Tíminn - 11.12.1991, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NtJTÍMA FLUTNINGAR
Hatnorhusinu v Tryggvcgotu
■S 28822
Lausnin er: Enzymnl
Nýtt í Evrópu
-•£55-
EUQO-HAIR
á Islandi
/ 'W
I Æ BEngin hárígræðsla
aEngin gerfihár
-jmF "Engin lytjameðferð
■ Einungis tímabundin notkun
Eigió hár meó hjálp lífefna-orku
091-676331e.ki.t6.oo
Tímiini
MIÐVIKUDAGUR 11. DES. 1991
Lögreglan og Bifreiðaskoðun að leita uppi óskoðaða bíla:
Klippt af bíl sem
búið var að skoða
„Það er ýtnislegt sem þeir eiga að
huga að áður en þeir klippa af bfl-
um,“ sagði Karl Ragnars forstjóri
Bifreiðaskoðunar íslands í gær
þegar Tíminn spurði hann eftir
hverju þeir menn fara sem klippa
númerin af óskoðuðum bflum, en í
fyrradag voru númer fjarlægð af bfl
f Reykjavík sem var fullkomlega
löglegur.
Karl sagði að í fyrsta lagi væri
skoðunarmiðinn athugaður. Ef
hann benti til að bíll væri óskoðað-
ur þá ættu menn að fletta upp í bif-
reiðaskrá og athuga hvort færð haft
verið í hana skoðun á viökomandi
bfl. Ef svo væri ekki gæti lögreglan
klippt númerin af bflnum, en til
þess nær valdssvið starfsmanna Bif-
reiðaskoðunar ekki.
Bfllinn löglegi sem klippt var af í
fyrradag hefur skrásetningamúmer
sem endar á tölunni 2 og á því að
skoðast í febrúarmánuði. Hann var
skoðaður síðast í janúar á þessu ári
en þá vildi svo illa til að Bifreiða-
skoðun átti enga skoðunarmiða.
Eiganda bflsins var sagt að hann
gæti komið síðar til að fá réttan
miða. Af því varð hins vegar ekki.
Eigandinn hringdi í Bifreiðaskoð-
un í gær og vildi fá númerin aftur,
en var þá sagt að gamli skoðunar-
miðinn hefði villt um fyrir lögreglu
og eftirlitsmönnum. Búið væri að
ganga úr skugga um að bfllinn
hefði verið skoðaður og gæti eig-
andinn sótt númerin eða látið draga
bflinn þangað sem númerin væru
— að bækistöð Bifreiðaskoðunar
íslands.
„Við munum að sjálfsögðu greiða
úr málum bfleigandans hafi þarna
orðið mistök og gera allt til þess,
eins fljótt og hægt er,“ sagði Karl
Ragnars við Tímann.
— En er til of mikils mælst að af-
klippimenn komi sjálfir með núm-
erin? Karl Ragnars:
„Það eru margir hér við afgreiðslu
mála og ég hefði kosið það að boðist
hefði verið til að koma með númer-
in til bfleigandans aftur og setja þau
á bflinn," sagði hann.
í gærkvöldi höfðu starfsmenn Bif-
reiðaskoðunar þegar komið með
númerin og skrúfað þau á bflinn og
er eigandi hans því aitur orðinn ak-
andi.
—sá
Lán Atv.tr.sjóös
Rfldsstjómin ákvað á fundi sínum í
gær að framlengja lán Atvinnu-
tryggingasjóðs um tvö ár. Þetta var
gert að tillögu Þorsteins Pálssonar,
sjávarútvegsráðherra. Þessi aðgerð
kemur til með að kosta ríkissjóð
300-400 milljónir.
Samkvæmt lögum verða forsætis-
ráðherra og fjármálaráðherra að
samþykkja að framlengja lánum At-
vinnutryggingasjóðs. Þetta hafa þeir
nú gert.
Framlenging lána Atvinnutrygg-
ingasjóðs var ein af sjö tillögum sem
Þorsteinn lagði fyrir ríkisstjórnina
fyrir síðustu mánaðamót. Tvær
þessara tillagna hafa nú verið sam-
þykktar, þ.e. að stöðva greiðslur í
Verðjöfnunarsjóð og frysta lán At-
vinnutryggingasjóðs í tvö ár. Þor-
steinn sagði í gær að hann væri
ánægður með þessa niðurstöðu.
Hann sagðist vona að með þeim að-
gerðum sem ríkisstjórnin væri nú
að grípa til í ríkisfjármálum næðist
að lækka vexti. Um afdrif annarra til-
lagna sinna sagði Þorsteinn að Iík-
lega myndi taka lengri tíma að
lækka aðstöðugjaldið en hann hefði
kosið, ekki síst nú eftir að búið væri
að taka ákvörðun um að færa 700
milljón króna útgjöld frá ríkinu yfir
til sveitarfélaganna. -EÓ
Jóhannes Gunnarsson um niðurskurð á framlagi ríkisins til
Neytendasamtakanna:
Alls ekkert að marka
stefnu stjórnarinnar?
Aðstandendur myndbandsins, Helgi M. Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags íslands og Sigmar B. Hauksson. Tlmamynd/Áml Bjama.
Vélstjórafélag íslands hefur látið gera:
Myndband um öryggi
vélstjóra í vinnu
„Maður hefði nú haldið að þegar
skera á niður á Verðlagsstofnun og
þá fyrst og fremst í verðlagseftirliti
hefði veríð ástæða til að efna Neyt-
endasamtökin en það á að skera
niður á báðum stöðum,“ segir Jó-
hannes Cunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna.
í síðustu tillögum ríkisstjórnar-
innar um aðgerðir í fjármálum rík-
isins er staðfest það sem fram var
komið að framlag til Neytendasam-
takanna verður skorið niður úr
fimm milljónum í eina og hálfa.
Um leið er stöðugildum á Verðlags-
stofnun fækkað um fimm, úr 31 og
hálfu í 28 og hálft. Það bitnar fyrst
og fremst á verðlagseftirliti.
„Þetta er í raun furðulegt og við
héldum lengi vel að þetta væru ein-
hver mistök. Nú hefur annað því
miður komið á daginn. Neytenda-
málin eru tekin út úr og skert sér-
staklega. Þetta takmarkar alla til
verðlagseftirlits. Það kemur okkur
mjög undarlega fyrir sjónir því að í
stefnu og starfsáætlun ríkisstjórn-
arinnar er lögð mikil áhersla á
hagsmuni neytenda. Þegar Morg-
unblaðið kynnti hana var fyrirsögn-
in „áhersla á markaöslausnir og
hagsmuni neytenda". Nú er ráðist á
hagsmuni neytenda. Jón Sigurðs-
son, viðskiptaráðherra, sagði í við-
tali við Neytendablaðið í vor, þar
segir hann orðrétt: „Enda er ég
þeirrar skoðunar að það sé betra
fyrir okkur að styrkja þessi frjálsu
félagasamtök en byggja upp stofn-
anaveldi eins gert er og í stærri
löndum. Engu að síður hefur mál-
efnum neytenda verið gert alltof
lágt undir höfði og ég vil bæta úr
því.“ Ég spyr eru þetta úrbæturnar.
Við höfum talið að það þyrfti að efla
neytendastarf. Starf okkar er að
stórum hluta til starf sem stjóm-
völd í nágrannalöndum telja eðli-
legt að ríkið reki. Þetta er fráleitt
um leið og sama ríkisstjórn ætlar
að verða aðili að Evrópsku efna-
hagssvæði sem hefur í för með sér
mjög aukið vöruúrval og gerir neyt-
andanum um leið erfiðara að sjá
markaðinn í heild sinni. Þar ættu
Neytendasamtökin að koma til liðs
við neytendur.
Þessi skerðing er í engu samræmi
við það sem ráðherrar hafa sagt,
hún er ekki í samræmi við stefnu
ríkisstjórnarinnar og hún er ekki í
samræmi við breytta tíma sem kalla
á aukið neytendastarf. Það hefur
verið viðurkennt hingað til og það
er viðurkennt í nágrannalöndum
okkar. Núverandi ríkisstjórn hefur í
reynd engan áhuga á neytendamál-
um og það eru dapurleg tíðindi,"
segir Jóhannes Gunnarsson. -aá.
Vélstjórafélag íslands hefur staðið
fyrir gerð myndbands þar sem fjallað
er um helstu hættur í vinnuum-
hverfi vélstjóra. í því sambandi má
nefna hávaða og ýmis hættuleg efni
sem vélstjóri notar við störf sín.
Kveikjan að myndbandinu var
skýrsla Vinnueftirlits ríkisins frá ár-
inu 1983, þar sem gerður var sam-
anburður á lífslíkum vélstjóra miðað
við aðra þjóðfélagsþegna. í niður-
stöðu skýrslunnar kom fram að
krabbamein og heilablóðfall eru
mun algengari meðal vélstjóra en
annarra atvinnustétta.
Sigmar B. Hauksson ásamt Plús
film sáu um gerð myndbandsins.
Myndbandinu verður dreift til nokk-
urra skóla. Auk þess verður það til
sölu t.d. fyrir útgerðir. -js
Frá iðnrekendum til Verðlagsstofnunar:
Verslunin
Félag íslenskra iðnrekenda segir að
kjötvinnslustöðvar hafi Iátið undan
þrýstingi frá óformlegum samtök-
um kaupmanna um hækkun á
smásöluálagningu unninna kjöt-
vara. Ótta hafi gætt meðal kjöt-
vinnslustöðva um að verslunar-
menn taki frekar til sölu þær af-
urðir sem bera háa smásöluálagn-
ingu en lága.
í kjölfar erindis Verðlagsstofnunar
til kjötvinnslustöðva um þróun, og
að mati Verðlagsstofnunar óeðlilega
hækkun, leiðbeinandi smásölu-
þrýstir á
álagningar að undanförnu hélt Fé-
lag íslenskra iðnrekenda fund með
fulltrúum kjötvinnslustöðva og þar
kom þetta fram. FÍI þykir eðlilegt að
Verðlagsstofnun leiti skýringa hjá
verslunareigendum. Kjötvinnslu-
stöðvar hafi allan hag af því að
lækka smásöluálagningu. Það eykur
eftirspurn og bætir stöðu unninna
kjötvara í samkeppni við annað
álegg. FÍI telur hins vegar að af fyrr-
greindum ástæðum gæti reynst
örðugt að ná fram lækkun smásölu-
verðsins. -aá.
Öryrkjabandalagið gefur íbúum Langholts- og Vogahverfis jólatré:
Ljós tendruð á föstudag
Öryrkjabandalag íslands efnir
til útihátíðar föstudaginn 13.
desember kl. 17.30 við Lang-
holtskirkju. Ljós verða tendruð á
jólatré sem Öryrkjabandalagið
gefur íbúum Langholts- og Voga-
hverfis. Amþór Helgason, for-
maður öryrkjabandalags ís-
lands, segir tilganginn með úti-
hátíðinni vera þann að gera
mönnum ljóst að það býr birta
innra með hverjum einstaklingi,
menn verða einungis að þekkja
þá rofa sem þarf til þess aö
tendra þessi ljós.
Arnþór Helgason segir enn
fremur að Öiyrlgabandalagið
vilji vekja athygli á því að ýmis
sambýli fatlaðra séu staðsett í
Langholts- og Vogahverfi og sá
hópur hefur fallið mjög vel inn í
það mannlíf sem þar er lifað. ör-
yrkjabandalagiö viU jafnframt
snúa til betri vegar þeirri um-
ræðu í þjóðféiaginu, sem að und-
anförnu hefur átt sér stað um
málefni ákveðinna hópa fatlaðra.
Arnþór bendir á að vissulega
hefur ýmislegt áunnist í málefn-
um fatlaðra á undanfomum ár-
um og telur ekki rétt að beija að-
eins í brestina. Hann segir að
Öryrlqabandalagið muni væntan-
lega á næsta árí halda áfram með
ýmis konar uppákomur.
-js