Tíminn - 23.07.1991, Page 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 23. júlí 1991
MiNNING
Jón Finnur Kjartansson
Fæddur 10. júní 1973
Dáinn 11. júlí 1991
Ástvinir þínir
áðurgengnir
mun þér á
móti taka
búa hvílu
beygðu lífí
þarsem andann
ei mun saka.
(Guðjón Finnur Davíðsson)
Við sáum Jón Finn seinast þar sem
hann var heima að setja saman hill-
ur, sæll og glaður, en hann og
mamma hans voru að koma á ný
upp heimili sínu eftir að það brann í
febrúar s.I.
Nokkrum dögum seinna var
hringt: Jón Finnur er dáinn. Þann
tíma, sem þau voru að koma upp
heimili sínu eftir brunann, bjó Jón
Finnur hjá okkur.
Þrír mánuðir liðnir áður en maður
vissi af og ég hugsaði af hverju ég
væri ekki orðin þreytt á þrengslun-
um í íbúðinni og komst að raun um
að það eru ekki þrengsli, heldur
áhrif manneskjanna, sem skipta
mestu máli.
Hann hafði góð áhrif á okkur.
Minning um mikinn eldhuga. Þeg-
ar við þrifum íbúðina, sem við gerð-
um yfirleitt á sunnudagsmorgnum,
var ekki alltaf auðvelt fyrir strák að
vakna sem hafði vakað frameftir.
Addi fór inn, tók af honum sængina,
og hann reif sig á fætur og ryksugaði
af miklum eldmóð, fór svo iðulega
og þreif bílinn sinn á eftir hátt og
lágt. Svo var sungið í baði.
Og mikið var hlegið þegar hann
kom eitt kvöldið. Hann hafði fengið
hjólið hans Adda lánað og nú átti að
hjóla í vinnuna á hverjum morgni.
Og það var ekki byrjað að æfa sig á
stuttri vegalengd, heldur hjólað ný-
vaknaður frá Laugarnesvegi upp
brekkurnar upp í Efra-Breiðholt,
þar sem hann vann í Gerðubergi.
Sagðist hann hafa verið hálf veikur
allan daginn, enda hjólið skilið eftir
í vinnunni þann daginn.
Jón Finnur missti vin sinn Sjonna
þegar hann bjó hjá okkur, en hann
var honum greinilega mikill missir.
En svona er lífið, við fáum víst litlu
um ráðið hve lengi við fáum að hafa
þá hjá okkur sem okkur þykir vænt
um. En minning um góðan dreng
lifir.
Við þökkum Jóni Finni fyrir sam-
veruna og óskum honum alls góðs.
Fjölskyldan Keldulandi 21.
Kveðja
Ertu að kveðja, elsku bróðir minn?
Ertu að hverfa frá mér nú um sinn?
Fæ ég ekki fylgd þína og hönd
framhaldslífsins til á nýrri strönd.
Égþakka, bróðir, þína samfylgd
hér.
Ég þrái að hún áfram fylgi mér
yfír á næsta alkærleikans svið
er mín líkamsaugu stöðvast við.
(Guðjón Finnur Davíðsson)
Addi
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka
I Reykjavik 19. júlí tll 25. júlf er f
Ingólfsapótekl og Lyfjaborgi. Það apótek
sem fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá kl.
22.00 að kvöldl til kl. 9.00 að morgnl virka
daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýs-
Ingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru gefn-
ar f sfma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags fslands
er starfrækt um helgar og á stórhátlðum. Slnv
svari 681041.
HafnarQörður: Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á vlrkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I slmsvara nr. 51600.
Akureyrf: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartlma búða. Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýslngar em gefnar I
slma 22445.
Apótek Keflavfkur: Opið virka daga frá k.
9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al-
mennafrldaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Oplð vlrka daga frá
kl. 8.00-18.00. Lokaö I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga
til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opið rúmhelga daga
kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Alnæmisvandlnn. Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styðja smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra, slmi 28586.
Hjónaminning:
Jóna Reynhildur Magnúsdóttir og
Friðbert Guðmundur Guðmundsson
Nokkur minningarorð um tengda-
foreldra mína, Friðbert Guðmund
Guðmundsson og Jónu Revnhildi
Magnúsdóttur, bæði fædd á Isafirði.
Þau bjuggu lengst af á Suðureyri við
Súgandafjörð.
Friðbert var fæddur 30.11.1900 og
dáinn 27.11.1973. Jóna var fædd
12.01.1906 og dáin 11.07.1991.
Ég giftist yngstu dóttur þeirra
hjóna, Lilju.
Fyrsta ferð mín á heimili tengda-
foreldra minna var með strandferða-
skipinu Esju frá Reykjavík til Suðu-
re>;rar við Súgandafjörð.
Ég verð að viðurkenna að ég var
engin hetja á sjó, var venjulega orð-
inn sjóveikur um leið og ég var
kominn á bryggjuna. Mér leið nú
samt þokkalega á leiðinni vestur og
ógleymanlegt var að sjá vestfirsku
fjöllin af sjó. Um leið og ég var kom-
inn í land var eins og týndi sauður-
inn væri kominn í leitirnar. Þannig
verkaði staðurinn og fólkið á mig.
Tengdaforeldrar mínir voru bæði
harðduglegt fólk og vel gefið, sem
Iögðu sig fram um að halda uppi
myndarlegu heimili.
Ég keypti fljótlega nýlegan Mosk-
vitsbfl, '58 módelið, sem ég var mjög
skotinn í. Nú skyldi reyna gripinn,
leyfa honum að spreyta sig við vest-
firsku fjöllin. Og næsta ferð fjöl-
skyldunnar vestur var að fara ak-
andi, það var um leið og vegurinn
yfir Þingmannaheiði opnaðist.
Ekið var um Þingvelli, Uxahryggja-
leið, Tröllahálsinn reyndist ansi erf-
iður, en upp drattaðist hann, og
aldrei varð ég stopp þó tæpt stæði
stundum. Ekki voru móttökurnar
síðri þegar komið var í áfangastað,
en ansi var mannskapurinn orðinn
framlágur þegar þangað var komið.
Friðbert og Jóna voru mjög ólík.
Hann var eitthvert mesta ljúfmenni
sem ég hef kynnst um ævina; hún
frekar skapþung og veik fyrir hjarta.
Friðbert stamaði örlítið, og þótti
sopinn góður og karlinn var stund-
um í glasi. Þá liðkaðist heldur betur
um málbeinið á mínum.
Jóna átti við nokkur veikindi að
stríða síðustu árin, sem ekki er mik-
il ástæða til að fjölyrða um. En þar
sýndi sig að Jóna Magnúsdóttir,
tengdamóðir mín, var engin kveif.
Eg bið fjölskyldunni blessunar
Guðs og hlakka til endurfundar við
tengdaforeldra mína.
Selfossi, 16. júlí 1991
Gunnar Guðmundsson
Læknavakt fyrir Roykjavik, Soltjamamos og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavlkur
alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar-
dögum og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Scltjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokað á
sunnudögum.
Vitjanabeiðnlr, símaráðleggingar og timapant-
anir I sfma 21230. Borgarspftallnn vakt frá kl.
08-17 alla virka daga fyrir fölk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slmi
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyflabúðir og læknaþjónustu erugefnar I slm-
svara 18888.
Ónæmisaðgerðlrfyrirfulloröna gegn mænusótt
fara fram á Hoilsuvemdarstöð Reykjavfkur á
þriðjudögum Id. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskírteini.
Garðabær: Heilsugæslustööin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, sfmi 656066. Lækrravakt er I
slma 51100.
Hafnarfjöröun Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, slmi 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn
á Heilsugæslustöð Suðumesja. Slmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I
sálfræðilegum efnum. Sfmi 687075.
Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kí. 19
til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Gísli Sigurðsson
Fæddur 26. júní 1926
Dáinn 14. júh' 1991
Frétt um andlát Gísla Sigurðssonar
kom mér á óvart Ég hafði brugðið
mér úr byggð og las um andlátiö í
blöðum á útfarardaginn. Með honum
er genginn einn af samferðamönnun-
um, sem skilja eftir sig spor. Gísli var
næmur, þekkti vel umhverfi sitt og
fylgdist náið með hræringum í lands-
málum. Þyrftu menn að fræöast um
gang atvinnulífs og almannahag á
Seyðisfirði, var óhætt að treysta Gísla.
Vegna starfa sinna kynntist hann
hvoru tveggja náið. Þar við bættist eðl-
Seyðisfirði
islæg góðvild hans og samstaða með
þeim sem höllum fæti standa í lífsbar-
áttunni.
Hann var einlægur sósíalisti og
vinstri maður í lífsskoðun. Þeirri sann-
færingu fylgdi hann eftir í starfi á fé-
lagsvettvangi. Hann tók virkan þátt í
starfi Alþýðubandalagsins á Seyðisfirði
allt frá stofnun þess. í tvö kjörtímabil,
1966-74, sat hann í bæjarstjóm Seyð-
isfjarðar sem fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins og varabæjarfulltrúi var hann
1982-86. Hann starfaði mikið í nefnd-
um á vegum Seyðisfjarðarkaupstaðar
og naut almennrar virðingar, óháð því
hvort menn voru samherjar hans eða
andstæðingar í stjómmálum. Þess ut-
an vann Gísli mikið að félagsmálum,
m.a. í Lionsklúbbi Seyðisfjarðar.
Ég kynntist Gísla og konu hans Guð-
borgu Sigtryggsdóttur fljótlega eftir að
ég byrjaði að starfa sem liðsmaður
innan Alþýðubandalagsins á Austur-
landi. Leiðir okkar lágu saman í heim-
sóknum mínum til Seyðisfjarðar og á
fundum kjördæmisráðs, þar sem Gísli
var oft fúlltrúi. Ég held hann hafi verið
hlédrægur að eðlisfari, en þegar hann
kvaddi sér hljóðs lögðu menn við
hlustir. í fari hans blönduðust saman
alvara og græskulaus kímni. Alltaf var
gott til hans að leita og á það reyndi oft
í störfum mínum sem þingmaður.
f---------------------------------
-------------------------------------------\
1Í
Sendum öllum ættingjum og vinum hjartans þakkir fyrir hlýhug og
vináttu við andlát og útför
Ahugi hans og áhyggjur beindust
mjög að atvinnumálum í heimabyggð-
inni. Þekking hans á sjávarútvegi var
náin, bæði sem sjómanns fyrr á árum
og síðar sem bókhaldara með yfirsýn
yfir sveiflur í afkomu fólks og fyrir-
tækja.
Gísli sat um árabil í yfirkjörstjóm
Austurlandskjördæmis, tilnefndur af
Alþýðubandalaginu, og var endurkjör-
inn af Alþingi í það trúnaðarstarf síð-
astliðið vor. Síðasta samtal okkar
tengdist einmitt ósk minni um að
hann gegndi því áfram. Með fráfalli
Gísla sjáum við félagar hans á bak góð-
um og ósérhlífrium liðsmanni.
Gísli er dæmi um atorkumann sem
skilar miklu ævistarfi, þrátt fyrir að
hann gengi ekki alltaf heill til skógar.
Þeim málum flíkaði hann ekki út á við,
en eigin þrautseigja og stuðningur
konu hans og mannvænlegs bama-
hóps þeirra dugðu honum vel til loka.
Öllum hans nánustu sendi ég samúð-
arkveðjur.
Hjörieifur Guttormsson
-------------------------------\
Jóns Jónssonar
Bogabraut 24,
Skagaströnd
Guð blessi ykkur öll.
María Magnúsdóttir og fjölskylda
Utför
Þorsteins Jónssonar á Úlfsstöðum
verður gerð frá Reykholtskirkju föstudaginn 26. júlí kl. 14.00.
Vandamenn
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát föður míns, tengdaföður, afa og langafa
Gríms Ögmundssonar
bónda, Syðri-Reykjum,
Biskupstungum
Sérstakar þakkir til Ingibjargar Jóhannsdóttur, Blesastöðum, og
starfsfólks Ljósheima, Selfossi.
Grétar B. Grímsson
Grímur Þór Grétarsson
Sigurður Ó. Grétarsson
Guðmundur H. Grétarsson
Ingibjörg R. Grétarsdóttir
Dagný Rut Grímsdóttir
Lára Jakobsdóttir
Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Gyða Halldórsdóttir
Áslaug Sigurbjargardóttir
Sigurgeir Guðjónsson
og langafabörn
Sængurkvennadelld: Alla daga vikunnar kl.
15-16. Heimsóknartími fyrir feður kl. 19.30-
20.30. Barnaspltali Hringsins: Kl. 13-19 alla
daga Öldrunarlækningadeild Landspltal-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu-
lagi. - Landakotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl.
16 og kl. 18.30 til 19.00. Bamadeild 16-17.
Heimsóknartimi annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. - Borgarspitallnn (Fossvogi: Mánu-
daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir
samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum
kl. 15-18.
Hafnarbúðlr. Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvlta-
bandlð, hjúkrunardeild: Heimsóknartími frjáls
alla daga. Grensásdelld: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-19.30. - Hellsuvemdarstöðin: Kl. 14 til
kl. 19. - Fæöingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftall:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl.
19.30. - Flókadelld: Alla daga kl. 15.30 til kl.
17. Kópavogshæliö: Eftirumtali og kl. 15til kl.
17 á helgidögum. - Vífllsstaðaspitali: Heim-
sóknartimi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. -
SL Jósepsspftali Hafnarflrði: Alla daga kl.
15-16 00 19-19.30.
Sunnuhlfð hjúkmnarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartlmi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavfkurlæknishéraðs og
heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar-
hringinn. Slmi 14000. Keflavfk-sjúkrahúsið:
Heimsóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30.
Um helgar og á hátiðum: Kl. 15.00-16.00 og
19.00-19.30. Akureyrl- sjúkrahúsið: Heim-
sóknartími alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-
20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofuslmi frá
kl. 22.00- 8.00, sími 22209. Sjúkrahús Akra-
ness: Heimsóknartími Sjúkrahúss Akraness er
alla daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
Slðldcvilið - Lögregla
Reykjavik: Neyðarsími lögregiunnar er 11166
og 000.
Seltjamames: Lögreglan slmi 611166,
slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 11100.
Kópavogur: Lögreglan slmi 41200, slökkviliö
og sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan slmi 51166, slökkvi-
lið og sjúkrabifreið simi 51100.
Keflavík: Lögreglan simi 15500, slökkviliö og
sjúkrablll slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjan Lögreglan, simi 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsið slmi
11955.
Akureyri: Lögreglan simar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 22222.
Isafjörður: Lögreglan sími 4222, slökkvilið slmi
3300, brunasími og sjúkrabifreið slmi 3333.