Tíminn - 05.02.1991, Page 8
8 Tíminn
Þriðjudagur 5. febrúar 1991
Þriðjudagur 5. febrúar 1991
Tíminn 9
Gífurlegt eignatjón varð í ofsaveöri sem gekk yfir
allt landið á sunnudaginn. Ljóst er að stór hluti
þeirra sem urðu fyrir tjóni fær það líklega ekki bætt:
Eftir
Stefán
Eiríksson
Ofsaveðrið sem gekk yfir landið á sunnudag-
inn er það mesta hér á landi í manna minnum.
Meðalvindhraði á tíu mínútna tímabili eftir
hádegi á sunnudag mældist 110 hnútar, (rúm-
iega 200 kílómetrar á klukkustund) á Stór-
höfða í Vestmannaeyjum, og hefur meðalvind-
hraði aldrei mælst meiri. „Veðrinu olli djúp og
kröpp iægð sem kom sunnan úr hafi og fór
hér yfir vestanvert landið," sagði Bragi Jóns-
son, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni. Hann
sagði að lægðin hefði verið mjög djúp, ein sú
dýpsta sem hingað hefði komið, í kringum
926 millibör.
Almannavarnir báðu fólk um að halda sig
innan dyra og sums staðar var fólk flutt úr
húsum sínum. Útihús tókust á loft og þeyttust
út í buskann, þök fuku af húsum, bflar flugu
marga metra, járnplötur þeyttust eins og rak-
vélablöð í flestum þorpum og bæjum landsins
og tré rifnuðu upp með rótum. Rúður brotn-
uðu á fjölmörgum stöðum.
TVyggingamar ekki
í lagi hjá mörgum
Tjón af völdum ofsaveðursins er gífurlega
mikið og skiptir mörgum milljónum króna.
Almannavarnanefndir og sveitarfélög víðs
vegar um landið voru í gær að reyna meta
tjónið í hverju byggðarlagi og óvíst er hvenær
nákvæmar tölur um tjón verða tilbúnar. Þórð-
ur Þórðarson, deildarstjóri hjá Vátryggingafé-
lagi íslands, sagði að tryggingarnar kæmu til
með að bæta tjón hjá þeim sem hefðu heimil-
is- og húseigendatryggingu í lagi. „Húseig-
enda- og heimilistryggingar taka nánast allt
það tjón sem verður af völdum veðursins. Fólk
verður að vera með báðar þessar tryggingar, ef
það á bæði innbú og húseign sem er í tjóni, til
þess að fá það bætt,“ sagði Þórður. Aðspurður
hve mikill hluti af þeim sem orðið hafa fyrir
tjóni væru ekki með tryggingarnar í lagi,
sagði Þórður að það væri Ijóst að allt of marg-
ir væru ekki með þær í lagi. „Við höfum nú
verið að skjóta á að það sé að minnsta kosti
þriðjungur fólks sem vantar aðra hvora trygg-
inguna og kemur þá til með að þurfa bera eitt-
hvað af tjóninu sjálft," sagði Þórður. Hann
sagði að það hallaði frekar á húseigendatrygg-
inguna í þessu sambandi, heimilistryggingin
væri mun algengari, enda búin að vera mun
lengur í gangi. Húseigendatryggingin nær til
alls tjóns sem verður á fasteigninni sjálfri, s.s.
þegar rúður brotna og þakplötur fjúka en
heimilistryggingin dekkar innbúið.
Aðspurður hvernig væri með fjárhús, hlöður,
bfla og báta sem fokið hefðu og eyðilagst,
sagði Þórður að þeir bændur sem væru með
húseigendatryggingu á öllum húsum fengju
tjónið borgað en algengara væri að menn
væru með sérstaka óveðurstryggingu á úti-
húsum. Hann sagði það mjög mismunandi
eftir sveitarfélögum hvort bændur væru með
þessar tryggingar. Sveitarfélög sem lentu oft í
slæmum veðrum væru betur tryggð en önnur.
Þórður sagði að þó svo að margir bændur
væru ekki tryggðir væru það þó fleiri sem
hefðu tryggingarnar í lagi. Varðandi bfla og
báta sagði Þórður að það væru aðeins kaskó-
tryggingar sem bættu tjón á þeim.
Aðspurður hvað það fólk gæti gert sem væri
ótryggt en hefði lent í tjóni, sagði Þórður að
það gæti ósköp lítið gert því það hefði engan
rétt til að sækja bætur. „Menn hafa gjarnan
haldið að viðlagatryggingin bætti þetta tjón
en hún bætir ekki foktjón heldur einungis
tjón af völdum sjávar- og snjóflóða, jarð-
skjálfta og eldgosa. Það er í sjáífu sér ekkert
hægt að leita með þetta, fólk verður í raun og
veru að bera þetta sjálft," sagði Þórður.
Höfuðborgarsvæðið
Mest tjón í Reykjavík af völdum óveðursins er
talið vera í Breiðholti, í Fella- og Seljahverfi,
og einnig í Hraunbæ. Hús í gamla miðbænum
og nýbyggingar í Grafarvogi urðu fyrir mikl-
um skemmdum. Byggingakranar fuku um
koll og langbylgjumastur Ríkisútvarpsins fauk
til jarðar. Töluvert tjón varð í Austurveri.
Gróðurhús úr plasti fuku hjá Gróðrarstöðinni
Mörk. Skemmdir urðu á flugvélum á Reykja-
víkurflugvelli. Stór tré rifnuðu upp með rót-
um. Þakplötur fuku af kvennadeild Landspít-
alans og brutu rúður annars staðar í spítalan-
um svo flytja varð sjúklinga fram á gang og á
aðrar deildir.
í Hafnarfirði fuku þakplötur af Hrafnistu og
skemmdust nokkrir bflar af þeirra völdum.
Grunnskólinn í Setbergshverfi varð fyrir
skemmdum. í Mosfellsbæ fór byggingakrani á
hliðina auk þess sem þakplötur fuku og rúður
brotnuðu. í Kópavogi brotnuðu rúður í
Fögrubrekku þegar járnplötur fuku inn um
glugga. Á Seltjarnarnesi slösuðust tveir menn
í veðrinu. Annar skarst á glerbrotum þegar
þakplata fauk inn um glugga en hinn nef-
brotnaði þegar þak fauk af nýbyggingu. í
Garöabæ varð tjónið minna en annars staðar á
höfuðborgarsvæðinu. Hluti af þaki fauk af
Garðaskóla.
Reykjanes
íbúar í Baugholti í Keflavík voru fluttir úr
íbúðum sínum óveðursdaginn þar sem ekki
var talið óhætt fyrir þá að dveljast þar. Járn-
plötur af bæjarskemmunni í Keflavík fuku yfir
Baugholt og þótti Almannavarnarnefndinni á
staðnum ráðlegast að flytja fólkið burt úr hús-
unum. Járn fauk af Sparisjóðshúsinu og
skemmdir urðu á bátum í höfninni. í Sand-
gerði varð íbúðarhús illa úti sem og sfldar-
verksmiðjan. í Grindavík fauk helmingurinn
af þaki Lagmetisgerðarinnar. Fimm hundruð
kinda fjárhús við ísólfsskála og á fjárhús á
bænum Hrauni fuku út í buskann. Þá fuku
skúrar ásamt öðru lauslegu.
Vesturland
Þak fauk í heilu lagi af viðbyggingu Heima-
skaga hf. á Akranesi og lenti á bensínstöðvar-
plani og kurlaðist í sundur. Þakplötur fuku af
mörgum húsum og þeyttust um bæinn.
Braggar frá stríðsárunum fuku í Innri- Akra-
neshreppi. Talsverðar skemmdir urðu á bæj-
um í Skilmannahreppi. Járn fauk af þaki
brauðgerðar Kaupfélags Borgfirðinga í Borg-
arnesi. Á Krossi í Lundarreykjadal fuku þak-
plötur af fjárhúsum.
Á Snæfellsnesi varð mikið tjón. Þak fauk af
húsi slippstöðvarinnar Skipavíkur í Stykkis-
hólmi og hluti af golfskála fauk. í Hallkels-
staðahlíð fauk braggi sem í voru kindur en
enga skepnu sakaði. Tjón varð á bæjunum
Miklaholti, Straumfjarðartungu, Spóanesi,
Dal, Hofsstöðum, Hjarðarholti og Fáskrúðar-
bakka. Á Grundarfirði ultu nokkrar trillur
sem voru niðri í fjöru og fiskitrönur ultu á
hliðina. í Ólafsvík lagðist skemma hraðfrysti-
hússins saman.
Vestfirðir
Tálsvert tjón varð á Vestfjörðum en einna
mest var það á Flateyri. Þak fauk af beina-
mjölsverksmiðju og þakplötur af fiskverkun-
arhúsum Hjálms hf. Þak fauk af einbýlishúsi
við Hafnarstræti og plötur fuku af þaki kirkj-
unnar. Fiskikassar og annað Iauslegt fauk um
þorpið en lítil meiðsli urðu á fólki.
Mesta tjónið á ísafírði var þegar fólksbfla-
stöðin fauk á hliðina. Þak fauk af fjárhúsi í
Fagrahvammi við ísafjörð. Á Hrauni í Hnífsdal
fauk þak af fjárhúsi og gömlu íbúðarhúsi og
olli tjóni á nýju íbúðarhúsi sem stendur þar
rétt hiá. Járnplötur fuku af rækjuverksmiðj-
unni Isveri og mörgum öðrum stöðum. Verk-
færaskemma fauk út í buskann í Mjóafirði.
Þak fór af einbýlishúsi á Suðureyri. Tjón varð
á verkstæðishúsi á Hafrafelli. Tveir bflar tók-
ust á loft og fuku út af vegum. Þriggja tonna
amerískur dreki tókst á loft og lyftist af Hnífs-
dalsveginum við Leiti, fór yfir vegrið og end-
aði niðri í fjöru. Ökumaðurinn kastaðist út úr
bflnum og slasaðist ekki mikið. Annar bfll
tókst á loft í Dagverðardal og þeyttist út af
veginum. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkra-
húsið á ísafirði.
Norðurland
Miklar skemmdir urðu í Skagafirði af völdum
óveðursins og einnig á Blönduósi. Þar lagðist
flugskýli saman með þeim afleiðingum aö
fjórar flugvélar sem þar voru inni, skemmdust
mikið. Þakplötur fuku af barnaskólanum og
slökkvistöðinni. Á Sauðárkróki urðu miklar
skemmdir þegar þakplötur fuku um bæinn.
Þak af einbýlishúsi fauk í heilu lagi. Á Hofsósi
fauk 17 tonna bátur upp á bryggjuna og er tal-
inn ónýtur. Á Narfastöðum fauk kanínuhús
nánast í heilu lagi. Á Akureyri flæddi sjór inn í
hús við Strandgötu og einnig gekk sjór yfir
Drottningarbrautina. I Hlíðarfjalli brotnuðu
rúður í skíðahótelinu. Vír í stólalyftunni fauk
út af sporinu og skemmdust nokkrir stólar við
það. Lítið tjón varð á Ólafsfirði en þó fuku þak-
plötur og ein trilla tókst á loft.
Austurland
ÁAusturlandi varð mun minna tjón en annars
staðar á landinu. Þó fuku þar nokkur þök af
útihúsum og einstaka hús tókust á loft. Þak-
plötur fuku víða og skemmdu bfla og brutu
rúður. Vegaskemmdir urðu í Breiðdal og
Fljótsdal.
Suðurland
Tjón varð á nánast öllum bæjum í Rangár-
vallasýslu og svipaða sögu er að segja úr Ár-
nessýslu. Þök af fjárhúsum og hlöðum fuku
víða sem og þakplötur og annað lauslegt. í
Hveragerði varð gífurlegt tjón á gróðurhús-
um. Turninn af tívolíinu fauk að hluta. Stór
hluti af þakinu á veitingasalnum Eden fauk. Á
Selfossi fuku járnplötur af húsum og rúður
brotnuðu. Á Eyrarbakka varð talsvert tjón.
Ruslagámur tókst á loft en olli engum
skemmdum, járnplötur losnuðu af húsum og
ollu skemmdum. Á Stokkseyri fuku hesthús
og fjárhús. f Þorlákshöfn fauk þak af byggingu
Meitilsins og hluti af þaki íbúðarhúss. Á Hellu
og Hvolsvelli fuku plötur af húsþökum eins og
annars staðar. Á Flúðum skemmdist þak á
skólahúsi, fjárhús og hlaða eyðilögðust.
í Vestmannaeyjum varð tjónið gífurlegt. Mest
tjón varð þegar einbýlishús eyðilagðist. Þök
fúku af byggingum og járnplötur dreifðust um
bæinn. Suðurhliðin á flugstöðinni er nánast
horfin sem og tveir bflskúrar.
Landið allt meira og
minna rafmagnslaust
Rafmagn fór af stórum hluta landsins á
sunnudaginn þegar staurar brotnuðu, línur
slitnuðu og slógust saman. Sá gífurlegi fjöldi
af fjárhúsum, hlöðum og öðrum útihúsum
sem fuku Ijandans til, lenti stundum á raf-
magnslínum með fyrrgreindum afleiðingum.
Guðmundur Helgason, rekstrarstjóri hjá
Landsvirkjun, sagði að viðgerð á öllu því sem
skemmdist gengi hægt, en búast mætti við að
viðgerð yrði lokið á flestum stöðum í dag. Við-
gerð á Búrfellsiínunum tveimur sem orsök-
uðu rafmagnsleysið á höfuðborgarsvæðinu
lýkur væntanlega fyrir hádegi í dag. Hrauneyj-
arfosslínan, sem liggur að Brennimel í Hval-
firði og í Geitháls, sá höfuðborgarsvæðinu að
mestu fyrir rafmagni í gær en hún var óvirk á
sunnudaginn vegna veðursins. Guðmundur
sagði að ástandið hefði verið verst á höfuð-
borgarsvæðinu en einnig hefði Vestfjarðalínan
dottið út á sunnudaginn. Hann sagðist vonast
til að allt kæmist sem fyrst í samt lag aftur.
1]ón var gríðarlegt í veðurhamnum á sunnudag. Fjöldi manna vann að björgunarstörfum vlð mjög er ðar aðstæður. Hér er maður að reyna að hemja og festa þakplötur meðan óður
stormurinn Ólmast Timamynd; Pjetur.