Tíminn - 08.02.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn
Fóstudagur 8. febrúar 1991
UTLOND
IRA sýnir bresku rík-
isstjórninni tilræði
Þremur sprengjum var skotið úr
sprengjuvörpu í átt að opinberum
bústað forsætisráðherra Breta við
Downingsstræti 10 í gær. Enginn
meiddist alvarlega en einhverjar
skemmdir urðu. Rúður brotnuðu í
forsætisráðherrabústaðnum m.a. í
herbergi þar sem ríkisstómin sat á
fundi. Ráðherrana sakaði ekkert og
héldu þeir fundinum áfram í öðru
herbergi. írski lyðvcldisherinn
(IRA) sagðist bera ábyrgð á verkn-
aðinum. í tilkynningu sem IRA
sendi til fjölmiðla sagði að svo lengi
sem Bretar færu með stjóm á
Norður-írlandi yrði breska rflds-
stjórain að halda fundi sína í skot-
heldu byrgi.
Sprengjunum þremur var skotið úr
sendiferðabíl úr nokkurra tuga
metra fjarlægð. Að sögn sjónarvotta
var sprengjunum skotið í gegnum
þakið á bílnum. Fyrst var þakið
sprengt upp og síðan var sprengjun-
um skotið. Eftir það sprakk sendi-
ferðabíllinn. Tveir menn sáust
hlaupa frá bflnum rétt áður en hann
sprakk en ekki hafði tekist að hafa
upp á þeim. Sprengjurnar lentu f
bakgarði forsætisráðherrans og að-
eins ein þeirra sprakk. Eins og áður
sagði kom ekkert fyrir ráðherrana.
Forsætisráðherrann, John Major,
sagði að þeir hefðu fyrst athugað
hvort einhver hefði meiðst og þegar
svo reyndist ekki vera hefðu þeir
flýtt sér út úr herberginu og haldið
fundinum áfram í öðru herbergi.
írski lýðveldisherinn (IRA) hefur
áður beitt svipuðum aðferðum við
hryðjuverk eins og hann notaði í
gær en þetta er í fyrsta skipti sem
hann notar slíka aðferð í Englandi. Á
flokksþingi íhaldsflokksins árið
1984 í Brighton slapp þáverandi for-
sætisráðherra Breta, Margrét Thatc-
her, naumlega þegar sprengja
sprakk á hótelinu sem flokksþingið
var haldið en IRA stóð að því tilræði.
Sérfræðingar segja að ekki sé hægt
að koma í veg fyrir svona hryðjuverk
við óbreyttar aðstæður. „Það er ekki
hægt að koma í veg fyrir slík hryðju-
verk án þess að valda ósættanlegri
truflun á daglegu lífi,“ sagði Frank
Barnaby, sérfræðingur í varnarmál-
um. „Tilgangur aðgerðarinnar er að
valda slíkri truflun," bætti hann við.
Whitehall, gatan þaðan sem árásin
var gerð, er mikil umferðargata en
Downingsstræti tengist henni.
Strætisvagnar ganga eftir Whitehall
og fólk hópast saman á stoppistöðv-
um þeirra sem eru þó nokkrar í göt-
unni. Bflar mega ekki stoppa á viss-
um svæðum götunnar en kyrrstæð-
ir bflar á öðrum stöðum vekja yfir-
Ieitt litla eftirtekt. Líklegt þykir að
öryggi bresku stjórnarráðanna í
þessu hverfi verði endurskoðað frá
grunni í kjölfar þessarar árásar.
Reuter-SÞJ
John Major, forsætisráðherra
Breta, má þakka fyrír að ekki fór
verr en raunin varð.
Uppbygging Miðaust-
urlanda eftir stríð:
Baker
vill
stofna
banka
James Baker, utanrfldsráðherra
Bandaríkjanna, lagði í gær til að
banki yrði stofnaður í Miðaustur-
löndum til að hjálpa til við uppbygg-
ingu svæðisins eftir stríð.
Baker sagði að bankinn gæti gegnt
svipuðu hlutverki og bankinn sem
stofnaður var í fyrra til að hjálpa
ríkjunum í Austur-Evrópu úr þeirri
efnahagskreppu sem þau væru nú að
berjast við. Yfirlýsingin virðist m.a.
þjóna þeim tilgangi að slá á ótta ým-
issa ríkja á svæðinu en stríðið hefur
haft verulega slæm áhrif á efnahag
svæðisins. En hann útlistaði ekkert
nánar hugmyndir sínar um hvernig
staðið yrði að bankanum. Baker
lagði ríka áherslu á enduruppbygg-
ingu Kúvæts sem hefði orðið mjög
illa úti.
Reuter-SÞJ
Vetrarhörkur:
Kalt í Mið- og
SuðuhEvrópu
Kaldir vindar frá Sovétríkjunum
hafa valdið hríðarveðrí víös vegar
í Evrópu og hitastigið faríð langt
undir frostmark. Það snjóaði á
frönsku Ríveríunni í gær í fyrsta
sinn í fimm ár og var jafnfallinn
snjór allt upp í 20 cm.
Fjögur spænsk börn létust og ní-
tján slösuðust þegar bflstjóri
langferðarbifreiðar sem þau voru
í missti stjóm á henni í mikilli
hálku sem var f Pyreneafjöllun-
um.
Samgöngur fóru meira og
minna úr skorðum. Flug féll að
miklu leyti niður.
í Austur-Frakklandi fór hitinn
niður í -15 gráður á C og í París
fraus eldsneyti á bifreiðum.
í Rúmeníu hefur verið orku-
skortur og í kuldunum hafa
stjómvöld neyðst til að loka verk-
smiðjum og draga úr samgöng-
um til að spara orku til húshitun-
ar. Útvarpið í Búkarest sagði að
247 þúsund verkamenn væru án
vinnu vegna þess að verksmiðj-
unum hafi verið lokað. „Þetta er
eins og á tímum Ceausescus,"
sagði húsmóðir í Rúmeníu og
líkti harðstjórn fyrrverandi ein-
ræðisherra landsins við vetrar-
hörkurnar.
í Grikklandi hefur ekki verið
eins kalt í fjögur ár. Hundruð
þúsunda kjúklinga hafa drepist
og mörg gripahús hafa hrunið
saman vegna snjóþunga með
þeim afleiðingum að skepnurnar
hafa drepist.
Bretland hefur ekki farið var-
hluta af harðindunum. Ekki hef-
ur verið eins kalt þar í fjögur ár
og veðurfræðingar spáðu því að
það ætti eftir að kólna þar enn
meira. í gær þurfti að loka Gatw-
ick flugvellinum í London tvisvar
vegna mikilla snjóa á vellinum.
Reuter-SÞJ
Kf
KENNARASAMBAND ÍSLANDS
Auglýsing um styrki til rann-
sóknar- og þróunarverkefna
Stjóm Verkefna- og námsstyrkjasjóðs Kennara-
sambands íslands auglýsir styrki til kennara sem
vinna að
rannsóknum, þróunarverkefnum eða
umfangsmiklum verkefnum í skólum.
Umsóknum ber að skila á skrifstofu Kennara-
sambands íslands, Grettisgötu 89, 105 Reykja-
vík, fyrir 1. mars 1991.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu KÍ, fræðslu-
skrifstofum og hjá trúnaðarmönnum KÍ í skólum.
Bandaríkjamaöur
myrtur í TVrklandi
Bandarískur rfldsborgarí var skot-
inn til bana í Tyrklandi í gær. Hann
vann í herflugstöð Bandaríkja-
manna í Incirlik í Suður- Tyrklandi
en flughemum bar er beitt í loft-
árásunum gegn Irak.
Maðurinn var starfsmaður hjá
einkafyrirtæki sem sér um manna-
ráðningar í flugstöðinni og starfaði
því ekki hjá hinu opinbera. Hann
var skotinn fjórum sinnum í hjartað
og magann á leið sinni til vinnu í
gærmorgun. Einn maður fram-
kvæmdi verknaðinn og komst hann
undan á hlaupum. Enginn hefur lýst
yfir ábyrgð sinni á verknaðinum.
Áður en Persaflóastríðið hófst
höfðu tæplega 6 þúsund manns að-
setur sitt í flugstöðinni, þar á meðal
fjölskyldur hermannanna. Flestir
aðrir en hermenn voru fluttir til
Bandaríkjanna í seinasta mánuði en
á móti hafa komið fleiri hermenn,
sem hafa fylgt auknum vígbúnaði
s.s. herflugvélum og Patríótvarnar-
kerfmu.
Týrknesk stjórnvöld vísuðu á
mánudag einum þriðja af a.m.k. 75
opinberum íröskum starfsmönnum
í TVrklandi úr landi. írakar hafa
mótmælt þeirri ákvörðun tyrk-
neskra stjórnvalda að leyfa Banda-
ríkjaher að nota Incirlik herflug-
stöðina til árása á íraska herinn og
vöruðu þá við að það ætti eftir að
draga dilk á eftir sér.
Frá því að stríðið hófst þann 17.
janúar hafa um 70-80 hryðjuverk,
sem rekja má til þess, verið framin
víðs vegar um heiminn en aðeins
fjórir hafa látist í þeim. Einn líb-
anskur og tveir perúanskir öryggis-
verðir og einn Bandaríkjamaður.
Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
London - Breska lögreglan
sagðist gruna írska lýðveldis-
herinn (IRA) um sprengjuárás-
ina á forsætisráðherrabústað-
inn I Downingsstræti 10 þar
sem ríkisstjórnin var á fundi.
Enginn slasaðist alvarlega og
ráðherramir slösuðust ekkert.
Nikósía - Útvarpið i Bagdad
Ankara - Bandarlskur borgari, sagði að bandamenn hafi gert
sem starfaðí við bandarlsku haröar loftárásir á Bagdad að-
herflugstööina Incirlik I Suður- faranótt gærdagsins og (rakar
Tyrklandi, var myrtur I gær peg- hefðu svarað með flugskeyta-
ar hann var á leið til vinnu. árás á ísrael. Engin flugskeyta-
árás hefur hins vegar verið
Riyadh - Tvö orrustubeitiskip staðfest á Israel síðastliðna
Bandarikjahers eru á Persaflóa, flóra daga.
Missourin og Wisconsin. Misso-
urin hefur undanfarna daga Riyadh - Bandarísk hemaöar-
skotiö 1,2 tonna sprengikúlum á yfirvöld sögðu í gær að banda-
skotmörk I Kúvæt og Irak og I menn ættu I erfiöleikum með að
gær hóf Wisconsin aö skjóta komast hjá þvl að fella einhverja
sams konar sprengikúlum. borgara I Irak þvl iraski herinn
geymdi hluta vopna sinna í
Parfs - Franski flugherinn gerði íbúðahverfum og loftvarnabyss-
tvær árásir á stórskotaliðssveitir ur væru uppi á Ibúðablokkum.
íraka í suðurhluta Kúvæts að
sögn talsmanns franska hers- Vín - Þúsundir albanskra stúd-
ins. enta söfnuðust saman í mið-
borg Tirana I gær og fyrradag til
að krefjast efnahagsúrbóta og
afsagnar kommúnistastjórnar-
innar.
Bukarast -1 gær bættist Rúm-
enla í hóp þeirra ríkja I Austur-
Evrópu sem vilja brjóta upp Var-
sjárbandalagið.
Harare - Leiðtogar Afrlkurikja
lofa áætianir stjómvalda f Suð-
ur-Afriku um að hverfa frá að-
skilnaðarstefnunni en vilja að
viðskiptabanninu verði haldið
eitthvað áfram, aðsögn Kaunda
forseta Zambiu.
Reuter-SÞJ