Tíminn - 22.06.1991, Blaðsíða 5

Tíminn - 22.06.1991, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. júní 1991 17.júní-hátíðarhöldin: Tíminn 5 Ólæti íþróttaráðs hrella fuglana á Tjörninni! Mörgum hátíðagestum brá í brún þegar miklir skotkvell- ir kváðu við er hátíðarhöld þjóðhátíðardagins stóðu sem hæst. Við þetta styggðust endumar á Tjöminni og skildu ungana eftir í reiðileysi. Þóttust ýmsir sjá varginn ill- ræmda á sveimi og heyrst hefur að hann hafí við þetta komist í feitt. íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hafði umsjón með há- tíðarhöldunum. Að sögn tals- manns ráðsins urðu þarna mistök sem fólu í sér að miklu öflugri flugeldum var skotið en til stóð. Hann sagði að tilgangurinn með þessu hefði verið að vekja athygli á einu atriði dagskrárinnar. Fulltrú- inn vildi koma því á framfæri að eftir þessi mistök hafí aðstæður verið kannaðar. Það hafi komið í ljós að fuglinn fældist en skilaði sér fljótlega aftur. í viðræðum við ýmsa fuglavernd- unaraðila kom fram að oft sé fuglalífi í og við Tjörnina ekki sýnt nægilegt tillit. Þeir sögðu það koma fyrir að t.d. svokallaðir hundavinir slepptu hundum sfn- Verðlagsstofnun mótmælir auglýsingum um vistvæna bíla. Ekki hægt að treysta fullyrðingum seljandans: Hlutlaus aðili skal meta vistvænleikann um lausum í nágrenni Norræna ir væru drjúgir við að heimsækja hússins og fældu hundarnir fugl- varpsvæðið og vildu þeir skora á ana frá ungunum sem yrðu við fólk að búa þá bjöllum og reyna það auðveld bráð vargfugla. Þá eins og kostur væri að halda þeim kom og fram í máli þeirra að kett- frá svæðinu. -HÞ Islenskir hundar dæmdir í ættbók Dagana 16. til 22. júli verður gangast fýrir átaki í að skoða og staddur hér á landi, á vegutn skrá þá hunda sem taldir eru af Hundaræktarfélags íslands, sér- hreinum stofni. Talið er að um fræðingur sem mun dæma ís- 100 hreinræktaðir fslenskir Qár- lenska ijárhunda tíl ættbókar- hundar séu til. skráningar. Félagið hefur fengið sænskan Deild áhugafólks um íslenska sérfræðing, Kari Johan Adlerkr- íjárhundinn, innan HRFÍ, hélt á eutz, til að annast dóma á hundun- sfðasta ári ráðstefnu um þessa um. Þeir fara firam í Sólheimakoti liundategund og framtíð hennar. í við Reykjavtk 18. júlí og á Akureyri framhaldi af því var ákveðið að 20. og21. samamánaðar. -sbs. Verðlagsstofnun sendi í gær út ábendingu þar sem segir að auglýs- ingar sem gefa í skyn að bifreiðar séu vistvænar séu ólöglegar. „í augiýs- ingunum sem birst hafa að undan- fömu kemur ekki fram hvers vegna bifreiöamar em vistvænar, né að mati hvers þær em það,“ segir í til- kynningunni. „Það er augljóst að bílar bæta ekki umhverfið,“ sagði Sigrún Krist- mannsdóttir, lögfræðingur hjá Verð- lagsstofnun. Hún sagði að þetta væri aðeins byrjunin á frekari aðgerðum stofnunarinnar í þessu sambandi. Það væri nýbyrjað að auglýsa margs kon- ar vörur með þessum hætti og ætlaði stofnunin að vera vel vakandi gagn-' vart þessum auglýsingum. „Við mun- um hafa að leiðarljósi að ekki sé ein- göngu hægt að treysta fullyrðingum seljandans um hvort varan sé vist- væn. Heldur verður einhver hlutlaus aðili að gefa það út,“ sagði Sigrún. Suzuki umboðið er meðal þeirra að- ila sem hafa auglýst bíla vistvæna. Úlf- ar Hinriksson hjá umboðinu sagði að þar á bæ hefði enn ekki verið ákveðið hvað gert yrði vegna þessa „Við emm alls ekki sammála þessu. Það ætti ekki að banna auglýsingar á vöru sem er mjög til bóta fyrir umhverfið." Úlfar segir að Suzuki bfiar séu út- búnir sérstökum mengunarvarnar- búnaði, en hann verður lögleiddur í bfium hér á landi um næstu áramót. „Okkur finnst þess vegna mjög skrítið að ekki megi kynna fólki þennan búnað sem talinn er mjög æskilegur og raunar stendur til að lögleiða." -sbs. Flytur Iðnskólinn á ísafirði í rækjuvinnsluhúsið? Ætlum að halda unglingunum heima Matthías Bjaraason alþingismaður kom með þá tillögu eða hugmynd í stjóra Byggðarstofnunar að kaupa hús rækjuvinnslunnar fyrir Menntaskólann á ísafirði. Rækjuvinnslan á ísafirði stendur mjög höllum fæti. Hugmyndin er sú að rækjuverksmiðjurnar tvær, ísver og Rækjustöðin, sameinist. Þær gætu þá notað húsnæði annarrar stöðvarinnar, en vinnslan fer fram í tveimur húsum eins og er. Smári Haraldsson, skólameistari Menntaskólans á ísafirði, segir að iðnskólinn hafi verið sameinaður menntaskólanum fyrir tveimur ár- um. Kennsla iðnnámsins fer að hluta til fram í leiguhúsnæði í gamla ísfirðingshúsinu og einnig annars staðar í bænum. Staðið hef- ur til að byggja verkmenntahús á ísafirði uppi á Torfnesi við hliðina á menntaskólanum. Ólíklegt er þó að það hús rísi næstu árin. Leigusamn- ingur á ísfirðingshúsinu gamla rennur út á næsta ári. Matthías vissi þetta og kom með þá hugmynd hvort hús Isvers hentaði skólanum. Smári segir, að daginn fyrir sjó- mannadaginn hafi forsvarsmenn skólans skoðað bæði húsin og litist býsna vel á hús ísvers fyrir skólann. Það er reyndar nokkru stærra en skólinn myndi nota nú þegar. Hins vegar er ætlunin að stækka skólann. Gerður hefur verið samningur við Framhaldsskóla Vestfjarða, en markmiðið er að ná til þeirra 300 ungmenna sem flytja burt frá Vest- fjörðum á hverju hausti. Það er mik- ilvæt að halda unglingunum heima með góðu. Skólanefndinni á ísafirði lýst mjög vel á tillöguna. Hugmyndin er þá fyrst og fremst að koma iðnnáminu þarna inn. Þar að auki væri afskap- lega freistandi að fá Hafrannsókna- stofnun og Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins inn í húsið líka. Smári segir þá hugmynd ekki hafa verið rædda, en það myndi styrkja skól- ann mjög mikið. Jafnframt væri hægt að samnýta ymsa hluti. Hug- myndin að kaupa Isvershúsið er því mjög áhugaverð og spennandi fyrir Vestfirðinga. En ákvörðunin er hjá fjárveitingavaldinu. Ekki náðist í Matthías Bjarnason. -js Notaðar BÚVÉLAR ZETOR 7745 4x4, 70 hö. m/nýjum ámoksturst....árg. 1987 ZETOR 7745 4x4, 70 hö. m/ámoksturst...............árg. 1989 CASE 685 XL 4x4, 69 hö. m/ámoksturst..............árg. 1988 CASE 1294 4x4, 62 hö. m/ámoksturst................árg. 1985 MF 135, 47 hö. m/ámoksturst.......................árg. 1977 ZETOR 7711, 65 hö.................................árg. 1983 ZETOR 7711, 65 hö.................................árg. 1981 IMT 569 DL, 70 hö.................................árg. 1987 PÖTTINGER dragtengdur múgsaxari .............árg. 1985 NEW HOLLAND 945 heybindivél.......................árg. 1988 STRAUTMAN 38 rúmm. fjölhnífavagn m/matara ....árg. 1987 KRONE KR 125 rúllubindivél ..................árg. 1988 TELLEFSDAL rúllupökkunarvél .................árg. 1988 Bændur! Nú er rétti tíminn til að kaupa notaðar búvélar á góðu verði Góð greiðslukjör. G/obusi Lágmúla 5, s:681555

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.