Tíminn - 04.12.1991, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hatnorhusinij v Tryggvcgotu.
■S 28822
AUÐV Suðurland Öðruvísi bílasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR • VARA- HLUTIR. ITAÐ sbraut 12
$8
MYND HJÁ OKKUR - BlLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225
MIÐVIKUDAGUR 4. DES. 1991
Rannsókn leiðir ekki í Ijós að dregið hafi úr banaslysum á sjó með árunum:
Um fjórðungur drukknaðra
sjómanna aðeins 20-24 ára
„Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að þrátt fyrir átak í
slysavömum hefur dauðaslysum á sjó, þar á meðal drukkn-
unum, ekki fækkað svo óyggjandi sé.“ Þetta er í meginatrið-
um niðurstaða rannsóknar á dauðaslysum sjómanna 1966-
1986, sem Vilhjálmur Rafnsson, læknir Vinnueftirlitsins,
og Hólmfríður Gunnarsdóttir hjúkrunarfærðingur gerðu og
greina frá í Læknablaðinu. Þau segja hættu á banaslysum og
drukknunum meiri meðal íslenskra sjómanna heldur en
kemur fram í nýjustu rannsóknum meðal fískimanna er-
lendis. Rannsóknin sýnir m.a. að um fjórðungur þeirra sjó-
manna, sem drukknað hafa á þessum tveim áratugum, voru
aðeins 20-24 ára að aldri.
Rannsóknin á dauöaslysum sjó-
manna nær til þeirra, sem
greiddu iðgjöld til Lífeyrissjóðs
sjómanna á árunum 1966 til
1986, sem að miklum meirihluta
eru fiskimenn. Sérstaklega var þó
tímabilið eftir 1970 athugað, því
að það ár bættust bátasjómenn í
lífeyrissjóðinn, sem tvöfaldaði
fjölda sjóðfélaga (úr um 3 þús.
upp í 6 þús. manns), en eftir það
hafa ekki orðið grundvallarbreyt-
ingar á þátttöku í sjóðnum.
Slysin fæst 1977-
1982
Dánartölur voru reiknaðar út
hlutfallslega miðað viö 100 þús.
manns á ári. Þær voru hæstar á
árunum fyrir 1970 (þ.e. áður en
bátasjómenn gengu í lífeyrissjóð-
inn), en hins vegar áberandi
lægstar á tímabilinu 1977- 1981.
Dánarhlutfallið var tæplega 90 af
hverjum 100.000 að meðaltali
síðustu fimm árin (1982-86), eða
aðeins hærra heldur en að meðal-
tali yfir allt þetta tuttugu ára
tímabil. Raunar var síðasta árið
sem rannsóknin náði til, 1986,
< 19 20-24 25-2930-34 35-3940-44 45-49 50- 54 > 55
Aldursskipting drukknaöra sjómanna þá tvö
áratugi sem rannsóknin náði til, sýnir að lang-
samlega flestir þeirra, eða um fjórðungur,
voru aðeins 20-24 ára að aldri.
Fjöldi dauðaslysa á sjó reiknaður sem hlutfall
af 100 þús. manns á ári, bendir ekki til þess að
slysum hafi farið fækkandi með árunum.
hlutfallslega mesta slysaárið allt
frá 1969.
Stór hluti banaslysa á sjó eru
drukknanir. „Ekki virðist draga
úr drukknunum á sjó meðal sjó-
manna eftir því sem árin líða,“
segir m.a. í niðurstöðum. Fæstir
drukknuðu hlutfallslega á árun-
um 1977-1981. En tölur voru
hins vegar svipaðar fyrir árin
1972-76 eins og síðustu fimm ár
rannsóknartímabilsins, 1982-86.
Rúmlega fjórðungur allra þeirra,
sem drukknuðu, var á aldrinum
20-24 ára, og alls rúmlega 60% á
aldrinum 20-34 ára. Þetta stafar
þó af því hve mikill meirihluti
sjómanna er á þessum aldri. Því
þegar tekið er tillit til fjölda sjó-
manna í hverjum aldurshópi,
kemur í ljós að fjöldi drukknaðra
er hlutfallslega mestur meðal sjó-
manna á aldrinum 45-54 ára.
Vitnað er m.a. til nýlegrar kanad-
ískrar rannsóknar, sem gerð var á
svipaðan hátt og náði frá 1975 til
1983. Niðurstöður hennar virðast
benda til að hlutfallslega hátt í
helmingi færri fiskimenn hafi far-
ist í sjóslysum við Atlantshafs-
strönd Kanada heldur en á ís-
landsmiðum.
- HEI
Fjórir leðurjakkaklæddir menn rændu Staldrið.
Elsa Kristjánsdóttir, afgreiðslukona í Staldrinu:
„Maður er hörku-
tól á meðan, en
nötrar á eftir“
.Auðvitað verður maður skelkaður. Ég lenti nú í því að þrasa við
þessa menn og var ekkert nema hörkutól á meðan, en svo nötrar
maður á eftir. Þeir hótuðu okkur ekki. Einn þeirra lamdi í borðið,
en þeir voru ekki vopnaðir" sagði Elsa Kristjánsdóttir, afgreiðslu-
kona í Staldrinu, söluturni við Stekkjarbakka, en hún og sam-
starfskonur hennar tvær urðu fyrir því óláni að vera rændar af fjór-
um ieðurjakkaklæddum mönnum um hábjartan daginn eða um
klukkan 14.00 í gær. Þær náðu niður númeri flóttabifreiðarinnar
og náðust sökudólgamir skömmu síðar.
„Það komu (jórir menn inn í sölu-
turninn, sem er í vesturendanum,
og fengu góða afgreiðslu, eins og við
var að búast. Þetta voru leðurjakka-
töffarar á aldrinum 20 til 25 ára. Eft-
ir að hafa afgreitt þá förum við að af-
greiða í bílalúguna og erum þrjár að
afgreiða. Þá gerir einn fjórmenning-
anna sér lítið fyrir og fer í einn pen-
ingakassann og tekur peninga úr
honum. Einn viðskiptavinurinn,
sem beið í bfl við bflalúguna, tók eft-
ir því og lét okkur vita. Ég gekk að
þeim og sagðist vilja fá þann, sem
tók peningana, með mér til að fá
staðfest hjá þeim, sem sá þjófnað-
inn, að um réttan mann væri að
ræða. Það vildu þeir ekki, mölduðu í
móinn og börðu í borðið. Við það
hringdum við í lögregluna og flýðu
þeir þá af hólmi. Við vorum snöggar
að taka niður númerið á bflnum og
létum elta þá uppi. Skömmu síðar
kom lögreglan aftur við hérna og þá
sáum við að þeir höfðu einn fjór-
menninganna handjárnaðan í bfln-
um. Við erum alveg heilar heilsu,
nema hvað taugarnar eru dálítir úr
lagi,“ sagði Elsa Kristjánsdóttir, af-
greiðslukona í Staldrinu.
Auður Jónsdóttir, ein þeirra
þriggja afgreiðslukvenna sem
voru við störf í Staldrinu, þegar
ránið átti sér stað. Auður
stendur hér við kassa þann
sem fjórmenningarnir rændu.
Tímamynd Árni Bjarna
Eins og áður sagði, fór ránið fram
um hábjartan daginn, en ekki fékkst
uppgefið hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins um hve háar upphæðir var
að ræða.
-PS
m
I vinnurými með tveimur eða fleiri starfsmönnum
eru tóbaksreykingar lögum samkvæmt óheimilar
nema eftir samkomulagi starfsmanna
og vinnuveitenda!
TÓBAKSVARNANEFND