Tíminn - 04.12.1991, Side 1
•V
Stendur búvaran föst
IGÆR var haldið upp á 20 ára afmæli Björgunarsveitar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Talið er að á ferli sínum hafi sveitin bjargað 250 mannslífum, auk þess að aðstoða við sjúkra-
flutninga og leiðbeina flugvélum sem átt hafa í erfiðleikum. Haldið var upp á afmælið í flugskýli
á Keflavíkurflugvelli og sótti margt góðra gesta sveitina heim og eins og sjá má var margt um
manninn. Á myndinni má sjá tvær kynslóðir björgunarþyria á Keflavíkurflugvelli. Þá nýrri nær
og eldri gerðina, Jolly Green Giant, fjær. Timamynd Ami Bjama
Verkafólk fer gegn
geggjuðum viðhorfum
Það var þungt hljóð í fulltrúum
verkafólks hjá ASÍ í gær. Ásmundur
Stefánsson gagnrýndi harðlega þær
hugmyndir, sem fram koma í frum-
varpi hennar í ríkisfjármálum um að
breyta skipan mála varöandi ríkis-
ábyrgð á laun. Hann kallaði það
„geggjuð viðhorf“ að skerða þessi
réttindi launamanna einungis vegna
þess að útgjöld ríkissjóðs aukast
samfara auknum fjölda gjaldþrota.
Hann minnti á að hagstjórnarstefna
stjórnarinnar fælist m.a. í því að láta
þau fyrirtæki, sem ekki stæðu sig,
fara á hausinn.
Fulltrúum ASÍ í vaxtanefnd var ekki
síður þungt í skapi eftir fund sinn
með fulltrúum bankanna í gær, en
þar var þeim sagt að ekki væri hægt
að verða við kröfu þeirra um að nafn-
vextir yrðu lækkaðir nú þegar í 11%.
Björn Grétar Sveinsson, formaður
VMSÍ, sagði í gær að hann óttaðist
að til átaka gæti komið á vinnumark-
aði ef verkalýðshreyfingin héldi
áfram að koma að lokuðum dyrum.
• Blaðsíða 2
I