Tíminn - 28.03.1991, Qupperneq 9

Tíminn - 28.03.1991, Qupperneq 9
8 HELGIN 13 T HELGIN Fimmtudagur 28. mars 1991 Fimmtudagur 28. mars 1991 Síaukinn ferðamanna- fjöldi veldur deilum og áhyggjum Þaö ríkir umsátursástand í Oxford og pró- fessoramir eru komnir í vígahug. Há- skólaborgin er orðin að martröð hvínandi hjólbarða undir rútum og minni bílum sem flytja með sér þrjár og hálfa milljón ferðamanna inn í elsta fræðasetur Bret- lands á ári hverju. Búist er við að ferðamönnum fjölgi um a.m.k. 100.000 á þessu ári, auk þúsunda sem vilja komast í snertingu við borgina vegna þess að hún er heimaborg Morse varðstjóra, sem John Thaw hefur gert nán- ast að heimilisvini 15 milljóna sjónvarps- áhorfenda á hverjum miðvikudegi í Bret- landi og íslendingar þekkja líka mæta vel. Til að ráða við þennan straum gesta ætla yufirvöld í Oxford að taka upp aðgöngu- miðakerfi þar sem er innifalin fyrirfram ákveðin ferðaáætlun ferðamannanna og sýnd afmörkuð svæði þar sem rútum er meinuð umferð. Þessi áætlun hefur hins vegar þegar dregið nokkra mestmetnu borgara Oxford út í deilur um hvernig haga skuli málum borgarinnar í framtíð- inni. Ferðamennirnir færa með sér 200 millj. punda hagnað og 20.000 störf Margir hafa lýst áhyggjum sínum af því að ferðamannastraumurinn sé að eyðileggja Oxford. Aðrir eru þeirrar skoðunar að há- skólaborgararnir verði að læra að búa við vinsældir borgarinnar og segja skilið við fílabeinstilveruna sína. Þessir aðilar benda á að ferðamannaþjónustan færi borginni 200 milljónir sterlingspunda á ári í hagnað og gefi af sér 20.000 störf. Rithöfundurinn Susan Hill býr í Beckley, í fimm mílna fjarlægð frá borgarmiðju. Hún segir bandaríska og japanska ferða- menn hafa gert líf í Oxford að hávaðasamri martröð. „Það er skelfilegt. Stórir flokkar ferðamanna troðast um á gangstéttunum, með leiðsögumenn í fararbroddi sem Heimaborg Morse varðstjóra (Johns Thaw) er Oxford og dregur það ekki úr vinsældum borgarinnar þar sem 15 milljónir manna fýlgjast með afrekum hans í sjónvarpi í Bretlandi (viku hverrí. sveifla um sig handleggjunum og ýta öðr- um um koll. Þar eru líka þvögur á þvögur ofan af tungumálanemendum sem gera okkur lífið erfitt." John.Thaw tekur undir það að um hásum- arið sé varla hægt að snúa sér við fyrir ferðamönnum, en hann álítur að það væri miður ef fólki væri gert ófært að koma og skoða háskólabyggingarnar. „Mér finnst góð hugmynd að almenningur geti komið inn á afmarkað svæði, litið í kringum sig og sagt: Hamingjan sannasta, ég vildi óska að ég hefði verið nógu gáfaður til að hafa gengið hér í skóla." ast skoðunarferðir ferðamanna verði að setja upp heyrnartæki fyrir hvern farþega í rútunum eftir að kvartanir höfðu borist vegna háværra skýringa um hátalara, sem tvístra athygli prófessora og nemenda. Mörgum stórum rútum verður meinaður aðgangur að þröngum strætum Oxford og farþegarnir fluttir í minni bíla í útjaðri borgarinnar. Ferðamennirnir verða hvattir til að kaupa aðgöngumiða að þeim stöðum sem þeir hafa ákveðið fyrirfram að þeir vilji heimsækja. Á þennan hátt gera borgarfeð- urnir sér vonir um að draga úr aðsókninni að vinsælustu stöðunum. Embættismenn háskólans neita því að þeir séu andsnúnir ferðamönnum, sem hafa gert Oxford að þriðju mest heimsóttu borg Bretlands, næst á eftir London og Ed- inborg. En Derek Roberts aðstoðarháskólaritari kvartar undan því að of margir þeirra séu hávaðasamir og ókurt- eisir, þeir berji á bókasafnsglugga og gæg- ist inn í kennslustundir. „Ungt fólk þarf að hafa tækifærí til að kynnast háskólunum“ Það eru fleiri vinsælir ferðamannastaðir í Bretlandi að hugleiða aðgerðir til að draga úr þeim afleiðingum sem sívaxandi fjöldi ferðamanna hefur í för með sér. Þar má meðal annarra telja Cambridge, Windsor, Canterbury, Stratford-on-Avon og Lund- únahverfið Westminster. í Cambridge hef- ur verið tekinn upp aðgangseyrir að Que- ens’ College, skv. ráði borgarstjórnarinnar. Frederic Raphael er útskrifaður frá Cam- bridge og höfundur bókarinnar The Glitt- ering Prizes. Hann segir að Oxbridge há- skólarnir ættu ekki að notfæra sér stöðu sína og reyna að draga úr gestakomum með því að krefjast aðgangseyris. „Ef ungt fólk sveimar ekki um háskólana, kann að vera að það fái aldrei neina löngun til að stunda nám í þeim,“ segir hann. Ný og endurbætt kfnwood CHEF Oxford nýtur mikilla vinsælda feröamanna viö misjafnan fögnuö heimamanna. Nú stendur til að koma meiri stjóm á ferðir aðkomumannanna. OXFORD: Þegar grípið til aðgerða í Grasagörðum háskólans Þetta er svo sem gott og blessað, segir Anthony Smith, forseti Magdalen, en tekur fram að takmörk séu fyrir því hversu mikl- um mannfjölda 15. aldar skólinn geti tekið á móti. „Þessi óskaplegi ferðamannafjöldi skemmir fyrir öllum. Borgin ræður ekki við allan þennan fjölda fólks þannig að ferðin er í rauninni eyðilögð fyrir því.“ Óttinn við of mikil þrengsli og þann skaða sem einsdagsferðamenn valda á umhverf- inu hafa orðið til þess að Grasagarðar Ox- ford-háskóla hafa þegar neyðst til að tak- marka aðgang miðahafa á aðalferðatíman- um í júlí og ágúst. En Jan Morris, höfundur ferðabóka og þ.á m. The Oxford Book of Oxford, segir borg- aryfirvöid verða að læra að aðlagast þörf- um annarra. „Rétt eins og Feneyjar er Ox- ford borg sem byggð er til að skoða. Ég held líka að Oxford hafi gott af því að verða opnuð fyrir utanaðkomandi," segir hún. Douglas Bamber, formaður viðskiptaráðs Oxford og forstjóri fjögurra stjarna hótels- ins Randolph Hotel, segir að ferðamönn- um ætti að taka opnum örmum. „Vissulega geta þeir skapað vandræði, en við ættum að horfast í augu við það að þeim fer fjölg- andi og við ættum að reyna að fá þá til að dveljast lengur og eyða meiri peningum," segir hann. Fleiri aðgerðir fyrirhugaðar Það var ferðamálaráð Thames og Chilt- erns sem skipulagði nýju áætlunina, og naut við það stuðnings háskólans. Þar er m.a. að finna ákvæði um að þeir sem ann- Aukabúnaður m.a Grænmetiskvörn — Hakkavél Grænmetisrífjárn — Ávaxtapressa 22.200 stgr. J 35 B ■■■■ ■■ HEKLAHF Laugavegi170 172 Simi 695500 FT ATflr R mm AA wmmmwm Sterkur og tæknilegur nú á frábæru verði Veana nýrra og hagstæSra samninga við fram- leioendur FIATAGRI getum við nú boðið hann á geysilega hagstæSu verði. FIATAGRI hefur undanfarin ár verið mest selda dráttarvélin í Evrópu. FIATAGRI er einstaklega lipur og hannaSur meö notandann í huga, húsið er þægilegt, öruggt og mjög vel hljóðeinangraS, með stórum gluggum sem gefa mikla yfirsýn. SætiS er þæailegt meS örmum og er stillanlegt eftir þörfum nvers og eins, stýriö sömuleiSis. AuSvelt er að komast aS öllum stjórntækjum sem gerir gæfumuninn á löngum vinnudegi. Vökvalyftukerfi FIATAGRI er ótrúlega fjölbreytt, lipurt og þolir langa og mikla notkun viS erfiðustu skilyrði. FIATAGRI er einn ódýrasti kosturinn í V-Evrópskum dráttarvélum því tæknibúnaður er meiri en í sambærilegum vélum. Til aS mynda: * Bremsur á öllum hjólum.. * "Hiah speed" gírkassi, samhæfóur og gírstöng staosett hægra megin vfó ökumanninn. * 40 km. hámarkshraSi. Veltistýri meS hæðastillingu. Vendigír. Haffó samband vfó sölumenn okkar, umboðsmenn um land allt. * Vélar meS fjórhjóladrifi FIATAGRI 70-90 DTC fjórhjóladrifinn 70 hestöfl. Verð kr. 1.580.000. FIATAGRI 80-90 DTC fjórhjóladrifinn 80 hestöfl. Verð kr. 1.650.000. G/obus? LÁGMÚll 5 SÍMI 91-681555 NÝR DAGUR AUGLÝSINGASTOFA

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.