Tíminn - 05.02.1991, Síða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 5. febrúar 1991
Ríkisstjórnin:
Styrkir
upptökur
Sinfón-
íunnar
Ríkisstjómin hefur samþykkt til-
lögu menntamálaráðherra um að
tryggja Sinfóníuhljómsveit íslands
fjármagn til að tryggja að hljómsveit-
in geti staðið við samninga við breskt
hljómplötufyrirtæki um upptökur og
útgáfur með verkum hljómsveitar-
innar. Upphæðin, sem ríkisstjómin
ætlar að veita til þessa, eru þrjár mi-
ljónir á ári til næstu þriggja ára.
í samningunum við breska útgáfu-
fyrirtækið, Chandos, er gert ráð fyrir
að gefa út þrjár plötur á ári á samn-
ingstímanum, það er alls níu plötur á
samningstímanum. Gert er ráð fyrir
að fyrsta upptakan fari fram í byrjun
febrúar og í byrjun mars. Meðal ann-
ars verða tekin upp tvö verk eftir
Rachmaninoff, píanókonsert og
óperan Monna Vanna. Þau verk hafa
aldrei áður verið gefin út á hljóm-
plötu og gerir þetta útgáfuna að
heimsviðburði. -sbs.
Sendiherra
í Kanada
Þann 24. janúar síðastliðinn af-
henti Tómas Á. Tómasson landstjóra
Kanada, Ramon John Hnastyshyn,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra ís-
Iands í Kanada, segir í frétt frá utan-
ríkisráðuneytinu.
Græningjaljölskyldumar átta stilltu sér upp til myndatöku, áður en þær hófu verkefnið: Að breyta háttum sínum - umhverfinu í vil.
Tfmamynd: Ámi Bjama
Átta grænar fjölskyldur
Á dögunum boðaði Umhverfís- og vinabæjarnefnd Kópavogs til
fundar með svokölluðum Grænum fjölskyldum. Hér er um að ræða
sam-norrænt verkefni þar sem fengnar eru fjölskyldur til að kanna
líf sitt með umhverfísvernd til hliðsjónar og breyta því, um fjögurra
mánaða skeið, umhverfinu í hag.
Að sögn Bjöms G. Jónssonar, verk-
efnisstjóra Norræna umhverfisársins
hér á landi, er þetta verkefni upp-
mnnið í Danmörku, en hefur verið
reynt víðsvegar um Norðurlöndin í
gegnum vinabæjartengsl ýmissa
byggðarlaga. í Danmörku voru valdir
úr fimm bæir og vinabæir þeirra hér
á landi fengnir til að taka þátt í þessu
verkefni hér á landi. Þessi sveitarfélög
eru auk Kópavogs: Grindavík, Akra-
nes, Neskaupstaður og Eyrarbakki. Á
öllum þessum stöðum var ein fjöl-
skylda fengin til að taka þátt í verkefn-
inu, en í Kópavogi reyndist áhuginn
mestur og þar vom alls átta fjölskyld-
ur, sem lýstu sig reiðubúnar til að
verða grænar, og var ákveðið að
heimila þeim öllum þátttöku. „Þetta
er Kópavogsbúum til sóma,“ sagði
Bjöm.
Verkefni grænna fjölskyldna em
margþætt. Þeim er meðal annars
uppálagt að draga úr bílnotkun og
hætta ónauðsynlegum og stuttum
ökuferðum, þar sem aðrir ferðamátar,
svo sem almenningssamgöngur, geti
gengið. Þá skuli versla inn til heimil-
isins með umhverfisvænleika vör-
unnar að leiðarljósi og sorp skuli
flokkað og hættulegur úrgangur skil-
inn frá lífrænum. Þá eiga fjölskyld-
umar að skrá magn hinna ýmsu
stærða í heimilisrekstrinum og halda
dagbók um reynslu sína og upplifanir
af því að breyta lífi sínu umhverfinu í
vil. Þær upplýsingar, sem af þessu
fást, verða síðan yfirfamar og helstu
niðurstöður úr þeim birtar. „Og það
er einmitt tilgangurinn með þessu
verkefni að finna út hvar skórinn
kreppi að og hvað hindri að fólk breyti
þessum daglegu venjum sínum um-
hverfinu í vil,“ sagði Bjöm. -sbs.
Fimmta Nesco til
gjaldþrotaskipta
Nýlega var fyrirtækið Nesco- Int-
ernational tekið til gjaldþrota-
skipta og er það fimmta Nesco-fyr-
irtækið sem lýst er gjaldþrota frá
því árið 1988.
Skiptafundur hefur verið aug-
Steintak
gjaldþrota
Byggingafyrirtækið Steintak var
tekið til gjaldþrotaskipta hjá Borg-
arfógeta sl. föstudag. Bústjórar
þrotabúsins voru skipaðir Elfar Örn
Unnsteinsson hdl. og Magnús Hauk-
ur Magnússon hdl. Steintak vann
m.a. að byggingu ráðhússins í
Reykjavík og íbúðabyggingu við
Skúlagötu. Tvö ný fyrirtæki hafa
tekið við þeim framkvæmdum.
—SE
lýstur vegna Nesco-International í
lok apríl og kröfur verið innkall-
aðar. Engar kröfur höfðu þó enn
borist í búið fyrir helgi, að sögn
Ingveldar Einarsdóttur, fulltrúa
hjá skiptaráðanda.
Fjögur önnur Nesco-félög eru í
gjaldþrotaskiptum og voru þau,
auk Nesco-International, að
mestu í eigu sömu hluthafanna.
Kröfur í bú þeirra hafa verið inn-
kallaðar, en ekki hefur tekist að
ganga frá gjaldþrotaskiptum
vegna málaferla, að sögn Ragnars
Hall skiptaráðanda. „Þetta byrjaði
með því að fyrirtæki, sem heitir
Nesco- framleiðslufélag h.f., var
tekið til gjaldþrotaskipta í janúar
1988. Nesco-framleiðslufélag
stofnaði nokkur dótturfyrirtæki á
árunum 1985-86 og eru þau öll nú
komin til gjaldþrotaskipta,“ sagði
Ragnar.
—GEÓ
Þjóðminjasafn íslands:
Gefinn útskorinn
skápur f rá 1653
Þjóðminjasafn ísiands hefur sýnt að þar hafi sami útskurðar-
nýlega eignast fslenskan útskor- meistari verið að verki.
inn skáp frá 1653, sem hefurver- Daniel Bruun skrifaði bók um
ið í Danmörku í nær öld. Daníel rannsóknir sínar hér á landi og
Bruun höfuðsmaður eignaðist kom hún út í ísienskri útgáfu ár-
skápinn, þegar hann var við rann- ið 1987 undir nafninu fslenskt
sóknir á menningu og lifnaöar- þjóðlíf í 1000 ár. Af því tilefni
háttum íslendinga í kringum síö- efndi Þjóðminjasafnið til sýning-
ustu aidamót og hefur hann verið ar á myndum og handritum Dani-
í eigu ættingja hans síðan. eis Bruun. Tengdadóttir Bruuns,
í frétt frá Þjóðminjasafninu seg- frú Inge Bruun, gaf skápinn í við-
ir að skápurinn sé mikil gersemi urkenningarskyni við hina ís-
og sé með fangamarki og ártalinu lensku útgáfu á riti hans og kom
1653. Honum svipar mjög til skápurinn til landsins í byrjun
annars skáps í eigu safnsins, sem ársins.
er frá Tjöm á Vatnsnesi, og þykir -sbs.
Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki:
Útlit fyrir helmings aukn-
ingu á Bretlandsmarkaði
Allt bendir til að á þessu ári muni Steinullarverksmiðjan á Sauðár-
króki auka sölu á steinull til Bretlands um helming. Á síðasta ári
voru flutt þangað út 1.000 lestir, en að óbreyttu verða þær 2.000
tonn í ár. Þetta samsvarar því að 53% framleiðslunnar verði flutt út
á þessu ári í stað 45% í fyrra og fer því innanlandsmarkaður minnk-
andi. Frá þessu er sagt í Á döfínni, fréttablaði Félags íslenskra iðn-
rekenda.
Að sögn Einars Einarssonar, fram-
kvæmdastjóra Steinullarverksmiðj-
unnar, hefur allt frá árinu 1987 ver-
ið unnið að markaðsuppbyggingu í
Bretlandi í samvinnu við skoska að-
ila. „Þetta hefur gengið hægt og bít-
andi og nú bendir ekkert til annars
en að við munum flytja þangað út
2.000 tonn á þessu ári.“ Hann sagði
að vissulega hækkaði flutnings-
kostnaður steinullina nokkuð í
verði, en engu að síður væri mark-
aðurinn vaxandi og arðvænlegur.
Lítil verksmiðja eins og á Sauðár-
króki gæti verið sveigjanlegri en ris-
arnir á markaðnum og eins hefði
skagfirska steinullin kosti fram yfir
aðra. Hún er framleidd við raforku,
sem er mjög fátítt, og það gerir hana
jafnari og hreinni en ull úr svoköll-
uðum koksofnum.
Á síðasta ári seldi verksmiðjan
6.150 lestir af steinull fyrir 380 mi-
ljónir, en árið áður nam salan 300
miljónum. Og eins og fyrr sagði er
útlit fyrir minnkandi innanlands-
markað hjá Steinullarverksmiðj-
unni í ár, eins og tvö þau fýrri. „Það
eru ekki mjög ígrundaðar markað-
asrannsóknir, sem liggja að baki því
áliti, en það sést í fjölmiðlum að
mikið sé óselt af íbúðum á Reykja-
víkursvæðinu og eftirspurn eftir
lóðum sé miklu minni í ár en á sama
tíma í fyrra. Þannig að það eru ýmis
teikn á lofti um að innanlandsmark-
aðurinn muni dragast saman. En þá
kemur vaxandi sala til Bretlands í
staðinn," sagði Einar Einarsson.
-sbs.
Bændasamtökin:
Frú Inge Bruun viö skápinn frá
1653.
Amaldur raöinn
atvinnumálafulltrúi
Arnaldur Mar Bjarnason hefur ver-
ið ráðinn atvinnumálafulltrúi Fram-
leiðnisjóðs Landbúnaðarráðuneytis-
ins og Stéttarsambands bænda.
Helstu störf atvinnumálafulltrúans
verða að vinna að eflingu fjölbreyttr-
ar atvinnu í sveitum, einkum
kvenna, og hjálpa fólki í sveitum að
hrinda í framkvæmd hugmyndum
um nýja atvinnustarfsemi með
fræðslu- og kynningarstarfsemi.
Arnaldur er fæddur 1942. Hann
hefur starfað mikið innan hreyfing-
ar ungmennafélaganna og meðal
annars setið í stjórn UMFÍ. Hann var
sveitarstjóri í Mývatnssveit frá 1980-
1986 og bæjarstjóri í Vestmannaeyj-
um frá 1986 fram á síðasta ár. Hann
hefur nú þegar tekið við hinu nýja
starfi. -sbs.
Amaldur Mar Bjamason, atvinnu-
málafulltrúi bændasamtakanna.