Tíminn - 02.11.1991, Blaðsíða 8

Tíminn - 02.11.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn Laugardagur 2. nóvember 1991 ' Bergþór Hávarðarson, aleinn á brotinni skútu á miðju Atlantshafi þegar flutningaskip sigldi hjá: Hann orgaði: Komdu! — En það kom ekki Það verður að teljast kraftaverki líkast að Bergþór Hávarðarson næði landi eftir 60 daga siglingu á skútu sinni, Nakka, eftir fellibylji og aðrar hrakninga sem á vegi hans voru. Bergþór Iagði af stað frá Flórída þann 29. ágúst og kom til Vestmannaeyja þann 28. október, á illa laskaðri skútu sinni, illa hrakinn á sál og líkama, eftir þrot- lausa baráttu sína við grímm náttúruöflin. Við hittum Bergþór Hávarðarson á heim- ili Sigmars Gíslasonar, stýrímanns á Katrínu VE, skipi því sem kom Bergþórí til hjálpar á 60. degi. Svo skemmtilega vildi til að Sigmar og faðir hans Gísli Sigmars- son, skipstjóri á Katrínu, eru frændur Bergþórs. Hvað er maður, sem er einn á báti sín- um að berjast í fárviðri og fellibyl að hugsa? Báturinn brotinn og fullur af sjó og allt virðist svart og hann hefur engan á að treysta nema sjálfan sig, bátinn og Guð og lukkuna? „Maður hugsar náttúrlega afskaplega margt þegar svona stendur á. Alveg gíf- urlega mikið. Það er hreint ótrúlegt, að þó að þú sért ekki meðvitaður um það, þá streyma hugsanir um huga þinn. Það er töluverður hluti af heilabúinu, sem er alltaf, án þess að þú vitir af því, upptek- inn við að hugsa um ástandið eins og það er. Og stundum skýtur allt í einu upp og upp úr þurru: Ja, hver þremillinn. Ástandið er svona svart. En hendurnar og skrokkurinn, í mínu tilfelli, það vinn- ur að lausn vandamálanna, svona nokk- urn veginn sjálfkrafa. Þeir líkamshlutar vinna hlutina, sem í mínum huga liggja býsna beint við, þetta eru hlutir sem ég er búinn að vera að gera voðalega lengi. En það eru þessi hversdagslegu atriði, sem eru ballansinn í lífi hvers manns, sem eru rauði þráðurinn í gegnum allt lífið. Hversdaglegu atriðin, þó svo að þau sýnist vera afskaplega ómerkileg, þá eru það þau sem hjálpa manni að halda jafn- vægi. Að vera einn á báti út á hafi raskar ekki þessu jafnvægi. En sá, sem ekki get- ur hugsað sér að vera alveg einn og treysta bara á sjálfan sig, ætti að láta svona bátsferðir alveg vera.“ Hvarflaði það að þér að þetta væri þitt síðasta? Hugsaðir þú um dauðann? „Jú, að sjálfsögðu hugsar maður um dauðann. Þegar maður stendur frammi fyrir Qallháum vandamálum. En ég hef mjög sterka lífstrú og fastmótaða skoðun innra með mér. Hún hefur ekkert með irresta að gera eða neitt slíkt, að ég held. Ég trúi því að þegar enginn draumur er eftir, þegar þú í draumsýn sérð ekki neitt meira inn í framtíðina, þá sé þetta búiö. Þegar spurt er spurninga eins og þeirrar, sem þú barst upp, þá viðurkennir maður að þegar verstu augnablikin komu, hugs- aði ég: Jæja, er þetta búið. En hugsunin var ekki á enda, þegar svarið kom til baka eins og bergmál: Nei, þetta er ekki búið, það er mikið eftir. Þetta var svo sannfær- andi og svo sterkt og kom eins og leiftur í gegnum huga minn. Nei, þú átt eftir að koma þessu áfram og átt eftir að gera mikið. Þetta getur ekki verið búið. Þetta sterka bergmál, sem fór í gegnum huga minn á þessum andartökum, sem var eins og vítamínsprauta á kraftinn í kroppnum, vítamínsprauta sem pump- aði adrenalíni inn, þegar raunverulega ekkert virtist eftir. Sér í lagi herjaði þetta á mig í austrinum, sem var hreinasta martröð. Ég skil ekki enn, hvemig ég hafði fötu fyrir fötu fyrir fötu upp úr kil- inum. Ég varð að lyfta þeim upp úr kilin- um upp á gólf, þaðan upp í þrepið og út fyrir. Ég taldi föturnar til að halda söns- um, því hendurnar vom orðnar slæmar." Eftir að fellibylurinn hafði gengið yfir og ástandið var sem verst komst þú auga á skip, sem síðan sigldi fram hjá þér. Hvaða áhrifhafði þetta á þig? „Það var eina skiptið sem ég fann fyrir örvæntingu, vegna þess að ég gerði mér grein fyrir því að ég hafði tekið alveg gíf- urlega afdrífaríka ákvörðun með því að skjóta upp tveimur fallhlífarflugeldanna, sem til voru um borð, til að ná sambandi við skipið, því að tvö af þeim þremur blysum, sem eftir vom, voru blaut og ég gat ekki kveikt á þeim. Eitt andartak fannst mér að ég hefði lokað öllum frek- ari möguleikum. En á þessari stundu var ég ekki búinn að fá neitt að borða, nema dósamat. Ég át kalt korn úr dósum og massaða tómata, einnig úr dósum og drakk vatn. Að vísu fann ég eftir gífurlega leit eitt glas af vítamíntöflum. En í ellefu daga gekk þetta svona og ég var einfald- lega farinn að tapa svo miklum mætti og þá kom þetta augnabiik að þetta væri einfaldlega búið. Vegna þess að þegar ég sá skipið, þá fór leifturhratt í gegnum huga minn: Jæja, bless Nakki. Ég er far- inn. Ég fer með þessu skipi yfir til Evr- ópu. Ég var þá sáttur við að skilja skút- una eftir, því að þá var ég búinn að sjá myndirnar mínar, bækurnar, myndavél- ina og öll mín tæki í rúst og mér fannst í sjálfu sér ekki frá neinu að fara. Ég veit hvernig það er að vera um borð í svona skipum, sem eru hlý og notaleg og heit- ur matur að borða. Þetta var bara of stór freisting fyrir mig og ég réð ekki við það og því var ég ákveðinn að fara. Ég stóð fremst í bátnum og skipið sigldi beint fyrir framan mig, svo nálægt að ég gat næstum því lesið nafnið, en það var mist- ur svo ég sá það ekki. En svo hvarf það. Ég stóð í stefninu og orgaði á eftir því: Komdu. En það kom ekki. Þá settist ég niður og var ekki búinn að sitja nema andartak, þegar ég mundi að ég hafði verið að húkka upp vindrafstöðina úr kil- inum, sem var fullur af sjó. Ég sagði við sjálfan mig: Kannski virkar hún. Það kom neisti frá henni og það kom raf- magn inn á geyminn og þetta hjálpaði gífurlega í þeirri örvæntingu sem greip mig þegar skipið sigldi fram hjá. Daginn eftir var geymirinn næstum orðinn full- ur, lóraninn kominn og eldur í eldavél- inni. Ég bakaði brauð og hitaði mat.“ Þessi ævintýraferð og endir hennar vakti mikla athygli hér heima og hefur vakið miklar umræður. Margir hafa ver- ið til í að segja að þú værir klikk. Hverju svarar þú þessu? „Fólk gerir upp hug sinn og gerir allan fjandann. Það er hreint alveg ótrúlegt. Grunnurinn á bak við slíkar fullyrðingar er rökstuddur í Hávamálum: Dælt er heima hvað. Og síðan getum við sagt að sá sem fleira veit, þess fleira reynir og fari í helvíti, sem þýðir að það er verst fyrir þann sem situr á sínu búi og sér ekki nema út í hólinn við túnfótinn. Það verður erfitt fyrir hann að skilja þann sem ferðast. En sá, sem hefur ferðast og gert hlutina, hann hlýtur að hafa æðri yf- irsýn yfir málefnin. Svo að það snertir mig ekki þannig séð, hvaða skoðun ein- hver kemur til með að hafa á einu eða neinu. Þessi ferð er bara hiutur sem mig langaði til að gera og kaus að gera. Ég hef hugsað um þetta og þetta er búið að vera stór þáttur í mínu lífi. Alla mína ævi hefur mig langað til að fara í einhverja svona ferð og það er eðli hvers manns að sækja lengra og til meiri fullkomnunar og að öðlast meiri þekkingu til að verða meiri maður og byggja upp sinn innri mann. Þess vegna er ég að þessu. Ég er að vísu blanda af fornleifa- og sagnfræð- ingi líka, ég virði mína forfeður og mér finnst að það megi ekki slíta úr samhengi þá staðreynd að þeir veltust á bátum af svipaðri stærð og þessum yfir Atlantshaf- ið, fyrir um 1100 árum. Þeir eru okkar forfeður og ég er ekkert öðruvísi en þeir. Ég hef sömu útþrána. Hér væri að mín- um dómi — og ég er ekkert að fegra sjálfan mig á nokkurn máta — enginn á þessu skeri, ef ekki hefði komið til ein- hver sem var klikkaður og snarað sér út á opinn bát og siglt yfir. Mér er alveg sama hvort það var í september, október eða hvenær það var. Hvort það var haustskip eða vorskip, það er raunverulega ekki það sem ég brýt heilann um. Heldur er það þessi erfðaeiginleiki að vera sjómað- ur, vera ævintýramaður og vera maður sem sækir fram og langar til að kynnast meiru um hvernig fólk lifir og hagar sér hingað og þangað um heiminn. Sem vill safna þekkingu á þennan hátt, ferðast á milli á ódýrasta hátt og ef þú átt bát, þá getur þú gert þetta. Þetta er raunveru- lega snar þáttur í lífi þess manns sem hefur þessa arfleifð. Ég lít á þetta sem erfðaeiginleika. Hver var ástæða þess fyr- ir 1100 árum að menn fóru í bát og sigldu upp á þetta kalda sker? Hve klikk- aðir voru þeir? Löngun mín er sú sama. Ég hef verið í þessum bananalýðveldum þarna suður frá og ég hef dvalið í spænskumælandi löndum. Ég hef séð vítt um heiminn og slíkur er hóllinn í mínum túnfæti. Hvernig í ósköpum get- ur þú ætlast til að maður, sem hefur hól sem er í skala 1 á móti 1000 miðað við þennan, geti skilið allt sem ég er að gera? Það er enginn maður fæddur sem er bæði lögfræðingur og prestur í einu.“ Hvemig var tilfínningin, þegar þú sást fram á það að þessi svaðilför væri senn á enda? „Hún var voðalega notaleg. Því að að- eins tveimur dögum áður var veður af- skaplega tvísýnt, sem var reyndar örugg- lega í 100. skiptið frá því á 50. gráðu og þetta tvísýna veðurútlit var farið að fara mjög illa með mig. Þessi óvissa og bið. Kemur stormur eða kemur hann ekki? Get ég hækkað seglin og náð aðeins meiri ferð? Að auki var ég svo þvingaður, því að hendur mínar voru ekki í full- komnu lagi, þær voru mér tálmi. Allt þetta var farið að fara illa með mig and- lega. Einnig olli það mér hugarangri að þegar ég nálgast land var komið að ljósa- skiptum og vegna þess að möguleiki var á brælu, sótti sú hugsun að mér hvort það gæti verið að engir bátar væru á sjó. Ef svo hefði verið hefði ég ekki getað komist inn í höfnina í Vestmannaeyjum og þurft að bíða til morgunsins eftir.“ Vissir þú að skipstjóri og stýrimaður á Katrínu, skipi þvísem kom þér til bjarg- ar, vceru frændur þínir? „Nei, ég vissi það ekki. Mér var sagt það þegar ég kom um borð, og síðan fékk ég staðfestingu á því hjá föður mínum.“ Voru ekki mistök hjáþér að leggja í ferð á þessum tíma þegar vitað er að allra veðra er von? „Ég átti nú ekki von á þessu svona slæmu. Veðrið náttúrlega hagaði sér al- gerlega öfugt, allan tímann, við það sem það gerir venjulega, miðað við meðaltal síðustu 50 ára. Þetta eru ekki mín mis- tök. Þetta er bara undantekningin sem sannar regluna og það er einfaldlega mín ógæfa að það er ég sem lendi í þessu. Ef menn verða fyrir einhverju mótlæti í starfi, hugsa þeir þá eftir á að þeir hafi gert mistök? Hugsar þú þannig? Ég geri það ekki.“ Iivað tekur nú við? „Það næsta, sem ég geri, er að ég ætla að skrifa bók um ferð mína og þá reynslu sem ég hef aflað mér. Þá á ég mikið af kunningjum hérna og góðum vinum, sem ég hef unnið með og þykir vænt um. Mig langar til að vera í samfloti með þeim og vinna með þeim. Mitt fag er vél- stjórn og er það ekki slæmt. Mig langar til, ef það er framkvæmanlegt, að komast á eitthvert af þeim skipum sem ég hef verið á, og vinna þar í einhvern tíma. En fyrst vil ég þó finna fyrir grasinu á þess- ari jörð, sem fólk gengur á. Rétt til þess að nájarðsambandi í þessari íslensku for, sem venjulegt fólk hér gengur í. Jafn- framt er ég kominn með slagsíðu af ban- analýðveldishugsunarhætti. Þegar mað- ur er runninn undan rifjum norrænnar og germanskrar menningar og heillaður af því sem slíku, þá samræmist þetta tvennt illa, svona lágreist menning og með enn lágreistari menntunarbak- grunni.“ Nú ert þú hraustur maður. Er það skil- yrðið til að lifa af slíkar raunir, sem þú hefur lent í, eða er eitthvað annað sem spilar þar inn í? „Ja, líklega er það ekki verra að vera hraustur í svona raunum, en annars er það voðalega erfitt að segja til um það, því að mennimir em svo misjafnir. Það, sem ég held að sé stærsta atriðið í þessu, að þegar að hugar- og líkamsorka sam- einast í einum punkti, viljanum, þá er það hreint aldeilis ótrúlegt hvað hægt er að gera.“ Pjetur Sigurðsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.