Tíminn - 09.01.1991, Qupperneq 22

Tíminn - 09.01.1991, Qupperneq 22
Notað&nýtl/TÍM«NN FAPIA eru alþjóöasamtök smáauglýs- ingablaða sem birta auglýsingar einstaklinga þeim að kostnaðarlausu í lok febrúar ætla blöðin sem standa að Fapia að gefa út sérrit hvert í sínu heima- landi um ferðalög og sumarfrí. Fleiri en 70 smáauglýsingablöð út um allan heim taka þátt í þessu gríðarlega verkefni. Notað & nýtt/TÍMINN tekur við augýsingum til birtingar í hverju þessara blaða. Auglýsingarnar eru sendar í gegnum gagnanet beint til þess blaðs sem á að birta auglýsinguna. í tengslum við þetta verkefni stendur einstaklingum til boða að birta sömu auglýsinguna í mörgum löndum samtímis án endurgjalds. Enn og aftur, venjulegar smáauglýsingar eru ókeypis fyrir einstaklinga, en ef óskað er leturbreytinga þá er sú fyrirhöfn á vægu verði. Með litlum fyrirvara og svo til fyrirhafnarlaust getur auglýsingin þín komið fyrir augu 6 til 7 milljón manns í 19 þjóðlöndum. Það er því rakið tækifæri að auglýsa á næstunni í eftirtöldum dálkum erlendis: Bústaðir fyrir sumarfríið Bústaðaskipti Flugmiðar Ferðafélagar Kunningsskapur erlendis Menntun Atvinna erlendis Kaup/sala á tjaldvögnum, húsbílum og bátum/snekkjum Hugmyndir að sniðugum ferðalögum Á sama tíma og stærsta ferðamálaráðstefna/sýning í heimi fer fram í Berlín verður systurblaði okkar í borginni, Zweite Hand, dreift þar í 500.000 eintökum. Þetta er gullið tækifærið fyrir íslensk fyrirtæki sem ætla sér eitthvað í ferðamálum framtíðarinnar. Við munum kynna möguleika fyrirtækja til að notfæra sér Berlínarútgáfuna nánar í næsta blaði. Öllum íslenskum fyrirtækjum stendur að sjálfsögðu til boða að auglýsa vörur sýnar og þjónustu í hverju hinna 72 smáauglýsingablaða sem Notað og nýtt/Tíminn tengist í gegnum Fapia. Ekki ókeypis en ótrúlega hagstætt. Allar nánari upplýsingar fást í síma 625 444.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.