Tíminn - 04.12.1991, Page 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 4. desember 1991
Ásmundur Stefánsson segir það undarlegt að ætla að afnema
ríkisábyrgð á laun, þegar gjaldþrot eru orðin opinbert
hagstjórnartæki og skerða réttindi eftir því sem þörfin er meiri:
„Geggjað viðhorf“
Alþýðusamband íslands mótmælir harðlega þeim áformum ríkis-
stjórnarinnar, sem birtast í frumvarpi hennar um ráðstafanir í rík-
isfjármálum næsta árs og lagt var fram á Alþingi fyrir helgi, að af-
nema ríkisábyrgð á laun. Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, segir
það vægast sagt undariega ráðstöfun á sama tíma og hið opinbera
hefur tekið upp þá stefnu að þau fyrirtæki, sem ekki standa sig,
skulu fá að fara á hausinn. Ásmundur segir það geggjað viðhorf að
ætla að skera þessi réttindi niður af þvf einu að vegna fjölgunar
gjaldþrota hækka útgjöld ríkisins vegna ábyrgðar á laun.
ASÍ segir að með áðumefhdu ffum-
varpi sé verið að afhema ríkisábyrgð á
laun. í stað hennar eigi að koma sér-
stakur sjóður fjármagnaður með
0.2% gjaldi atvinnurekenda af greidd-
um vinnulaunum. Það getur skilað
um 374 milljónum króna á ári. Nú í
byrjun nóvember höfðu þegar verið
greiddar rúmlega 400 milljónir vegna
gjaldþrota. Alvarlegast sé að þar sem
fjárhæðin er takmörkuð við áður-
nefhd 0.2%, ríki óvissa um hver rétt-
urinn er. Ásmundur Stefánsson segir
að með þessu sé í raun verið að af-
nema ríkisábyrgð á laun vegna gjald-
þrota. Aðferðinni að taka gjald af at-
vinnurekendum mótmæli ASÍ ekki
sem slíkri. Ásmundur segir að þessi
skattheimta muni takmarka mögu-
leika á samningum.
Til að mæta lægri framlögum er ætl-
un ríkisins að stytta tímabilið sem
ábyrgðin nær til, setja þak á heildar-
greiðslur til hvers launþega, greiða al-
menna innlánsvexti á bætumar, fella
niður ábyrgðina á lífeyrissjóðsiðgjöld-
unum og skerða greiðslur kostnaðar
vegna innheimtu. Fólk, sem starfar
hjá fyrirtækjum sem verða gjaldþrota,
fær því rýrari bætur og lífeyrisréttur
fellur niður sem samsvarar þeim
gjöldum sem ekki innheimtast. Ás-
Ásmundur Stefánsson.
mundur segir að áhættan af þessu
lendi fyrst og fremst á ASÍ-fólki. Það
starfar hjá fyrirtækjum, sem verða
gjaldþrota, og það sé í lífeyrissjóði
sem ekki er ábyrgður af ríkinu. Þetta
frumvarp væri því sérstök árás á ASf-
fólk.
„Við stöndum frammi fyrir því að hér
er rekin sú efnahagsstefha, að ef fyrir-
tæki standa illa þá á ekki að veita
þeim aðstoð heldur eiga þau bara að
fara á hausinn. Að Iáta fyrirtæki verða
gjaldþrota er í dag viðurkennt hag-
stjómartæki. Það er stórfurðulegt að
þeir, sem telja eðlilegt að beita slíkum
hagstjómartækjum, telja sér ekki
jafnfrámt skylt að veija það fólk sem
fyrir verður en hefúr þó sjaldnast haft
minnstu möguleika til að hafa áhrif á
það sem gerðist í fyrirtækinu," segir
Ásmundur Stefánsson. Hann bætir
við að framlag ríkisins vegna gjald-
þrota fyrirtækja hafi hækkað síðustu
ár. Stjómvöld sjá ofsjónum yfir því.
En það megi í sjálfu sér kallast geggj-
að viðhorf að ætla að skerða réttindi
þegar mest þörf er fyrir þau. Með
sama hætti gætu menn lokað sjúkra-
húsum eftir því sem sjúklingum
fjölgar.
Að síðustu bendir ASÍ á að um þess-
ar mundir séu íslensk stjómvöld að
fara yfir drög að samþykkt Alþjóða-
vinnumálastofnunarinnar á skuld-
bindingum þjóða til að tryggja launa-
fólk vegna gjaldþrota fyrirtækja. Að
innan Evrópubandalagsins séu skýrar
reglur um að launafólk skuli tryggt
vegna launamissis við gjaldþrot fyrir-
tækja. Og að í nýgengnum dómi
dómstóls bandalagsins vegna máls á
Ítalíu hafi því verið slegið föstu að
þessi ábyrgð hvfli á stjómvöldum. í
viðræðum um Evrópska efnahags-
svæðið er kveðið á um að EFTA-lönd-
in samræmi reglur sínar því sem ger-
ist f EB. Skuldbinding íslenska ríkis-
ins verði því ótvíræð, verði ísland að-
ili að EES, eins og flest bendir til, og
það sé vægast sagt undarlegt að
stjómvöld ætli nú að setja reglur sem
sennilega verður að breyta eftir
nokkra mánuði. -aá.
Bjöm Grétar Sveinsson.
Sameiginleg krafa launþega og atvinnurekenda
um lækkun nafnvaxta fær dræmar undirtektir:
Bankarnir neita
að lækka vexti
Á fúndi fulltrúa verkalýðshreyfing-
arinnar og bankanna í gær höfnuðu
bankarnir kröfu sameiginlegrar
vaxtanefndar verkalýðshreyfingar-
innar og atvinnurekenda um að
nafhvextir verði nú þegar lækkaðir í
11%. Björn Grétar Sveinsson, for-
maður Verkamannasambandsins,
segir að verkalýðshreyfingin komi
alls staðar að lokuðum dymm. Eng-
inn vilji í alvöm leggja neitt á sig til
Fjármálaráðherra segir að hætt sé að innheimta lán Atvinnutryggingasjóðs:
Friðrik gagnrýnir Þorstein
„Það er í dag ekki veríð að heimta
inn afborganir úr Atvinnutrygginga-
deild Byggðasjóðs," sagði Fríðrík
Sophusson fjármálaráðherra, á Ai-
þingi í gær, þegar Finnur Ingólfsson
(Frfl.) spurði ráðherrann um álit
hans á efnahagstillögum Þorsteins
Pálssonar sjávarútvegsráðherra.
Friðrík gagnrýndi Þorstein í Morg-
unblaðinu á sunnudaginn fyrir að
leggja fram tillögumar og sagði þær
ekki tímabærar.
Finnur spurði fjármálaráðherra
hvað hann hefði átt við þegar hann
sagði í samtali við Morgunblaðið að
menn megi ekki „þjófstarta" þegar
fjallað er um tillögur í efnahags-
málum. Með þessu vísaði Friðrik til
tillagna sem Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra hefur lagt
fram í ríkisstjórninni. Finnur
spurði ennfremur hverjar af tillög-
um Þorsteins væru ekki tímabærar
og að lokum hvenær væri að vænta
tillagna í efnahags- og atvinnumál-
um.
Friðrik sagðist telja afar mikilvægt
að tillögurnar komi frá ríkisstjórn-
inni í heild og séu vel tímasettar.
Um spurningu um hvenær tillög-
urnar yrðu birtar sagði ráðherrann:
„Tillögurnar verða birtar þegar þær
eru tilbúnar. Það er verið að safna
saman efniviði í þessar tillögur. Þar
á meðal er efniviðurinn, sem fram
hefur komið frá sjávarútvegsráð-
herra."
Finnur var ekki sáttur við þessi
svör og ítrekaði spurningar sínar og
las upp brot úr viðtali við fjármála-
ráðherra, sem birtist í Morgunblað-
inu, en þar segir hann: „Það hefur
þess vegna óheppileg áhrif ef fram
koma ótímabærar tillögur um að-
gerðir fyrir einstakar atvinnugrein-
ar, án þess að það sé liður í heildar-
aðgerðum. Það er líka afar nauð-
synlegt í þessari stöðu að ríkis-
stjórnin og aðilar vinnumarkaðar-
ins séu samferða í athöfnum sínum
og allir beri ábyrgð á niðurstöð-
unni. Skilyrði þess að slíkt sé hægt,
er að menn þjófstarti ekki.“
Friðrik sagði að hann þyrfti ekki
að útskýra þessi ummæli, þau
skýrðu sig sjálf. Hann sagði að efna-
hagstillögur ríkisstjómarinnar
yrðu birtar fyrir miðjan þennan
mánuð.
- EÓ
Kona í Rofabæ
tilkynnti um:
„Dautt
óargadýr
á gólfinu"
Lögreglan í Reykjavík var í
gærmorgun kvödd að húsi í
Rofabæ. Tilkynningin kom
frf konu og var á þá leið að
um væri að ræða dautt óarga-
dýr sem lægl á gólftnu, og
þyrði konan ekki fyrir sitt
liða Uf að koma nálægt dýr-
inu og óskaði eftir að lögregl-
an fjarlægði óargadýríð. Þeg-
ar lögreglan kom á staðinn,
kom í ijós að um mús var að
ræða og tók lögreglan mús-
ina t sína vörslu. -PS
Lítið veiðist af síld og hefur söltun á sama tíma ekki verið jafn lítil í langan tíma:
Sfldarsöltunin ekki
verið minni frá ’75
Að kvöldi Iaugardagsins 30. nóv-
ember hafði verið saltað í 47.639
tunnur á yfirstandandi vertíð, þar
af 12.604 tunnur af flökum. Sfld
hefur verið söltuð á 29 söltunar-
stöðvum á 17 stöðum á landinu, en
mest hefur veríð saltað á Horaa-
flrði.
Síldarsöltun hefur á sama tíma
aldrei verið minni, síðan síldveiðar
hófust að nýju árið 1975. Það
minnsta, sem saltað hefur verið á
Eldur í Hásteini í Þorlákshafnarhöfn:
Kviknaói í einangrun
Eldur kom upp í Hásteini, 113
tonna bát frá Þorlákshöfn, þar sem
hann lá við bryggju í heimahöfn í
gærmorgun. Tilkynnt var um eldinn
um níuleytið. Verið var að vinna við
logskurð og mun hafa hrokkið neisti
frá logskurðartækjum í einangrun,
sem hafði verið rifin niður. -PS
sama tíma, eru um 82.000 tunnur.
Undanfarnar 3-4 vikur hafa sfld-
veiðar gengið mjög illa, eftir þó
þokkalega byrjun. Ibyrjun síðustu
viku höfðu veiðst 37.000 tonn af
þeim 110.000 tonnum, sem leyft er
að veiða á þessari vertíð. í síðustu
viku höfðu 42 bátar hafið sfldveiðar
og þar af 14 loðnubátar, en alls hafa
88 bátar sfldveiðikvóta, en vitað er
til að allmargir hafi framselt kvóta
sinn.
Af einstökum söltunarstöðvum
hefur Pólarsfld á Fáskrúðsfirði salt-
að mest eða 7395 tunnur. Næst er
Fiskimjölsverksmiðja Homafjarðar
hf. með 4351 tunnu. -PS
að greiða fyrir gerð nýrra kjara-
samninga.
Fulltrúar vaxtanefndarinnar hafa
átt nokkra fundi með fulltrúum
bankanna síðustu daga. Bjöm Grét-
ar sagði að verkalýðshreyfingin hefði
krafist þess á síðasta fundi með full-
trúum bankanna að fá svar á fundin-
um, sem var haldinn í gær, við kröf-
unni um lækkun nafnvaxta niður í
11%. Svar bankanna var að þeir
væm ekki tilbúnir til að lækka vexti,
nema með þeim aðferðum sem þeir
hafa mótað sjálfir.
Verkalýðshreyfingin hugsaði sér að
eftir að nafnvaxtalækkun hefði kom-
ið til framkvæmda, myndu bankam-
ir snúa sér að því að lækka raunvexti
í samvinnu við ríkisvaldið og aðila
vinnumarkaðarins. Eftir þetta svar
er óvíst um framhald viðræðnanna.
„Við emm mjög óánægðir með
þetta svar og lítum svo á að bankam-
ir séu að hafna þeirri kröfu sem
þjóðfélagið í heild hefur verið að
öskra á," sagði Bjöm Grétar. „Það
virðist ekki vera fyrir hendi raun-
verulegur vilji til að taka á þessum
málum. Við í verkalýðshreyfingunni
emm búnir að gera tilraunir til að
fara allar leiðir sem koma í veg fyrir
verðbólgusprengingu, en mér sýnist
bara að menn vilji ekki ganga til
þessa leiks með alvöru."
Verkalýðshreyfingin hefúr óskað
eftir svari frá Seðlabankanum um
möguleika á „handleiðslu" við að ná
niður raunvöxtum. Svar átti að ber-
ast í fyrradag, en ekkert svar hefur
enn borist.
Björn Grétar sagðist óttast að fram-
undan séu átök, ef verkalýðshreyf-
ingin heldur áfram að koma að lok-
uðum dymm. Hann sagði að verka-
lýðshreyfingin hafi í allt haust reynt
að fá menn f alvöru viðræður. Einu
jákvæðu viðbrögðin, sem kalla
mætti því nafni, hafi komið frá sjáv-
arútvegsráðherra. -EÓ
Innbrot í
Svein bakara
Brotist var inn í verslun Sveins
bakara á Laugavegi 20 í gær-
morgun. Tilkynnt var um inn-
brotið klukkan rúmlega sjö. Þar
hafði hurð verið sparkað upp og
þaðan stolið 50.000 kr.
Rannsóknarlögreglan hefur
málið til meðferðar.
-PS