Tíminn - 02.11.1991, Side 5

Tíminn - 02.11.1991, Side 5
Laugardagur 2. nóvember 1991 Tíminn 5 Fyrrverandi ráðgjafi Grænfriðunga viðurkennir opinberlega að samtökin hafi mút- að ríkjum í Alþjóðahvalveiðiráðinu til að samþykkja hvalveiðibann: Þvinguðu fram hval- veiðibann með mútum Hið virta bandaríska viðskiptatíma- rit, Forbes, hefur í grein farið gagn- rýnum orðum um umhverfissam- tðk Crænfriðunga og David McTaggart, fyrrverandi formann þeirra. Samtökin eru þar sögð hafa varið milljónum dollara til að tryggja að Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkti bann við hvalveiðum ár- ið 1982. íslendingum, sem sótt hafa fundi hvalveiðiráðsins, koma þessar upplýsingar ekki á óvart. Ekki er talið að upplýsingamar geti ómerkt þær ákvarðanir sem ráðið hefur þegar tekið. Kjartan Júlíusson, deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, sem hefur oft setið fundi Alþjóðahvalveiðiráðs- ins, sagði að sér kæmu þessar upp- lýsingar ekki á óvart. íslendingar hefðu alla tíð gert sér grein fyrir að Grænfriðungar hefðu með brögðum og peningum haft áhrif á afstöðu margra ríkja í ráðinu. Árið 1978 voru 17 þjóðir í Alþjóða- hvalveiðiráðinu, en 1982 voru þær orðnar 39. Fjölgunin stafar ekki af því að fleiri þjóðir hafi farið að veiða hval. í ráðið gengu margar þjóðir, sem engra hagsmuna eiga að gæta, en eru mjög áhugasamar um að þjóðir, sem veitt hafa hvali, hætti hvalveiðum. í greininni í Forbes er haft eftir Francisco Palacio, fyrrverandi ráð- gjafa Grænfriðunga, að hann ásamt McTaggart hafi fengið fátæk ríki og nokkur smáríki, sem nýlega höfðu öðlast sjálfstæði, til að ganga í ráðið. Hann segir að samtökin hafi greitt árgjöld vegna aðildar ríkjanna að ráðinu og einnig staðið straum af kostnaði vegna þátttöku þeirra í fundum þess. Palacio segir enn- fremur að í mörgum tilfellum hafi þeir fengið þessi ríki til að skipa menn úr röðum Grænfriðunga sem fulltrúa sína í hvalveiðiráðinu. Eftir að tímaritið kom út lýsti Pal- acio því yfir að það hefði rangfært ýmislegt sem hann sagði í samtali við það. Grænfriðungar hafa mót- mælt þeim fullyrðingum sem koma fram í greininni. Nú er starfandi nefnd á vegum stjómvalda, sem fjallar um ffamtíð íslands innan hvalveiðiráðsins og hvort ísland eigi að segja sig úr ráð- inu. Nefndin er undir forystu Einars K. Guðfmnssonar alþingismanns. Búist er við að hún skili áliti á næstu vikum. Einar sagði að nefndin hefði fengið umsagnir frá hagsmunaaðil- um sem koma að þessu máli með einum eða öðrum hætti, hvalveiði- manna, hrefnuveiðimanna, ýmissa útflytjenda o.fl. Hann sagði að nefndin skoði málið m.a. út frá lög- fræðilegum og þjóðréttarlegum sjónarhóli. Einar sagði að nefndin ætti fyrst og fremst að fjalla um úr- sögn úr ráðinu, en óhjákvæmilega hafi hún einnig skoðað hvað taki við ef ísland segi sig úr því. Einar sagði að upplýsingar í grein Forbes komi sér ekki á óvart. Þetta sé í samræmi við það sem íslending- ar hafí séð til vinnubragða þessara samtaka. Hann sagði að greinin í Forbes væri ekki eina greinin, sem Mistök við útskrift hluta gíróseðla hjá Eurocard: Mistökin hafa veriö leiðrétt Um þessar mundir er verið að breyta hugbúnaöi í tölvukerfi Euro- card. Því miður urðu mannleg mis- tök þess valdandi, að fyrir mánaða- mótin fékk hluti viðskiptavina Kreditkorts hf. senda gíróseðla með rangri vaxtaupphæð. Þessi mistök áttu sér einungis stað hjá þeim korthöfum, sem skulduðu við útskrift síðasta gíróseðils, og leiddu til þess að vaxtaupphæð var önnur en hún átti að vera. Vitað er að um 1000 gíróseðlar voru með rangri upphæð, en alls voru 30 þús- und seðlar sendir út. Mistökin hafa þegar verið leiðrétt og verður hlut- aðeigandi korthöfum sent bréf með leiðréttingum á vöxtum. Þá fengu af áðurgreindum ástæð- um tæplega 300 viðskiptavinir gíró- seðla sína senda á röng heimilisföng. Sumir mega því búast við því að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin: Hilmar Örn hlýtur tónlistarverðlaun Hilmar Öm Hilmarsson hlýtur evr- ópsku Felixverðlaunin fyrir bestu tónlistina í kvikmynd frá Evrópu, en Hilmar samdi tónlistina í kvik- mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar. Kvikmyndin Böm náttúrunnar var útnefnd besta listræna framlagið á birst hefur í viðurkenndum blöðum og tímaritum um vinnubrögð Grænfriðunga. T.d. hafi nýlega birst grein í þýska tímaritinu Der Spiegel. Hann sagðist telja að fólk sé að byrja að sjá í gegnum starfsemi Grænfrið- unga. -EÓ Feðgarnir sem grunaöir eru um fjárdrátt í verslun ÁTVR við Lindargötu: mm Asinar feðganna, sem eru grun- aðir um að hafa dregið sér um 20 miiljónir króna frá verslun ÁTVH við Lindargötu, hefúr verið úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 8. nóvember. Það er sonurinn, sem um ræöir, en hann gegndi stöðu aðstoðarútsölusfjóra, en faðir- inn, sem var útsölusijóri, var ekki settur í gæsluvarðhald. Grunserndir vöknuðu um að ekki væri allt með felldu á þriðjudag og var þá gerð talning í verslun- inni og henni iokað. Báðir hafa mennirnir verið leystir frá störf- um a.m.k. meðan á rannsókn stendur. Arnar Guðmundsson hjá RLR sagði að málið væri enn í rann- sókn og yfirheyrslur stæðu yfir þeim, sem gætu varpaö einhveiju Ijósi á málið, og svo byggðist rannsókn RLR að sjáifsðgðu á upplýsingum frá bókhaldi. ÖU svona mál eru viðamikil, en ekki er enn Ijóst hvað hugsanlegur fjárdráttur nær yfir langt tímabiL r gíróseðillinn berist seinna en vana- lega. Af sömu rótum kom upp sú staða í upphafi vikunnar, að sjálfVirkt heim- ildakerfi í verslunum hafnaði nokkr- um Eurocard-kreditkortum að ósekju. Þetta olli skiljanlega óþæg- indum hjá viðkomandi korthöfum og verslunum. Heimildakerfið er nú komið í eðlilegt horf. Þessi atriði hafa þegar verið leið- rétt. í framtíðinni munu þær breyt- ingar, sem verið er að gera á hug- búnaði Kreditkorts hf., bæta enn frekar þjónustu við viðskipavini Eurocard. Kreditkort hf. harmar þessi mistök, um leið og beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem viðskiptavinir og aðildarfýrirtæki kunna að hafa orðið fyrir. -js SNJOTENNUR h MEYER-JONGERIUS á alla jeppa, vörubíljn^ gröfur til afgreiðslu með stuttum fyrirví •• * ~ a < I \\t Faxafeni12, sími 38000, fax 681942. EVRÓPSKT EFNAHAGSSVÆÐI VEGABRÉF INN I 21. OLDINA kvikmyndahátíðinni í Montreal t sumar. Sigríður Hagalín er éin af þremur leikkonum, sem tilnefndar eru til Felixverðlaunanna fyrir bestan leik í kvenhlutverki. Verðlaunin verða afhent í Berlín 1. desember. -js Jón Baldvin Hannibalsson, ufanríkisráóherra boðar til almennra borgarafunda um EES- samninginn sem hér segir: Húsavík, laugardaginn 2. nóvember kl. 1 1:00 í Félagsheimilinu. Dalvik , laugardaginn 2. nóvember kl. 16:00 í félagsheimilinu Víkurröst. Fáskrú&sfir&i, mánudaginn 4. nóvember kl. 20:30 i félagsheimilinu Skrúði. Akranesi, þiðjudaginn 5. nóvember kl. 20:30 í Fjölbrautaskóla Vesturlands. A& loknu inngangserindi svarar rá&herrann spurningum fundarmanna. Fundarstjóri: Þröstur Ólafsson UTANRIKISRAÐUNEYTIÐ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.