Tíminn - 04.12.1991, Page 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 4. desember 1991
Kristín Sveinsdóttir
frá Viðfirði
Fædd 18. febrúar 1905
Dáin 23. nóvember 1991
Tengdamóðir mín, Kristín Sveins-
dóttir, er látin, hátt á níræðisaldri.
Á slíkri stundu streyma um í huga
mínum allar þær góðu minningar
sem ég á um þessa einstaklega góðu
konu.
Hún var vel greind kona sem ég leit
upp til, og hafði hún einstaka hæfi-
leika til þess að Iáta manni Iíða vel
með sínu blíða, létta viðmóti og
hlýju, sem hún átti í ríkum mæli að
miðla skyldfólki sínu og vinum.
Það breytir þó engu um það að
eldri kynslóðir hverfa af sjónarsvið-
inu og nýjar taka við. Þannig hefur
það verið og mun áfram verða. Vera
okkar hvers og eins hér á jörð er
misjafnlega löng. Því ræður sá, sem
ofar öllu er hafinn, og hans dómi
verður ekki áfrýjað.
Þann 23. nóv. s.l. var hún kölluð
burt úr okkar hópi, sem enn njótum
jarðneska lífsins.
Kristín andaðist á heimili sínu,
Kaplaskjólsvegi 51, Reykjavík.
Kallið bar mjög snöggt að, því dag-
inn áður hugsaði hún um öll sín
heimilisstörf, eins og venjulega;
sleppti aldrei verki úr hendi, þó
heilsa og starfskraftar væru farnir að
dvína.
Kristín Sveinsdóttir frá Viðfirði,
Suður-Múlasýslu, var fædd þar 18.
febrúar 1905. Foreldrar hennarvoru
hjónin Ólöf Þórarinsdóttir, Sveins-
sonar bónda Randversstöðum, og
Sveinn Bjarnason bóndi í Viðfirði,
Sveinssonar bónda í Viðfirði. Ólöf
var seinni kona hans.
Kristín var þriðja í röð átta systkina
sem öll eru látin nema yngsta systir-
in Anna. Hún er gift Guðbjarti Guð-
mundssyni og búa þau í Reykjavík.
Kristín ólst upp í foreldrahúsum,
var fljótt dugleg og tápmikil og tók
þátt í öllum verkum sem til féllu á
mannmörgu menningarheimili, þar
sem allt þurfti að vinna heima, til að
fæða og klæða stóran barnahóp. Þá
kom fljótt í ljós hvað hún strax á
unga aldri var lagin við að sníða og
sauma. 13 ára gömul var hún farin
að búa til föt á yngri systkini sín og
fórst það svo vel úr hendi að eftir var
tekið.
En fljótlega fór hún að leita sér
menntunar á því sviði sem hún
hafði áhuga á.
Til Reykjavíkur fór hún 17 ára
gömul til þess að læra kvenfata-
saum. Námið þar var henni leikur
einn, bæði vegna góðs undirbúnings
móður sinnar, sem var lærð í karl-
mannafatasaumi, og eins vegna þess
hvað hún var lagin og hafði frábær-
an smekk fyrir því sem hún var að
vinna að. Hugur og hönd störfuðu
vel saman.
Hún lauk námi á skömmum tíma
og fékk þann vitnisburð að vera talin
einstaklega vandvirk og dugleg. Allt
lék í höndum hennar. Það kom sér
líka vel á seinni árum; sneið hún allt
og saumaði á börn sín og reyndar
fyrir marga fleiri, þar á meðal barna-
bömin, eftir því sem með þurfti,
fram á síðustu ár.
Mörg voru tískublöðin sem hún
keypti til þess að geta fylgst með
breytingu á klæðnaði og til þess að
geta gert fjölskyldu sinni, skylduliði
og vinum til hæfis. Alltaif tókst
henni að leysa úr vanda þeirra sem
til hennar leituðu. Hún brást aldrei
og taldi aldrei eftir sér þó mikill
hluti næturinnar færi í að hjálpa
öðrum. Ekki lét Kristín það nægja
að ljúka námi í kvenfatasaumi; fljót-
lega eftir að hún lauk því, fór hún í
Kvennaskóla Reykjavíkur og lauk
þar námi hjá Ingibjörgu H. Bjarna-
son skólastjóra, með góðum vitnis-
burði, enda af greindu fólki komin í
ættir fram.
Eftir það setti hún upp saumastofu
Svik og njósnir
Ný bók eftir Jack Higgins er komin
út hjá Hörpuútgáfunni. Á síðasta ári
kom út eftir sama höfund bókin
Dauöadómur, sem varð mikil sölubók.
Á bókarkápu segir m.a.:
Bandamenn eru í óða önn að undir-
búa innrásina á meginland Evrópu.
Þeim er mikið í mun að blekkja
andstæðingana, láta þá búast við
innrás á öðrum stað en fyrirhugað
var. Njósnarar eru sendir yfir
Ermarsund. En fljótlega kemur í Ijós
að ekki er allt sem sýnist og maðkar í
mysunni hjá njósnaforingjum
bandamanna, sem víla ekki fyrir sér
að senda fólk í ldæmar á Gestapó ef
það þjónar „æðri" markmiðum.
Svik og njósnir er 224 bls. Prentuð og
bundin í Prentsmiðjunni Odda hf.
Þýðinguna gerði Gissur Ó. Erlings-
son. Káputeikning er eftir Kristján
Jóhannsson.
Landsbyegðar-
ÞJÓNUSTA
fyrirfólk, stofnanir og
fyrirtæki á landsbyggðinni.
Pöntum varahluti og vörur.
Samningsgerð, tilboð í
flutninga.
Lögfræðiþjónusta, kaup og
sala bifreiða og húsnæðis.
Okkur er ekkert óviðkomandi,
sem getur léttfólki störfin.
LANDSBYGGÐ HF
Ármúla 5-108 Reykjavík
Símar 91-677585 & 91-677586
Box 8285
Fax 91-677568 • 128 Reykjavík
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNlb ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍI.A ERLENDIS
interRent
Europcar
á Neskaupstað, sem hún vann við
þangað til hún fór að búa.
Árið 1928 giftist Kristín Haraldi Jó-
hannessyni vélstjóra frá Seyðisfirði.
Bjuggu þau íyrstu árin á Neskaup-
stað og síðan um árabil á Seyðisfirði,
þar sem Haraldur stundaði sjósókn
á fyrstu árum sínum eftir að þau
fluttu þangað, en tók svo að sér vél-
gæslu við rafstöð Seyðisfjarðar í
Fjarðarseli.
Frá Seyðisfirði fluttu þau í Kópavog
1944 og byggðu sér þar íbúðarhús
sem þau bjuggu í þar til þau slitu
samvistir 1960.
Kristín og Haraldur áttu 9 börn,
sem eru:
Elín Sveindís, magister í stjórn-
málafræði, gift Leon Daniel Wof-
ford, lögfræðingi og verkfræðingi.
Guðríður, magister í hjúkrunar-
fræði, gift Joseph N. Matzkiw, mag-
ister í viðskiptafræði. Þær búa báðar
í Bandaríkjunum og er Elín elst af
systkinunum, en Guðríður sú
yngsta þeirra.
Ólöf Ingibjörg, húsmóðir í Laugar-
dælum, gift undirrituðum.
Óli Andri, bóndi í Nýjabæ, giftur
Helgu Hermannsdóttur.
Hreinn, vélstjóri, kennari við Vél-
skóla íslands, er látinn. Kona hans
var Ásta Jónsdóttir, búsett í Kópa-
vogi.
Þórfríður Soffía, húsmóðir í Laug-
ardælum, gift Sigurmundi Guð-
björnssyni, bústjóra nautauppeldis-
stöðvar Búnaðarféiags íslands á
Laugardælum.
Rósa, húsmóðir í Laugardælum,
gift Jóni Ólafssyni frjótækni.
Guðrún Elísabet, sjúkraliði,
Reykjavík.
Jóhannes, trésmiðameistari,
Grindavík, giftur Herborgu Jóns-
dóttur.
Barnabörnin eru 43 og barna-
barnabörnin 64. Fjölskyldan var því
orðin stór, en Kristín gíeymdi aldrei
neinum og þótti ákaflega vænt um
þau öll.
Árið 1960 eignaðist Kristín íbúð
sína á Kaplaskjólsvegi 51; hófst þá
nýr þáttur í lífi hennar. Börnin upp-
komin og farin að heiman og hún
fór að vinna úti.
Hún starfaði við fatasaum hjá Föt
h/f á Hverfisgötu um árabil, þar til
að það fyrirtæki var lagt niður, en
hún var þá komin á eftirlaunaaldur.
Hjá því fýrirtæki vann hún af þeirri
trúmennsku og vandvirkni sem
henni var svo eiginleg. Hef ég þessi
ummæli eftir einum verkstjóra sem
þar starfaði á sama tíma og hún.
Eftir að Kristín fluttist á Kapla-
skjólsveginn hófst hún handa við að
byggja upp einstaklega vistlegt og
smekklegt heimili, þar sem allir
undu sér vel með henni og öllum
fallegu mununum sem hún hafði
unnið. Voru þar allir veggir klæddir
listaverkum, saumuðum af henni
sjálfri, borð og stólar, ásamt góðum
og þægilegum húsmunum sem hún
var natin við að útvega sér þegar
hagurinn batnaði.
í húsakynnum hennar var oft glatt
á hjalla þegar börnin hennar,
tengdaböm og aðrir ættingjar og
vinir heimsóttu hana. Var hún þá
gjaman gamansöm og glettin, og
hló gjarnan hæst þegar hún fékk
hnittin og góð tilsvör. Vildi hún allt-
af hafa léttleika og glaðværð í kring-
um sig og undi sér þá best.
Kristín var þó alvörugefin mann-
eskja, sem tók nærri sér óhöpp og
ófarir annarra. Hún var mjög trú-
rækin og las mikið af bókum um
kristindóminn og dulrænar bækur.
Óefað hefúr það mótað líf hennar,
þar sem öll störf vom unnin á þann
hátt einan sem hún kunni, af einurð
og samviskusemi. í vikunni áður en
hún lést hafði hún keypt sér biblí-
una með stærra letri, til þess að sjá
betur þegar sjónin dapraðist.
Blóm skipuðu stóran þátt á heimili
hennar; þau vom mörg og falleg og
svo vel hugsaði hún um þau öll, að
þau vom ævinlega að blómstra árið
um kring.
Kristín var ein af þeim merku kon-
um þessa lands sem lokið hefur
miklu lífsstarfi, með því ala upp
mörg og mannvænleg börn, og taka
þátt í uppbyggingu og framfömm
aldamótakynslóðarinnar, sem talið
er að séu þær stórstígustu sem þjóð-
in hefur lifað í þessu landi.
Allir, sem kynntust Kristínu, em
þakklátir fyrir að hafa átt kost á því
að kynnast henni og lífsviðhorfum
hennar. Þó hún hafi kvatt okkur, þá
lifir lífsstarf hennar um ókomin ár
og hvetur okkur til að leggja okkur
fram til góðra verka af trúmennsku
og vandvirkni.
Blessuð sé minning hennar.
Þórarinn Sigurjónsson
Marteinn Jóhannsson
Bakkakoti, Meðallandi
lést á Vífilsstaöaspítala mánudaginn 2. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðrún Jóhannsdóttir
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Menntamálaráöuneytið óskar eftir að taka á leigu 250-
350 m2 iðnaðarhúsnæði fyrir Iðnskólann i Reykjavík.
Tilboð sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 15. des-
ember næstkomandi.
Menntamálaráðuneytiö
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka i
Reykjavík 29. nóvember til 5. desember er í
Garðsapóteki og Lyfjabúðlnnl Iðunni. Það
apótek sem fyrr er nefnt annast eltt vörsl-
una frá kl. 22.00 að kvöldl til kl. 9.00 aö
morgni virka daga en kl. 22.00 á sunnudög-
um. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjón-
ustu eru gefnar i síma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátiðum. Sim-
svari 681041.
Hafnarfjörðun Hafnarljarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartima búða. Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið í þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tímum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar í
sima 22445.
Apótek Keflavíkur: Opið virka daga frá k.
9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al-
mennafridaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá
kl. 8.00-18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opiö er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga
til kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opið rúmhelga daga
kl. 9.00-18.30, en iaugardaga kl. 11.00-14.00.
Ainæmisvandinn. Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styðja smitaða og sjúka
og aöstandendur þeirra, simi 28586.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seitjamames og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavikur
alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar-
dögum og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Seltjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá
sunnudögum. Vitjanabeiðnir, simaráðleggingar
og tímapantanir i síma 21230. Borgarspitallnn
vakt ftá kl. 08-17 alla virka daga fyrir fölk sem
ekki hefúr heimilislækni eða nær ekki til hans
(sími 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa-
deild) sinnirslösuðum og skyndiveikum allan sól-
artiringinn (sími 81200). Nánari upplýsingar um
lyflabúðir og læknaþjónustu emgefnar í sím-
svara 18888.
Ónæmisaögerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavikur á
þriðjudögum Id. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskirteini.
Garðabær: Heilsugæslustöðin Garðailöt 16-18
er opin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er I
sima 51100.
Hafnarflörðun Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, simi 53722. Læknavakt simi 51100.
Kópavogur: Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavik: Neyöarþjónusta er allan sólarhringinn
á Heilsugæslustöð Suðumesja. Sími: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I
sálfræðilegum efnum. Sfmi 687075.
Landspítalinn: Aila daga kl. 15 til 16 og kl. 19
til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl.
15-16. Heimsóknartími fyrir feður kl. 19.30-
20.30. Barnaspitali Hringsins: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunarlækningadeild Landspital-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu-
lagi. - Landakotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl.
16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17.
Heimsóknartimi annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. - Borgarspítalinn f Fossvogi: Mánu-
daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir
samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum
kl. 15-18.
Hafnarbúðir: Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-19.30. - Hellsuvemdarstöðin: Kl. 14 til
kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftali:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl.
19.30. - Flókadoild: Alla daga kl. 15.30 til kl.
17. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum. - Vífilsstaðaspítali: Heim-
sóknartími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. -
SL Jósepsspítali Hafnarfiröi: Alla daga kl.
15-16 00 19-19.30.
Sunnuhlíð hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartlmi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavikurlæknishéraðs og
heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar-
hringinn. Simi 14000. Keflavík-sjúkrahúsið:
Heimsóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30.
Um helgar og á hátiðum: Kl. 15.00-16.00 og
19.00-19.30. Akureyri - sjúkrahúsið: Heim-
sóknartími alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-
20.00. Á bamadeild og hjúkrunardeild aldraöra
Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusimi frá
kl. 22.00- 8.00, sími 22209. Sjúkrahús Akra-
ness: Heimsóknarlími Sjúkrahúss Akraness er
alla daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavík: Neyðarsimi lögreglunnar er 11166
og 000.
Seltjamames: Lögreglan simi 611166,
slökkviliö og sjúkrabifreið simi 11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 412Ö0, slökkviliö
og sjúkrabifreið sími 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvi-
lið og sjúkrabifreið sími 51100.
Keflavik: Lögreglan simi 15500, slökkvilið og
sjúkrabill sími 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar: Lögreglan, sími 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsið simi
11955.
Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 22222.
Isafjörður: Lögreglan simi 4222, slökkvilið simi
3300, brunasimi og sjúkrabifreið simi 3333.