Tíminn - 22.06.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Laugardagur 22. júní 1991
<£sjs°t
óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis
þriðjudaginn 24. júní kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu vora
að Borgartúni 7, Reykjavík, og víðar.
1 stk. Toyota Land Cruiser STW Turbo 4x4 Diesel 1988
1 stk. Daihatsu Rocky 4x4 Bensín 1987
1 stk. Ford Bronco 11 4x4 Bensín 1984
1 stk. Nissan Patrol pick up 4x4 Diesel 1986
2 stk. Nissan Double cab 4x4 Diesel 1985
1 stk. Mitsubishi L-300 Minibus 4x4 Bensín 1985
1 stk. Mitsubishi L-300 sendibifr. 4x4 Bensín 1985
3 stk. Subaru 1800 Gl station 4x4 Bensín 1984-87
1 stk. Toyota Tercel station 4x4 Bensín 1986
1 stk. Audi 100 CD Bensín 1987
1 stk. Saab 900 I Bensín 1988
3 stk. Volvo 244 Bensín 1985-87
1 stk. Daihatsu Charade 1000 Bensín 1985
1 stk. Fiat 127 Panorama Bensín 1985
3 stk. Fiat 127 Bensín 1985
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins (vélaverkstæði), Borgar-
túni 5:
2 stk. Leyland 600 dieselvélar
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, birgðastöð, Jörfa:
1 stk. Bolinder LM-218 lyftari 1965
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Reyðarfirði:
1 stk. Champion 740 veghefill 1981
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Akureyri:
1 stk. Champion 740 veghefill 1981
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum
bjóðendum.
Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðun-
andi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVIK
HJÚKRUNARHEIMIU GRINDAVÍK
INNRÉTTING 1.ÁFANGI
Tilboð óskast í fullnaðarfrágang á báðum hæðum í þjónustu-
álmu og efri hæð hjúkrunarheimilis í Grindavík, samtals um
1590 m2.
Verktimi er til 1. mars 1992.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7,
Reykjavík, til og með fimmtudegi 11. júlí gegn 10.000,- kr. skila-
tryggingu.
Tilboð veröa opnuð á skrifstofu I.R., Borgartúni 7, þriöjudaginn
16. júlí 1991 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK
;;; tilkynning
Vegna hitaveituframkvæmda verður Vífilsstaða-
vegur í Garðabæ, milli Reykjanesbrautar og
Karlabrautar, lokaður allri umferð frá kl. 8.00
laugardaginn 22. júní til kl. 23.00 sunnudaginn
23. júní 1991.
Vegfarendum er vinsamlegast bent á að aka
Hafnarfjarðarveg og Bæjarbraut á meðan.
Hitaveita Reykjavíkur
GARÐSLATTU R
Tökum að okkur að slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoðum og gerum verðtilboð.
Upplýsingar í síma 41224, eftir kl. 18.00.
Tímanum
Al'GLÝS INGASÍMI
ÚTLÖND
Umbótaáætlanir Pavlovs og Javlínskíjs:
Osköp líkar segir
Gorbatsjov forseti
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, sagði í gær að hann mundi
kynna leiðtogum sjö helstu iðnríkja heims, sem hann hittir í London í
næsta mánuði, eina umbótaáætlun sem yrði sambland úr þeim áætlun-
um sem komið hefðu fram. Hann sagði við fréttamenn fyrir utan sov-
éska þingið að umbótaáætlun Valentíns Pavlovs forsætisráðherra værí
aðeins að litlu leyti frábrugðin áætlun rússneska hagfræðingsins Gríg-
oríjs Javlínskíjs en hann vann áætlun sína með aðstoð hagfræðinga frá
Harvard-háskólann í Bandaríkjunum.
Gorbatsjov sagði að hann færi
með eina umbótaáætlun til Lund-
úna og það yrði umbótaáælun
hans. Leiðtogar sjö helstu iðnríkja
heims sem hittast í London 15. til
17. júlí hafa ákveðið að gefa Sovét-
forsetanum tækifæri á að kynna
umbótaáætlun sína á sérstökum
fundi sem haldinn verður eftir ár-
legan fund iðnríkjanna. Þeir vilja
fá tryggingu fyrir róttækum efna-
hagsbreytingum áður en þeir sam-
þykkja miklar lánveitingar til Sov-
étríkjanna.
Gorbatsjov vildi ekki gera mikla
grein fyrir þeim efnahagsumbót-
um sem hann ætlaði að kynna fyr-
ir leiðtogunum en sagði þó að þær
fælust í að skrá rétt gengi á rúbl-
unni, einkavæða mikinn hluta iðn-
aðarins og laga sovéskan iðnað að
iðnaðinum á Vesturlöndum. Hann
sagði að það væri sami grunnur í
mörgum þeirra umbótaáætlana
sem komið hefðu fram, þ.á m. í
áætlun Pavlovs, Javlínskíjs og
þeim tillögum sem vestrænar
íánastofnanir birtu seint á síðasta
ári
Reuter-SÞJ
Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti á
sovéska þinginu.
Hryðjuverk á Sri Lanka:
A.M.K. 60 FELLU
OG 50 SLÖSUÐUST
Að minnsta kosti sextíu manns lét-
ust og um fimmtíu slösuðust þegar
öflug sprengja sprakk fyrir utan að-
alstöðvar hersins í Kolombó, höf-
uðborg Sri Lanka. Formælendur
stjórnarinnar á Sri Lanka sögðu að
Frelsissamtök tamíltígra væru
grunuð um verknaðinn en sömu
samtök eru einmitt talin hafa stað-
ið á bak við morðið á Rajiv Gandhi,
fyrrum forsætisráðherra Indlands.
Tígrarnir berjast við stjórnarher-
inn á Sri Lanka en þeir vilja sjálf-
stæði tamíla á norður- og austur-
hluta eyjunnar. Tamílar eru í
minnihluta á eyjunni en múslimar
í miklum meirihluta.
Haft var eftir heimildum innan
hersins að líklega hefði verið um
sjálfsmorðsárás að ræða. Þeir
sögðu að tveir menn á sendibifreið
hefðu reynt að komast inn í aðal-
stöðvarnar en öryggisverðir við
hliðið hefðu stöðvað þá. „Sendibif-
reiðin sprakk þá í loft upp,“ sagði
liðsforingi í hernum. Öryggisverð-
irnir við hliðið ásamt mönnunum í
bílnum voru meðal þeirra sem lét-
ust.
Sprengingin, sem heyrðist í
þriggja kílómetra fjarlægð, mynd-
aði þriggja metra djúpan gíg í jörð-
ina. Um fimmtíu hús í nánd við
staðinn urðu illa úti og um hundr-
að hús urðu fyrir minni skemmd-
um. Nokkur sendiráð í borginni
urðu illa úti. Um tuttugu bflar ger-
eyðilögðust og nokkurt tjón varð á
þrjátíu til fjörutíu til viðbótar.
Tamfltígrarnir eru taldir ábyrgir
fyrir nokkrum sprengjutilræðum í
Kolombó á síðastliðnum átta árum,
þ.á m. því sem varð aðstoðarvarnar-
málaráðherra landsins, Ranjan Wij-
eratne, að bana 2. mars síöastlið-
inn. Wijeratne stjórnaði aðgerðum
hersins gegn skæruliðum á eynni.
Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
Vín, Austurríki - Kurt Waldheim
forseti Austurríkis lýsti því yfir í
gær að hann hefbi ekki hug á að
gegna embætti forseta næsta kjör-
tímabil. Waldheim hefur legið und-
ir ásökunum um að viðríðinn
stríðsglæpi nasista í seínni heims-
styrjöldinni. Hann var kosinn for-
seti í Júní árið 1986 en forseti f
Austurríki er kosinn til sex ánt í
senn.
Nýja Delhi, Indlandi - Ný eins
flokks minnihlutarflrisstjóm tók
við völdunum {Indlandi í gær und-
ir forystu Narasimha Rao, ieiðtoga
Kongressflokksíns. Mörg erflð
verkefni bíða úrlausnar stjómar-
innar, s.s. trúardeilur, deilur milli
erfðastétta, barátta við aðskilnaðar-
sinna og mjög slæmur efnahagur.
París, Frakklandi - Fyrrverandi
innamfldsráðherra Frakklands,
Michel Ponlatowski, stakk upp á
þvf í gær f viðtaii við franska út-
varpsstðð, að nú þegar Þjóðverjar
ætla að flytja stjómarstofnanir sín-
ar frá Bonn til Berlínar að Evrópu-
bandalagið flytti höfuðstöðvar sín-
ar til frá Brússel tfl Bonn. Astæðu
þessarar uppástungu innanrflds-
ráðhemns má rekja til þess að
þing EB er í Strassborg, sem er í
heimalandi hans, og flestum flnnst
það vera í of mikflli fjarlægð frá
höfuðstöðvunum í Brússel, og hef-
ur oft staðið tfl að flytja þingið til
Brússel. Mflli Strassborgar og
Bonn tekur hins vegar aðelns
kiukkustund að ferðast með hrað-
iest Við þetta má bæta að húsið
sem hýsir EB í Brússel er talið
ónothæft vegna asbestmengunar
frá eldvamarkiæðningu og er taUð
að það þurfi aö rífa það innan nokk-
urraára.
Osló, Noregi - Sovéskur maður
sem starfaði sem blaðamaður í Os-
ló og norskt dagblað hefur sagt að
sé útsendari KGB, hefur beðið um
póUtfskt hæU á VesturlÖndum að
sögn norsku lögreglunnar. Hún
vfldi eldd gefa upp í hvaða landi en
sagði þó að hann hefði ekki beðið
um hæU í Noregi. Sovéska utanrík-
isráðuneytið f Osló tilkynnti
norsku iögreglunni fyrir nokkmm
vikum aft maðurinn væri týndur.
Það var svo f gær að norskum yfir-
völdum barst tilkynning um að
maðurinn hefði beðið um hælL
Belgraö, Júgóslavíu - James
Baker, utanríkisráðherra Banda-
rflganna, sem átti viðreeður við
leiðtoga Júgóslavíu í gær, sagði að-
spurður að bandarísk stjómvöld
mundu ekki viöurkenna sjálfstæði
SÍóveníu en yfirvöid f Sióveníu
stcfna á að lýsa yfir sjáifstæði lýð-
veldisins f næstu viku.
Manila, Filippseyjar - Vísinda-
menn á Fflippseyjum vömðu við
því í gær að öflugt eldgos gæti haf-
ist að nýju í Pinatubo-eldfjallinu.
Yflr þrjú hundmð manns létu h'flö
vegna eldsumbrotanna í eldfjallinu.
Nú er að verða lokið brottflutningi
á yfir tuttugu þúsund Bandaríkja-
mönnum firá eyjunum. Þeir störf-
uðu fiestír á tveimur bandarískum
herstöðvum sem urðu illa úti í
eldsumbrotunum.
Flórens, Ítalíu - Sjöundu alþjóð-
legu ráðstefnunni um sjúkdóminn
eyðni lauk á ítah'u í gær. Ráðstefti-
an leiddi ýmislegt nýtt f (jós. Vís-
indamenn teija nú td. mögulegt að
eyðniveiran geti smitast með
munnvatni en áður var talið að hún
gæti eingöngu smitast með bióðL
Reuter-SÞJ
LWAWAV.WAW.I, L'AWAU M 1 f n l.M t UUmMH « f
} t.f sxm ó
íWíVíaW*’
-0(.2 ihv.í ur ,ngi>4 i'urint'.