Tíminn - 28.03.1991, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 28. mars 1991
HELGIN
Hann hafi meö sér húskarl í vist, þungan og þrjótlyndan.
Var þar hvorki aö sjá til værleika né verknaöar. En ef hann
geröi nokkurn ákenning, presturinn, þá bauö húskarlinn
honum á mót öxi eöa áverk.
Hún hét fyrir honum á hinn sæla
Þorlák biskup að honum skyldi
batna brátt, því að hann var húskarl,
en þetta var um annir. Hún lagði um
hann kyndilmál og hét kerti að gera
til „glorie" hinum sæla Þorláki bisk-
upi. En honum batnaði þegar er
heitið var fyrir honum og lofaði
hann guð og hinn sæla Þorlák bisk-
up.
Augnverkurinn
En á hinum næsta bæ því er sú jar-
teikn gerðist er nú var frá sagt var
kona ein ung og málug. Hún tók
skeypilega á um þennan atburð all-
an og taldi hún afleiðis þoka um
kurteisi karlmanna, er þá skyldi svo
heita verða fyrir þeim sem óhraust-
um konum, áður þær yrði léttari.
En um aftaninn fór hún í rekkju
sína og sofnaði þegar og svaf
skamma stund og vaknaði við það er
hún hafði æðiverk í augum, svo hún
spratt upp þegar og gekk um hús
innan. Sendi hún þegar síðan mann
eftir „matrone" (húsfeyju) þeirri er
áður var frá sagt, að hún skyldi
þangað koma og ráða um heit með
henni. En hún gerði eigi fara og
kunni hana mjög raunar um áleitni
þá er hún hafði haft um þá jarteikn
er í þeirra híbýlum hafði orðið. Var
hún síðan verkóða nótt alla, en
morguninn eftir var heitið fyrir
henni á hinn sæla Þorlák biskup og
tók þá verk úr augum henni og var
hún heil skamms bragðs.
Óþokka bægt
úr mungáti
Sá atburður varð á Reynivöllum að
þar var veisla gerð virðuleg á móti
Páli biskupi. En er þar var mungát
heitt og undir lagt þá kom eigi gerð
í mungát, en efni þóttu allvæn vera
og kunni sá og vel er gera skyldi. En
er margs var í leitað þá kom gerð í
kerin æsileg og óvinveitt og gerði
síoan aí dám eigi góðan og þótti
halda við voða að skjaðak mundi í
koma. Þá var tekinn stafur sá er átt
hafði hinn sæli Þorlákur þjónn guðs
og settur í kerið það er mungátsefni
var í. En þegar er stafurinn var sett-
ur í kerið þá tók allan óþokka af
mungátinu þann er áður hafði á ver-
ið og kom í gjörð góð og hallkvæm
og varð það hið besta öl, ok stóð þar
stafur uns drukkið var ölið.
Skapillur húskarl
Prestur einn sá er verið hafði undir
hendi hins sæla guðs játara Þorláks
biskups varð fyrir vandræði miklu.
Hann hafi með sér húskarl í vist,
þungan og þrjótlyndan. Var þar
hvorki að sjá til værleika né verkn-
aðar. En ef hann gerði nokkurn
ákenning, presturinn, þá bauð hús-
karlinn honum á mót öxi eða áverk.
Lét presturinn fyrir vinnast um um-
ræðuna þaðan í frá, en húskarlinn
eigi um heituna. En er prestinum
þótti sem þetta vandræði mundi eigi
lægjast mega af tilstilli manna,
þeirra er þar var kostur, þá fór hann
til bænar sinnar og hét á hinn sæla
Þorlák biskup að hann skyldi á
þeirra mál sjá, svo vildara yrði en þá
þótti á horfast og tók hann þegar að
syngja saltara til „glorie" sælum
Þorláki biskupi. En er hann kom inn
frá bæn sinni presturinn, þá var
hann hljóður húskarlinn og kastaði
hann þá engum illyrðum á prestinn,
og var það mjög í gegn vanda. En
þaðan frámælti hann eigi höfugt orð
prestinum og virði presturinn „ipse“
þessa jarteikn mesta og fegursta sér
um hug ens sæla Þorláks biskups.
Bam fann hlekki
Húsfreyja ein virðuleg og vel fjár-
eigandi fór heim skyndilega frá boði
þá er hún skyldi taka við Páli bisk-
upi. En er hún var nálega komin
heim þá voru fallnir niður hlekkir
hennar sumir úr söðli hennar og var
það bæði slys og fjárskaði og var eigi
vænt til fundarins, af því að þau
höfðu eftir fjöru riðið. En þá var að
fallinn sær er þau söknuðu hlekkj-
anna. Hét hún síðan á hinn sæla
Þorlák biskup að finnast skyldu
hlekkirnir og sendi hún síðan mann
að leita. En sá atburður hafði orðið á
þessari stundu að barn eitt hafði far-
ið í fjöru að leika sér og fann það
hlekkina og vissi eigi hvað var og lék
sér að og hafði heim. Kenndu þá síð-
an rosknir menn og sendu heim til
eiganda og virðu menn þetta fagur-
lega jarteikn vera.
Læknuð brunasár
í stað þeim góðum og dýrðlegum
er í Reykjaholti heitir varð sá at-
burður að konur tvær skyldu bera
heim ketil úr hver. En er þær höfðu
tekið upp ketiiinn og hafið á axlir sér
stöngina, er ketillinn hékk á, þá
slapp önnur þeirra í hverinn báðum
fótum. En ketilinn var mjög þungur,
er hún skyldi bera, en hverinn var
bæði heitur og djúpur. Mátti hún
ekki fyrr úr hvernum komast en
hún óð þangað er lengra var og
grynnra. En þá er hún kom úr þá
vildu menn færa hana úr skónum.
En er sokkunum var ofan steypt að
skónum þá fylgdi þar bæði skinnið
og holdið. Þá bauð ógn mikla þeim
er yfir stóðu, af því að öllum þótti
von að miklu meir mundu brunnir
vera fæturnir en upp á leggina. Hétu
þau síðan á hinn sæla Þorlák biskup
að hann skyldi þeim líkn veita og
miskunn með sínu árnaðarorði að
■■i'
hún mætti heil verða. Síðan var hún
færð úr skónum og var þar miður
brunnið er aðrir hugðu til meiri
bruna. Varð hún síðan heil á einum
mánuði þar er áður væntu þeir
henni trautt lífs, en þótti hún ráðin
til örkumla, þótt hún rétti við, og
lofuðu guð og hinn sæla Þorlák
biskup.
Hér látum við staðar numið að
segja af jarteinum er tengjast
hinum sæla Þorláki. Mættu menn
menn vel reyna á vorum dögum
að heita á þennan íslenska dýr-
ling sér til fulltingis. Ætti það
ekki að vera óvænlegra til árang-
urs sem margt annað er vafasamt
má virðast við fyrstu sýn - nú á
tímum nýaldarspekinnar svoköll-
uðu!
þvílíkt lán!
Stendur þú í byggingarframkvæmdum
en leiðast jafnframt ferðimar til bankastjóra? Komdu þá fagnandi í verslanir okkar
þar sem við bjóðum þér einstaklega þægilega leið til að einfalda flókinn hlut.
ByGGINGARVELTA er nýjung sem felur í sér allt að
36 mánaða lán til kaupa á byggingarvörum sem þú kaupir í verslunum okkar!
Það sem meira er - lánið er á venjulegum bankakjömm. Um tvenns konar
tilboð er að ræða: Nýbyggingarboð og Viðhaldsboð.
NÝBYGGINGARBOÐ er ætlað þeim sem em að ganga frá íbúð á byggingarstigi.
VIÐHALDSBOÐ er fyrir þá sem em að lagfæra eða gera upp íbúð sína.
Aðeins traustar vörur á góðu verði!
Þetta einstæða tilboð nær tíl hreinlætístækja, gólfefna,
málningar, innréttínga, verkfæra, heimilistækja og annarra þeirra vömtegunda
sem nauðsynlegar em við lokafrágang og viðhald íbúða. Að sjálfsögðu
bjóðum við aðeins traust og viðurkennd vömmerki!
Byggingarveltan er einfold í framkvæmd, hagkvæm - og sjálfsögð!
BOSCH
HEIMILISTÆKI
INNRÉTTINGAR
Nokkur hinna traustu vörumerkja sem í boði eru.
Grensásvegi 11
S. 83500
METRO
Álfabakka 16
S. 670050
Bœjarhrauni 16
S.652466
,Á. Böðvarsson hf.
Austurvegi 15, Selfossi
S.21335
Ostaíhf
ranesi
málningarl
pjonosta
Stiliholti 16
S. 11799