Tíminn - 08.02.1991, Qupperneq 3
I
Föstudagur 8. febrúar 1991
Tíminn 3
Guðmundur Bjarnason
Valgerður Sverrisdóttir
Jóhannes Geir Slgurgeirsson
Norðurland eystra:
Listi Fram-
sóknar klár
Stjóm kjördæmisráðs Framsókn-
arflokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra ákvað á fundi í lok janúar
hvemig listi flokksins yrði skipaður
við komandi alþingiskosningar. Á
kjördæmisþingi flokksins s.l. haust
var kosið í sjö efstu sæti listans, en
stjómin raðaði í þau sjö sæti sem
eftir voru. Á fundinum var einnig
ákveðið að frá og með 11. febrúar
yrði skrifstofa flokksins að Hafnar-
stræti 90 á Akureyri opin alla virka
daga frá kl. 16-18, og munu fram-
bjóðendur og forystumenn flokks-
ins í kjördæminu skiptast á um að
vera á skrifstofunni fyrst um sinn.
Lista Framsóknarflokksins í Norð-
urlandskjördæmi eystra skipa eftir-
taldir:
1. Guðmundur Bjamason alþingis-
maður Húsavík.
2. Valgerður Sverrisdóttir alþingis-
maður Grýtubakkahreppi.
3. Jóhannes Geir Sigurgeirsson
bóndi Öngulsstöðum, Eyjafjarðar-
sveit.
4. Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Akureyri.
5. Daníel Ámason fulltrúi Akur-
eyri.
6. Guðlaug Bjömsdóttir banka-
starfsmaður Dalvík.
7. Bjami Aðalgeirsson útgerðar-
maður Húsavík.
8. Sigfús Karlsson fiamkvæmda-
stjóri
Akureyri.
9. Þuríður Vilhjálmsdóttir fúlltrúi
Þórshöfn.
10. Brynjólfúr Ingvason læknir
Eyjafjarðarsveit.
11. Pétur Sigurðsson fiskverkandi
Árskógsströnd.
12. Halldóra Jónsdóttir kennari
Grímsstöðum Aðaldal.
13. Þóra Hjaltadóttir formaður
Alþýðusambands Norðurlands Ak-
ureyri.
14. Gísli Konráðsson
fv. framkvæmdastjóri Akureyri.
hiá-akureyri.
Söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar lokið:
17 millj. til hjálpar innanlands og utan
Rúmar 17 milljónir söfnuðust í fjár-
söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar
sem nú er lokið. Þar af gaf ríkis-
stjórnin þrjár milljónir.
Fénu verður varið til aðstoðar bág-
stöddum í nokkrum þróunarlönd-
um, en um þessar mundir horfast
um 20 milljónir Afríkubúa í augu
við hungursneyð.
Hjálparstofnun kirkjunnar ver
einnig umtalsverðum fjármunum til
aðstoðar hér innanlands. Á síðasta
ári veitti hún t.d. þrem milljónum
kr. til byggingar íbúða að Sólheim-
um f Grímsnesi og um einni milljón
til að aðstoða fólk, sem lent hafði í
mannlegum raunum og fjárhags-
vandræðum sem falla utan við
ramma opinberrar félagslegrar að-
stoðar.
lebrúar
Frestur til að skila
skattframtali
rennur út 10. febrúar
Síðasti skiladagur skattframtals
vegna tekna og eigna á árinu 1990
nálgast nú óðum. ítarlegur leiðbein-
ingabæklingur hefur verið sendur til
framteljenda sem kemur að góðum
notum við útfyllingu framtalsins.
Fylgiblöð með skattframtali liggja
frammi hjá skattstjórum sem jafn-
framt veita frekari upplýsingar ef
óskað er.
Mikilvægt er að framteljendur varð-
veiti launaseðla áfram eftir að fram-
talinu hefur verið skilað. Ef þörf
krefur eiga launaseðlarnir að sanna
að staðgreiðsla hefur verið dregin
af launum.
Skattframtalinu á að skila til skatt-
stjóra í viðkomandi umdæmi.
Forðist álag vegna síðbúinna skila!
RSK
RÍKISSKÁTTSTJÓRI