Tíminn - 10.09.1991, Síða 1

Tíminn - 10.09.1991, Síða 1
VMSI býður upp á nýja þjóðarsátt Á framkvæmdastjórnarfundi Verkamannasam- bands íslands (VMSI) í Borgarnesi um helgina var ákveðið að leggja upp í samningaviðræður í haust með það að markmiði að ná fram kaupmáttaraukn- ingu með svipuðum hætti og þjóðarsáttarsamning- ar hafa gert, þ.e. með stöðugu verðlagi og lágum vöxtum. Framkvæmdastjórnin sló þó varnagla með sérstakri ályktun þar sem varað var við að verulega auknar álögur ríkisvaldsins á almenning vegna fjár- lagagerðar gætu torveldað alla samningsgerð á nót- um þjóðarsáttar. Það vekur athygli að Karl Steinar Guðnason, starfandi formaður VMSÍ og formaður fjárhagsnefndar Alþingis, lenti í minnihluta við af- greiðslu þessarar tillögu og þótti að sér vegið með þessum varnagla. Karl Steinar telur að flokkspólitík hafi ráðið þegar varað var við auknum álögum, en félagar hans í framkvæmdastjórninni telja að hags- munaárekstrar ráði afstöðu starfandi formanns Verkamannasambandsins. • Blaðsíða 3 Banaslys varð á Sæbraut í Reykjavík laust eftir kl. hálf fimm ( gærdag þegar tvær bif- reiðar, jeppi og fólksbíll, skuilu saman. Ökumað- ur fólksbílsins, 73 ára gamall maður, var einn í bílnum og lést hann á slysadeild. Þrennt var ( jeppanum og stúlka í aftursæti jeppans hand- leggsbrotnaði, en aðrir sluppu betur. Tildrög slyssins voru þau að fólksbíllinn ók inn á Sæ- brautina frá Súðarvogi og í veg fyrir jeppann, sem náði ekki að stöðva. Kalla þurfti til tækjabíl slökkviliðs til að ná ökumanninum út úr fólksbifreiðinni. Tímamynd: Árni Bjama |a. J r..! j H ifeíi J fím Æ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.