2-1 Aston Villa-Wimbledon 1-1 Barnet-Portsmouth 0-5 Barnsley-Leeds 1-1 Blackbura-Liveipool 1-1 Blackpool-Tottenham 0-1 Bolton-Barrow 1-0 Brighton-Scunthorpe 3-2 Bristol Rovers-Crewe 0-2 Bumley-Manchester City 0-1 Charlton-Everton 1-2 Chelsea-Oxford 1-3 Chester-Boumemouth 2-3 Coventry-Wigan 1-1 Ciystal Palace-Nott.Forest 0-0 Hull-Notts County 2-5 Leyton Orient-Swindon 1-1 Mansfieid-Sheffield Wed. 0-2 Middlesborough-Plymouth 0-0 MiUwall-LeÍcester 2-1 Newcastle-Ðerby 2-0 Norwich-Bristol City 2-1 Oldham-Brentford 3-1 Port Vale-Peterborough 2-1 Sheffield United-Luton 1-3 Shrewsbury-Watford 4-1 Southampton-lpswich 3-2 Swansea-Rotherham 0-0 WBA-Woldng 2-4 Wolves-Cambridge 0-1 BL Pálmar Sigurðsson sækir að körfu KR- inga í leiknum á sunnudag. Til vamarer Jonathan Bow KR-ingur. L LAHDSVIRKJUN Útboð á vélum og rafbúnaði fýrír Fljótsdalsvirkjun Landsvirkjun auglýsir eftir tilboðum í framleiðslu, afnendingu og uppsetningu á vélum og rafbúnaði fyrir 210 MW virkjun í Jökulsá í Fljótsdal samkvæmt útboðsgögnum FDV- 21. Verkið felur í sér hönnun, framleiðslu, afhendingu og uppsetn- ingu á tveim 105 MW Pelton hverflum ásamt rafölum og tilheyr- andi búnaði. Útbóðsgögn verða fáanleg á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitis- braut 68, 103 Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 9. janúar 1991 gegn óafturkræfri greiðslu að tjárhæð kr. 9.000 fyrir fyrsta eintak, en kr. 4.000 fyrir hvert viðbótar eintak. Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 12:00, miðvikudaginn 20. mars 1991. Tilboðin verða opnuð kl. 14:00 sama dag í stjórnstöðvarhúsi Landsvirkjunar, Bústaðavegi 7 í Reykjavík. Reykjavík, 4. janúar 1991 LANDSVIRKJUN LANDFLUTNINGAR HF. Breytt símanúmer Nýja símanúmerið okkar er 685400 LANDFLUTNINGAR HF. Skútuvogi 8. Reykjavík BL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.